Morgunblaðið - 06.09.1988, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER!1988
65
Léleg útkoma í Norðurá.
„Ég var að fá Norðurárbækum-
ar í hendumar og þó ég sé ekki
búinn að reikna heildaraflan sam-
an, sýnist mér að veiðin nái ekki
1300 löxum, 1250 til 1280 laxar
er trúleg lokatala," sagði Friðrik
D.Stefánsson framkvæmdastjóri
SVER í samtali við Morgunblaðið
í gærdag. Veiði lauk í Norðurá um
mánaðamótin. Það var einkum
síðari hluti veiðitímans sem var
daufur, vikum saman veiddist lítið
eða ekki. Sumir álitu að talsvert
væri af laxi í ánni, en þegar skil-
yrði bötnuðu kom lftil eða engin
hreyfing á veiðina og voru sumir
því á því að ána hafi hijáð fiskleysi.
Elliðaárnar ná líklega
ekki meti...
Veiðin í Elliðaánum nálgadst nú
2000, en veitt er til 9.september.
Um tíma leit út fyrir að metveiði
gæti orðið og vissulega er ekki
útséð um það, en líklega næst það
ekki að þessu sinni. Sumarið 1975
veiddust 2071 lax f ánum, en suma-
rið á undan 2033 fiskar. Enn er
góð veiði og nóg af laxi, en trúlega
vantar herslumuninn í metið.
Selá í fjóra stafi..
Veiðin í Selá í Vopnafirði er nú
komin í 1000 laxa og Hörður
Óskarsson Selármaður áleit í sam-
tali í gær að lokatölur gætu orðið
um 1100 fiskar. Veiðin í sumar
hefur sannarlega verið góð, en þó
nokkuð langt frá tveimur síðustu
sumrum. Hollum hefur gengið mis-
vel, þannig voru t.d. menn á Leifs-
staðasvæðinu sem fengu aðeins 6
laxa. Við af þeim tóku feðgamir
Garðar H.Svavarsson og Haukur
Garðarsson og létu þeir hendur
standa fram úr ermum, rótuðu upp
40 löxum, þar á meðal tveimur 18
pundurum, allt á flugu.
Mokveiði í Hvolsá og
Staðarhólsá.
Mokveiði hefur verið í Hvolsá
og Staðarhólsá í Dölum í allt sum-
ar og holl sem var þar fyrir
skömmu, tók 64 laxa, flesta á
flugu. Fengust laxamir vítt og
breitt um svæðið. Þá veiddi hópur-
inn 36 bleikjur, flestar um 2 punda.
Þar- með vom komnir 680 laxar á
land og um 200 bleikjur. Er þetta
alger metveiði í þessum ám. Allur
var þessi lax 4 til 7 punda, svo og
megnið af sumarveiðinni til þessa.
Tíðindamaður Morgunblaðsins
sagði talsvert af laxi í ánum og
væri hann dreifður vel.
Iðnir við kolann i Kjósinni.
Nú em komnir um 3700 laxar
úr Laxá í Kjós, íslandsmetið í höfn
og vel það, bara spuming hversu
há nýja mettalan verður. Enn em
menn í góðri veiði í Kjósinni og enn
er að veiðast nýgenginn lax á
neðsta svæðinu. Fyrir skömmu
veiddist annar „stórlaxanna" sem
hafa lengi legið í Brúarhylnum í
Bugðu, veiðimönnum bæði til gleði
og hrellingar. Tók sá stóri maðk
og reyndist 19 pund. Ekki var ljóst
hvort það var sá stærri eða smærri
sem tók agnið.
gg■
BALLET KLASSISKUR BAL
L 11
cf:.
WliiíSl
Ítí.í::’0
l ■
fiSr
Námskeið fyrir byrjendur (yngst 5 ára)
og framhalasnemendur.
,SY
JP»
.ÆRAPÍfÁÐ.
U /l.MES’
r
SPECIAL“
Ódýrt en best
Kennslukerfi: ROYAL ACADEMY OF DANCING
__________RUSSIAN METHOD ___________
Innritun í síma 72154 kl. 11 -19.
Kennsla hefst 20. seDtember
Félag íslenskra listdansara. [
BALLETSKÓLISIGPÍORR ÚRmfim
SKÚLACÖTU 32-34 <><><►
FLJÓTANDI ADIEI
HREINT
STÓRKOSTLEG
NÝJUNG!
ARIEL þvottalögur er fyrir allan þvott.
Einstakir eiginleikar hans njóta sín sér-
staklega vel viö lágt hitastig 40°C eða
minna, þar sem þvottaduft leysist illa upp
viö lágan hita.
Þvottalögurinn samlagast vatninu strax
og þvottatíminn nýtist að fullu.
Tauiö kemur tandurhreint úr
vélinni. Þú sleppir forþvotti... Hellir ARIEL
þvottaleginum í plastkúlu, sem fylgir 750
ml. brúsanum, og leggur kúluna ofan á
þvottinn í vélinni.
Ekkert fer til spillis, kúlan skaðar hvorki
vélina né þvottinn. í mjög föst óhreinindi
er gott aö hella ARIEL beint á.
TANDURHREINN ÞVOTTUR MEÐ
FLJÓTANDIARIEL. Jafnvel viö mjög lágt
hítastig. Fáanlegur í þrem stærðum.
0,75 Itr, 2 og 3 Itr.
Þvottaleginum er hellt í plastkúlu sem er stillt ofan á þvottinn. Fljótandi ARIEL
samlagast vatninu fljótt og vel. ...
BH o « «
íslen ÖL'lllll
Kjúklinga-hnetusúpa \'s
Kr. 225,-
Rjómahumarsúpa
Kr. 395,- ■
Ferskt salat
með rækjum og núðlum
Kr. 295,-
Grafínn regnbogasilungur
með sinnepssósu
Kr. 395,-
Smjördeigsbakaður saltfiskur
með rjómasósu
Kr. 750,-
Skötuselur og ferskt grænmeti
á teini með kryddgrjónum
Kr. 810,-
Steikt hámeri
með gráðostasósu
Kr. 695,-
Kjúklingabringa fyllt
með hvítlaukssmjöri
Kr. 840,-
Smokkfiskur og pasta
í chili-kryddsósu
Kr. 795,-
Léttsteiktar
lundabringur með
ferskum kryddjurtum
í njólablaðasósu
Kr. 695,-
ARNARHÓLL
RESTAURANT
er opinn á kvöldin frá kl. 18:00
þriðjud. til laugard.
Hverfisgötu 8-10
pantanasími 18833