Morgunblaðið - 06.09.1988, Side 20

Morgunblaðið - 06.09.1988, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988 Framtíð sjávarútvegs - hver verður hún? eftir Svanfríði Jónsdóttur Þegar efnahags- eða hagstjóm- arvandi okkar íslendinga nær þeirri stærð að stjórnmálamenn og fjöl- miðlar taka til að fjalla um hann, þegar hugsanleg „lausn“ efnahags- vandans yfirskyggir alla aðra um- ræðu í landinu þá er sjávarútvegur- inn alla jafna í lykilhlutverki. Vand- inn stóri virðist eiga þar upphaf sitt jafnt sem endi og gildir þá einu hvort um er að ræða vanda vegna verri ytri skilyrða eða vanda vegna hagstjómar hér innanlands. Nú vakna menn rétt einu sinni upp við vondan draum. Saltfísk- vinnslan sem gekk svo glimrandi undanfarin ár er að sigla í tap, en afkoma hennar er misjöfn eftir landsvæðum. Frystihúsin um allt land em hins- vegar farin að tapa og það miklu. Talað er um 12% á þetta fræga meðalhús sem enginn veit hvar er staðsett, en menn geta þá rétt ímyndað sér hver staðan er sum- staðar. Staða frystihúsanna er að ýmsu leyti þannig að tæpast er hægt eða sanngjamt að tala um frystihús sem sjálfstætt fyrirtæki. Skulu ástæður þess nú raktar: 1) Frystihúsin selja vöm sína í gegnum tvö stór sölusamtök, Sambandið og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Samtökin eiga síðan og starfrækja verk- smiðjur og söluskrifstofur í Bretlandi og Bandaríkjunum. í versmiðjunum er hluti afurða frystihúsanna unninn frekar, þ.e. hluti afurðanna er iðnaðar- hráefni. Sölusamtökin sjá um markaðinn og semja um verð. Þau sjá jafn- framt um vömþróunarstarf. Frysti- húsin fá síðan upplýsingar um birgðastöðu, þar sem hægt er að sjá hvaða pakkningar vantar helst, hvað hreyfíst mest og hinsvegar fá þau verðskrá jrfír framleiðsluvör- umar. Af þessu fyrirkomulagi leiðir að stjómendur fiystihúsanna hafa ekki yfírsýn yfír markaðinn og þær breytingar sem þar kunna að vera í farvatninu. Framleitt er eftir birgðaskýrslum og verðskrám sem kunna að breyt- ast og dæmi em um núna að fram- leitt hefur verið í góðri trú eftir verðskrá sem síðan hefur verið breytt og látin virka á þegar fram- leidda vöm. Slík áfoll hafa húsin tekið á sig af fullum þunga og menn horft á birgðir lækka á einni nóttu um milljónir. 2) Flest frystihús kaupa og vinna heila togarafarma af blönduð- um, misgömlum afla. Sérhæfíng er því nánast útilokuð. Staðan er einnig þannig að þegar mest berst að, t.d. yfír sumartímann, að útilokað er að framleiða þá vöm sem e.t.v. væri hagstæðast því keyra þarf mikið magn gegn- um húsin á stuttum tíma og vinnuaflið er að stómm hluta unglingar og böm. 3) Tekjur frystihúsanna ráðast ekki einvörðungu af framan- greindum þáttum, þ.e. því verði sem sölusamtökin hafa, og hvað framleitt er, heldur einnig af skráningu gengis, þ.e. hve margar krónur fást fýrir dollara og pund til að mæta innlendum kostnaði. Þannig er afkoma þeirra stór- lega háð því — í bullandi verð- bólgu, þ.e. linnulausum hækk- unum kostnaðarliða — hvemig gengið er skráð. Og vegna þess að genginu var haldið niðri „með handafli" á sama tíma og til- kostnaður jókst, tókst húsunum ekki að laga stöðu sína í góðær- inu. H áu verðin mnnu beint í gegn og í flestum tilfellum í vaxtagreiðslur. Því er ekkert borð fyrir bám nú. 4) Eignarhald margra frystihúsa er með þeim hætti að þau halda áfram rekstri eftir að þau ættu m.v. rekstrarstöðu að vera búin að loka. Jafnframt gegna þau lykilhlutverki í atvinnulífí fjöl- margra byggðarlaga. Rekstur- inn er þá auðveldaður með fyrir- greiðslu af hálfu viðkomandi sveitarfélags og skuldum breytt í hlutafé. Þannig renna þeir pen- ingar sem fara eiga til sameigin- legra þarfa íbúanna í gegnum frystihúsin og áfram inn í kerf- ið. Slík sveitarfélög þurfa enga tilskipun frá ríkiSvaldinu um að draga saman seglin í fram- kvæmdum. Undanfarin ár hefur reglulega mátt sjá um það skrif og vangavelt- ur hvort stjómendur fyrstihúsanna ætluðu nú ekki að fara að taka til hjá sér svo afkoman verði betri. í ljósi þess sem að framan er rakið má vera ljóst að svigrúm ein- staka húss er harla lítið. Reynt hefur verið eftir hugviti og peninga- legri getu að tæknivæða húsin og auka framleiðni. Síðan verið horft til almennra efnahagsráðstafana, s.s. fískverðs, vaxta og gengis. Varðandi telq'umar virðist fyrst og fremst horft til gengisskráning- ar. Það hvemig til tekst með mark- aðssetningu og sölu virðist hafíð yfír gagnrýni, í mesta lagi að frysti- húsamenn hvísli um sofandahátt og værð yfír sölusamtökunum. Þau hafa sitt á þurru. Litlar breytingar eru sjáanlegar, þrátt fyrir gjör- breyttar aðstæður frá því þau voru stofnuð bæði í samtökum og fjar- skiptatækni. Hvar eru breyting'arnar? Breytingar virðast ekki á döfínni meðvitað varðandi frystihúsin. Samt sem áður eru breytingar, nán- ast bylting, í fullum gangi innan sjávarútvegsins. Þeim ráða ýmist örvæntingarfullar tilraunir til að auka tekjumar eða framsýni ein- stakra manna. Það er þó ljóst að margt af því sem nú er að gerast, gat vart gerst fyrr vegna m.a. tækni og samgangna. En lítum yfir sviðið. 1) Útflutningur ísaðs afla í gámum gerir það að verkum að skip þurfa ekki að sigla með allan aflann ef menn vilja freista gæfunnar á erl. fískmörkuðum. 2) Frystingin er að færast út á sjó, stjómlaust. 3) Fiskmarkaðir eru orðnir stað- reynd og í gegnum þá ættu for- sendur til sérhæfingar að vera til staðar og þar með forsenda fyrir skaplegum vinnutíma og betra skipulagi í framleiðslunni. Svanfríður Jónasdóttir „En víkjum þá aftur að stöðunni í dag. Staðan er orðin það bág, að ef ekki verður gripið til aðgerða strax munu húsin loka hvert af öðru og spurning hve mörg geta þá opnað aftur. Ef beðið er eða eitt- hvert hálfkák, sem ekk- ert endist, verður nið- urstaðan munu önnur öfl en heilbrigð skyn- semi ráða því hvort það verða tæknivæddustu og bestu húsin og/eða e.t.v. hús sem eru meg- in uppistaða atvinnulífs í heilu byggðarlagi sem lifa af. 4) Flutningur á ferskum sjávaraf- urðum með flugi — beint á markað — fer vaxandi. En víkjum þá aftur að stöðunni í dag. Staðan er orðin það bág að ef ekki verður gripið til aðgerða strax, munu húsin loka, hvert af öðru og spuming hve mörg geta þá opnað aftur. Ef beðið er eða eitthvert hálfkák, sem ekkert endist verður niðurstaðan, munu önnur öfl en heilbrigð skynsemi ráða því hvort það verða tæknivæddustu og bestu húsin og/eða e.t.v. hús sem eru megin uppistaða atvinnulífs í heilu byggðarlagi sem lifa af. Það þarf því að grípa til aðgerða sem bæði grípa á bráðum vanda og horfa til framtíðar. Hvað á þá að gera? 1) Lækka vexti. Það stenst enginn atvinnurekstur 9—12% raun- vexti. Það á ekki bara við um sjávarútvegsfyrirtæki, þau eru ekki endilega á því sviði fyrir- tækin sem ýmist em að fá greiðslustöðvun eða lýsa sig gjaldþrota þessar vikumar. For- senda þess að eitthvað gangi upp er auðvitað hagstjóm sem tekur mið af íslenskum aðstæð- um í stað æfinga með skóla- bókakenningar. 2) Hluta af skuldum verði breytt 5 hlutafé í viðkomandi fyrirtækj- um og eiginfjárstaða þeirra þannig styrkt. Bankar og sjóðir taki það á sig, og axli þar með sína ábyrgð af því hvemig kom- ið er. Við gætum t.d. hugsað okkur varðandi bankana að sá mismunur sem hefði verið á 3% raunvöxtum og því sem fyrir- tækin hafa greitt 1987 og 1988 yrði það sem horft yrði til. Þar sem bankar mega ekki eiga fyr- irtæki í rekstri væri eðlilegast að bæði þeir og viðkomandi sjóð- ir afskrifuðu þetta fé og að í fyrirtækjunum færi félag starfs- manna með þetta nýja hlutafé. Mér finnst það hinsvegar sið- WORD PERFECT 12.-15. september HÆTTA A STAFSETNINGARVILLUM OG RITVILLUM HVERFUR NÁNAST EF ÞÚ BEITIR WORD PERFECT WORD PERFECT inniheldur m.a. orðabók með 106.000 íslenskum orðum, sem auka má við eftir þörfum notenda. Allar valmyndir og skipanir eru á íslensku. EFNI: Skipanir kerfisins • Æfingar í notkun Word Perfect • Möguleikarorðasafns • Helstustýri- kerfisskipanir. LEIÐBEINANDI: Ragna SigurðardóttirGuðjohnsen, ritvinnslukennari. TÍMI OG STAÐUR: 12.-15. september kl. 8.30-12.30 í Ánanaustum 15. SÍMI: 621066 Stjórnundrféldg Islands TÖLVUSKÓU Ananaustum 15 Simi 62 10 66 t A Fyrirliggjandi í birgðastöð SVARTAR OG GALVANISERAÐAR PfPUR Samkv.:Din 2440 Magnafsláttur og greiðslukjör við allra hæfi! \ OQO° ooo O O OOo Sverleikar: svart, 3/8 - 5“ galv., 3/8 - 4“ Lengdir: 6 metrar SINDRA /S^SIALHF BORGARTÚNI31, SÍMAR 27222 & 21684 CiNmfRtGISrcn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.