Morgunblaðið - 27.08.1988, Blaðsíða 56
EIGNA 1
MIÐUJMN
27711 _
> J N C H 0 L T S S I H H T \ 3
Swrif Kristin&síifi, söustjón - Þorteilur Guðrnundsson, sókm.
Þóróiiur HaWórsson, IwA,- Uitnstsinn Beck M., simi 12320
HRtSSANDI.
FRISKA BRtIGÐ
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Bráðabirgðalög um efnahagsaðgerðir:
Skilyrði fyrir 10-12% vaxta-
lækkun um mánaðamótin
RÍKISSTJÓRNIN ákvað í gær-
dag að setja bráðabirgðalög sem
fresta til loka september launa-
hækkunum og hækkun búvöru-
verðs sem annars hefðu orðið 1.
september. Jafnframt var ákveð-
in almenn verðstöðvun frá 27.
ágúst til 30. september og verður
miðað við verð í verðkönnun
Verðlagsstofnunar um miðjan
ágúst. Þá var Seðlabankanum
falið að hefja viðræður við banka
og sparisjóði um 10-12% lækkun
vaxta, sem talin er eðlileg með
hliðsjón af lækkun verðbólgu.
Leiði þær viðræður ekki til
vaxtalækkunar hefur ríkisstjórn-
in veitt Seðlabankanum opna
heimild til að Iækka vextina ein-
hliða.
Eftir ríkisstjórnarfund í gær-
kvöldi, þar sem gengið var frá
bráðabirgðalögunum, sagði Þor-
steinn Pálsson forsætisráðherra við
Morgunblaðið að ríkisstjómin væri
sammála um það að kanna og reyna
niðurfærsluleiðina til þrautar og
viðhafa þau vinnubrögð að hafa
samráð við Alþýðusambandið. A
það yrði látið reyna nú og líta
mætti svo á að ákvarðanir ríkis-
stjómarinnar í gær væru fyrsta
skrefíð að þessu marki.
Formenn stjómarflokkanna sátu
fund með miðstjóm Alþýðusam-
bands íslands í gærmorgun og þar
féllst fomsta ASÍ að haida áfram
viðræðum um niðurfærsluleið. A
fundi miðstjómar Sjálfstæðis-
flokksins var samstaða um að reyna
skyldi niðurfærsluleiðina til þraut-
ar, með þeim formerkjum sem þing-
flokkurinn hafði áður sett.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið hvað vaxtaþáttinn varðaði
að til að koma í veg fyrir að hin
snögga lækkun verðbólgunnar ylli
hækkun raunváxta og þyngdi þar
með greiðslubyrði heimila og fýrir-
tækja væri nauðsynlegt að laga
vextina tafarlaust að hinum breyttu
verðlagsskilyrðum.
Verðlagsstofnun hefur verið falið
að fylgja verðstöðvuninni eftir með
viðtækum verðkönnunum. Jón
Baldvin Hannibalsson fjármálaráð-
herra sagði við Morgunblaðið að
almenningur yrði að styðja við verð-
Flogið með
bráðabirgða-
lögin norður
til f orsetans
FLUGVÉL Flugmálastjórnar var
send með bráðabirgðalögin um
efnahagsaðgerðirnar norður í
land seint í gærkvöldi. Til að lög-
in öðluðust gildi þurfti forseti
íslands, frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, að skrifa undir þau en forset-
inn er sem kunnugt er nú í heim-
sókn í Húnavatnssýslum.
Strax að loknum fundi ríkis-
stjómarinnar fór flugvélin af stað.
Hún ienti á Blönduósi, lögunum var
komið í hendur forsetans, og síðan
flaug vélin aftur til Reykjavíkur.
Flugvélin kom til borgarinnar um
hálfeittleytið í nótt.
lagseftirlitið: „Það eru aðeins 25
manns sem vinna við þetta eftirlit
en útsölustaðir skipta þúsundum
og því þurfum við á því að halda
að öll þjóðin leggi okkur lið, veiti
aðhald og komi upplýsingum á
framfæri."
Þorsteinn Pálsson sagði að
stjómin ætlaði sér ekki lengri tíma
en mánuð til að undirbúa niður-
færsluleið en sumir telja að jafnvel
þurfi allt að tvo mánuði til að hnýta
lausa enda. Þorsteinn sagði m.a.
að ýmislegt kæmi til álita að gera,
umfram það sem þegar liggur fyrir
í beinum tengslum við launalækk-
un. Til greina kæmi lækkun opin-
berrar þjónustu umfram það sem
launaliður lækkar. Einnig yrði skoð-
að hvort breyting á innheimtu sölu-
skatts hefði í för með sér lækkun
á vaxtakostnaði hjá verslun sem
gæti gefíð tilefni til frekari lækkun-
Mikil óvissa í
loðdýrarækt
ENGIN ákvörðun liggur fyrir hjá
stjórnvöldum um hvað gert verð-
ur viðvíkjandi þeim vanda sem
er tíl staðar i loðdýrarækt. Svein-
bjöm Eyjólfsson, deildarstjóri í
landbúnaðarráðuneytinu, sagði á
aðalfundi Sambands islenskra
loðdýraræktenda, sem lauk í
gær, að ef ekki yrði gripið til
varanlegra úrlausna fljótlega
væri rekstrargrundvöllur brost-
inn bæði hjá loðdýrabændum
sjálfum og fóðurstöðvunum.
Þeim lausnum, sem gripið hefur
verið til að undanförnu, var ætl-
að að duga fram í desember.
Sveinbjörn sagði að allar þær
lausnir sem leitað hafi verið að
hingað til væru bráðabirgðalausnir
sem væru til þess eins fallnar að
halda lífinu í framleiðslunni á þessu
ári. Hann sagði að miklar upplýs-
ingar væru fyrirliggjandi, sem hægt
væri að byggja á bæði varðandi
fjárhagslega stöðu einstakra bænda
og fóðurstöðvanna, en takmarkaður
áhugi virtist vera fyrir hendi, t.d.
hjá fjármálaráðuneytinu og
Byggðastofnun, til að nýta þær
upplýsingar.
Jón Ragnar Bjömsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
loðdýraræktenda, sagði aðspurður
að ef þetta væri rétt, þá væri fullvíst
að refarækt í landinu myndi hrynja
og það síðan leiða til hækkandi fóð-
urverðs, sem fyrirsjáanlega myndi
ríða minkaræktinni að fullu.
Með keflin á lofti
Morgunblaðið/Bjami
Yfir hundrað Kvennalistakonur gengu á fund forsætisráðherra, Þorsteins Pálssonar, siðdegis í gær og
lásu fyrir hann bréf þar sem þess var farið á leit að hann skipaði nefnd kvenna til ráðgjafar ríkisstjórn-
inni í efnahagsmálum. Konurnar höfðu kökukefli á lofti og héldu á lökum og bleyjum með áletruðum
heilræðum.
Ekki annað að gera en að stökkva
frá borði og leggjast til sunds
- segir Daníel Sigurðsson sem synti til lands er bátur hans sökk í Hornafjarðarósi
„ÉG FÉKK á mig hnút sem
skall á bátnum sljórnborðsmeg-
in að aftan og síðan fylgdu tvær
holskeflur í kjölfarið. Við það
fór báturinn á hliðina og náði
sér ekki upp enda voru í honum
1.300 kíló af fiski.“ Þannig
sagðist Daníel Sigurðssyni frá
aðdraganda þess að 5 tonna
bátur hans, Hafmey SF 100,
fékk á sig brotsjó og sökk í
Hornafjarðarósi laust eftir
miðnætti aðfaranótt föstudags-
ins. Daníel vann það afrek að
ná landi á Austurtangafjöru
eftir að hafa synt í 20-30 mínút-
ur í köldum sjónum. Daníel er
liðlega fertugur véltæknifræð-
ingur og vélskólakennari úr
Reykjavík, sem í sumar hefur
verið við handfæraveiðar frá
Hornafirði.
„Þetta gerðist allt frekar
snöggt og þegar ég gerði mér
grein fyrir að hann næði sér ekki
upp aftur var ég með hugann við
að koma mér út,“ sagði Daníel.
„Það gekk ekki alltof greiðlega,
það var orðið koldimmt í bátnum
og það tók tíma að finna dymar
og ná hurðinni upp. Síðan lá leið-
in upp á þak á bátnum þar sem
ég reyndi að ná björgunarbátnum.
Ég náði ekki að losa ólina enda
hafði ég nauman tíma og ákvað
að losa mig úr gúmmígalla og
stígvélum, var hræddur um að það
drægi mig niður. Báturinn stóð
lóðrétt upp á endann og ég hélt
mér í handrið framan á stefninu.
Síðan var ekki annað að gera en
að stökkva frá borði og leggjast
til sunds. Ég tók stefnuna á Aust-
urfjörutanga og hugsa að ég hafi
verið á sundi í 20-30 mínútur, én
mér fannst það vera heil eilífð.
Þegar ég nálgaðist land sá ég að
ég mundi ekki ná í gegn þar sem
ég kom að, það var svo mikið
brim.
Þá varð mér hugsað til þess
að Guðlaugur Friðþjófsson, Vest-
manneyingur, hafði notað síðustu
kraftana tii að leita að heppilegum
lendingarstað áður en hann reyndi
landtöku. Það varð mér sjálfsagt
til bjargar. Ég var allur farinn
að stirðna og orðið fálmkennt hjá
mér sundið en það munaði tals-
verðu að ég komst innar í ósinn
Daníel Sigurðsson
þar sem var minna brim og öldu-
rót þannig að ég stóð af mér út-
fallið og það gaf mér kraft að
fínna fast land undir fótum. Ég
reyndi ekki að ganga af stað á
sokkaleistunum, það eru 20-30
kílómetrar í Stokksnes, en ákvað
að bíða eftir að bátar kæmu út í
dagskímunni. Á meðan hljóp ég
um á nærbolnum og blautum bux-
unum, og barði mér til hita. Það
hvarflaði sem betur fer ekki að
mér að reyna að sofna. Ég sá
þijá báta fara hjá án þess að verða
mín varir en þegar sá fjórði kom
var ég búinn að finna spýtu með
endurskinsmálningu og Eiríkur á
Fáfni sá endurskinið, kom og náði
í mig.“
„Jú, ég var orðinn ansi þrekað-
ur en ég ólst upp á Hallormsstað
og þegar heitast var á sumrin lét
maður sig hafa það að fá sér
sprett í Lagarfljóti. Það var ansi
kalt og ég er ekki frá því að ég
búi að því ennþá."
Bátnum skolaði á land í gær
og er talsvert brotinn á stjóm-
borðssíðunni, drifið farið undan
að aftan, rúður brotnar. „Þetta
var úrvalsbátur og mér hafði
gengið vel á honum, fengið 20
tonn frá því í júlí. Það þykir gott
í þessari tíð sem verið hefur. Ég
hafði traust á bátnum og þótti
vænt um hann, en ég held að
enginn bátur hefði staðist þessi
ósköp, maður getur ekki ímyndað
sér það nema reyna sjálfur," sagði
Daníel Sigurðsson.