Morgunblaðið - 06.09.1988, Side 65

Morgunblaðið - 06.09.1988, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER!1988 65 Léleg útkoma í Norðurá. „Ég var að fá Norðurárbækum- ar í hendumar og þó ég sé ekki búinn að reikna heildaraflan sam- an, sýnist mér að veiðin nái ekki 1300 löxum, 1250 til 1280 laxar er trúleg lokatala," sagði Friðrik D.Stefánsson framkvæmdastjóri SVER í samtali við Morgunblaðið í gærdag. Veiði lauk í Norðurá um mánaðamótin. Það var einkum síðari hluti veiðitímans sem var daufur, vikum saman veiddist lítið eða ekki. Sumir álitu að talsvert væri af laxi í ánni, en þegar skil- yrði bötnuðu kom lftil eða engin hreyfing á veiðina og voru sumir því á því að ána hafi hijáð fiskleysi. Elliðaárnar ná líklega ekki meti... Veiðin í Elliðaánum nálgadst nú 2000, en veitt er til 9.september. Um tíma leit út fyrir að metveiði gæti orðið og vissulega er ekki útséð um það, en líklega næst það ekki að þessu sinni. Sumarið 1975 veiddust 2071 lax f ánum, en suma- rið á undan 2033 fiskar. Enn er góð veiði og nóg af laxi, en trúlega vantar herslumuninn í metið. Selá í fjóra stafi.. Veiðin í Selá í Vopnafirði er nú komin í 1000 laxa og Hörður Óskarsson Selármaður áleit í sam- tali í gær að lokatölur gætu orðið um 1100 fiskar. Veiðin í sumar hefur sannarlega verið góð, en þó nokkuð langt frá tveimur síðustu sumrum. Hollum hefur gengið mis- vel, þannig voru t.d. menn á Leifs- staðasvæðinu sem fengu aðeins 6 laxa. Við af þeim tóku feðgamir Garðar H.Svavarsson og Haukur Garðarsson og létu þeir hendur standa fram úr ermum, rótuðu upp 40 löxum, þar á meðal tveimur 18 pundurum, allt á flugu. Mokveiði í Hvolsá og Staðarhólsá. Mokveiði hefur verið í Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum í allt sum- ar og holl sem var þar fyrir skömmu, tók 64 laxa, flesta á flugu. Fengust laxamir vítt og breitt um svæðið. Þá veiddi hópur- inn 36 bleikjur, flestar um 2 punda. Þar- með vom komnir 680 laxar á land og um 200 bleikjur. Er þetta alger metveiði í þessum ám. Allur var þessi lax 4 til 7 punda, svo og megnið af sumarveiðinni til þessa. Tíðindamaður Morgunblaðsins sagði talsvert af laxi í ánum og væri hann dreifður vel. Iðnir við kolann i Kjósinni. Nú em komnir um 3700 laxar úr Laxá í Kjós, íslandsmetið í höfn og vel það, bara spuming hversu há nýja mettalan verður. Enn em menn í góðri veiði í Kjósinni og enn er að veiðast nýgenginn lax á neðsta svæðinu. Fyrir skömmu veiddist annar „stórlaxanna" sem hafa lengi legið í Brúarhylnum í Bugðu, veiðimönnum bæði til gleði og hrellingar. Tók sá stóri maðk og reyndist 19 pund. Ekki var ljóst hvort það var sá stærri eða smærri sem tók agnið. gg■ BALLET KLASSISKUR BAL L 11 cf:. WliiíSl Ítí.í::’0 l ■ fiSr Námskeið fyrir byrjendur (yngst 5 ára) og framhalasnemendur. ,SY JP» .ÆRAPÍfÁÐ. U /l.MES’ r SPECIAL“ Ódýrt en best Kennslukerfi: ROYAL ACADEMY OF DANCING __________RUSSIAN METHOD ___________ Innritun í síma 72154 kl. 11 -19. Kennsla hefst 20. seDtember Félag íslenskra listdansara. [ BALLETSKÓLISIGPÍORR ÚRmfim SKÚLACÖTU 32-34 <><><► FLJÓTANDI ADIEI HREINT STÓRKOSTLEG NÝJUNG! ARIEL þvottalögur er fyrir allan þvott. Einstakir eiginleikar hans njóta sín sér- staklega vel viö lágt hitastig 40°C eða minna, þar sem þvottaduft leysist illa upp viö lágan hita. Þvottalögurinn samlagast vatninu strax og þvottatíminn nýtist að fullu. Tauiö kemur tandurhreint úr vélinni. Þú sleppir forþvotti... Hellir ARIEL þvottaleginum í plastkúlu, sem fylgir 750 ml. brúsanum, og leggur kúluna ofan á þvottinn í vélinni. Ekkert fer til spillis, kúlan skaðar hvorki vélina né þvottinn. í mjög föst óhreinindi er gott aö hella ARIEL beint á. TANDURHREINN ÞVOTTUR MEÐ FLJÓTANDIARIEL. Jafnvel viö mjög lágt hítastig. Fáanlegur í þrem stærðum. 0,75 Itr, 2 og 3 Itr. Þvottaleginum er hellt í plastkúlu sem er stillt ofan á þvottinn. Fljótandi ARIEL samlagast vatninu fljótt og vel. ... BH o « « íslen ÖL'lllll Kjúklinga-hnetusúpa \'s Kr. 225,- Rjómahumarsúpa Kr. 395,- ■ Ferskt salat með rækjum og núðlum Kr. 295,- Grafínn regnbogasilungur með sinnepssósu Kr. 395,- Smjördeigsbakaður saltfiskur með rjómasósu Kr. 750,- Skötuselur og ferskt grænmeti á teini með kryddgrjónum Kr. 810,- Steikt hámeri með gráðostasósu Kr. 695,- Kjúklingabringa fyllt með hvítlaukssmjöri Kr. 840,- Smokkfiskur og pasta í chili-kryddsósu Kr. 795,- Léttsteiktar lundabringur með ferskum kryddjurtum í njólablaðasósu Kr. 695,- ARNARHÓLL RESTAURANT er opinn á kvöldin frá kl. 18:00 þriðjud. til laugard. Hverfisgötu 8-10 pantanasími 18833

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.