Morgunblaðið - 06.09.1988, Page 63

Morgunblaðið - 06.09.1988, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ,' ÞRIÐJUDAGUR e. SEPTEMBER 1988 63 Þesslr hringdu . . Upplýsingasími svarar ekki Stuðningsmaður aldraðra hringdi: „I vor keypti ég happdrætti smiða hjá Saríitökum aldraðra með ágætum vinningum, meðal annars ferðalögum til sólarlanda, þá væntanlega í sumar. Átti að draga 20. maí. Kannski hefur það verið gert, en þá farið fram hjá mér. Ekki löngu seinna byijaði ég að reyna að hringja í það núm- er, sem gefið er upp á miðanum. Þar segir: „Upplýsingar í síma 26410 á skrifstofu félagsins á Laugavegi 116 frá kl. 10.00 til 15.00.“ Er skemmst frá því að segja, að aldrei hefur þetta númer svarað á þessum tíma. Nú vil ég biðja þetta ágæta félag — von- andi er það ekki dautt — að birta vinningsnúmerin, sem ekki hafa gengið út eða að lesa þau inn á símsvara ef aldrei er neinn við, eins og aðrir gera í svipuðum til- fellum. Fleiri kaupendur happ- drættismiða hljóta að hafa lent í þessu sama. Nú er sumarið að verða búið og á miðanum stendur að vitja verði vinninga innan árs.“ Tók einhver upp þátt Péturs Péturssonar frá 13. ágfúst? Útvarpshlustandi hringdi: „Eigi einhver upptöku af út- varpsþætti Péturs Péturssonar frá 13. ágúst, þar sem meðal annars var fjallað um Magnús Guð- brandsson og kvæði hans, þá þætti mér vænt um að viðkom- andi hefði samband við Velvak- anda." Verðlaun fyrir flipa- söfnun ekki komin Lesandi hringdi: „Ég tók þátt í söfnun, sem Bylgjan, Vífilfell og Skógræktar- félagið stóðu fyrir á dögunum. Safna átti 60 flipum af gos- drykkjadósum og fyrir það átti maður að fá bol og vasaútvarps- tæki. Ég gerði það, fékk bolinn en var látinn fá ávísun á útvarps- tækið og sagt að sækja það 15. ágúst. Þegar ég ætlaði að sækja það þá var mér sagt að útvarps- tækin væru ekki til. Þeir sem að söfnuninni stóðu hafa ekki látið neitt frá sér fara um málið, en gaman væri að fá skýringar á þessu." Banna á flugsýningar 4192-7828 hringdi: „Ég las um flugsýningu á Pat- reksfirði um svipað leyti og hið hræðilega slys átti sér stað hjá Ramstein í Þýskalandi. Mér finnst að íslendingar ættu að fylgja for- dæmi Þjóðverja og banna svona sýningar. Við höfum ekki efni á að fórna mannslífum fyrir fifldirfsku og leikaraskap. Þessir flugmenn ættu í það minnsta að sýna á bersvæði, svo að öðrum stafi ekki hætta af flugi þeirra." Myndavél týndist við Bitruháls Síðastliðinn miðvikudag týndist myndavél við hús Osta- og smjör- sölunnar við Bitruháls. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 98-68862. Slysagildra við Engjasel íbúi í Seyahverfi hringdi: „Ég er sammála þeim sem kvartaði á dögunum vegna bfla- stæðavanda við Engjasel. Við götuna er núna hrúga af hellum, sem lokar fyrir umferð um gang- stéttina og er ekki síður slysa- gildra en bflamir, sem lagt er ólöglega. Mér finnst óeðlilegt að ekki sé amast við þessari hrúgu á sama tíma og bflamir em sekt- aðir." Ætla íslendingar að tala íslensku eða ensku Ein sem reynir að tala íslensku hringdi: „Það er alveg hroðalegt að heyra málfarið hjá mörgu út- varpsfólki. Það notar „hæ, hæ“ og „bæ, bæ“ og aðrar enskuslett- ur í stað íslenskra orða og orða- sambanda. Mér finnst að þetta fólk ætti að gera upp við sig, hvort það hyggst tala íslensku eða ensku, f stað þess að blanda mál- unum svona saman.“ Góð þjónusta í gleraugnabúð 7502-2255 hringdi: „Ég vil þakka gleraugnasalan- um í Keflavík og starfsfólki hans kærlega fyrir einstaklega góða þjónustu. Ég braut gleraugnaum- gjörðina mína á dögunum og þurfti á sama tíma að fá ný gler- augu. Hann leysti greiðlega úr mínum málum og kann ég honum bestu þakkir fyrir." Skellinaðra hvarf frá Markarvegi Aðfaranótt fyrsta september hvarf skellinaðra af Hondu-gerð frá Markarvegi. Skráningamúm- er hennar er R-1460. Þeir sem geta gefið upplýsingar um það, hvar hún er niður komin em beðn- ir að hringja í síma 30053. Bleikur trefill týndist Fyrir nokkm týndist bleikur trefíll í Elliðaárdal fyrir neðan Fagrabæ í Arbæjarhverfi. Finnandi er beðinn að hringja í síma 30005. Hlutverk upplýsingadeild- ar Tryggingastofnunar Til Velvakanda. Svar til ellilífeyrisþega: í skrifum þínum í dálki Velvak- anda, föstudaginn 26. ágúst s.l., segir þú frá komu þinni í Trygg- ingastofnun ríkisins. Þú komst upp á 4. hæð og hittir þar starfsmann, sem sagði þér að tala við ákveðinn starfsmann á 1. hæð sem hefur ein- göngu með tekjutryggingu að gera. Þú gafst þér ekki tíma til að bíða og í stað þess að tala nánar við okkur, gekkst þú út óg sendir þessa grein í Velvakanda. Þú spyrð: „Til hvers er upplýs- ingadeild Tryggingastofnunar ríkis- ins“? Hlutverk félagsmála— og upplýs- ingadeildar Tryggingastofnunar er það margþætt að það yrði of langt mál að rekja það hér. En þó má geta þess að við fömm til félaga og félagssamtaka sem óska þess, flytjum fyrirlestra og svömm spumingum um tryggingamál. Við gefum út blað og upplýs- ingabæklinga sem síðan er dreift. Við sjáum um námskeið fyrir stafs- fólk almannatryggingaumboða og sjúkrasamlaga á landinu. Mikill tími fer einnig í það að tala við fólk, leiðbeina því og at- huga hvaða rétt það eigi til trygg- ingabóta. Undanfarið hefur töluverður tími farið i að gefa fólki ráðleggingar um hvemig það geti nýtt sér skatt- kort sín sem best. Það er algengt að fólk, sérstaklega ellilífeyris- þegar, fái tekjur frá 2—3 aðilum. Það fær kannski skatt á einum stað en áónotaða skattprósentu á öðmm stað. Svo er það tekjutryggingin sem þú ætlaðir að fá upplýsingar um. Hún hefur verið vandamál nú síðustu mánuði. Til Velvakanda. Ég var á ferðalagi fyrir skömmu og kom við í Eden í Hveragerði. í einu hominu þar hefur verið komið fyrir nokkmm spilakössum, með ýmsum tölvuleikjum og ætlaði ég að prófa einn. Ég stakk fjómm tíu króna peningum í raufína á kassan- um eins og ætlast var til. Hann reyndist hins vegar bilaður og reyndist mér ómögulegt að ná pen- ingunum til baka. Ég sneri mér til ungrar stúlku, sem sá um afgreiðslu þama, til þess að fá 40 krónumar endur- greiddar. Hún sagðist ekki mega Ég get ekki náð til þín þar sem ég veit ekki hver þú ert. Nu bið ég þig um að hringja í mig í síma 19300 eða koma. Það væri æskilegt að þú hefðir með þér afrit af síðustu skattskýrslu, þá gætum við athugað hvort þú átt rétt á hærri tekjutrygg- ingu. Margrét H. Sigurðardóttir deildarsijóri Tryggingastofnun- ar ríkisins. það, því algengt væri að fólk mis- notaði sér siflct. Ég er mjög óánægður með þess- ar málalyktir. Ekki hefði átt að vera neinn vandi, að ganga úr skugga um sannleiksgildi orða minna. Meirihluti kassanna virtist líka vera bilaður og því hefði átt að afgreiða málið í samræmi við það. Einnig finnst mér óeðlilegt að hafa ungling þama í forsvari og í sjálfu sér óæskilegt að svona starf- semi sé rekin í sama húsnæði og Eden. Með þökk fyrir birtinguna, Ferðalangur. Bilaðir spilakassar í Eden Tískusýning í kaffínu Módelsamtökin sýna nýjustu hausttískuna frá Betty Barclay með kaffinu í dag frá kl. 15.30. -EÆfTY Bankastræti 8, sími 621950. ROYAL SKYNDIBÚÐINGARNIR ÁVALLT FREMSTIR ENGIN SUÐA Tilbúinn eftir fimm mínútur 5 bragðtegundir BÚÐARKASSAR í ÚRVALI Standast allir fullkomlega kröfur nýju reglu- gerðarinnar (Nr. 407-1988) um búðarkassa. örugg og góð þjónusta. Verð frá kr. 19.800.-sigr • • BMC, A100 Komdu við hjá okkur eða hringdu og fáðu frekari upplýsingar. Einar J. Skúlason hf. Grensásvegi 10, sími 68-69-33

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.