Morgunblaðið - 06.09.1988, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
202. tbl. 76. árg. ______________________ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandarískar her-
stöðvar á Gríkklandi:
Bandaríkja-
mennfresta
frekari
viðræðum
Aþenu, Reuter.
BANDARÍSKIR samningamenn
frestuðu í gær skyndilega við-
ræðum sínum við Grikki um
herstöðvasamning ríkjanna eft-
ir að fulltrúar Grikkja tilkynntu
þeim formlega að loka yrði
bandariska herflugvellinum
Hellenikon við Aþenu.
Þrátt fyrir að bandarískir emb-
ættismenn segðu að aðeins væri
um tímabundna frestun að ræða
átti frestunin sér stað á fyrsta
degi níundu samningalotu
ríkjanna. Alls átti hún að taka
eina viku.
Enn hefur ekki verið rætt hve-
nær viðræður geta hafíst að nýju.
Gríska stjómin tilkynnti Banda-
ríkjamönnum fyrr á árinu að her-
stöðvasamningur ríkjanna myndi
renna út í desember næstkom-
andi. Þá hafa Bandaríkjamenn 17
mánuði til þess að hafa sig á brott
— nema að nýtt samkomulag sé
undirritað fyrir þann tíma.
Sósíalistinn Andreas Papandre-
ou, forsætisráðherra Grikklands,
hefur sagt að samið verði við
Bandaríkjamenn óski þeir þess, en
ekki nema það þjóni „ýtrustu þjóð-
arhagsmunum" Grikkja. Er talið
að hann eigi við að Bandaríkja-
menn snúist á sveif með Grikkjum
í deilum þeirra við Tyrki um Eyja-
haf og Kýpur. Stjórnvöld í Was-
hington segja slíkar bollaleggingar
hins vegar fráleitar.
Lithaugaland:
Kjarnorku-
veriforðað
frá eldsvoða
Moskvu, Reuter.
SOVÉSK stjórnvöld lokuðu
í gær hluta kjarnorkuvers í
Lithaugalandi eftir að eldur
kom upp í einum af kjarna-
ofnum versins, sem er sömu
tegundar og kjarnorkuverið
í Tsjernobyl.
Að sögn hinnar opinberu
fréttastofu TASS láku engin
geislavirk efni út úr kjarna-
ofninum. Þá sagði fréttastofan
engan hafa slasast af völdum
eldsins.
Ígnalína-kjamorkuverið
mun vera hinn mesti galla-
gripur og hafa afköst þess
sjaldnast verið með eðlilegum
hætti frá því að það var fyrst
starfrækt árið 1983. Hafa
vísindamenn innan sem utan
Sovétrílq'anna hvað eftir ann-
að lýst yfír áhyggjum sínum
af öiyggisbúnaði versins.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ólafur Noregskonungur V. sækir Ísland heim
Ólafur Noregskonungur V. kom í heimsókn til íslands í gær og var myndin tekin skömmu eftir að
frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, tók á móti konungi á Reykjavikurflugvelli.
Sjá ennfremur frásögn á síðu 67.
Bangladesh:
Bretland:
Póstþjón-
usta til og
frá Bret-
landi lömuð
St. Andrews, frá Guðmundi Heiðarí
Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðs-
ins.
VERKFALL póstþjóna sem
hófst í síðustu viku og átti að
standa upphaflega í einn sóiar-
hring, heldur áfram. Innan-
lands hafa póstsamgöngur
truflast mjög af þessum sökum,
en póstsamgöngur Breta við
umheiminn hafa nær alveg lam-
ast. Litlar líkur þykja á sam-
komulagi. Færist harka í deil-
una og hafa verið ráðagerðir
um að kalla einkaaðila til póst-
dreifingar.
I síðustu viku gripu breskir
póstþjónar til sólarhringsverkfalls
til að mótmæla áformum póst-
þjónustunnar um að hækka laun
póstþjóna í London og annars stað-
ar, þar sem mikil eftirspum er
eftir vinnuafli. Samband póstþjóna
krafðist þess að hækkanimar yrðu
látnar ganga yfir alla. Póstþjón-
ustan neitaði þessu og hefur
hvergi viljað gefa eftir.
Á fimmtudag í síðustu viku vora
síðan ráðnir aukamenn til að
flokka og afgreiða það sem safn-
ast hafði fyrir á miðvikudag, en
þá lögðu póstþjónar víða um land
niður vinnu til að mótmæla því
að fá ekki að flokka póstinn í ýfir-
vinnu sjálfír. Fyrirhugað var í gær
að ráða einkafyrirtæki til að safna
pósti og flytja á þær stöðvar sem
enn störfuðu. En þá lögðu enn
fleiri póstþjónar niður vinnu. Líkur
aukast á allsherjarverkfalli póst-
þjóna. Meira en 65 milljón bréf
og bögglar liggja óflokkaðir á
pósthúsum víða um landið.
Stjómvöld hafa gefíð í skyn að
einkaréttur póstþjónustunnar
verði afnuminn ef ekki semst í
þessari viku. í fyrra hótuðu póst-
þjónar verkfalli fyrir jólin til að
knýja fram kauphækkun og þá lét
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra, þá skoðun í ljósi, að kæmi
þetta fyrir aftur yrði einkaréttur
póstþjónustunnar til að flytja bréf
afnuminn.
Þriðjtmgur kombirgða ónýtur
Kafrul í Bangladesh, Reuter.
ENN rigndi i Bangladesh í gær
og er óttast að tala þeirra, sem
látist hafa í monsúnflóðunum und-
anfamar tvær vikur, sé að nálgast
sjötta hundraðið. „Hellidemba
reið aftur yfir landið rétt eftir að
flóðin, sem valdið höfðu ótrúleg-
um þjáningum, fóru fyrst að réna
á sumum stöðum," sagði embættis-
maður í þorpinu Kafrul, fimm km
frá höfuðborginni Dhaka. Talið
er að þriðjungur kornbirgða
Iandsins sé nú ónýtur af völdum
flóðanna og því þ'óst að gífurlegur
matvælaskortur mun koma upp
berist landinu ekki aðstoð.
Að minnsta kosti 30 manns hafa
látið lífið frá því á sunnudag, aðal-
lega í Norður-Bangladesh. Er opin-
ber tala látinna þá orðin hærri en
550. Aðrir telja þó að rúmt þúsund
manna hafí þegar látist. Margir
þeirra, sem látist hafa, drukknuðu
þegar drekkhlaðnir bátar ultu, en
einnig hefur talsverður fíöldi látist
af völdum eiturnaðra og sjúkdóma.
„Við erum matarlaus, svefnlaus
og höfum i ekkert hús að venda,"
sagði maður nokkur í Kafrul. „Þá
stafar okkur stanslaus hætta af eit-
umöðrum." Hlutskipti manns þessa
og fjölskyldu hans batnaði ekki þeg-
ar vopnaðir rummungar á hraðbát
hirtu allar lauslegar eigur þeirra.
Skammt frá fólki þessu stóð kona
ein f vatnselgnum miðjum og horfði
líkt og í leiðslu fram fýrir sig. Vatn-
ið náði henni í bijóst. Nágrannar
hennar sögðu að hún hefði ekki
hreyft sig undanfama þijá daga, en
þá dó sjö ára gamall sonur hennar
þegar hann fór að ná í drykkjarvatn.
I Kafrul hefur vatnsyfírborðið ekk-
ert lækkað og í hverri íjölskyldu er
einn eða fleiri veikur.
Heilbrigðisyfirvöld óttast að fjöldi
sjúkdóma muni breiðast út og auka
enn á hörmungamar. Þá er matvæla-
skortur þegar farinn að gera vart
við sig, en í Dhaka einni á um hálf
milljón manna hungur og vatnsskort
á hættu. Þá er mikill lyfíahörgull.
Sjá ennfremur frétt á síðu 30.