Morgunblaðið - 06.09.1988, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988
21
leysi að ætla fólkinu í sjávar-
plássunum að taka enn á sig þær
byrðar gegnum sveitarsjóði og
jafnljóst að kaupfélögin víðast
eru ekki lengur til stórræða.
Hugmynd ráðgjafamefndar
ríkisstjómarinnar um það að gera
kaup á hlutabréfum í fyrirtækjum
gimilegan spamaðarvalkost fyrir
almenning breytir engu um stöðuna
í dag. í dag þýðir ekkert að telja
fólki trú um að peningar þess geti
ávaxtað sig eða haldið verðgildi í
þeim fyrirtækjum sem ganga á
lánsfé.
í þeim efnum verður að leggja
plan tii langs tíma, eða þess tíma
sem það tekur að endurreisa fjárhag
fyrirtækjanna og að þróa hluta-
bréfamarkað.
3) Verja verður fjármunum til þess
að hjálpa einstaka fyrirtækjum að
hætta í rekstri. Það væri hluti af
þeirri endurskipulagningu sem fram
þarf að fara. Víða háttar þannig
til að hægt er að sameina rekstur
eða leggja af rekstur án þess að
horfa til aðstæðna í viðkomandi
byggðarlögum og möguleikum til
rekstrar. Það er engum greiði gerð-
ur með því að halda öllum ryðkláf-
um atvinnulífsins á floti.
En eins og ég vék að áðan þá á
fólk að taka svona ákvarðanir en
ekki peningamarkaðurinn eða tölva.
4) Það svigrúm sem skapaðist við
þessar þríþættu aðgerðir á síðan
að nota til að endurskipuleggja
sölusamtök sjávarútvegsins með
það að leiðarljósi að nútíma
tækni og samgöngur verði nýtt-
ar til þess að færa þróunar-,
markaðs- og sölustarf til fyrir-
tækjanna sjálfra eða svæðis-
bundið — færa þau störf út —
þannig að brugðist verði við
breytingum á markaði strax og
í fyrirtækjunum sjálfum. Það
fyrirkomulag sem nú er hentaði
meðan fjarskiptatækni og sam-
göngur voru með öðrum hætti
en nú er.
I dag er hinsvegar unnt að fylgj-
ast með breytingum á markaði frá
degi til dags í fyrirtækjunum sjálf-
um og flugið gerir þá geymsluað-
ferð að frysta físk í mörgum tilfell-
um óþarfa. Þá er jafnframt ljóst
að því „styttra" sem er milli neyt-
enda og framleiðanda aukast lík-
umar á að hægt sé að verða við
óskum varðandi sérvinnslu ýmis
konar.
Og þá er komið að áherslupunkti
nr. (5) sem er í raunar hluti af (4)
en það er nauðsyn þess að þróunar-
starf í vinnslu sjávarafurða fari
fram sem víðast um landið. Ef slík
starfsemi, með þeirri þekkingu sem
fylgir, færi fram úti um allt land
ætti það að leiða til fjölbreyttari
framleiðslu sem bæði tæki mið af
verkþekkingu á viðkomandi stað
eða svæði og þeirri sérstöðu sem
kann að vera fyrir hendi í hinum
mismunandi byggðarlögum. Það
ætti jafnframt að efla tiltrú þess
fólks sem við greinina vinnur á
framtíð greinarinnar.
6) Menntun í sjávarútvegsgreinum
þarf að standa til boða sem
víðast, þannig að því fólki sem
annað hvort vill vinna í grein-
inni eða vinnur þar þegar, gefíst
kostur á að mennta sig og leita
endurmenntunar eftir aðstæð-
um. Það, að ungt fólk fer úr
fiskvinnslunni um leið og önnur
störf bjóðast stafar m.a. af því
áhuga- og virðingarleysi yfír-
valda að bjóða ekki upp á leiðir
til menntunar og þá aukinnar
þekkingar og sjálfstrausts sem
henni fylgir. Nám í fiskvinnslu
gæti sem hægast verið ein af
brautum fjölbrautaskólanna.
Sérstaklega þarf að beina aug-
um að hlutskipti kvenna, sem
oftast vinna einhæfustu störfín
og undir miklu álagi. Aukin
menntun samfara öðrum breyt-
ingum gætu stuðlað að fjöl-
breyttari störfum þeirra innan
greinarinnar.
7) Bankakerfí og sjóðir verða að
laga sig að nýjum aðstæðum,
auka þjónustu, ekki bara lána,
og taka áhættu varðandi þróun
og nýbreytni. Þeir þurfa að
horfa til framtíðar en ekki bara
skoða hvort veð sé í húseignum
m.v. brunamat eins og nú er
gert. Hugvit er líka verðmæti.
Þetta þýðir að bankar og sjóðir
þurfa í ríkari mæli að hafa í
sinni þjónustu fólk sem þekkir
til í þeim atvinnugreinum sem
þjónusta viðkomandi stofnunar
snýr að.
8) Það þarf taka upp gerbreytta
fjárfestingarstefnu þar sem tek-
ið verði tillit til raunverulegra
rekstrarmöguleika í viðkomandi
grein. Það að allt of margir séu
að fjárfesta í sömu grein getur
aldrei þýtt annað en taprekstur
hjá öllum þegar hráefni til
vinnslu er takmarkað.
Þótt slíkar fjárfestingar séu
gerðar undir merki byggðarstefnu
er slíkt fyrirtæki vafasamur ávinn-
ingur fyrir viðkomandi byggðarlag,
að ekki sé minnst á þjóðarbúið í
heild.
9) Kerfíð þarf að hafa skýrar regl-
ur og mismuna ekki þegar um
er að ræða fjárfestingar í at-
vinnulífínu. Það ábyrgðarleysi
sem menn komast upp með er
óþolandi og löngu tímabært að
kannað sé og gert opinbert
hvemig og af hveiju ýmsar
veigamiklar ákvarðanir sem
snerta atvinnulífið og fjárfest-
ingar þar eru teknar. Það að
hagsmunagæslumenn ýmiss
konar beiti áhrifum sínum til að
þrýsta á eða liðka fyrir ákvörð-
unum varðandi fjárfestingar
sem e.t.v. liggur fyrir að eru
hæpnar jafnvel óþarfar, á að
vera hluti af liðinni tíð.
10) Ég fjallaði hér áður um erfíð-
leika sem af því stafa að frysti-
hús kaupa og vinnaheila farma
af blönduðum afla. Éiskmarkað-
ir geta vissulega skapað for-
sendur fyrir betra skipulagi
vinnunnar þar sem hægt er að
kaupa það hráefni sem menn
vilja vinna og það magn sem
hentar. Það vandamál sem skap-
ast vegna þess að of mikið berst
að í einu eða of lítið verða menn
að leysa ef þeir ætla að ná skipu-
lagi á vinnslunni og vinnutíman-
um, og hvort tveggja er brýnt.
Fiskmarkaðir, ýmist gólf- eða
fjarskiptamarkaðir og fískmiðlun
þar sem það á við, hlýtur því að
verða hluti af þeirri framtíð sem
við sjáum fyrir okkur. En til þess
að slíkt samstarf geti átt sér stað
sem og annað það samstarf sem
nauðsjmlegt er fyrir þróun innan
sjávarútvegsins þarf ekki bara nýja
hugsun heldur einnig bættar sam-
göngur og þá líka samgöngur sem
auðvelda beinan útflutning.
Framtíðin kemur
okkur öllum við
Aðalatriðið er að við horfum ekki
bara til dagsins í dag eða næstu
vikna, heldur til framtíðar, hugsum
okkur inn í framtíðina óbundin af
fyrirkomulagi dagsins í dag. Það
þarf að birta fólki framtíðarsýn,
ekki síst því fólki sem vinnur í sjáv-
arútvegi, annars munu enn fleiri
missa trú á þeim möguleikum sem
þar felast og byggðarflóttinn auk-
ast.
Þá framtíð má ekki hugsa út frá
helmingaskiptum stjómmálaflokka
eða hagsmunum milliliða. Sú
framtíð kemur okkur öllum við.
Höfundur er varaformaður Al-
þýðubandalagsins.
Persónuleg umönnun meó Lactacyd..!
Lactacyd léttsápan eflir náttúrulegar varnir húðarinnar og
kemur í veg fyrir kláða og óþægindi sem myndast oft
við kynfæri, endaþarm og undir brjóstum.
Lágt pH-gildi
Lactacyd léttsápan inniheldur m.a. mjólkursýru sem á þátt í
lágu pH-gildi sápunnar, sem er 3,5. Lágt pH-gildið við-
heldur súrum eiginleikum húðarinnar sem eru náttúruleg
vörn hennar gegn sýklum og sveppum. „Venjuleg sápa“ er
lútarkennd (basísk) og brýtur þessar náttúrulegu varnir niður.
0--------------1-------------7------------------------------14
Lágt pH-gildi 3,5 Hlutlaust Hátt pH-gildi
Sýruciginleikar Lútareiginleikar
Lútarleifar — Kláði
Það er mikilvægt að viðkvæmum stöðum líkamans sé haldið
hreinum. „Venjulegur sápuþvottur*' er varasamur því að leif-
ar af lút verða gjarnan eftir og valda kláða á viðkvæmum
stöðum s.s. við kynfæri og endaþarm. Lágt pH-gildi
Lactacyd iéttsápunnar kemur í veg fyrir slíkan kláða.
MUNDU! Húðin heldur uppi sínum eigin vörnum
gegn sýklum og sveppum. Ef við notum ranga sápu
eyðum við þessum vörnum.
Lactacyd er fljótandi sápa með eða án ilmefna í 350 ml plast-
flöskum með spraututappa. Allar upplýsingar á íslensku.
Lactacyd léttsápan fæst í Fjarðarkaupum, Glæsibæ, Hag-
kaupum og Miklagarði. Og að sjálfsögðu í næsta apóteki.