Morgunblaðið - 27.08.1988, Síða 52
52
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUH 27. ÁGÚST 1988
HANDKNATTLEIKUR / HM 1993
Maðurinn sem
ífill eMa HM
Vfiii dicia i^iifi
frá Svíum!
- segir Dagens Nyheter um Jón Hjaltalín Magnússon, for-
mann HSÍ. Mikil umræða um HM 1993 íSviþjóð
SÍÐUSTU vikur hafa sœnsku
dagblöðin mikið rœtt um
heimsmeistarakeppnina í
handknattleik 1993. Að und-
anfömu hafa œ fleiri raddir
heyrst um aö Svíar eigi að
gefa eftir að láta íslendingum
eftir keppnina. Nú síðast fjall-
aði Dagens Nyheterum
keppnina. Þar var mynd af
ióni Hjaltalfn Magnússyni og
hann kallaður f fyrirsögn:
„Maðurinn sem vill stela HM
frá Svíum."
að hefur mikið verið rætt um
keppnina í sænsku dagblöð-
um og í heild hefur ísland fengið
mikla og jákvæða umfjöllun.
Fiestir íþróttafréttamenn Svíþjóð-
ar virðast vera á þeirri skoðun
að Svíum beri að gefa íslending-
um kost á að halda keppnina í
fyrsta sinn áður en Svíar halda
hana í þn'ðja sinn," sagði Elín
Óskarsdóttir, ritari í íslenska
sendiráðinu í Stokkhólmi, í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Nú síðustu vikur hafa stærstu
blöðin, svo sem Expressen,
Svenska Dagbladet og Dagens
Nyheter, skorað á sænska hand-
knattleikssambandið að gefast
upp og leyfa íslendingum að sjá
um keppnina. í kjölfar þess hefur
áhugi Svía á íslenskum hand-
knattleik vaxið og pressan á
sænska handknattleikssamband-
inu hefur aukist," sagði Elín.
Getum samlð
„Við getum samið um Heims-
meistarakeppnina og mér finnst
rétt að íslendingar fái keppnina
1993 og Svíar 1995,“ segir Jón
Hjaltalín Magnússon, formaður
HSÍ, í viðtali við DN. „Hand-
knattleikur er ekki jafn vinsæll í
Sviþjóð og á íslandi og við erum
fyllilega í stakk búnir til að taka
við keppni sem þessari," segir Jon.
„Heyrirðu það, Staffanl"
Stellan Kvárre, sem skrifar
greinina í DN, segir íbúa á ís-
landi vera um 427.000. „Áhuginn
er ótrúlega mikill miðað við hve
lítið landið er. Þá íjallar hann
einnig um íslenska iandsliðið, sem
hann segir vera eitt besta og leik-
reyndasta lið heims. í greininni
er fjallað um ísland á mjög já-
kvæðan hátt, þrátt fyrir að fyrir-
sögnina megi skilja á ýmsa vegu.
Þessi grein endar á orðunum
„Heyrirðu það, Staffan!" Þar er
átt við Staffan Holmquist, form-
ann sænska handknattleikssam-
bandsins, og þeim tilmæium beint
til hans að Svíar gefi eftir umsókn
sína fyrir HM 1993.
Jön Hjaltalfn Magnússon: „Maðurinn sem vill stela HM frá Svíum,“
segir Dagens Nyheter.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Sanngjam sig-
ur Víðismanna
VÍÐISMENN náðu sér vel á
strik í Kópavoginum í gœr og
sigruðu Breiðblik, 2:0.
Leikurinn byijaði frekar rólega
og liðin þreifuðu fyrir sér. Blik-
amir áttu fyrsta færið er Þorsteinn
Hilmarsson átti gott skot á 3.
mínútur, en Gísli
Andrés Heiðarsson varði
Pétursson vel. Brátt náðu
skrífar Víðismenn yfírhönd-
inni og gerðu harða
hríð að marki Breiðbliks.
Loks kom að því að Víðismenn
náðu forystunni og var einstaklega
vel að verki staðið. Hafþór Svein-
jónsson átti þá góða þversendingu
á Vilberg Þorvaldsson sem sendi inn
á markteig. Þar var Heimir Karls-
son og hann skoraði af öryggi.
Síðari hálfleikur var vart hafínn
er Víðismenn bættu við öðru marki
UBK-Víðir
0:2 (0:1)
Mörk Víðís: Heimir Karlsson 25. og
Vilberg Þorvaldsson 50.
Maður leiksins: Vilberg Þorvaldsson,
Víði.
sínu og kom það eins og köld vatns-
gusa framan í Breiðbliksmenn.
Heimir Karlsson sendi góða send-
ingu inn fyrir vöm Breiðbliks á
Vilberg Þorvaldsson sem sendi bolt-
ann í netið framhjá Eiríki Þorvarð-
arsyni markverði.
Tveimur mínútum síðar fengu
Blikar gullið tækifæri til að minnka
muninn er Víðismenn brutu klaufa-
lega á Jóni Þóri Jónssyni í vítateig.
Jóhann Grétarsson tók vítaspym-
una, en Gísli Heiðarsson varði.
Eftir þeta dofnaði svolítið yfír
leiknum, þrátt fyrir örvæntingar-
fullar tilraunir Breiðbliks til að
minnka muninn, gaf Víðisvömin sig
hvergi, og sætur sigur Víðismanna
var staðreynd.
Vilberg Þorvaldsson átti góðan
leik í gær.
Selfoss sigraði
KS í jöfnum leik
SELFYSSINGAR höfðu sigurá
Siglfirðingum ífrekar jöfnum
leik liðanna á Selfossi. Heima-
menn voru mun ákveðnari
framan við mark andstæðing-
anna og höfðu með því sigur.
Selfyssingar hófu leikinn með
mikilli sókn og var sem þeir
ætluðu að gera út um leikinn strax
á fyrstu mínútunum. Siglfirðingum
tókst að ná tökum á
Sigurður leiknum en fengu
Jónsson fljótlega á sig fyrsta
skrífar markið eftir óvænt
skot Sævars Sverr-
issonar úr þvögu við mark KS. Lið-
in skiptust síðan á sóknum en það
gerði gæfumuninn að Jón Birgir
Kristjánsson fylgdi vel eftir einni
sókninni og skoraði annað markið
sem markvörður KS átti að veija.
í seinni hálfleik sóttu Selfyssing-
ar heldur meira en þegar leið að
lokum leiksins gerði KS eina mark
sitt þegar Steve Rutter eftir fyrir-
gjöf frá vinstri kanti. Undir lok
leiksins gerði Gunnar Garðarsson
þriðja mark Selfyssinga þegar hann
komst einn innfyrir vöm KS.
Selfoss-KS
3:1 (2:0)
Mörk Selfoss: Sævar Sverrisson 15.,
Jón Birgir Kristjánsson 28. og Gunnar
Garðarsson 83.
Mark KS: Steve Rutter 80.
Maður leiksins: Guðmundur Magnús-
son, Selfossi.
KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMÓT 5. FLOKKUR
Stjaman vann
QuAni Tómasson og Kristlnn Pálsson. MorgunbiaðiðA/iimar
Þórsarar hðfðu frumkvæðið
ÚRSLITAKEPPNI í 5. flokki á
íslandsmótinu fór fram á fé-
lagssvæði KR fyrir stuttu og var
keppnin mjög skemmtileg enda
aðstæður allar til fyrirmyndar
hjá KR-ingum. Eins og áðurá
mótinu í sumar sendi hvert fé-
lag bæði A- og B-lið til kepnni
en úrslit í viðureignum félaga
ráðast af samanlagðri útkomu
úr leik A- og B-liðanna. Til úr-
slita kepptu Stjarnan og Þór frá
Akureyri og sigruðu Garð-
bæingarnir í þeim lokaslag. Lið
KR og Breiðabliks sem margir
höfðu spáð að myndu leika til
úrslita léku um 3. sætið og
unnu Blikarnir eftir hörkuleiki.
B-lið Sljömunnar og Þór léku
sinn úrslitaleik á undan A-
liðunum og var jafnræði með liðun-
um til að byija með. Garðbæingarn-
ir náðu að skora eina mark fyrri
hálfleiks og var þar að verki Krist-
inn Pálsson. Hann fylgdi vel á eftir
skoti félaga síns Hafsteins Haf-
steinssonar og náði að koma knett-
inum rétta leið í netmöskvana.
í sfðari hálfleik tóku Stjömu-
strákamir öll völd á vellinum og
Guðni Tómasson jók fljótlega for-
ystuna. Hann tók aukaspymu —
boltinn small á Þórsara og barst
aftur til Guðna sem skoraði af ör-
yggi. Þrátt fyrir að vera komnir
með þægilega forystu slökuðu leik-
menn Stjömunnar ekkert á vitandi
það að hvert mark gat verið dýr-
mætt. Guðni skoraði annað mark
skömmu síðar eftir fallega sendingu
frá Hafsteini.
Á síðustu sekúndu leiksins settu
Stjömustrákamir sfðan punktinn
yfir i-ið með því að bæta við fjórða
markinu og enn var Guðni á ferð-
inni eftir góða samvinnu við Haf-
stein.
Leikur Stjömunnar var nokkuð
markviss og skemmtilegur. Boltinn
gekk hratt og örugglega á milli
manna og breidd vallarins var ein-
staklega vel nýtt og gaf það góðan
árangur.
Þórsaramir áttu þó nokkuð í vök
að veijast í úrslitaleiknum, en
greinilegt er að þama er á ferðinni
mjög efnilegt lið. Akureyringarinir
spiluðu oft á tíðum skemmtilega
saman úti á veilinum en náðu ekki
að skapa sér hættuleg marktæki-
færi.
egar úrslitaleikur A-liða
Stjömunnar og Þórs f 4. flokki
hófst var Stjaman með 4 mörk í
forskot vegna stórsigurs B-liðsins
í leiknum á undan og var því á
brattann að sækja fyrir Akur-
eyringana.
Fljótlega í leiknum var dæmt víti
á Þór og Ragnar Ámason skoraði
af öryggi úr því. Ekki batnaði útlit-
ið hjá Þórsumm við þetta og hefðu
margir lagt árar í bát við svona
mótlæti. Strákamir að norðan voru
þó á Öðru máli og smám saman
náðu þeir frumkvæðinu í leiknum
og héldu því út allan leikinn. Sigur-
geir Finnsson fékk fljótlega gott
tækifæri til að jafna leikinn eftir
að hafa einleikið inní teig andstæð-
inganna en markvörður Stjömunn-
ar varði glæsilega. Rétt fýrir leik-
hlé jafnaði Kristján Öm Ólfsson
fyrir Þór eftir stórskemmtilega
sókn.
í síðari hálfleik sóttu Þórsarar
stíft en náðu þó ekki að bæta við
nema einu marki og var Kristján
þar aftur á ferðinni.
Þettavar
mjög erfið-
ur leikur
KRISTINN Pálsson og Guðni
Tómasson gerðu mörk B-liðs
Stjörnunnar í úrslitaleiknum
gegn Þór en þau mörk voru
grunnurinn að íslandsmeist-
aratitlinum. Þeir voru því kátir
í leikslok kapparnir þegar
blaðamaður tók þá tali.
Við bjuggumst ekki við svona
góðum árangri en þetta er í
fyrsta skipti sem við verðum ís-
landsmeistarar. Við lentum í 2.
HBi sæti á íslandsmót-
Vilmar inu innanhúss. Þó
Pétursson að við höfum unnið
skrífar úrslitaleikinn við
Þór 4:0 var þetta
mjög erfiður leikur, já örugglega
erfíðasti leikurinn sem við höfum
spilað. Munurinn var sá að við nýtt-
um færin vel en þeir ekki,“ sögðu
markaskoraramir Guðni og Krist-
inn, en þeir eiga örugglega eftir
að muna eftir mörkunum sínum
lengi.