Morgunblaðið - 27.08.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1988
23
Norrænt grafík þríár
NORRÆNT grafík þriár er nafn
sýningar sem opnar í Norræna
húsinu í dag, laugardaginn 27.
nágúst klukkan 15. Verk á sýn-
ingunni eiga grafíklistamenn frá
Norðurlöndunum en sérstakur
gestur sýningarinnar er ítalinn
Mimmo Paladino.
Sýning þessi í Norræna húsinu
er sett upp í samráði við félagið
íslensk grafík. Sem fyrr segir ber
hún nafnið Norrænt grafík þríar
en þríár er þýðing á erlenda orðinu
„triennal". Eins og nafnið gefur tii
kynna er ætlunin að sýning þessi
verði fastur liður í sýningarhaldi
Norræna hússins þriðja hvert ár
héðan í frá. Hugmynd sú er liggur
að baki er að sýna ákveðið við-
fangsefni í grafíklist á Norðurlönd-
unum og víðar.
Að þessu sinni var einum grafík-
listamanni frá hveiju Norðurland-
anna boðið til sýningarinnar. Að
sögn Valgerðar Hauksdóttur, form-
anns íslenskar grafíkur, og Knut
Odegárd, forstjóra Norræna húss-
ins, er þetta í fyrsta skipti sem
sýning af þessu tagi er haldin hér
á landi. Boðið var einum grafíklista-
manni frá hveiju Norðurlandanna
en haft var samráð við samtök lista-
manna í hveiju landi um val á lista-
manni. Verk á sýningunni eiga
Vignir Jóhannesson, Yngve Næs-
heim frá Noregi, Finn Richardt
Jörgensen frá Danmörku, Krystyna
Piotrowska frá Svíþjóð og Tuomo
Saali frá Finnlandi. Sem fyrr segir
verður ítalski grafíklistamaðurinn
Mimmo Paladino sérstakur gestur
sýningarinnar.
Verkin á sýningunni eru öll ný.
Þema sýningarinnar er notkun
listamannanna á manninum og
mannsmyndinni í verkum sínum. I
tengslum við sýninguna flytur
Leslie Luebbers, listfræðingur, fyr-
irlestur í fundarsal Norræna húss-
ins sunnudaginn 11. september en
hún skrifar grein um listamennina
og verk þeirra í sýningarskrá.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
18. september.
Morgunblaðið/KGA
Knut Odegárd, forstjóri Norræna hússins, og Valgerður Hauks-
dóttir, formaður íslenskrar grafíkur, standa hér við eitt verka
ítalska graf íklistamannsins Mimmo Paladino. Palladino er sérstak-
ur gestur sýningarinnar Norrænt grafík þríár sem hefst á morg-
un í Norræna húsinu.
Nýir hjóna-
garðar tekn-
ir í notkun
FYRSTU íbúðirnar í nýjum
Hjónagörðum við Suðurgötu
verða afhentar í dag, laugardag.
Þær verða sýndar almenningi um
helgina. Alls verða 93 tveggja og
þriggja herbergja íbúðir í húsinu
og verða 15 þeirra afhentar nú.
Framvkæmdum verður fram hald-
ið í vetur og þá lokið við 60 íbúðir
til viðbótar. Síðustu íbúðimar verða
afhentar haustið 1989. í áfanganum,
sem nú er lokið við, er einnig les-
stofa og önnur sameiginleg aðstaða
fyrir íbúa.
Félagsstofnun stúdenta leigir í
vetur út 100 herbergi á einstaklings-
görðum og 69 tveggja og þriggja
herbergja íbúðir á hjónagörðum.
Rúmar húsnæðið um 5% háskóla-
stúdenta. 400 umsóknir um garðvist
hafa borist fyrir veturinn.
Nýju íbúðimar verða opnar al-
menningi til sýnis frá klukkan 16-18
laugardag og frá klukkan 14-18
sunnudag. Nokkrar húsgagnaversl-
anir munu búa 6 íbúðanna hús-
gögnum meðan á sýningunni stend-
ur.
HJÁ OKKUR MERKIR NÝR BÍLL
1989
ÁRGERÐ
MiTSUBtSHM
GÆMJkNT
Nh'TT UTLIT — NY TÆKNl
VERÐ FRÁ KR. 771.000
Innifalinn I verðinu er m.a. eftirtalinn búnaður:
VökvastýriP/eltistýri — Rafknúnar rúöuvindur — Rafstýröir útispeglar
Samlæsing á huröum — Dagljósabúnaöur — Lúxusinnrétting — Rafdrifin sóllúga
(super saloon) — Ökuhraðastilli (super saloon/GLSI) — Léttmálmsfelgur (super saloon)
Nú um helgina eru árlegir söng-
dagar haldnir í Skálholti.
Söngdagar í Skálholti:
Requiem eftir
Fauré flutt við
messu á morgun
ÁRLEGIR söngdagar í Skálholti
hófust í gærkvöld og lýkur klukk-
an 16.30 á morgun með tónlistar-
flutningi í kirkjunni. Söngvinir
syngja og Sigurður Halldórsson
Ieikur á selló svítu nr. 5 eftir
Bach. Stefnt er að flutningi á
Requiem eftir Fauré við guðs-
þjónustu sem hefst klukkan 17.
Söngdagar í Skálholti em nú
haldnir í tíunda sinn og á þeim hafa
viðfangsefni verið margvísleg að því
er segir í fréttatilkynningu. Nefna
má Litlu orgelmessuna eftir Haydn,
Pange Lingua eftir Kodaly, Rejoice
in the Lamb eftir Britten og G-dúr
messu Schuberts.
Að þessu sinni verður tekist á við
nýtt kórlag eftir John Speight, sem
samið er í tilefni söngdaganna, og
Requiem eftir G. Fauré. Söngstjóri
er Jónas Ingimundarson, í guðs-
þjónustunni á morgun predikar séra
Guðmundur Óli Ólafsson og organ-
isti er Gústaf Jóhannesson.
GALANT GTÍ É6 VENTLA
Bíll með búnað ■ sérflokki
(8,7 sek. í 100 km./klst.)
Fjölinnsprautun (ECS Multi) — Hemlalæsivörn (ABS)
Rafstýrt fjöðrunarkerfi (ECS) — Rafknúið, hraðanæmt aflstýri (EPS II)
KLA Hl }i 170 -172 Simi 695!