Morgunblaðið - 03.07.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.07.1988, Blaðsíða 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1988 mhmn „parhu aLlta-P ab koupa ódýrustu kjótb'itana ?" hingað? HÖGNI HREKKVÍSI „Auglýsingamenningu Til Velvakanda. „Mig langar til að fítja upp á máli sem ef til vill hefur legið í lág- inni hjá þjóð vorri í alltof langan tíma og allir hafa keppst við að hlaupa í kringum eins og kettir í kringum heitan graut. Það eru hinar misvitru auglýs- ingar sem þjóðin gleypir hráar eins og ungar í hreiðri. Hver er tilgangur þeirra? Hvað kosta þær okkur neytendur? Þetta eru spumingar sem al- menningur er hættur að velta fyrir sér, illu heilli. Eg áfellist ekki auglýsingastof- umar. Þær hafa fylgt straumnum. Fólk vill, eða telur sig vilja sjá vel uppsettar, frumlegar og stórar aug- lýsingar í litum og það gengur jafn- vel svo langt, að auglýsingar em nú taldar gildur þáttur í menningu okkar. Margar af þeim auglýsinga- stofum sem nú starfa byijuðu á markaði sem var fábreyttur, máske nokkuð staðnaður. Auglýsingar vom flestar með sama sniði, fata- verslunin X auglýsir: „ Mikið úrval af nýkomnum frökkum frá Z. Gæðavara á góðu verði." eða: „ Nýlenduvömverslun Sigga Sæm. auglýsir: Grænmeti í miklu úrvali. Nýir ávextir frá Kaliforníu." Með auglýsingunum fylgdi mynd sem fylgdi lögmálum auglýsingaiðnað- arins þá, undantekningarlaust ein- ungis af vömnni sjálfri. Lögmálum þessa iðnaðar var þröngur stakkur búinn og var „auglýsingaflipp" litið homauga. En hvað gerðist svo? Með auknum innflutningi tíma- rita frá enskumælandi löndum, þ.e. Bandaríkjunum og Bretlandi fengu fyrirtæki, auglýsingastofur og al- menningur smjörþef af þeirri yndis- fagurri veraldarmynd sem birtist í þessum tímaritum. Sjónvarpið lét ekki sitt eftir liggja, erlendar aug- lýsingamyndir sýna flekklausan æskulýð dansa á rósum með vör- una, sem auglýst er, í hendi. Og íslenskur almenningur hugs- aði: Mikið væri nú gaman að vera eins og þessi í auglýsingunni. Kannski það hjálpi eitthvað að kaupa vömna. Og íslenskir verslunareigendur hugsuðu: Þetta ber árangur. Nú er lag. Því meira sem auglýsingar höfða til minnimáttarkenndar fólks þeim mun betur selst varan. Og auglýsingamenn hugsuðu: Því meiri vinna sem lögð er í auglýsingar þeim mun meira fáum við fyrir okkar snúð. Athugið að nú er ekki verið að meina að fólk hugsi þetta beinlínis, því enginn maður er eiginhags- munaseggur vitandi vits og enginn hugsar eins og fólkið í „Dallas". Þetta kemur smátt og smátt, hring- rásin viðhelst og að lokum telst það hefð. En hvað hefur gerst í raun? Auglýsingar gegna nú tveimur hlutverkum: 1. Að hækka verð vömnnar. 2. Að halda uppi tímaritum og útvarpsrásum, sem þurfa á miklu fjármagni að halda til að geta borið sig. Allt þetta lætur almenningur sér lynda og ekki furða, því sannleikur- inn liggur ekki í augum uppi. Hvaða hlutverki eiga auglýsingar að gegna? 1. 2. og 3. Að koma vömm á framfæri og fræða neytandann um eiginleika vömnnar. „Ekki annað?", spyr kannski ein- hver með vonbrigðasvip á andlitinu. Nei, ekki annað. Að vísu er rétt, að dagblöð, tíma- rit, útvarps- og sjónvarpsstöðvar byggja afkomu sína að mestu leyti á auglýsingum. En er það ekki fullmikið gjald sem við þurfum að greiða fyrir upplýsingaþjónustu, gjald sem við greiðum óafvitandi þegar við kaupum gosdrykkina, kjúklingana, morgunflögumar, kexið, hálsbindin, málninguna og skiptum við bankann okkar? Nei, það er komin tími til að við athugum okkar gang. ísland er lítið land og ekki alltof auðugt. ísland er það sem kallast lítill markaður. Bandaríkin og Bretland em „stórir markaðir". Leyfum Bandaríkja- mönnum og Bretum að gera það sem þeir telja best fyrir sinn mark- að. En við skulum ekki bleklq'a okkur sjálf með því að þykjast vera stærri en við emm. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. Búum til okkar eigin „auglýs- ingamenningu" sem hæfir okkar markaði. S. A. Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábend- ingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Víkverji skrifar Víkveiji sá, sem hér heldur á penna, horfði meira á sjónvarp en góðu hófí gegnir framan af starfsferli þess — og raunar allar götur þar til til Stöð 2 tók til starfa. Þá var komið að þeim tímamótum að geta valið og þurfa að velja á milli dagskrárefna, hafna einu, horfa á annað. Þessi staða gerir neytandann gagnrýnni á dagskrár- efnið, kröfuharðari. Hann lætur síður bjóða sér alls konar „botnfall" sem því miður er uppáþrengjandi fylgifískur sjónvarps hvarvetna í veröldinni. Þegar hér var komið sögu stóð Víkveiji sig að nýrri breytni. Það fór í vöxt að hann hafnaði dagskrár- efnum beggja sjónvarpsstöðvanna. Og niðurstaðan er sú að hann horf- ir verulega minna — á heildina litið — á tvær stöðvar nú en eina áður. Hann gefur sér meiri tíma til að lesa blöð og bækur, meiri tíma til að ræða málin við sitt heimafólk — gesti og gangandi. Samkeppni sjónvarpsstöðvanna gerði Víkveija kröfuharðari. Hann hefur nú komist að þeirri niður- stöðu, að þrátt fyrir þessa sam- keppni er dijúgur hluti sjónvarps- efnisins tæpast þess virði að eyða dýrmætum tíma í það. Sumt er raunar lítillækkandi að horfa á. En það má sum sé slökkva á fyrirbær- inu. Það er máski höfuðkosturþess. XXX Ilitlum bæklingi, „Gleymdur dag- ur“ (höfundur Georg E. Vande- man, þýðandi Gissur Ó. Erlingsson, útgefandi Bókaforlag aðventista), er fjallað um trúarlegt efni á fræði- legan, eftirtektarverðan og ein- iægan hátt. Höfundur er raunar kunnur bandarískur sjónvarpsmað- ur (stjómandi þáttanna „It is writt- en“). í lokakafla þessa bæklings, sem ber yfírskriftina „Harðstjóm múgs- ins“, er fjallað um svokallaða múg- mennsku, eftiröpunaráráttu, til- hneiginguna til að gera eins og granninn, skera sig ekki úr. „Við göngum um eins og vélmenni," seg- ir þar, „týndir í fjöldanum, skelfdir af umhugsuninni að vera öðruvísi." „Skapandi sjálfstæði" er týnt og tröllum gefíð. Orðrétt segir í bæklingnum: „Margaret Applegarth hefur skrifað hrífandi bók sem hún kallar Men As Trees Walking. Þar segir hún sögu sem er sönn en næsta ótrúleg, af Jean Henri Fabre og rannsóknum hans á sérstakri lirfu- tegund. Þessar lirfur eru sagðar ráfa um stefnulaust með margar á eftir sér sem hreyfa sig þegar sú fremsta hreyfír sig, stanza þegar hún stanz- ar og éta þegar hún étur. Furunál- ar eru aðalfæða þeirra. Dag einn gerði Fabre tilraun. Hann fyllti blómapott með furunál- um, uppáhaldsfæðu þeirra, og rað- aði lirfunum í heilan hring eftir barminum á pottinum. Og svo sann- arlega fóru þær af stað hægt í hringi á pottbarminum, hver þeirra elti þá næstu á undan. Jú, þú hefur gizkað á það. Þær héldu áfram þessu tilgangslausa hringsóli í heila viku og stönzuðu aldrei til að éta — þangað til þær gáfust upp hver eftir aðra. Og höfundurinn gefur þá mark- verðu ábendingu að landið sé fullt að göngulirfum — óhugnanlega líkar fólki — sem þið og ég þekkj- um.“ Þessi lesning er þörf áminning. Hversu mörg okkar „elta ekki fjöld- ann“ — „göngum hring eftir hring eftir röndum blómapotta hóp- mennskunnar, þangað til við gef- umst upp, örmagna . . .“? XXX Sem betur fer lifír einstaklings- hyggjan, viljinn til að móta eig- in lífsstíl, enn meðal landans, þó ekki jafn ríkulega og áður. Sá vilji þarf ekki að stangast á við sam- félagslega ábyrgð, að dómi Víkveija, eins og sumir talsmenn hópmennskunnar predika, raunar síður en svo. Það er ekki aðeins réttur okkar, heldur og skylda, að móta eigin, persónulegar skoðanir. Það samræmist ekki Islendingseðl- inu að vera göngulirfa eða vél- menni. Eða hvað? Eru fjölmiðlarnir, ekki sízt ljósvakafjölmiðlamir, máski að steypa okkur öll — smám saman — í sama mótið? Vertu þú sjálfur eða þú sjálf, ekki eftiröpun. iVlv V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.