Morgunblaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988
Landbúnaðarráðherra:
Allir landsmenn
fái raforku á sam-
bærilegu verði
Akureyri. Frá Halli Þorsteinssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
Á aðalfundi Stéttarsambands
bænda, sem hófst í gærmorgun,
sagðist Jón Helgason, land-
búnaðarráðherra, hafa lagt
fram tUlögu í rikisstjórninni um
að undirbúa nú þegar breytingu
á lögum Landsvirkjunar á þann
veg, að unnt verði að dreifa
raforku til allra landsmanna á
sambærilegu verði.
ast á greiðslu vaxta- og geymslu-
gjalds úr ríkissjóði, verði notað til
að greiða niður hækkun útsölu-
verðs vegna kostnaðar af rekstr-
aríjármagni í verðlagsgrundvelli.
Jafnframt verði tryggt að afurða-
og staðgreiðslulán verði veitt í
sama hlutfalli og verið hefur, og
þau falli ekki niður af eldri birgð-
um fyrr en sala hefur farið fram.
Svipmynd frá aðalfundinum á Akureyri.
Þá kynnti landbúnaðarráðherra
tillögu fyrir hönd ríkisstjómarinn-
ar um breytingu á búvörulögun-
um, sem kveður á um niðurfellingu
ákvæðis um ársfjórðungslegar
hækkanir á grundvallarverði
kindakjöts til bænda, en á móti
komi að bætt verði við verðlags-
grundvöilinn kostnaði af rekstr-
arfjármagni.
I tillögunni er gert ráð fyrir að
ársfjórðungslegar hækkanir verði
þó reiknaðar á sama hátt og verið
hefur á útsöluverð, og greiddust
þær til sláturleyfishafa til að
mæta verðbótaþætti afurðalána.
Það íjármagn, sem við það spar-
Aðalfundur Stéttarsambandsins:
Markmíðum búvörusammngs-
ins var náð í stórum dráttum
- segir Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda
Akureyri. Frá Halli Þorsteinssyni blaðamanni Morgunbladsins.
HAUKUR Halldórsson, forrnað-
ur Stéttarsambands bænda, sagði
Ferðaskrifstofa ríkisins:
Starfsmenn hafa
gert kauptilboð
HÓPUR sextán starfsmanna Ferðaskrifstofu ríkisins afhenti aðstoð-
armanni samgönguráðherra kauptilboð í tvo þriðju hluta hlutafjár
fyrirtækisins síðdegis í gær. Tilboðið bíður athugunar samgönguráð-
herra, Matthíasar A. Mathiesen.
Hlutafé í fyrirtækinu er metið á
um 21 milljón króna að sögn Kjart-
ans Lárussonar, forstjóra Ferða-
skrifstofu ríkisins, en heildarkaup-
verð á 33 milljónir. Starfsmenn
myndu því kaupa hlutabréf fyrir
um 14 milljónir og að auki kemur
til yfirtaka skulda.
Lögum samkvæmt hefur starfs-
fólk ferðaskrifstofunnar forkaups-
rétt að hlutabréfunum og viðræður
um kaupin hafa staðið jrfir að und-
anfömu. Að sögn Kjartans búast
starfsmenn við svari ráðherra á
allra næstu dögum.
Ifyrirhugað er að stofna hlutafé-
lag um rekstur fyrirtækisins 7.
september ef af kaupunum verður.
Ferðaskrifstofa ríkisins breytist þá
í Ferðaskrifstofu íslands hf. Kveðst
Kjartan Lámsson gera ráð fyrir að
starfsemin verði með svipuðu sniði
og verið hefur, en að sjálfsögðu
verði alltaf einhveijar breytingar
við breytta eignaraðild. Væntir
Kjartan þess að sem flestir starfs-
menn er ekki sáu sér fært að taka
þátt í tilboðinu vinni áfram á ferða-
skrifstofunni, gangi kaupin eftir.
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurður Sigurðsson og Ómar Ragnarsson taka bakföll af hlátrí,
Guðmundur Kristjánsson fylgist með.
Mikill söknuður að gamla staðnum
ÓMAR Ragnarsson fréttamaður hefur störf á Stöð 2 i dag. Sfðasti
starfsdagur hans á ríkissjónvarpinu var { gærdag og segir hann
að hann hafi vifjað byija strax á nýja staðnum til að forðast óþarfa
umstang „Það er best að stinga sér til sunds f nýju lauginni strax,"
segir Ómar. Fyrstu störf hans á Stöð 2 verða á fréttastofunni þar
en er frá lfður mun hann einnig sinna dagskrárgerð fyrír stöðina.
Nokkrir af gömlum starfsfélögum og nýjum Ómars héldu honum
kveðjuhóf siðasta starfsdaginn.
í ræðu sinni við setningu aðal-
fundar Stéttarsambandsins, að
nú þegar liðin væru 3 ár frá gild-
istöku fyrsta búvörusamningsins
værí ljóst, að með hliðsjón af
forsendum samningsins um
magntölur framleiðslu, markmið
um birgðastöðu og fjármögnun,
hafi markmiðum samningsins
verið náð i stórum dráttum.
Birgðir af kindakjöti yrðu þó
meirí i lok verðlagsársins en gert
hafi verið ráð fyrir i búvöru-
samningnum, en í mjólkurfram-
leiðslunni hafi aðlögun að mark-
miðum samningsins gengið fyrr
en áætlað var.
Hvað ijármögnunarhliðina varð-
ar sagði Haukur, að dráttur á
ákvarðanatöku fjármálayfirvalda
og tregða í bankakerfinu hafí vald-
ið margskonar óþægindum vegna
dráttar á greiðslum, og um þverbak
hafí keyrt síðustu mánuði. Afleið-
ingar þessa væru ófyrirsjáanlegar.
Sagði hann að engu líkara væri en
að af hálfu yfírvalda flármála væri
beinlínis stefnt að því að sigla fram-
kvæmd búvörusamningsins í
strand.
Haukur Halldórsson sagði jafn-
framt, að á því tímabili sem liðið
er af samningstímanum hafi ekki
tekist að byggja upp nýja atvinnu
í sveitum, sem mætt gæti sam-
drætti í framleiðslu mjólkur og
kindakjöts. Ef ekki næðist meiri
árangur á því sviði fyrir lok samn-
ingstímans, eða aðrar ráðstafanir
gerðar, þá blasi ekkert annað við
en að sá fullvirðisréttur, sem leigð-
ur hefur verið tímabundið, verði
virkur á ný, þannig að skerða verði
fullvirðisrétt annarra sem þvi nem-
ur. Af þeim sökum verði að ætla
landbúnaðinum lengri tíma til að-
iögunar en búvörulögin gera ráð
fyrir. Sjá einnig bls. 24.
Ólafur Noregskonungur:
Heimsækir Island
í næstu viku
ÓLAFUR V. Noregskonungur kemur í heimsókn til íslands þann
5. september n.k. í boði forseta íslands. Á fyrsta degi heimsóknar-
innar mun konungurinn snæða hádegisverð með forsetanum á
Bessastöðum. Síðdegis tekur hann á móti Norðmönnum búsettum
hér á Hótel Sögu. Um kvöldið situr hann kvöldverðarboð forset-
ans á Bessastöðum.
Þriðjudaginn 6. september
skoðar Ólafur rannsóknarstöð
Skógræktar ríkisins að Mógilsá
en heldur síðan til Þingvalia þar
sem forsætisráðherrahjónin taka á
móti honum og fylgdarliði. Að lok-
inni skoðunarferð um Þingvelli
bjóða forsætisráðherrahjónin til
hádegisverðar í Hótel Valhöll. Frá
Þingvöllum verður haldið í Reyk-
holt- þar sem menntamálaráð-
herrahjónin taka á móti Ólafi.
Staðurinn verður skoðaður og
greint frá sögu hans. Forseti ís-
lands mun leggja homstein að
Snorrastofu sem nú er í byggingu.
Að loknum veitingum í héraðsskól-
anum verður haldið aftur til
Reykjavíkur.
Á miðvikudag mun Ólafur heim-
sækja Stoftiun Áma Magnússon-
ar, Norræna húsið og Listasafn
íslands. Borgarstjórahjónin bjóða
konunginum til hádegisverðar í
Viðeyjarstofu og kaffidrykkju í
Höfða. Síðdegis þennan dag mun
Ólafur síðan ríkisstjómina og
sendimenn erlendra ríkja í Ráð-
herrabústaðnum. Heimsókn kon-
ungsins lýkur með boði sem hann
heldur til heiðurs forseta íslands
í Þingholti. Ólafur heldur aftur
heim á fimmtudagsmorguninn.
Póstur og sími:
Starfsmenn fá launin með skilum
- segir Guðmundur Björnsson aðstoðar póst- og símamálastjóri
PÓSTUR og simi hefur greitt í ríkissjóð um þriðjung launa í næsta
mánuði, eða 65 mil^ónir króna að sögn Guðmundar Björnssonar
aðstoðar póst- og símamálastjóra. Allir starfsmenn munu því fá laun
sín með skilum um þessi mánaðamót. Fjármálaráðherra íhugar að
breyta reglum um aðgang stofnana með sjálfstæðan fjárhag að fé
ríkissjóðs, að sögn upplýsingafulltrúa ráðuneytisins.
Ráðuneytið tilkynnti stofhuninni
að frekari yfirdráttur á launareikn-
ingi yrði ekki leyfður og varpaði
ábyrgð á launagreiðslum um þessi
mánaðamót á herðar forráðamanna
Pósts og síma. Skuldir stofnunar-
innar við ríkissjóð nema um 311
milljónum króna, vegna launa og
tolla að sögn ij'ármálaráðuneytisins.
Upphæð launa um þessi mánaða-
mót er um 175 milljónir króna.
Að jafnaði afhendir ríkisbókhald
launaávísanir starfsmanna ríkis-
stofnana um hver mánaðamót en
þær sem hafa sjálfstæða tekju-
stofna standa síðan skil á greiðslum
síðar í mánuðinum. Á þessu hefur
orðið misbrestur hjá Pósti og síma
og Ríkisútvarpinu. Báðum stofnun-
unum var gert aðvart að harðar
yrði gengið fram f því að fram-
fylgja reglum um yfírdrátt á launa-
reikningi.
Að sögn Bjama Sigtryggssonar
upplýsingafulltrúa fjármálaráðu-
neytisins reiddi Ríkisútvarpið þegar
fram fé fyrir launum næsta mánað-
ar og ávísaði tekjum á ríkissjóð
fyrir afgangi skuldarinnar.
Forráðamenn Pósts og síma
segja að fjármálaráðuneytið geti
ekki furðað sig á hallarekstri stofn-
unarínnar. Stjómvöld hafi ekki
komið fyllilega til móts við beiðni
stofnunarinnar um gjaldskrár-
hækkun í júní. Þá hafí vantað um
350 milljónir króna upp á til þess
að reksturinn yrði hallalaus á þessu
ári. Með 15% gjaldskrárhækkun
jukust tekjumar aðeins um 200
milljónir á seinni hluta ársins. Þeir
benda einnig á að telcjuaukinn skili
sér löngu eftir að gjaldskrárhækk-
unin er um garð gengin og því
hafí stofnunin enn síður bolmagn
til að standa fyllilega í skilum.