Morgunblaðið - 06.09.1988, Síða 58

Morgunblaðið - 06.09.1988, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988 fclk í fréttum BRETLAND: Ný söguleg kvikmynd um jProfumo — Keeler málið Sjálfsagt muna einhverjir aftur til áranna 1960 til 1963.. Þá stóð yfir í Bretlandi hneykslismál sem leiddi til afsagnar hemaðar- málaráðherrans, John Profumo, og til falls íhaldsstjómar Harolds Mac- Miliian, haustið 1963. Hneykslið, sem snerti mun fleiri en embættismenn Bretlandseyja, fólst í því að ung vændiskona, Christine Keeler, sem stóð í ástar- sambandi við hemaðarmálaráð- herrann, var beðin af sambýlis- mannisínum, Stephen Ward, að Veiða upp úr Profumo ýmsar leyni- legar upplýsingar, og þá dagsetn- ingar sem vörðuðu kjamorkuvopna- mál og miðla þeim til sovétmanna. Aðdragandi málsins hófst árið 1960 þegar þekktur beinasérfræð- ingur, Stephen Ward, sem var fræg- ur fyrir að koma sér í mjúkinn hjá valdhöfum, komst í kynni við vænd- iskonuna Keeler. Hann dubbaði hana upp, eins og hann hafði gert við margar aðrar stúlkur, og bjuggu þau tvö saman um nokkurt skeið. A* þeim tfma kom Ward Christine Keeler í samband við John Profumo. Stephen Ward, sem lést af of stórum skammti eiturlyfja, varð eitt aðal fómarlambið í þessu hneyksli, enda hafði hann sambönd við ríkis- sijómina bresku svo og KGB leyni- þjónustuna. Tvö sjónarhom, annars vegar hið stjómmálalega hneyksli sem leiddi af sambandi Keeler og Profumo, og hins vegar sérstætt ástarsamband Ward og Keeler, eru þeir áhersluþættir sem bera mynd- ina uppi. Framleiðendur myndarinnar hafa hlotið mikla gagnrýni fyrir að draga þetta gamla hneykslismál fram í dagsljósið, þar eð margir sem tengdust málinu em enn á lífi, og meðal annars John Profumo sjálfur. Amerískir kvikmyndaframleiðendur hafa tekið þátt í kostnaði við gerð myndarinnar, eftir að BBC og aðrar sjónvarpsstöðvar neituðu að gera framhaldsþætti um málið. Christine Keeler leikur Joan Whalley, en Bridget Fonda, dóttir Peter Fonda, leikur vinkonu Keelers, Mandy- Rice. Efnistökin þykja enn mikið við- kvæmnismál, þrátt fyrir það að 25 ár eru liðin frá hneykslinu. Mikil dulúð hefur haldist jrfir málinu, sagt er að auk þess sem málið teng- ist valdastétt og njósnum, er látið að því liggja að jafnvel hafí einn aðili málsins verið í konungs§öl- skyldunni bresku, þar eð hann hafði oft sést fara inn á heimili Ward og Keeler á þessum tíma. En málið er enn óupplýst. Sagt hefur verið meðal annars að Step- hen Ward hafí stundað gagnnjósnir og notað Keeler sem millilið, en hún var í góðu sambandi við KGB mann, Ivanov að nafni. Þó er óljóst hve mikilvægum upplýsingum hún miðl- aði til sovétmannsins. Forsætisráð- herrann fyrrverandi, Harold Mac- Millian, sem síðastur fékk að vita um málið, telur að Profumo hafi ekki haft nógu haldgóðar uppýsing- ar um kjamorkumál. . Profumo hefur að segja má feng- ið uppreisn æru, með því að vinna f þágu fátæklinga síðustu tvo ára- tugi. Christine sjálf býr við bágan efnahag í London ásamt tveimur sonum. Þessi sögulega mynd, sem tekin verður til sýningar í Bretlandi og Ameríku í byijun næsta árs, mun án efa hafa mikil áhrif á taug- ar bresku þjóðarinnar. Stephen Ward fékk fangelsis- dóm, en fyrirfór sér I ágústmánuði 1963. John Profumo hef- ur unnið í þágu fátæklinga í yfir 20 ár. Hann er nú 73ja ára að aldri. COSPER — Farðu fram f hjólhýsið. Stefanía prinsessa af Mónakó er komin með nýjan kærasta. Hann heitir Ron Bloom, og er tónlistarmaður og jafnframt nýi plötuframleiðandinn hennar. Ætlunin er að ný plata með Stefaníu komi út eftir tvo mánuði. Föður hennar, Rainer fursta, líst illa á piltinn, er sagt. Hann sé of síðhærður, of gamall (37 ára) og ekki af nógu góðum þjóðfélagsstigum. .I.l.l.l.lnl.l.li.li ,1,1,1,l.i.l.l.l.i./.i i.l. i.i.i.i.i.i,ni.i, i .U.. «-»«» IQ76&^ iW COSPER Petta veit Mashildur um hana Fergie. Hún þarf nú að léttast um 26 kiló til þess að verða eins grönn og hana dreymir um að verða. Ýmislegt hefur henni verið ráðlagt f þeim efnum. En nú hefur það fengist staðfest að hún notar amerískan kúr sem felst f þvf að spiluð er lág tónlist af kas- settu f eyru hennar. Þetta er engin venjuleg tónlist, heldur skilaboð spiluð á bylgjulengd sem aðeins nær til undirmeðvit- undarinnar. Fergie heyrir að- eins ljúfa tónlist sem fær stöðv- að matarlyst. Það er kannski eins gott að þessi aðferð hafi áhrif þvf hún hefur þegar eytt milljónum f föt sem hún ætlar að nota f Astralfuför þeirra hjóna. Hvort barnið fari með er ágreinings- efni þeirra í milli. Hún vill litlu hnátuna með, en Andrés sem vill Fergie fyrir sig er kominn f aukahlutverk, svona rétt á meðan allt snýst um Beatrice. Brookie Shields og- Frank Stallone, litli bróð- ir Silvester Stall- one, hafa sést al- loft saman upp á síðkastið. Óvíst er hvað móðir hennar segir um að fá hann sem tengda- son. En henni hef- ur verið illa við marga fræga vini dóttur sinnar, hún er ekkert snobb- hænsni, sú gamla. Meðal gamalla fé- laga Brookie eru John Travolta, Julio Iglesias, og svo George Mic- hael, sem var hennar eina sanna ást, segir Brookie sjálf. Frank Stall- one er sagður af- skaplega eðlileg- ur, opinskár og miklu skemmti- legri en stóri bróð- ir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.