Morgunblaðið - 01.09.1988, Page 45

Morgunblaðið - 01.09.1988, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988 á Sómastöðum, sátu bú sitt austur þar með ágætum, þar sem alúðin og snyrtimennskan lýsti af allri iðju og úti sem inni bar allt umhirðu og eljusemi systkinanna ágætt vitni. Þar var gestum og gangandi tveim höndum tekið og hið bezta ávallt í boði. Gestrisni húsfreyjunnar á Sóma- stöðum var ekki innantóm upp- gerðarkurteisi, þar var öllum tekið af sömu einlægu hjartahlýjunni, að allir mættu njóta þess, að þar væru þeir velkomnir. Mikið undur er gott að hugsa til þess tíma, er komið var í hlað á Sómastöðum, handtökin hlý og traust, horfið á vit góðra veitinga og ekki síðri umræðna um landsins gagn og nauðsynjar, bros og birta yfir öllu, því ævinlega voru hinar ljósu hliðar lífsins efst á baugi, það sem lýsti upp, það sem brá bjarma gamanseminnar grómlausu yfir gráan hversdagsleikann. Ekki var síður um vert að hlýða á heitar og ákveðnar skoðanir, sem ekki voru á neinu rósamáli reifað- ar: Um ísland fyrir íslendinga eina, utan allra herbandalaga, laust úr viðjum vígóðra dáta, um rétt hins stritandi þegns til verðugra verka- launa, þar sem afætum öllum yrði ýtt út í yztu myrkur. Af heitu hjarta var Guðrún hinn sanni herstöðva- andstæðingur, hiklaust og einarð- lega hélt hún á málstað sínum, málstað friðar, frelsis og jafnréttis og þar af leiddi, að hún Var einlæg og ákveðin í afstöðu sinni til þjóð- félagsmála — lítilmagninn átti hug hennar og alla samúð og hún var ótrauð í því að túlka þann málstað á vettvangi hins daglega lífs. Hiklaust gekk hún þar til liðs, sem henni þótti þörf og þar var engin hálfvelgja á hlutunum. Það fékk ég að reyna 1962, þeg- ar ég var að baksa við að koma saman lista vinstri manna heima, sem síðar varð Alþýðubandalagsins, og fór til Guðrúnar í liðsbón. An mikils hiks, eftir að hafa hugsað málið, gaf hún þess kost að fara í þriðja sæti listans, sem þá voru líkur til að yrði varamannssæti í sveitar- stjóm, sem og varð. Önnur af- bragðskona, sem féll sviplega frá á síðasta ári, skipaði svo fjórða sætið, og ekki var nú jafnréttisþróunin komin lengra á veg en það þá, að listi okkar var oftast kallaður kvennalistinn hans Helga. Guðrún sat svo fyrir mig nokkra fúndi og var í nefndum á okkar vegum og við vissum öll, að þar var vel skipað sæti og sannarlega hefði hún átt að halda áfram, en svo varð þó ekki af ýmsum ástæðum. En liðsemdar hennar var áfram gott að leita, enda lagði hún ótæpt lóð sitt þar á vogarskálar, sem hún taldi þess þurfa. Sómastaðir í Reyð- arfirði liggja ef svo má segja um þjóðbraut þvera, þjóðvegurinn ligg- ur fram með húsveggnum, en ys og þys umferðarinnar virtist óra- fjarri, þegar inn í stofu var gengið og glaðst með glöðum, því húsráð- endur létu það í engu raska hug- arró sinni. Hins vegar gerðist það gjaman meðan vegir vom verri og farar- tæki ekki svo fullkomin sem nú, að Sómastaðir urðu áningar-, fyrir- greiðslu- og griðastaður þeirra, sem þar fóm um garð. Og víst var um það, að öllum var ópnum örmum tekið af þeirri rausn og reisu, sem þessum ágætu systkinum var í blóð borin og ekki talinn eftir aukinn erill og ærin fyrirhöfn. Þar vom höfðingjar heim að sækja og ekki leyndi sér hversu samtaka þau systkinin vom í ein- drægni sinni og einlægum vilja að gjöra öllum gott. Böm og unglingar sóttu mjög í sveit til þeirra og það vissi ég vera þeim góðan skóla, sem þau mátu mikils á lífsleiðinni. Þeim var kennt að vinna án allr- ar þjökunar, þau fengu bæði blíðu og ákveðna ögun, þeim var kennt það gildis- og verðmætamat, sem mestu skiptir í lífinu. Umsögn þeirra yljuð miklum hlý- hug segir mikla sögu og sóma- prýdda. Hlutur Guðrúnar var ekki ein- ungis við heimilið bundinn, því í búskapnum öllum var hún hinn virki þátttakandi, rösk og kappsöm, sem kom sér einkar vel áður en tæknin hélt innreið sína. Búfénaður þeirra bar af, um- hverfið allt var fágað og fegrað, þar fannst ekki ryðbrunnið msl og gamalt fúaskran eins og alltof víða blasir við. Hvom tveggja sýnir og sannar mikið um eðliskosti systkin- anna á Sómastöðum. Eg tala gjaman um þau bæði í sömu andrá og ekki að ástæðu- lausu, svo ágætlega sem þau sam- tvinnuðu helztu kosti góðra húsráð- enda. Guðrún var glaðlynd kona, naut þess að gefa öðmm og vera gefið af nægtabmnni gleðinnar, sam- bland kímni og kátínu og umhugs- andi alvöru varð hjá henni eðlilegt í allri viðkynningu. Hún var sérlega vel greind kona, fylgdist vel með helztu hræringum þjóðlífs, las mikið og sagðist læra af, var enda víða heima og gat í mörgu miðlað miklum fróðleik. Hún var ör í lund, en alltaf skjót til að hlýða á annarra sök og ráð, en hæst fannst mér bera heita, mann- lega samkennd, sem hún sýndi í orði sem í verki. Hún var kona mikilla heilinda, traustrar skap- gerðar og ríkrar rausnar, vinsæl og vinmörg. Ég rek ekki ætt hennar né ævi- göngu öðmvísi en í örstuttu máli. Ástríður Guðrún var fædd 18. apríl 1909 og var því á áttugasta aldursári er hún lézt. Foreldrar hennar vom hjónin María Svein- bjarnardóttir frá Skáleyjum í Breiðafirði og Páll Beck bóndi á Sómastöðum. Systkinin vom fimm og em þrjú þeirra enn á lífi, Hans Jakob og systumar Steinunn og Sigríður. Sómastaðir vom heimili hennar alla tíð, en þar bjuggu þau félags- búi systkinin, hún og Hans Jakob, sem bar báðum ljóst vitni. Þau bmgðu búi 1983, enda heilsan þá farin að gefa sig.og miklar breyt- ingar í vændum á búskaparslóðum þeirra. Fluttu þau systkin hingað til Reykjavíkur og undu hag sínum allvel, enda frændgarður hér mikill og stór, en oft mun hugurinn hafa verið bundinn ættarslóðum eystra. Heilsunni hrakaði svo ört og heim- inn kvaddi hún 24. ágúst sl. sátt við allt og alla. Að baki er mikil og ágæt eljusaga, þar sem mörgum var veitt af rausn, enda ríkidæmi hjartans mikið. Starf búandkonu með mikla gestanauð er engan veginn rósa- braut athafnaleysis, en starfið gefur ótvíræða lífsfyllingu og Guðrún var í mörgu gæfumanneskja. Hún var kona einlægrar lífstrúar og lífsgleði, sem leiftrað gat af, þegar hún gaf sig á vald hugðarefn- um og hugarsýnum. Hún var heil og sönn í hverri gerð. _ Hún Ásta Gunna eins og hún var oft kölluð hefur farið sína hinztu ferð. Góð var ganga hennar um lífið og kært er hún kvödd af okkur, er áttum hana að vini. Við vottum Hans vini okkar og aðstandendum öðmm einlæga samúð. Fjölskylda mín þakkar gengna tíð og góða vináttu. Ég þakka farsæla fylgd og fal- lega minningu um tryggan félaga og traustan vin um áraraðir. Heiðríkja hásumars á Sóma- staðahlaði bregður ljóma á bjarta minningu. Blessuð sé sú bjarta minning. Helgi Seljan IMOKIA g létt útsölustaöir: Mikligaröur, Hagkaup, Samkaup Keflavík, Kaupstaöur, K.Á. Selfossi, Kaupfélögin um land allt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.