Morgunblaðið - 21.07.1988, Síða 12

Morgunblaðið - 21.07.1988, Síða 12
 4- VIDSKIPn AIVINNULIF MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988 Þjónusta Pizzastöðum fjölgar m Vinsældir pizzunnar hafa vaxið gífurlega SVO virðist vera sem pizzufar- aldur geisi nú hérlendis. Veit- ingastöðum sem hafa yfir piz- zuofnum að ráða eru nú að orðn- ir nærri tuttugu i Reykjavík, og fjölgar enn. Þeir veitingahúsa- eigendur sem hafa haft pizzu á boðstólum undanfarin ár hafa blendnar tilfinningar í garð piz- zubylgjunnar. Fyrir 15 árum síðan vissu fáir íslendingar hvað pizza var. Fljót- lega eftir það var farið að selja frosnar pizzur í kjörbú^um, og Halti haninn fór að hafa pizzur á matseðli sínum. Það var svo í júlí árið 1979 sem veitingastaðurinn Homið opnaði, og var þar kominn fyrsti staðurinn sem bauð upp á pizzur að fyrirmynd svokallaðra „j)izzeria“ sem þekkjast erlendis. Arið 1980 opnaði Pizzahúsið á Grensásvegi, fyrsti skyndibitastað- urinn sem sérhæfði sig í pizzum. Ifyrri hluta níunda áratugarins var svo rólegt á pizzumarkaðnum hér- lendis, en það sama verður ekki sagt um þann markað í Banda- ríkjunum, þar sem pizzan var að ná mikilli almenningshylli. Á þess- um tíma opnaði þó veitngastaðurinn E1 Sombrero við Laugaveg, _ og Sælkerinn við Austurstræti. Árið 1986 opnaði svo ungur maður, El- ías Snorrason, lítinn pizzastað við Bragagötu, Eldsmiðjuna. Eftir þetta hafa pizzustaðimir opnað hver af öðrum, og von er á að a.m.k. þrír opni nú í haust. Þar á meðal er staður undir nafni bandarísku pizzahúsakeðjunnar Pizza Hut, sem teygir anga sína um allan heim og margir íslending- ar þekkja af ferðum sínum erlendis. „Það þarf að vinna fyrir hlutunum“ Það er Steindór Ólafsson, fyrrum hótelstjóri á Hótel Esju, sem á og ætlar að reka þennan nýja stað. „Ég get alls ekki sagt að ég kvíði fyrir því að koma inn á markaðinn," sagði hann. „Fólk hér er farið að þekkja pizzur, og veit muninn á góðu og vondu, svo að ég ætti ekki að þurfa að óttast það að koma inn á markaðinn með vöm sem er 100% að gæðum, hefur margra ára reynslu að baki á öðrum mörkuðum, og af mörgum talin sú besta í heim- inum,“ sagði hann ennfremur. Steindór sagði, að vitanlega væri ekki hægt að ganga að neinu tæki- færi sem gefnu í viðskiptum. „Það þarf að vinna fyrir hlutunum, og það er nákvæmlega það sem við fjölskyldan ætlum að gera,“ sagði Steindór að lokum. Staður hans kemur til með að taka 100. manns í sæti, og ætlunin er að opna í ágúst. En hvemig skyldi þeim veitinga- mönnum sem hafa rekið pizzastaði í einhvem tíma lítast á þessa þró- un, eru þeir uggandi yfir henni, eða telja þeir hana kannski vera piz- zugreininni í landinu í heild til fram- dráttar? Morgunblaðið hitti Elías Snorrason eiganda Eldsmiðjunnar að máli. „Mér líst ekki vel á það sem ég sé gerast á markaðnum hér í dag, það minnir nig um of á upp- ganginn og hrunið á myndbanda- leigumarkaðnum fyrir nokkrum árum. Ég er hins vegar bjartsýnn á Eldsmiðjuna sem slíka, því hún hefur skapað sér visst orðspor, sem týnist ekki svo glatt,“ sagði hann. Élías opnaði útibú frá Eldsmiðjunni í Kringlunni í fyrra, og hefur nú nýverið opnað heimsendingarþjón- ustu hinum megin við Bragagötuna. „Ákvörðunin um stækkunina var tekin í fyrra, ef ég stæði frammi fyrir henni nú mundi ég hugsa mig um tvisvar," sagði hann. „Eg hafði fylgst með því sem var að gerast í Bandaríkjunum þegar ég opnaði Eldsmiðjuna, og var viss um að þróunin gengi sama veg hér, og þegar ég opnaði staðinn sprengdi salan fljótlega allar mínar fjár- hagsáætlanir," sagði Elías að lok- um. „Sáttur við að halda mínu“ Ólafur Þór Jónsson eigandi Piz- zahússins er sammála Elíasi um að framtíðarhorfur á pizzumarkaðnum séu ekki bjartar. „Það er þó ekki samkeppnin sem ég óttast mest, hún gæti orðið til góðs,“ sagði Ólaf- ur. „Það eru aðrar ytri aðstæður sem eru breyttar, og koma til með að erfiða okkur leikinn. Þar á ég t.d. við breytt fyrirkomulag á sölu- skatti, sem reynst hefur veitinga- mönnúm óþægur ljár í þúfu, til dæmis stakk Tómas Tómasson upp Farþegar á Saga Class fá laus sæti næst sér ef kostur er. Það skapar betra hvíldar- og vinnurými. Saga Class farþegar sítja fremst í vélinní. FLUGLEIDIR. __ -fyrlrþig- * CIASS á þeirri leið að veitingamenn tækju söluskattinn og ríkið afganginn af ágóðanum, og svo sannarlega væru það góð skipti. En varðandi nýju staðina, þá býst ég við tímabund- inni minnkun á aðsókn hjá mér, það er eðlilegt að fólk vilji prófa eitt- hvað nýtt til að fá samanburð. Það verður svo bara að koma í ljós hvort ég held mínu á markaðnum. Ef svo verður, þá er ég mjög sáttur við það,“ sagði hann ennfremur. Ólafur sagði að forsenda þess að halda úti jafn víðtækum rekstri og hann ger- ir nú, sé að hafa traust og sam- viskusamt starfsfólk, en Pizzahúsið er nú á tveimur stöðum í bænum, auk þess sem Ólafur framleiðir piz- zur sem seldar eru í kjörbúðum. „Hitt er annað mál að minnkandi afkoma veldur alltaf áhyggjum í þessari grein sem öðrum," sagði Ólafur að lokum. Það var að heyra á öðrum aðilum sem til þekkja í veitingarekstri hér- lendis, að þessi fjölgun pizzastaða væri Ifklega enn eitt dæmið um hvemig íslendingum hættir um of til að hópast í þær greinar sem vel árar fyrir í það og það skiptið, og ekki væri ljóst hvaða afleiðingar þessi fjölgun hefði fyrir greinina í heild. Én það getur víst tíminn einn leitt í ljós... SIEI Hvar er hægt að fá pizzu? Eftirtaldir veitingastaðir hafa sett upp eða eru u.þ.b. að setja upp pizzu- ofn. Biggabar, Tryggvagötu 18 Duus Hús, Fischersundi E1 Sombrero, Laugavegi 73 Eldsmiðjan, Bragagötu 38a Eldsmiðjan, Kringlunni Homið, Hafnarstræti 15 Hrafninn, Skipholti 37 Ítalía, Laugavegi 11 Madonna, Rauðarárst. 27-29 Marinós pizza, Njálsgötu 26 Nes-pizza, Austurströnd 8 Pizzaeldofninn, Gerðubergi 1 Pizza Hut, Hótel Esju Pizza húsið, Grensásvegi 10 Pizza húsið, Öldugötu 29 Selbitinn, Eiðistorgi Sælkerinn, Austurstræti 22 Uppinn, Akureyri Videomeistarinn, Seljabraut 54 Ath! Ekki er víst að þessi listi sé tæm- andi yfir þá veitingastaði sem bjóða piz- zur. FARALDUR — og fjölgar enn. Pizzastöðum hefur fjölgað mjög undanfarið, Fyrirtæki Faxafrost reisir skipa- afgreiðslu íHafnarfirði NÝTT fyrirtæki, Faxafrost hf. er nú að reisa hús fyrir skipaaf- greiðslu við Suðurgarð í Hafnar- firði. Það eru ekki færri en 7 skipafélög, sem að þessu fyrir- tæki standa. Þau eru Ok hf., Jöklar hf., Skagstrendingur hf., Hrönnin hf., ísafirði, Breinholt a/s í Esbjerg, Hekla hf. og Nes- skip hf. Faxafrost mun halda uppi almennri vöruafgreiðslu. Þar verður því afgreiðsla fyrir ótollaðar innfluttar vörur. Einn- ig verða þar afgreiddar vörur til útflutnings. — Hús þetta verður 2100 fer- metrar og af því fara 1000 fermetr- ar í kæli- og frystirými, sagði Bjöm Haraldsson, stjómarformaður Faxafrosts í viðtali við viðskipta- blaðið. — Hafizt var handa um byggingu hússins í janúar sl., en fýrirhugað er að taka það í notkun eftir tvo mánuði. Þar verður almenn vöruafgreiðsla, sem verður opin hveijum sem er. í húsinu verður frystigeymsla og kæligeymsla ásamt þurrgeymslu. — Það var Skipafélagið Ok hf., sem fékk úthlutað þessari lóð, sagði Björn ennfremur, en hann er fram- kvæmdastjóri þess. — Við flytjum stykkjavöru til landsins, en ferskan og frosinn físk frá landinu. Fyrir skipafélag, sem er aðeins með eitt skip í förum milli landa, var í of mikið ráðizt að standa eitt sér und- ir svo miklu geymsluhúsnæði, svo að það var tekin sú ákvörðun að fá fleiri aðila til þátttöku og gera það að almennri skipaafgreiðslu. Morgunblaðið/Þorkell SKIPAAFGREIÐSLA — jþessu nýja húsi við Suðurgarð í Hafnarfírði verður skipaafgreiðsla Faxafrosts hf. Áformað er að taka húsið í notkun eftir tvo mánuði. Við hjá Oki hf. höfðum aðstöðu uppi á svonefndu Holti í Hafnar- fírði, en okkur þótti það bæði fyrir- hafnarsamt og kostnaðarsamt að aka vörum úr skipi þangað. Við höfðum gert út skip okkar, ísberg, í sex ár og það höfðu aukizt það mikið flutningar með því, að það var orðið ótækt að flytja vörurnar burt svo langt frá skipi. Við erum hins vegar ekki að auka við skipa- flota okkar, heldur einungis að bæta aðstöðu okkar miðað við þann rekstur, sem við þegar höfum. Það hefur engin skipaafgreiðsla verið fyrir hendi fyrir ótollaðar vör- ur, hvorki í Reykjavík né Hafnar- firði, sem er opin fyrir hvern sem er. Áðeins Eimskip og Sambandið hafa haft yfir slíkum skipaafgreiðsl- um að ráða. Fyrir frystitogara, sem hugsan- lega vildu landa í Hafnarfirði, þá verður þarna ákjósanleg aðstaða til að landa fiskinum beint úr skipi inn í frystigeymslu á bryggjunni nokkra metra frá skipinu. Það þarf þá ekki að selflytja fiskinn í misjöfnum veð- rum eða flokka hann á bryggjunni. . Með tilliti til útflutnings verður þama mjög góð aðstaða til þess að safna saman frosnum fiski, áður en þann er fluttur út. Á undanförnum árum hafa oft skapazt erfiðleikar við að koma frystivöru í geymslu sökum skorts á þar til gerðu húsrými. Úr þessu emm við að reyna að bæta með því að skapa þarna aðstöðu til að flokka vörur til útflutnings og búa um þær. L

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.