Morgunblaðið - 01.09.1988, Side 20

Morgunblaðið - 01.09.1988, Side 20
20 MORGÚNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988 Um kennara og störf þeirra Nokkrar athugasemdir við skrif um þá eftír Ölaf Oddsson Mig langar til þess að biðja rit- stjóm Morgunblaðsins að birta nokkrar athugasemdir við skrif um kennara. Verður í því sambandi gerð nokkur grein fyrir störfum kennara, einkum þeirra er starfa í framhaldsskólum landsins, þar sem sá sem þetta ritar þekkir þar best til. Margt af því sem sagt verður um störf kennara mun einnig eiga við um kennslu á öðrum skólastig- um. Flest af fyrrgreindum skrifum er frá þessu ári. Sumt er höfundum til harla lítils sóma. Annað virðist næsta undarlegt og kallar á nánari skýringar. Skrif DV um kennara hafa oft vakið furðu manna. Ritstjóramir hafa stundum fjallað um kennara og starfsfélög þeirra með næsta sérstökum hætti. Kennurum hefur verið lfld við ofbeldismenn, sem taka gísla, eða þá við Hitler, er hann hóf síðari heimsstyrjöldina (17.3.’88). Sérstaklega er ritstjór- unum þó í nöp við íslenskukennara. Þeir em taldir óþarfír, því að tölvur taki brátt við af þeim, og það sé íslenskukennurum og skólunum einkum að kenna að móðurmáls- þekkingu ungs fólks sé ábótavant (20.5.’88). Ekki er þar orð um það menningarfjandsamlega umhverfí, yfírþyrmandi engilsaxalágkúm, sem ungmennin lifa oft í. Rétt er að athuga í þessu sambandi að einn ritstjórinn hefur háskólapróf í sögu en annar í lögfræði. Ætti af þeim sökum að vera unnt að gera til þeirra nokkrar kröfur um vitræna umijöllun og að þeir viti, hvað það þýðir að líkja fólki við „Hitler sál- uga“, eins og það er orðað. Er ekki til einhver siðanefnd blaðamanna? Hvað fínnst henni um svona skrif? Annars er mér ekki illa við DV— menn. Er ég flutti um skeið þætti um málfarsefni í Ríkisútvarpinu vora þeir einkar duglegir við það að leggja umsjónarmanni til efni í þættina, þ.e. með ambögum og vit- leysum. Þeir minntust stundum á leiðbeiningar umsjónarmannsins í útvarpsgagnrýni, ef gagnrýni skal kalla. Að lokum var ég svo beðinn að koma í hús DV og messa þar yfír söfnuðinum. Tók ég saman all- langan pistil um.það, hvað lagfæra þyrfti í málfarslegum efnum, svo og í því að sýna tilhlýðilega nær- gætni í viðkvæmum málum. Var þetta flutt f heyranda hljóði og spumingum svarað. Ritstjóri þakk- aði góðar ábendingar og við kvödd- umst. Á ieið úr húsi var ítrekað við fyrirlesarann að honum yrði send hæfíleg þóknun í pósti. En oft hef ég haft námfúsari áheyrendur og árangurinn varð svo sem sjá má í blaðinu sjálfu. Um laun fyrirlesar- ans skal þess ti) gamans getið að þau vom í góðu samræmi við árang- ur erindisins. í DV skrifa stundum áhugamenn um kennslumál. Sumir þeirra að- hyllast viðhorf ritstjóranna í þeim málum og virðast hafa svipaða þekkingu á þessum sviðum. Þeir hafa eftir skrifum að dæma harla litla hugmynd um hvað kennt er og starfað í skólum landsins en hika þó ekki við að ráðast á kennara og saka þá um ofbeldishneigð og aðra ónáttúm. Svona skrif em auðvitað hlutaðeigandi til skammar og þau dæma sig sjálf. En mér koma oft í hug, er ég les slík árásarskrif á kennara og aðra, þessi vísuorð eftir Bjama Thorarensen: Magnlítinn sé ég margan heigul vega, hvar hann vissi vðm fyrir litla og yfír saklausum sigri hrósa, að afl hann hafði til illverka. Það er hreint og beint með ólík- indum hvemig fjallað er stundum um einstaka kennara I Qölmiðlum. Það þykir jafnvel við hæfí að sneiða að aldurhnignum fyrrverandi kenn- umm sínum og fara með rakalaus ósannindi um þá. Um þetta em því miður ýmis dæmi. Skrif um málefni kennara í sum- um blöðum em þó yfírleitt með allt öðmm hætti en að framan greinir. Þekkingu og skilning á þessum mikilvægu málum má þar víða fínna og stundum velvild í garð kennara og ber að þakka það. Auðvitað em kennarar ekki hafnir yfír gagnrýni fremur en aðrir menn og rökstudd gagnrýni verður oft til góðs. Og þótt stundum birtist í blöðunum miður uppbyggileg skrif, þá koma þar líka oft ágætar greinar með gagnlegum ábendingum. Hér að framan var minnst á þau viðhorf DV að það beri „ekki skóla- kerfínu og fslenskukennslunni gott vitni hversu móðurmálsþekkingu ungs fólks er ábótavant". Fleiri hafa einnig haldið fram hinu sama. Skal aðeins vikið að þessu nánar. Það að kenna íslenskukennurum um hnignandi málkennd og fjalla ekkert um umhverfi og breyttar aðstæður á heimilunum er nú ekki beirit gáfulegt að minni hyggju. Böm og unglingar alast nú upp við stöðuga ásókn ensk-amerískrar popp-plágu, sem glymur sífellt í eyram. Sjónvarp og mjmdbönd em að stómm hluta á ensku og ensk- amerísk viðhorf umlykja okkur alla daga allt árið. Halda menn að þetta hafí ekki áhrif á tungutak bama — eða hvað? Það að kenna móðurmáls- kennumm um slæmt málfar bama og unglinga er svipað því að gefa bömum oft sælgæti og sinna svo lítt um burstun eða aðra tannhirðu. Segja svo þegar skemmdir koma í ljós: Þetta er tannlæknum að kenna! Þetta er einnig hliðstætt því að menn venji sig á reykingar, of- neyslu áfengis, óhollan mat og hreyfíngarleysi. Svo þegar líkaminn léti á sjá, að þá segi menn: Þetta er læknum að kenna! — Auðvitað geta íslenskukennarar, tannlæknar og læknar gert mikið gagn á sínum sviðum. En það má ekki gleyma umhverfí og aðstæðum, sem hafa hér mikil áhrif, oft jafnvel úrslita- áhrif. En að því er varðar íslensku- kennsluna þá er rétt að víkja hér að tveimur atriðum, sem fram komu í opinberri skýrslu er Baldur Haf- stað tók saman nýlega á vegum menntamálaráðuneytisins um þetta efni. í skýrslunni segir að sums staðar sé skipulag í framhaldsskól- um þannig að menn geti stundað nám „f þijár annir án þess að sækja nokkra tíma í íslensku" og það á vomm tímum þegar umhverfí ung- menna sé á margan hátt andsnún- ara en áður var í íslenskri tungu, menningu og bókmenntum. — Þetta getur væntanlega þýtt það að sum- ir nemendur hafí ekki fengið neina fslenskukennslu í tæþ tvö ár. Hvað segja menn um þetta? Annað mál, sem tengist þessu, kemur skýrt fram í skýrslunni. Móðurmálskennarar á íslandi fá ekki sérstakan kennsluafslátt til að fara yfír skriflegar æfíngar og rit- gerðir, en þetta tíðkast víða á Norð- urlöndum, þ.e. með þeim þjóðum er vilja leggja rækt við þjóðtunguna í verki. Þetta er auðvitað stórmál, sem ráðamenn þurfa að gaumgæfa ef alvara fylgir orðum um nauðsyn þess að efla íslenska tungu og menningu á umrótstímum. Oft hef ég heyrt menn tala um störf kennara af ótrúlegri fávisku, jáfíivel illgimi. Sumir telja að þeir vinni aðeins þegar þeir era við kennslu f kennslustofíim. Slík fá- fræði er því miður furðu algeng. Þetta er þó nánast hliðstætt því að menn teldu leikara aðeins starfa, er þeir væm á sviði á leiksýningum. Eða þá að menn miðuðu störf þing- manna við fundi í þingsölum. Hvort tveggja er auðvitað fráleitt. — En þar sem oft má heyra slíka fáfræði um kennara, verður hér gerð grein fyrir störfum kennara á framhalds- skólastigi, eins og þau koma undir- rituðum fyrir sjónir. Margt af þessu mun eiga við um kennara á öðmm stigum. Störf kennaranna em eink- um þessi: 1. Sjálf kennBlan. 2. Undirbúningur kennslu. 3. Samning og yfírferð verkefna, td. skriflegra æfínga eða rit- gerða. íslenskukennarar þurfa jafnvel að fara yfír um 160 rit- gerðir og próf á skólaárinu (þar af er um þriðjungur á próftíma). Kennarar í öðram greinum fara og yfír fjölmörg verkefni. Þessi umfangsmikla yfírferð verkefiia fer oft fram um helgar og í „leyfum" kenn- ara. Svo tala fáfróðir menn um endalaus „leyfí“ þeirra! 4. Samráðsfundir við aðra kenn- ara og skólamenn. Oft fer vem- legur tími í það að leiðbeina nýliðum, sem era svo hættir næst vor. 5. Samtöl við nemendur og for- eldra, sem hafa áhyggjur af börnum sínum. ORYGGISSKOR NY GERÐ OG BREIÐARA SNIÐ Nýja línan var framleidd til að gera fleirum mögulegt að nota þessa frábæru öryggisskó. JALLATTE öryggisskórnir eru með stáltá og stálþynnu í sóla, með stömum olíu- og hitaþolnum Neotril sóla. JALLATTE er allt sem þarf á fæturnar. Skeifan 3h - Sími 82670 Ólafur Oddson „Það að kenna íslensku kennurum um hnign- andi máikennd og fjalla ekkert um umhverfi og breyttar aðstæður á heimilunum er nú ekki beint gáfulegt að minni hyggju. Börn og ungl- ingar alast nú upp við stöðuga ásókn ensk— amerískrar popp— plágu, sem glymur sífellt í eyrum. Sjón- varp og myndbönd eru að stórum hluta á ensku og ensk—amerísk við- horf umlykja okkur alla daga allt árið. Halda menn að þetta hafi ekki áhrif á tungutak barna — eða hvað?“ 6. Aðstoð við blaðaútgáfu nem- enda, bókmenntakynningar, ræðukeppni o.fl. 7. Ferðir með nemendur, td. á söguslóðir íslendingasagna eða á merka staði á sviði jarðfræði eða náttúrfræði. 8. Mjög umfangsmikil störf er próf fara fram, þ.e. samning og yfírferð prófa, yfírsetur eða prófstjóm, útreikningur prófa, skráning árangurs í skýrslur og á prófskírteini. 9. Avorinerundirbúningurskóla- uppsagnar sem er all umfangs- mikil athöfn og er þar í mörg hom að líta, t.d. um lokafrá- gang skírteina, afhendingu verðlauna og fleira. 10. Eftir skólaslit þarf að gera skýrslur um störf liðins vetrar, leggja á ráð um störf næsta vetrar, huga að kennsluáætlun, kennslugögnum, bókakosti o.fl. 11. Á sumrín þurfa kennarar oft að sækja ýmis námskeið. Þá er og lífsnauðsynlegt fyrir þá að lesa sér til í frasðum sínum. Sá sem þetta ritar hefur t.d. farið yfír nú í sumar margar íslendingasögur og ritgerðir um þær. Er það mjög ánægju- legt, en er um leið liður í undir- búningi starfa í vetur. — Svo þurfa kennarar sitt frí eins og aðrir. 12. Fyrrgreindir liðir era mis- umfangsmiklir, en rétt er að neftia að sumir kennarar gegna einnig sérstökum stjómunar- eða eftirlitsstörfum. Þá má nefna eitt í þessu sam- bandi. Meirihluti starfa margra kennara er unninn í eigin skrifstofu- húsnæði með eigin handbókum, skjala— og gagnahirslum, sérút- búnum ritvélum og gögnum. Nokk- ur kostnaður fylgir slfkum rekstri og eðlilegri endumýjun gagna og búnaðar. Kennarar leggja þetta yfírleitt allt til sjálfír. Þetta er

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.