Morgunblaðið - 07.07.1988, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 07.07.1988, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988 Félag verslunar- og skrifstofufólks kært Rúmlega þrítug kona, Sigrún Grímsdóttir, hefur kært Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri fyrir að koma í veg fyrir að hún kæmist til Reykjavíkur með flugvél Flug- leiða frá Akureyri að kvöldi 1. maí sl. Þá stóð verkfall verslun- armanna yfir og komu verkfalls- verðir þá meðal annars í veg fyrir afgreiðslu á Akureyrar- flugvelli. Þetta mun vera í fyrsta sinn hérlendis að einstaklingur kærir verkalýðsfélag, sem á í kjaradeilu. Sigrún taldi sig ekki þurfa að njóta þjónustu félaga í Félagi versl- unar- og skrifstofumanna í þessu tilviki þar sem hún var með flugmið- ann sinn í höndunum er hún kom og engan farangur meðferðis. Þrátt fyrir þetta stöðvuðu verkfallsverðir hana er hún ætlaði að ganga að vélinni. Sigrún krefst með máls- höfðuninni 100.000 króna skaða- bóta vegna kostnaðar er varð vegna lengri dvalar hennar fyrir norðan, vinnutaps, óþæginda og ærumeið- ingar þar sem myndir af atburðin- um birtust bæði í blöðum og í sjón- varpi. Jóna Steinbergsdóttir, formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri, neitaði því í samtali við Síorgunblaðið að valdi hafi verið beitt. „Það fólk, sem starfar hjá Fugleiðum á Akureyrarflugvelli og var í verkfalli þarna, sagði okkur að farþegum væri óheimilt að ganga um borð nema því aðeins að það væri bókað á vélina sem Sigrún var ekki í þessu tilviki," sagði Jóna. Eftir situr sú spuming hvort Sigrún hafi þurft að láta skrá sig í flugið og hvort umdæmisstjórinn hefði mátt sinna því. Skráningin kom hinsvegar aldrei til þar sem verk- fallsverðir hindmðu farþega í því að komast að afgreiðsluborðinu. Flugstjóri vélarinnar áleit miðann fullgildan og gaf leyfi sitt fyrir því að Sigrún gengi um borð. Þá skár- ust verkfallsverðir í leikinn og sagði Jóna að farþegaskráningar væm ekkert á vegum flugstjóranna. Jóna Steinbergsdóttir formaður félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri stöðvaði Sigrúnu Grímsdóttur á Akureyrarflugvelli á dögum verkfalls afgreiðslufólks er hún hugðist ganga um borð með farmiðann sinn i höndunum, en án bókunar. Aukna hagræðingu þarf í uppbyggingu skóla Davíðshús á Akureyri stendur lista- eða fræðimönnum til boða í 1 (llyktUíl f 1*9. ScUMStílI*fSIlGfllCl emn tii sex mánuði. senn. framhaldsskóla á Norðurlandi Davíðshús boðið lista- og fræði- mönnum til afnota Akureyrarbær býður litla íbúð í Daviðshúsi á Akureyri til af- nota fyrir fræðimenn eða lista- menn í einn til sex mánuði hverju sinni frá og með hausti 1988. Ekki er gert ráð fyrir öðm endur- gjaldi fyrir afnot af íbúðinni en að viðkomandi fræðimaður eða lista- maður kynni á einn eða annan hátt viðfangsefni sitt eftir nánara sam- komulagi hveiju sinni. íbúðin er með hliðstæðum búnaði og almennt er í sumarhúsum starfsmannafé- laga. Umsóknir um dvöl sendist til Ingólfs Ármannssonar, skóla- og menningarfulltrúa Akureyrar, sem veitir einnig nánari upplýsingar. Davíðshús stendur skammt ofan við Amtsbókasafnið á Akureyri. Það tekur um fimm mínútur að ganga þaðan í miðbæ Akureyrar. Það var áður íbúðarhús Davíðs Stefánssonar, skálds, en er nú í eigu Akureyrarbæjar. Húsið er frið- að í A- flokki. Á efri hæð hússins er safn til minningar um Davíð Stefánsson. Á neðri hæð hússins er síðan umrædd íbúð, sem áætlað er að bjóða afnot af. Samstarfsnefnd framhalds- skóla á Norðurlandi fundaði á Húsavík dagana 30. júní og 1. júlí sl. og sendi frá sér eftirfar- andi ályktun að fundi loknum: „Nefndin minnir á að við gerð ijárlagatillagna fyrir fjárhagsárið 1989 hafi skv. fyrirmælum verið gengið út frá þeim lögum sem nú hafa verið numin úr gildi. Því ber brýna nauðsyn til að endurskoða þessar tillögur með tilliti til nýrrar löggjafar, þar sem margir rekstrar- þættir skólahaldsins hafa eingöngu verið á herðum sveitarfélaganna. Þeir færast nú til ríkisins. Eigi starfsemi skólanna ekki að fara úr skorðum verður ríkið að axla alla þá ábyrgð sem sveitarfélögin ein hafa borið til þessa. Sérstakt tillit þarf að tak.. til framhaldsdeilda grunnskóla." Fundurinn ítrekar áður fram- komna samþykkt aðalfundar skóla- meistarafélagsins frá 7. og 8. júní sl. um að laun starfsfólks skólanna megi ekki lækka við gildistöku framhaldsskólalaganna. Nefndin bendir á þá erfíðleika sem skólamir standa andspænis í því að skipuleggja og halda ýmiss konar námskeið sem kjarasamning- ar stéttarfélaga kveða á urn. Nefnd- in telur að samstarf þurfi að auka milli ráðuneyta sem fara hvert um sig með einhvers konar starfs- menntun en eðlilegt sé að yfirstjóm fræðslustarfsemi í landinu heyri undir sama ráðuneyti. Fundurinn telur að við uppbygg- ingu skóla þurfi að taka tillit til þarfa þeirra byggðarlaga sem skól- unum er ætlað að þjóna. Ástæða er til að ætla að hægt sé að koma við aukinni verkaskiptingu skóla, einkum á Suðvesturlandi, sem feli í sér aukna hagræðingu fyrir landið allt. Mikilvægt er að á einum stað sé haldið uppi námsbrautum sem takmörkuð aðsókn er að. Hinsvegar sé lögð áhersla á að dreifa um landið þeim námsbrautum sem fjöl- sóttar eru. Fundurinn leggur áherslu á að ástæðulaust sé að byggja upp eða halda almenna framhaldsskóla á Stór-Reykjavíkur- svæðinu sem þjóna fyrst og fremst nemendum utan þess svæðis. Fundurinn fagnar stofnun fram- haldsskólanna á Húsavík og að Laugum og telur að hagsmunum svæðisins verði best borgið með skipulagðri verkaskiptingu þessara skóla.. Nefndin bendir á að við skipu- lagningu skyldra námsgreina iðn- fræðslunnar verði þess gætt að námsefni verði sameiginlegt sem frekast er kostur. Við skipan ein- stakra námsbrauta skuli þess gætt að fjöldi kennslustunda á viku fari ekki yfír 40. Fundurinn fagnar nýjum náms- brautum við framhaldsskólana á Norðurlandi og lýsir yfir stuðningi við stofnun fiskvinnslubrautar á Dalvík á komandi hausti. Ferðafólk á Akureyri Verzlun okkar er við göngugötuna íþessu fallega húsi (gömlu París). Við seljum fatnað á unga sem aldna og margt fleira áhugavert. Ferðafólk hefur stundum ekki ratað til okkar, þvíbendum viðágömlu París, þar erumviðtil húsa. Veriðöll velkomin, Hluti keppenda á mini-knattspyrnumótinu, sem haldið var á Akureyri um helgina. Morgunbiaðið/Rúnar Þðr Mini-knattspyrnumót: KA og Víkingur sigruðu KA sigraði í flokki A-Iiða og Víkingur sigraði í flokki B-liða í Esso-mótinu í mini-knattspyrnu sem haidið var á KA-vellinum um helgina. Alls tóku 20 lið þátt í mótinu, tíu í hvorum flokki, eða um 200 þátttakendur úr fimmta flokki. Stjaman varð í öðru sæti í A-flokki og Þór frá Akureyri hafn- aði í þriðja sætinu. í flokki B-liða varð Þór í öðru sætinu og Haukar frá Hafnarfírði í þvf þriðja. Þá fór einnig fram í tengslum við mótið keppni í „bandí“ í íþrótta- höllinni og bar A-lið KS frá Siglu- fírði sigur úr býtum þar. Víkingur lenti í öðm sæti og Afturelding frá Mosfellsbæ í því þriðja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.