Morgunblaðið - 27.08.1988, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1988
GIRÐINGA-
STREKKJARAR.
ÞÚR^ ÁRMULA 11 SÍMI 681500
Fullkomið
hreinlæti
Alsjálfvirka handþurrkan
Gangsetning meö geisla
án snertingar
G æöi, Þ ekking,
Þ jónusta
A. KARLSSOn HF.
HEILDVERSLUN, BRAUTARHOLTI28
SÍMI: 91 -27444
fclk f
fréttum
Konur og hattar
Nú er í tísku að hafa hatt á höfði. Konur sýna oft mikla djörfung og
stundum góðan smekk, og það sýndu þær sem mættu á Ascot veðreið-
amar hér á dögunum. Þar voru meðal annars Fergie og drottningarmóð-
irin að spóka sig, Díana prinsessa og fleiri konur sem eiga það sameig-
inlegt að ganga oft með hatt á höfði.
Morgunfrú á göngu.
?ergie og drottningarmóðirin með fremur hefðbundna hatta.
Ef ofvöxtur hlypi í heilann, sæist
það að minnsta kosti ekki með
þennan hatt á höfðinu.
Hver stenst jarðarber með ís?
Það eru engin takmörk í fant-
asíulandi.
Díana er hér með einn af sínum
400 höttum.
Víðir Óli Guðmundsson er hér í hlutverki „hundsins"
á hátíðinni í Hollandi.
Gamanleikhús:
Hvað er að gerast hjá Gamanleikhúsinu?
Gamanleikhúsið hefur starfað í þrjú ár,
þann 29 ágúst. Þeir sem standa að starfs-
seminni eru 45 krakkar úr Reykjavík á aldr-
inum 10 — 15 ára. Magnús Geir Þórðarson,
14 ára, hefur verið leikhússtjóri frá stofnun
leikhússins, og fjármagna þau starfssemina
að mestu leyti með því að safna auglýsing-
,um.
Nýjasta verkefni þeirra er leikritið „Kött-
urinn sem fer sínar eigin leiðir“ eftir Ólaf
Hauk Símonarson og er það sjötta leikritið
sem þau setja upp. Lög og textar eru eftir
Ólaf en Gunnar Þórðarson útsetti lögin.
í sumar fóru krakkamir með sýninguna
á leikhátíð í Hollandi, þar sem voru saman
komnir sjö hópar frá mismunandi löndum.
Hópurinn frá Islandi hafði nokkra sérstöðu,
þar sem leikstjóm og uppsetning verksins
var eingöngu í höndum krakkanna sjálfra
og var Magnús Geir yngsti leikstjórinn.
Sjö manns, ásamt fararstjóra, voru í
hópnum sem fór til Hollands. Leikritið höfðu
þau æft síðan í janúar og er það í þremur
mislöngum útgáfum. í Hollandi sýndu þau
á sviði, í skólum og á bamaheimili fyrir
munaðarlaus böm svo og á götum úti. Var
þeim hvarvétna mjög vel tekið.
Eftir rúma hálfsmánaðardvöl í Hollandi
bættust þrír krakkar frá Hólmavík í hópinn
og fóru þeir þaðan á leikhátíð í Vín í Aust-
urríki. Slíkar hátíðir eru haldnar hvert ár í
mismunandi löndum og koma krakkarnir
víða að úr Evrópu. íslenski hópurinn var
einn af fáum hópum sem starfar saman að
staðaldri í heimalandi sínu.
Hvert land var með landkynningu og setti
íslenski hópurinn meðal annars upp sýningu
þar sem þau kynntu þjóðsönginn. Alls vom
480 mánns frá 21 landi sem bjuggu í Al-
þjóðlegum skóla Sameinuðu Þjóðanna, við
bestu aðstæður.
, Á næstunni sýnir Gamanleikhúsið á Ver-
-öld ’88, í Laugardalshöll, leikritið „Kötturinn
sem fer sínar eigin leiðir" í styttri útgáfu.
Verða sýningar bæði virka daga og um
helgar. Er þar kærkomið tækifæri til þess
að sjá þessa ungu og framtakssömu leikara
á sviði.