Morgunblaðið - 03.09.1988, Side 23

Morgunblaðið - 03.09.1988, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988 23 Erfðaraimsóknír afla okkur aukínn- ar þekkingar á algengum sjúkdómum -■ segirÓlafur Jensson yfir- læknir Blóð- bankans NORRÆNN fundur um læknis- fræðilegar erfðafræði var haldinn í fyrsta skipti hér á landi í lok síðasta mánaðar. Þar voru kynntar niðurstöður rann- sókna í læknisfræðilegri erfða- fræði. Að sögn Ólafs Jensson- ar, yfirlæknis og forstöðu- manns Blóðbankans, hafa slíkar rannsóknir mikið gildi bæði vegna þekkingaröflunar um einstaka erfðasjúkdóma og einnig vegna þekkingar sem þær veita um ýmsa algenga sjúkdóma sem meðal annars eiga rót að tekja til erfðaþátta. Til fundarins komu 15 norræn- ir vísindamenn, þar af 10 íslenskir. „Á fundinum voru flutt 35 er- indi um það sem er efst á baugi í rannsóknum í erfðafræði, til dæmis erfðaefnis- og litninga- rannsóknjr og rannsóknir á efna- skiptasjúkdómum, “ segir Ólafur Jensson um efni fundarins. „Innan Norðurlandanna er talsverð sam- Morgunblaðið/Emilía Undirbúningsnefnd fundar um læknisfræðilega erfðafræði. Talið frá vinstri: Leifur Þorsteinsson, Alfreð Arnason, Ástríður Pálsdóttir, Sif Jónsdóttir, Ragnheiður Fossdal og Ólafur Jensson. vinna um rannsóknir af þessu tagi og hafa íslendingar átt marg- háttaða samvinnu við erlenda vísindamenn á þessu sviði. Árang- ur þessarar samvinnu endurspe- glaðist í erindum fundarins. Til dæmis flutti dr. Flemming Giittl- er, frá Kennedy Institute í Kaup- mannahöfn, erindi um rannsóknir danskra vísindamanna og tveggja íslenskra lækna, þeirra Péturs Lúðvígssonar og Þrastar Laxdal, á tveimur sjaldgæfum arfgengum efnaskiptasjúkdómum." „Þetta var kærkomið tækifæri fyrir íslenska fræðimenn til þess að kynna niðurstöður áralangra rannsókna á þessu sviði,“ segir Ólafur. „Mesta athygli vöktu nið- urstöður rannsókna á sviði arf- gengra heilablæðinga en dr. Ástríður Pálsdóttir flutti erindi um erfðaefnisrannsóknir á þeim sjúkdómi. Einnig fluttu starfs- menn Rannsóknarsofu Háskóla Islands við Barónsstíg erindi um litningarannsóknir og erfðaefnis- rannsóknir á brjóstakrabbameini. Enn fremur flutti Alfreð Ámason fyrirlestur um arfgengi klofins góms og tunguhafts í íslenskri ætt. Þær rannsóknir hafa verið gerðar í samvinnu Blóðbankans, Lýtalækningadeildar Landspítal- ans og rannsóknarstofu St. Mar- y’s sjúkrahússins í Lundúnum." Ólafur Jensson segir miklar framfarir hafa orðið í erfðafræði á undanfömum ámm. „Það er erfítt að halda í við þróunina og ómögulegt að bjóða upp á allt það besta á þessu sviði á einum stað. Með nánu samstarfi við rannsak- endur í nágrannalöndunum má þó sífellt bæta þekkingu okkará þessu sviði. Rannsóknir á sjald- gæfum erfðasjúkdómum afla okk- ur aukinnar þekkingar á ýmsum algengum sjúkdómum þar sem erfðaþættir koma við sögu, til dæmis sykursýki, gigtar- og hjartasjúkdómaum, krabbameini og öldrunarsjúkdómum svo sem Alzheimer." Ólafur sagði að lokum að yfír- völd heilbrigðismála í velferð- arríkjum hefðu á síðustu árum lagt sig fram við að styrkja lækn- isfræðilegar erfðarannsóknir, enda skiptu þær höfuðmáli fyrir framþróun læknavísindanna. Daníel Óskarsson og Anna Gurine. Morgunblaðið/Þorkell Hjálpræðisherinn: Nýr yfirmaður tekur til starfa DANÍEL Óskarsson verður settur I starf yfirmanns Hjálpræðis- hersins á íslandi og í Færeyjum á fagnaðarsamkomu sunnudaginn 4. september. Eiginkona hans Anna Gurine mun starfa með honum. Þau hafa áður unnið hjá hernum i Reykjavík, en sl. 3 ár • • Olvaður á stolnum bíl í árekstri 25 ÁRA maður, grunaður um ölv- un, lenti í árekstri á stolnum bil á mótum Bokhlöðustígs og Lauf- ásvegar um klukkan 16 á fimmtu- dag. Maðurinn hafði stolið bílnum, Lada-jeppa, á bílastæði við Kringl- una skömmu áður. Þar höfðu lykl- amir verið skildir eftir í bílnum. Maðurinn ók í átt að miðbænum og lenti þar í árekstri á fyrrgreindum gatnamótum. Hvorki hann né öku- maður bílsins, sem hann ók á, slasað- ist. Maðurinn hefur margsinnis áður komið við sögu lögreglu. hafa þau búið í Noregi þar sem þau voru æskulýðsleiðtogar Hjálpræðishersins i Ösló. Daniel Óskarsson og Anna Gurine eru bæði kapteinar í Hjálpræðis- hemum. Þau störfuðu hér á landi frá árinu 1980 til 1985 er þau héldu til Noregs. Daníel var þá einnig yfír- maður. Hann er fæddur í Reykjavík árið 1947, sonur Óskars Jónssonar og Ingibjargar Jónsdóttur, sem bæði hafa starfað sem foringjar innan Hjálpræðishersins í mörg ár. Anna Gurine er frá Noregi. Þau eiga þijú böm. Daníel verður vígður til starfsins á fagnaðarsamkomu á sunnudags- kvöld kl. 20.30. Stjómandi verður Odd Tellefsen fulltrúi umdæmis- stjóra Hjálpræðishersins yfír um- dæminu Noregur, ísland og Faereyj- ar. Sama dag kl. 17.30 verður sam- sæti til heiðurs Daníel og Önnu fyr- ir hermenn og fjölskyldur þeirra. Fagnaður verður á Ákureyri um næstu helgi. Daníel og Anna taka við af hjón- unum Emst Olson og Dóm Jónas- dóttur sem fara á eftirlaun. Anna tekur við starfi ritara Heimilasam- bandsins á íslandi og í Færeyjum. Heimiliasambandið er alþjóðleg kvennahreyfíng innan vébanda Hjálpræðishersins. Milljónir á hverjum laugardegi. Upplýsingasími: 685111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.