Morgunblaðið - 06.09.1988, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 06.09.1988, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988 Eimreiðarlíkan Vestur-Þjóðverji sýnir eimreiðarlíkan, sem er eitt það minnsta í heiminum, aðeins 0,8 cm að lengd. Likanið verður sýnt á alþjóðlegri sýningu lestarlíkana í Hamborg. Rúmenía: Saka Ungverja um að níða Ceausescu Vín. Reuter. MÁLGAGN rúmenska kommún- istaflokksins fór á sunnudag mjög hörðum orðum um ung- verska fjölmiðla og sakaði þá um níða niður stefnumál Nicolaes Ceausescu Rúmeníuforseta. Að- eins vika er liðin síðan leiðtogar ríkjanna áttu með sér fund þar sem rætt var um ágreiningsefnin milli þeirra. Ungveijar saka Rúmena um að kúga ungverska minnihlutann í Rúmeníu og voru þær ásakanir helsta umræðuefnið á fundi þeirra Ceausescus og Karolys Grosz, leið- toga Ungveija, fyrir viku. Að fund- inum loknum sagði Ceausescu, að hann hefði farið fram í mesta bróð- emi og því vekja árásimar, sem komu fram í Scinteia, málgagni rúmenska kommúnistaflokksins, meiri athygli en ella. Sagði þar, að fjölmiðlar í Ungveijalandi afbökuðu og afskræmdu áætlanir Ceausescus um að uppræta helming allra þorpa í Rúmeníu en Ungveijar óttast, að þeim sé fyrst og fremst stefnt gegn ungverska minnihlutanum. I Scin- teia var sérstaklega ráðist á dag- blaðið Nepszabasag, málgagn ung- verska kommúnistaflokksins, og segja stjómarerindrekar í Búda- pest, að það sé í raun árás á ung- versku ríkisstjómina og Grosz. Scinteia sagði, að Rúmenar hefðu fyrir langalöngun leyst vandamál allra minnihlutahópa í landinu og lagði einnig áherslu á, að hér væri um að ræða rúmensk innanríkis- mál, sem öðrum kæmi ekki við. Þá var einnig sagt, að efnahagsum- bætur ungverskra stjómvalda hefðu orðið öllum til tjóns og væru ekki til eftirbreytni. Chile: Þúsundir manna mót- mæla við forsetahöllina Santiago. Reuter. ÓeirðalögTeglan beitti tára- gasi á sunnudag til að dreifa þúsundum Chile-manna sem mót- mæltu útnefningu Augustos Pinochets sem frambjóðanda í forsetakosningunum í Chile. Andstæðingar herforingjastjóm- arinnar efndu til fjöldagöngu sem lauk við forsetahöllina og að sögn skipuleggjenda tóku um 300.000 manns þátt í henni. Gangan var lið- ur í herferð stjómarandstæðinga sem beijast fyrir því að Pinochet fái ekki meirihluta atkvæða í kosn- ingunum 5. október. Þetta var.mesta fjöldaganga sem efnt hefur verið til á götum Sant- iago-borgar eftir valdaránið árið 1973 og sú fyrsta síðan neyðarlög- um var aflétt í síðustu viku. Mikill mannfjöldi safnaðist saman við mestu umferðaræð borgarinnar, en Suður-Kórea: Afengisbanni aflétt í Ólymp- íuþorpinu Seoul. Reuter. KEPPENDUR á Ólympíuleikun- um geta skálað fyrir sigri eða huggað sig við víndrykkju þar sem áfengisbanni hefur verið aflétt í Ólympíuþorpinu. Skipuleggjendum leikanna bár- ust kvartanir vegna þess að örygg- isverðir hefðu gert áfengi upptækt þegar nokkrir bandarískir og hol- lenskir keppendur hefðu reynt að smygla því í þorpið. Banninu var aflétt nokkmm klukkustundum síðar. Frakkar em sagðir ánægðastir með lyktir málsins, því pantaðir höfðu verið þrír vörubílsfarmar af víni handa frönsku keppendunum. þegar mótmælendumir námu átað- ar við forsetahöllina og sungu þjóð- sönginn sprautaði lögreglan vatni og beitti táragasi til að dreifa þeim. Mótmælin héldu þó áfram í tvo tíma í miðbænum. Að sögn talsmanna lögregiunnar vom rúmlega 200 mótmælendur handteknir. Dóttir Salvadors Allendes, fyrr- um forseta landsins, Isabel, var á meðal nokkurra pólitískra útlaga sem tóku þátt í mótmælunum. Skoðanakannanir gefa til kynna að Pinochet hafí meirihlutafylgi í dreifbýlinu en ekki í borgum lands- ins. Sextán stjómarandstöðuflokk- ar, sem hafa sameinast í baráttunni gegn Pinochet, segjast ætla að knýja á um viðræður um lýðræðis- legar kosningar í landinu nái Pinochet ekki kjöri. Singapore: Lee hyggst segja af sér eftir stór- sigur í þing- kosningum Singapore. Reuter. LEE Kuan Yew lýsti því yfir á sunnudag að hann hygðist segja af sér sem forsætisráðherra Singapore eftir að ljóst var að flokkur hans hafði unnið mikinn sigur í þingkosningunum á laug- ardag. Lee hefur gegnt forsætis- ráðherraembætttinu í tæp 30 ár, eða síðan Singapore varð sjálf- stjórnarríki árið 1959. Lee sagðist myndu víkja úr emb- ættinu um leið og eftirmaður hans, Goh Chok Tong, væri tilbúin að taka við. Goh, sem er varaforsætis- ráðherra og vamarmálaráðherra, sagði hins vegar að sinn tími væri ekki kominn en ef til vill tæki hann við innan tveggja ára. Flokkur Lees, þjóðfylkingin (RAP), hlaut 61,8 af hundraði at- kvæða og 80 þingsæti, en kosið var um 81 þingsæti. Chiam See Tong, j leiðtogi Lýðræðisflokksins, var eini' stjómarandstæpingurinn sem komst á þing. I síðustu kosningum árið 1984 hlaut flokkurinn 77 þing- sæti af 79 og var það í fyrsta sinn síðan landið hlaut sjálfstæði árið 1965 að hann fékk ekki öll þingsæt- Beigískur prófessor: Eiturefni eru orðin viðtekin í hernaði Kúbverjar fara að fordæmi fraka TUGIR þúsunda Kúrda hafa flúið frá írak til Tyrklands undanfarna daga og vikur. Flóttamennimir hafa lýst eitur- heraaði íraka í fjallahéruðun- um í Norður-írak, þar sem þeir hafa búið. Þeir sem verða beint fyrir eiturárásunum falla strax í valinn, aðrir á nálægum svæð- um veikjast mismikið. Sumir verða örkumla aðrir deyja eftir miklar þjáningar. Ymislegt þykir benda til að beiting eitur- vopna sé að breiðast út og er jafnvel talað um vopnin sem „viðtekinn þátt stríðsaðgerða", svo að vitnað sé í breska vikuri- tið Jane’s Defeace Weekly. Þar sagði nýlega frá því, að Kúb- verjar hefðu notað blöndu af sinnepsgasi og taugagasi í átök- um við skæruliða UNITA- hreyfingarinnar í Angólu. Aubin Heyndrickx, prófessor í eiturfræðum við háskólann í Ghent í Belgíu sem nýtur viður- kenningar Sameinuðu þjóðanna sem sérfræðingur í bakteríu og efnahemaði, segir að Kúbveijar noti blöndu af eiturgasi, sem þeir hafí fengið frá Sovétríkjunum, í Angólu. Sé eitrið notað til að hrekja skæmliða UNITA-hreyf- ingarinnar sem nýtur stuðnings frá Suður-Afríku úr stöðvum þeirra á afskekktum stöðum. Auk þess vilji Kúbveijar með þessu hræða almenning frá því að veita UNITA-mönnum liðsinni. Fordæmi frá írökum í samtali við Jane’s Defence Weekiy segir prófessorinn að líklegt sé að hemaður af þessu tagi verði viðtekinn í þriðja heim- inum og hjá heijum sem njóta stuðnings kommúnistastjóma. Verði þar beitt sömu aðferðum og írakar gerðu, þegar þeir brut- ust í gegnum vamarlínur írana og í árásum þeirra á fjallaþorp Kúrda. Heyndrickx var sendur sem fulltrúi Sameinuðu þjóðanna til Kúrdaþorpsins Halabja eftir að írakar réðust á það með eitur- vopnum fyrr á þessu ari. Hann segir, að Persaflóastríðið hafí orð- ið til þess að vekja áhuga Sovét- manna og þriðja heimsmanna á efnavopnum við gerð hemaðará- ætlana. Reynsla Iraka hafi orðið til þess, að ekki sé lengur Iitið á efnavopn sem varavopn, sem ekki sé gripið til fyrr en í neyð, heldur sem hluta þess vígbúnaðar sem kemur að gagni í sóknaraðgerð- um. „Þetta em kjamorkuvopn fá- tæku þjóðanna. Auðvelt er að framleiða þessi vopn, þau em ódýr og skila árangri. Unnt er að drepa fjölda manna fyrir lítið fé,“ segir prófessorinn. I skæmhemaði hefur notkun eiturvopna aukist og er þeim eink- um beitt til að þurrka út þorp, þar sem skæmliðar leita eftir stuðningi. Sovétmenn hafa notað vopnin með þessum hætti í Afgan- Fómarlamb i eiturefnaheraaði íraka. istan og þeir hafa látið Kúbveijum og stjóminni í Eþíópíu í té eitur- vopn í sama skyni. Heyndrickx segir að fullyrðingar um að Kúb- veijar noti eiturvopn séu byggðar á sýnum úr jarðvegi og gróðri á átakasvæðunum f Angólu, sem tekin hafí verið í apríl á þessu ári. Mold, lauf og vatn beri þess • greinileg merki, að sinnepsgas og taugagas hafí verið notað. Þá er prófessorinn með undir höndum tæki til að mæla gas í andrúms- loftinu, sem náðist af kúbverskum hermanni. Með tækinu er unnt að sjá hvort gasmagnið á vígvelli sé of hættulegt fyrir menn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.