Morgunblaðið - 06.09.1988, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988
Eimreiðarlíkan
Vestur-Þjóðverji sýnir eimreiðarlíkan, sem er eitt það minnsta í heiminum, aðeins 0,8 cm að
lengd. Likanið verður sýnt á alþjóðlegri sýningu lestarlíkana í Hamborg.
Rúmenía:
Saka Ungverja um
að níða Ceausescu
Vín. Reuter.
MÁLGAGN rúmenska kommún-
istaflokksins fór á sunnudag
mjög hörðum orðum um ung-
verska fjölmiðla og sakaði þá um
níða niður stefnumál Nicolaes
Ceausescu Rúmeníuforseta. Að-
eins vika er liðin síðan leiðtogar
ríkjanna áttu með sér fund þar
sem rætt var um ágreiningsefnin
milli þeirra.
Ungveijar saka Rúmena um að
kúga ungverska minnihlutann í
Rúmeníu og voru þær ásakanir
helsta umræðuefnið á fundi þeirra
Ceausescus og Karolys Grosz, leið-
toga Ungveija, fyrir viku. Að fund-
inum loknum sagði Ceausescu, að
hann hefði farið fram í mesta bróð-
emi og því vekja árásimar, sem
komu fram í Scinteia, málgagni
rúmenska kommúnistaflokksins,
meiri athygli en ella. Sagði þar, að
fjölmiðlar í Ungveijalandi afbökuðu
og afskræmdu áætlanir Ceausescus
um að uppræta helming allra þorpa
í Rúmeníu en Ungveijar óttast, að
þeim sé fyrst og fremst stefnt gegn
ungverska minnihlutanum. I Scin-
teia var sérstaklega ráðist á dag-
blaðið Nepszabasag, málgagn ung-
verska kommúnistaflokksins, og
segja stjómarerindrekar í Búda-
pest, að það sé í raun árás á ung-
versku ríkisstjómina og Grosz.
Scinteia sagði, að Rúmenar hefðu
fyrir langalöngun leyst vandamál
allra minnihlutahópa í landinu og
lagði einnig áherslu á, að hér væri
um að ræða rúmensk innanríkis-
mál, sem öðrum kæmi ekki við. Þá
var einnig sagt, að efnahagsum-
bætur ungverskra stjómvalda hefðu
orðið öllum til tjóns og væru ekki
til eftirbreytni.
Chile:
Þúsundir manna mót-
mæla við forsetahöllina
Santiago. Reuter.
ÓeirðalögTeglan beitti tára-
gasi á sunnudag til að dreifa
þúsundum Chile-manna sem mót-
mæltu útnefningu Augustos
Pinochets sem frambjóðanda í
forsetakosningunum í Chile.
Andstæðingar herforingjastjóm-
arinnar efndu til fjöldagöngu sem
lauk við forsetahöllina og að sögn
skipuleggjenda tóku um 300.000
manns þátt í henni. Gangan var lið-
ur í herferð stjómarandstæðinga
sem beijast fyrir því að Pinochet
fái ekki meirihluta atkvæða í kosn-
ingunum 5. október.
Þetta var.mesta fjöldaganga sem
efnt hefur verið til á götum Sant-
iago-borgar eftir valdaránið árið
1973 og sú fyrsta síðan neyðarlög-
um var aflétt í síðustu viku. Mikill
mannfjöldi safnaðist saman við
mestu umferðaræð borgarinnar, en
Suður-Kórea:
Afengisbanni
aflétt í Ólymp-
íuþorpinu
Seoul. Reuter.
KEPPENDUR á Ólympíuleikun-
um geta skálað fyrir sigri eða
huggað sig við víndrykkju þar
sem áfengisbanni hefur verið
aflétt í Ólympíuþorpinu.
Skipuleggjendum leikanna bár-
ust kvartanir vegna þess að örygg-
isverðir hefðu gert áfengi upptækt
þegar nokkrir bandarískir og hol-
lenskir keppendur hefðu reynt að
smygla því í þorpið. Banninu var
aflétt nokkmm klukkustundum
síðar.
Frakkar em sagðir ánægðastir
með lyktir málsins, því pantaðir
höfðu verið þrír vörubílsfarmar af
víni handa frönsku keppendunum.
þegar mótmælendumir námu átað-
ar við forsetahöllina og sungu þjóð-
sönginn sprautaði lögreglan vatni
og beitti táragasi til að dreifa þeim.
Mótmælin héldu þó áfram í tvo tíma
í miðbænum. Að sögn talsmanna
lögregiunnar vom rúmlega 200
mótmælendur handteknir.
Dóttir Salvadors Allendes, fyrr-
um forseta landsins, Isabel, var á
meðal nokkurra pólitískra útlaga
sem tóku þátt í mótmælunum.
Skoðanakannanir gefa til kynna
að Pinochet hafí meirihlutafylgi í
dreifbýlinu en ekki í borgum lands-
ins. Sextán stjómarandstöðuflokk-
ar, sem hafa sameinast í baráttunni
gegn Pinochet, segjast ætla að
knýja á um viðræður um lýðræðis-
legar kosningar í landinu nái
Pinochet ekki kjöri.
Singapore:
Lee hyggst
segja af sér
eftir stór-
sigur í þing-
kosningum
Singapore. Reuter.
LEE Kuan Yew lýsti því yfir á
sunnudag að hann hygðist segja
af sér sem forsætisráðherra
Singapore eftir að ljóst var að
flokkur hans hafði unnið mikinn
sigur í þingkosningunum á laug-
ardag. Lee hefur gegnt forsætis-
ráðherraembætttinu í tæp 30 ár,
eða síðan Singapore varð sjálf-
stjórnarríki árið 1959.
Lee sagðist myndu víkja úr emb-
ættinu um leið og eftirmaður hans,
Goh Chok Tong, væri tilbúin að
taka við. Goh, sem er varaforsætis-
ráðherra og vamarmálaráðherra,
sagði hins vegar að sinn tími væri
ekki kominn en ef til vill tæki hann
við innan tveggja ára.
Flokkur Lees, þjóðfylkingin
(RAP), hlaut 61,8 af hundraði at-
kvæða og 80 þingsæti, en kosið var
um 81 þingsæti. Chiam See Tong, j
leiðtogi Lýðræðisflokksins, var eini'
stjómarandstæpingurinn sem
komst á þing. I síðustu kosningum
árið 1984 hlaut flokkurinn 77 þing-
sæti af 79 og var það í fyrsta sinn
síðan landið hlaut sjálfstæði árið
1965 að hann fékk ekki öll þingsæt-
Beigískur prófessor:
Eiturefni eru orðin
viðtekin í hernaði
Kúbverjar fara að fordæmi fraka
TUGIR þúsunda Kúrda hafa
flúið frá írak til Tyrklands
undanfarna daga og vikur.
Flóttamennimir hafa lýst eitur-
heraaði íraka í fjallahéruðun-
um í Norður-írak, þar sem þeir
hafa búið. Þeir sem verða beint
fyrir eiturárásunum falla strax
í valinn, aðrir á nálægum svæð-
um veikjast mismikið. Sumir
verða örkumla aðrir deyja eftir
miklar þjáningar. Ymislegt
þykir benda til að beiting eitur-
vopna sé að breiðast út og er
jafnvel talað um vopnin sem
„viðtekinn þátt stríðsaðgerða",
svo að vitnað sé í breska vikuri-
tið Jane’s Defeace Weekly. Þar
sagði nýlega frá því, að Kúb-
verjar hefðu notað blöndu af
sinnepsgasi og taugagasi í átök-
um við skæruliða UNITA-
hreyfingarinnar í Angólu.
Aubin Heyndrickx, prófessor í
eiturfræðum við háskólann í
Ghent í Belgíu sem nýtur viður-
kenningar Sameinuðu þjóðanna
sem sérfræðingur í bakteríu og
efnahemaði, segir að Kúbveijar
noti blöndu af eiturgasi, sem þeir
hafí fengið frá Sovétríkjunum, í
Angólu. Sé eitrið notað til að
hrekja skæmliða UNITA-hreyf-
ingarinnar sem nýtur stuðnings
frá Suður-Afríku úr stöðvum
þeirra á afskekktum stöðum. Auk
þess vilji Kúbveijar með þessu
hræða almenning frá því að veita
UNITA-mönnum liðsinni.
Fordæmi frá írökum
í samtali við Jane’s Defence
Weekiy segir prófessorinn að
líklegt sé að hemaður af þessu
tagi verði viðtekinn í þriðja heim-
inum og hjá heijum sem njóta
stuðnings kommúnistastjóma.
Verði þar beitt sömu aðferðum
og írakar gerðu, þegar þeir brut-
ust í gegnum vamarlínur írana
og í árásum þeirra á fjallaþorp
Kúrda. Heyndrickx var sendur
sem fulltrúi Sameinuðu þjóðanna
til Kúrdaþorpsins Halabja eftir að
írakar réðust á það með eitur-
vopnum fyrr á þessu ari. Hann
segir, að Persaflóastríðið hafí orð-
ið til þess að vekja áhuga Sovét-
manna og þriðja heimsmanna á
efnavopnum við gerð hemaðará-
ætlana. Reynsla Iraka hafi orðið
til þess, að ekki sé lengur Iitið á
efnavopn sem varavopn, sem ekki
sé gripið til fyrr en í neyð, heldur
sem hluta þess vígbúnaðar sem
kemur að gagni í sóknaraðgerð-
um.
„Þetta em kjamorkuvopn fá-
tæku þjóðanna. Auðvelt er að
framleiða þessi vopn, þau em
ódýr og skila árangri. Unnt er að
drepa fjölda manna fyrir lítið fé,“
segir prófessorinn.
I skæmhemaði hefur notkun
eiturvopna aukist og er þeim eink-
um beitt til að þurrka út þorp,
þar sem skæmliðar leita eftir
stuðningi. Sovétmenn hafa notað
vopnin með þessum hætti í Afgan-
Fómarlamb i eiturefnaheraaði
íraka.
istan og þeir hafa látið Kúbveijum
og stjóminni í Eþíópíu í té eitur-
vopn í sama skyni. Heyndrickx
segir að fullyrðingar um að Kúb-
veijar noti eiturvopn séu byggðar
á sýnum úr jarðvegi og gróðri á
átakasvæðunum f Angólu, sem
tekin hafí verið í apríl á þessu
ári. Mold, lauf og vatn beri þess
• greinileg merki, að sinnepsgas og
taugagas hafí verið notað. Þá er
prófessorinn með undir höndum
tæki til að mæla gas í andrúms-
loftinu, sem náðist af kúbverskum
hermanni. Með tækinu er unnt
að sjá hvort gasmagnið á vígvelli
sé of hættulegt fyrir menn.