Morgunblaðið - 12.08.1988, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 1988
Persaflói:
Júgóslavi yfirmað-
ur gæslusveitanna
HaUar undan fætí
fyrir Lwin forseta
Bangkok. Reuter.
ÞEGAR félagar Sein Lwins i
sósíal’isku herforingjaklíkunni,
sem stjómað hefur Burma með
harðri hendi síðastliðin 26 ár,
kusu hann til að taka við af Ne
Win hershöfðingja var nýi valds-
maðurinn fyrir löngu orðinn
óvinsælasti maður landsins.
Óeirðir hafa mjög færst í aukana
í landinu cg beinast þær ekki
síst gegn persónu Lwins þótt
fleira hangi á spýtunni. Líklegt
er að valdatími Lwins verði
styttri en fyrirrennarans sem var
nær einráður í meira en tvo ára-
tugi.
Burmabúar, sem eru um 38 millj-
ónir talsins, hafa tekið harðstjóm
og efnahagslegri afturför í valdatíð
herforingjanna að mestu með þögn
og þolinmæði en hraðversnandi
Iífskjör undanfarin ár og matar-
skortur hafa orðið til að fylla mæl-
inn. Síðustu mánuði hafa meira en
200 manns týnt lífí í óeirðum gegn
stjóminni og sá sem stjómaði hinum
iilræmdu Lon Htein-lögreglusveit-
um, er fengu það hlutverk að berja
á mótmælendum, var enginn annar
en Sein Lwin. 41 andófsmaður
kafnaði er þeim var troðið í einn
og sama lögregluvagninn og frá-
sagnir af barsmíðum, nauðgunum
og manndrápum af hendi sveitanna
em ijölmargar. Almenningur er
ekki í vafa og varpar sökinni á
grimmdarverkunum á Sein Lwin.
Lwin, sem er 64 ára að aldri og
lauk á sínum tíma menntaskóla-
námi, tók þátt í uppreisn gegn jap-
anska hemámsliðinu er gerð var í
lok heimsstyijaldarinnar. Hann
varð óbreyttur hermaður undir
stjóm Ne Wins og pólitískur frami
hans hófst 1962 er hann lét her-
flokk sinn skjóta 20 stúdenta sem
mótmæltu valdaráni herforingjakl-
íkunnar. Síðar stjómaði hann um
hríð baráttu gegn minnihlutaþjóð-
flokkum er vildu aukið sjálfsfor-
ræði. Eftir það gegndi hann ýmsum
ráðherraembættum, var m.a. ráð-
herra innanríkismála og trúmála.
Vegur hans varð einnig mikill innan
Sósíalistaflokks Burma, BSPP, sem
byggir hugmjmdir sínar á furðulegu
samsulli af Búddisma og sósíal’isma
og leyfír ekki öðrum flokkum að
starfa. Formannsstöðuna hlaut
Lwin í júlí síðastliðnum er haldinn
var neyðarfundur þar sem Ne Win
virðist hafa verið velt úr sessi en
margir álíta þó að hann ráði enn
miklu bak við tjöldin. Skömmu síðar
var Lwin einnig kjörinn forseti
landsins.
Á fundinum í júlí lagði Ne Win
til að greidd yrðu atkvæði um það
hvort einsflokks-kerfið yrði afnum-
ið. Tillagan var felld en Lwin fékk
það vanþakkláta hlutverk að
slökkva vonameistana sem hún
hafði kveikt hjá almenningi er
krafðist lýðræðis, efnahagsumbóta
og aukins matvælaframboðs.
Burmá flutti áður út gífurlegt magn
af hrísgrjónum en getur nú ekki
brauðfætt þjóðina vegna fákænsku
og einangrunarhyggju herforingj-
anna sem lengst af hafa reynt að
afnema verslun og önnur samskipti
við aðrar þjóðir.
Fyrstu yfírlýsingar Lwins eftir
valdatökuna voru óvæntar. Hann
lofaði að endurbæta steinrunnið
efnahagskerfíð, virða mannréttindi,
auka upplýsingastreymi frá stjóm-
völdum og beijast gegn spillingu.
Erlendir stjómarerindrekar vom
mjög undrandi. „Þetta er í fyrsta
sinn sem búrmískur leiðtogi spyr
þjóðina hvers hún æski,“ sagði einn
þeirra. Gallinn var bara sá að al-
menningur virðist ekki hlusta; spor
Lwins hræða og hann nýtur einskis
trausts. Erlendir stjómarerindrekar
í landinu, sem koma heift og um-
fang mótmælaaðgerðanna mjög á
óvart, velta því nú fyrir sér hvort
Lwin muni fljótlega verða sparkað
af félögum sínum.
Sameinuðu þjóðunum. Reuter
JÚGÓSLAVNESKUR hers-
höfðingi, Slako Jovic að nafni,
hefur verið skipaður yfirmaður
friðargæslusveita Sameinuðu
þjóðanna við Persaflóa. Jovic,
sem er 58 ára að aldri, barðist á
árum síðari heimsstyrjaldarinn-
ar með frelsisveitum Jósefs Titós
gegn hersveitum nasista í Júgó-
slaviu. Ekki hafa borist fréttir
af átökum en Ali Khameini, for-
seti írans, lýst yfir því í gær að
ekki væri unnt að treysta á frið-
arvilja íraka.
Jovic verður yfírmaður friðar-
gæslusveitanna sem áformað er að
senda til Persaflóa til að fylgja eft-
ir vopnahléi í stríði írana og íraka.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hefur lagt blessun sína yfír skipun
hans og er hann væntanlegur til
New York um næstu helgi. Sendi-
menn eru þegar komnir til írans
og íraks til að undirbúa komu frið-
argæslusveitanna.
Iranir hafa ítrekað fyrri kröfur
um að írakar verði lýstir upphafs-
menn átakanna við Persaflóa og
sagði Rafsanjani, yfírmaður herafla
írana, að það kynni að „hafa alvar-
legar afleiðingar" ef ekki yrði orðið
við þessari kröfu. Vopnahléið geng-
ur í gildi 20. ágúst en ekki hafa
borist fréttir af átökum frá því Javi-
er Perez de Cuellar, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, tiltók
vopnahlésdaginn á mánudag.
Sendiherra Ástralíu er nú í Te-
heran, höfuðborg írans, og von er
á breskum sendimanni þangað.
Talið er að hann muni leggja
áherslu á að ræða örlög þriggja
Breta sem öfgamenn, hliðhollir
írönum, hafa á sínu valdi í Líban-
on. Almennt er litið svo á að ósigr-
ar á vígvöllunum að undanfömu og
vaxandi pólitísk einangrun á al-
þjóðavettvangi hafí ráðið mestu um
að íranir gengu að vopnahlésskil-
málum Sameinuðu þjóðanna.
Svíþjóð:
Lögregla
finnur vopn
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKA lögreglan skýrði frá
því í gær að hún hefði ráðist inn
í ibúð í eigu Khadars Samirs
Mohamads, sem fullvist er talið
að sé palestínskur skæruliði og
er grunaður um að hafa skipu-
lagt árás á gríska feiju fyrir
nokkru. Sakmmt frá íbúðinni
fannst mikið safn vopna.
Talsmaður Sápo, öryggislögregl-
unnar, sagði að árásin hefði verið
gerð á fímmtudag í einu af úthverf-
um Stokkhólms.
„Skammt frá fundum við, graf-
inn í jörðu í skógi, kassa fullan af
vopnum sem við teljum að séu eign
Khadars," sagði talsmaðurinn.
OECD:
Japanir verða að
opna markaði sína
Paris. Reuter.
JAPANAR verða að leyfa öðrum
þjóðum að komast inn á innan-
landsmarkað landsins ef þeir ætla
að halda efnahagslegum styrk
sínum og stuðla að alþjóðlegrí
viðskiptaþróun, segir í skýrslu
Efnahags- og framfarastofnunar-
innar, OECD. Yrði ódýrum, er-
lendum varningi leyft að keppa
Umsátur nazista um Lenlngrad:
Fómarlömbin fleiri
en yfirvöld hafa
viljað viðurkenna
Mannréttindanefnd Sovétríkjanna:
Krístnum föngum verði
veitt sakaruppgjöf
Moskvu, Reuter.
Mannréttindanefnd Sov-
étríkjanna hefur hvatt forsæt-
isnefnd Æðstaráðsins til að
veita þeim sakaruppgjöf sem
brotið hafa Iög um trúarathafn-
ir, að þvi er sovéska fréttastof-
an Tass skýrði frá á þríðjudag.
Kaþólskur andófsmaður í Úkr-
aínu, Júrí Rúdenko, var á
mánudag handtekinn og
ákærður fyrír brot á lögum sem
banna trúarathafnir að sögn
atkvæðamikils, krístins andófs-
manns í gær.
Tass greindi frá því að mann-
réttindanefnd Sovétríkjanna teldi
að forsætisnefnd Æðstaráðsins
ætti að gefa gaum að örlögum
„þess takmarkaða fjölda sovéskra
borgara" sem ákærður hefur ver-
ið eða sakfelldur fyrir brot á lög-
um um trúarathafnir. „Engin fé-
lagsleg hætta stafar lengur af
þessu fólki og það hefði mikið
mannúðargildi að veita þeim sak-
aruppgjöf," er haft eftir mann-
réttindanefndinni.
Andófsmaðurinn Níkolaí
Muratov sagði í samtali við frétta-
mann Reuters að Rúdenko hefði
verið handtekinn á mánudag í
bænum Kalush í Vestur-Úkraínu
og væri nú í fangelsi. Hann sagði
að Rúdenko hefði tekið þátt í
messum kaþólsku kirkjunnar en
ekki komið nálægt skipulagningu
þeirra.
Moskvu, Reuter.
TVEIR sovéskir sagnfræðingar
hafa ritað grein i dagblað menn-
ingarráðuneytisins, Sovetskaja
Kúltúra, þar sem þeir halda þvf
fram að háttsettir embættismenn
hafi falsað tölur um fjölda látinna
vegna umsáturs Þjóðveija um
Leníngrad í síðarí heimsstyrjöld-
inni.
Sagnfræðingamir, þeir V. Kovalt-
sjuk og G. Sobolev, segja að í það
minnsta 800.000 Leníngrad-búar
hafí látist úr hungri eða sjúkdómum
meðan á umsátri nazista hafi staðið,
frá nóvember árið 1941 til janúar
1943. Auk þess sé ekki vitað hversu
margir flóttamenn frá nágranna-
byggðunum og Eystrasaltslöndun-
um hafí látist í borginni. „Og hversu
margir hermenn féllu?" spyrja sagn-
fræðingamir, sem segjast hafa rann-
sakað skjöl borgarinnar í mörg ár
og rætt við fólk sem komst af.
Sagnfræðingamir segja einnig að
sagnfræðingar í Leníngrad hafí
áætlað á sjöunda áratugnum að
fjöldi þeirra sem hafi látist úr hungri,
þar á meðal hermenn, sé ekki undir
milljón. Sovésk stjómvöld hafa hins
vegar haldið því fram að nákvæm-
lega 632,253 hafí látist, og notuðu
Sovétmenn þá tölu meðal annars í
Niimberg-réttarhöldunum.
Sagnfræðingamir segja að leið-
togi kommúnistaflokksins í
Leníngrad, Grígoríj Romanov, hafí
bannað nákvæmari tölur á áttunda
áratugnum. Hann hafí viljað við-
halda „hetjuímyndinni" um umsátrið
frekar en gefa rétta mynd af hör-
mungunum.
við innlenda framleiðslu kæmi
það japönskum efnahag til góða
og myndi auka likur á hagvexti
án verðbólgu.
Aukin eftirspum í Japan hefur
aukið innflutning til landsins og
dregið úr útflutningi til ríkja þar sem
mikill halli er á viðskiptunum, Japön-
um í hag, m.a. Bandaríkjanna. Tek-
ist hefur að slá nokkuð á uppsafnað-
an hagnað Japana en á miðvikudag
skýrði Japansstjóm frá þvi að hagn-
aðurinn færi nú aftur vaxandi í fyrsta
sinn í 15 mánuði.
í skýrslu OECD segir að yfírleitt
fari halli í innbyrðis viðskiptum ríkja
minnkandi í heiminum. Mælt er með
því að Japanar lækki innflutning-
stolla, endurbæti skattakerfíð í þá
vem að skattar af launatekjum lækki
svo að almenningur hafí meira fé
handa milli til kaupa á erlendum
vamingi. Farið er viðurkenningar-
orðum um nýlegar lækkanir á niður-
greiðslum til landbúnaðar sem séu
skref í rétta átt. Sagt er að minni
reglugerðarhömlur á flutningum og
vörudreifingu myndu lækka kostnað
og vömverð.
„Ávinningurinn af því að þessar
greinar hugi meira að markaðnum
er mikill; það er mikilvægt að fram-
þróun verði ekki hindmð af fulltrúum
sérhagsmuna," segir f skýrslunni.
Frakkland:
Tekinn á 237 km hraða
Fyrsti útlendi ökuþórinn sem er ref sað
RenneH, Frakklandi. Reuter
VESTUR-þýzkur ökuþór var
grípinn á 237 kílómetra hraða á
frösnku hraðbrautunum i gær
og var sviptur ökuleyfi á staðn-
um. Er það fyrsti útlendingurínn,
sem refsað er með þessum hætti
fyrír hraðaakstur í Frakklandi.
Ökuþórinn heitir Hans Seibert
og er hann læknir í ýzku borginni
Kassel. Var honum bannað að aka
í Frakklandi næstu tvo mánuðina.
Hámarkshraði á brautinni, þar sem
hann var staðinn að verki, er 110
km/klst.
Frönsk yfirvöld hafa verið sökuð
um að taka á málum útlendra öku-
þóra með silkihönskum en að sögn
talsmanns innanríkisráðuneytisins í
París er það nú liðin tíð.