Morgunblaðið - 06.09.1988, Blaðsíða 67
rl - ÍJf í ^ i « Uf CtX Ji^l4
HEIMSÓKN ÓLAFS V. NOREGSKONUNGS
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988
6?»
Konungur heiðrar minningu
Snorra Sturlusonar í dag
Frú Vigdís Finnbogadóttir
forseti Islands heilsar Ólafi
V. Noregskonungi við komu
hans tíl íslands í gærmorgun.
Ræða forseta íslands:
Tungan tengir
ísland og Noreg
í sameiginlegum
minningum þjóðanna
HÉR fer á eftir ræða forseta
íslands, frú Vigdísar Finn-
bogadóttur, í kvöldverði á
Bessastöðum tíl heiðurs Ólafi
Noregskonungi í gærkvöldi.
Yðar hátign
og aðrir góðir gestir.
Það er okkur íslendingum
ævinlega fagnaðarefni að taka á
móti gestum frá Noregi, enda
munum við seint gleyma þeim
uppruna þjóðar okkar sem við
rekjum til Noregs fyrir meira en
ellefu hundruð árum. Við bjóðum
yðar hátign innilega velkominn.
Þegar íslendingar sitja með
Norðmönnum, vill hugurinn oft
hvarfla aftur til sögunnar. Því
mætti spyija hvers vegna okkur
er svo hugleikið að muna sögu
okkar og hvað saga sé í raun og
veru.
Á morgun mun yðar hátign
taka sér ferð á hendur til Reyk-
holts, hins foma seturs Snorra
Sturlusonar. Ef við iátum hugann
reika aftur til sögunnar, til þrett-
ándu aldar, þá verða á vegi okkar
margir íslendingar sem brugðust
hart við Hákoni konungi Hákon-
arsyni, Hákoni gamla, eins og
íslendingar nefndu hann. Mér
hefur alltaf fundist sem frásögnin
af Sturlu Þórðarsyni glitraði eins
og perla í Sturlungu. Hún er eins
og sjálfstæð smásaga. Sturla
Þórðarson var bróðursonur
Snorra og einn þeirra sem stóðu
gegn þeirri viðleitni konungs að
ná íslandi undir norsk yfirráð.
Þegar Hákon gamli gerði boð fyr-
ir Sturlu og kvaddi hann til Björg-
vinjar, eins og Bergen heitir enn
á íslensku, þá þóttist hann fara
nærri um að hann ætti ekki von
á neinu góðu. Hann hefur ugg-
laust talið það vafa undirorpið,
að hann fengi nokkru sinni að sjá
heimaslóðir sínar á ný. En þessi
vitri maður hafði öðrum fremur
yfírsýn yfír samtíma sinn og skiln-
ing á framþróun sögunnar, enda
voru hagsmunir þjóðarinnar hon-
um hugleiknari en eigin upphefð
og ávinningur og því hlýddi hann
kallinu og fór til Noregs á fund
Konungs.
Á sama hátt og Egill Skal-
lagrímsson hafði áður ort Höfuð-
lausn sína til að bjarga höfði sínu
undan Eiríki blóðöxi, þannig orti
Sturla lofkvæði til Hákonar gamla
og sonar hans Magnúsar og hafði
meðferðis til konungs. Hann veit
að hann á sér áhrifamikið vopn
er hann heldur tl Björgvinjar á
vit óvissra örlaga sem hlýðinn
þegn. Þetta vopn er Orðið. Vopn
hans er að segja frá hetjudáðum
sem eiga eftir að verða saga. Við
skulum aldrei gleyma því, að það
er.Orðið sem varðveitir afrekin.
í Björgvin hittir Sturla hins
vegar Magnús konung fyrir, þar
sem Hákon var horfínn vestur um
haf að beijast við konung Skota,
er hafði ráðist á eyríki hans.
Magnús tekur Sturlu nokkuð
kuldalega og biður hann að biða
endurkomu Hákonar. En þá gerist
ÓLAFUR V. Noregskonungur
kom í heimsókn til íslands í
gær. Flugvél konungs lenti á
Rey kj a víkurflugve Lli klukkan
11.00 í gæpnorgun í góðu veðri.
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, tók á móti kon-
ungi ásamt sendiherrum land-
anna og fulltrúum Stjórnarráðs
íslands. Eftir að Forsetinn
hafði heilsað konungi og boðið
hann velkominn til lslands, lék
lúðrasveit þjóðsöngva land-
anna. Lögreglumenn stóðu
heiðursvörð á meðan á mót-
tökuathöfninni stóð. Að athöfn
lokinni héldu forsetinn, kon-
ungur og fylgdarlið þeirra til
Hótel Sögu, þar sem konungur
mun hafa aðsetur á meðan
hann dvelur hér á landi. Heim-
sókn Ólafs V. Noregskonungs
stendur til fimmtudags og mun
hann meðal annars koma til
Þingvalla og heimsækja Reyk-
holt í minningu Snorra Sturlu-
sonar. Þá mun konungur einnig
fara til Viðeyjar, heimsækja
Norræna húsið, Árnasafn,
Listasafn íslands og Höfða í
Reykjavík.
Fánar íslands og Noregs bifuð-
ust lítillega fyrir ferskum, en svöl-
um, norðanandvara þegar Ólafur
V. Noregskonungur sté út úr flug-
vél sinni á Reykjavíkurflugvelli í
gærmorgun. Auk forseta íslands,
frú Vigdísar Finnbogadóttur, tóku
þar á móti konungi sendiherra-
hjón Noregs á íslandi, Per og Liv
Aasen; sendiherrahjón íslands í
Noregi, Niels P. Sigurðsson og
Ólafía R. Sigurðsson. Ennfremur
voru í móttökunefndinni Guð-
mundur Benediktsson ráðuneytis-
stjóri, Sveinn Bjömsson prótó-
kollsstjóri, Böðvar Bragason lög-
reglustjóri, Komelíus Sigmunds-
son forsetaritari, Pétur Einarsson
flugmálastjóri og Jóhann H. Jóns-
son flugvailarstjóri.
Frú Vigdís Finnbogadóttir
heilsaði konungi með virktum og
bauð hann velkominn til íslands.
Að móttökuathöfn lokinni var
ekið með konung og fyigdarlið í
bifreiðum forsetaembættisins til
Hótel Sögu, þar sem hann hefur
aðsetur á meðan heimsóknin var-
ir. Ók bflalestin í lögreglufylgd,
alls fímm bflar, og voru þau frú
Vigdís forseti og Ólafur konungur
í fremsta bflnum.
Forseti íslands bauð Noregs-
konungi síðan til hádegisverðar á
Bessastöðum. Á borðum vom
kaldar rjúpubringur í forrétt,
rauðspretta með sjávarréttafyll-
ingu' í aðalrétt, blandaður eftir-
réttur og síðast kaffí.
Síðdegis hafði konungur boð á
Hótel Sögu fyrir Norðmenn bú-
setta á Islandi og kom þangað
fyöldi gesta.
Frú Vigdís Finnbogadóttir for-
seti bauð síðan konungi og fylgd-
arliði hans til veislu á Bessastöð-
um í gærkvöldi. Þar var fram
borið nautakjötseyði með græn-
metisteningum, iaxabúðingur
Morgunblaðið/Sverrir
Frá kvöldverðarboðinu á Bessastöðum í gærkvöldi, frá vinstri frú Halldóra Eldjárn fyrrverandi
forsetafrú, Ólafur V. Noregskonungur, frú Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands og Þorsteinn
Pálsson forsætisráðherra.
merkilegt atvik. Sturla situr um
borð í skipi konungs og tekur að
segja sögur. Þetta spyrst fljótt
út, enda höfðu menn sjaldan eða
aldrei hlýtt á svo góðan sögu-
mann. Drottningin fréttir þetta
einnig og hún biður íslendinginn
að koma á sinn fund og konungs
og skuli hann hafa söguna með
sér, eins og stendur í frásögn-
inni, og er talið benda til að Sturla
hafí skrásett sögu sína.
Þetta verður til þess að Magnús
konungur biður Sturlu að skrifa
sögu Hákonar Hákonarsonar. Og
við munum hvað svo gerðist: Há-
kon konungur átti ekki aftur-
kvæmt vestan úr Orkneyjum. En
Magnús konungur veit hvaða fjár-
sjóð hann á í þessum manni sem
kann að skrifa sögur og hann leyf-
ir Sturlu að snúa heim. Síðar
kveður Magnús konungur Sturlu
aftur til Noregs, að þessu sinni
til að aðstoða við að skrá nýja
lögbók handa íslandi, Jámsíðu,
og skipaði hann fyrsta lögmann
samkvæmt þeim lögum.
Þannig er lagður grundvöllur
að nýjum vináttuböndum íslend-
inga og Norðmanna: Með frásögn-
inni og vegna þess að Magnús
konungur lagabætir átti svo góð-
an rithöfund að vini. Orðið reisir
brýr milli manna og þjóða. Hann
sem átti að hníga fyrir sverði,
upphófst fyrir orð: Andstæðingur
Hákonar konungs gerðist skáld
hans og söguritari og hann varð
náinn vinur og ráðgjafí Magnúsar
sonar hans og reit síðar sögu
hans. Orðið sigrar ofbeldi og hat-
ur. Það skapar skilning, það skap-
ar vináttu og bræðraþel. Orðið
veitir sýn og geymir að eilifu og
í því býr einnig sjálfsmynd okkar
sem þjóðar. Tungan geymir sjálfs-
mynd okkar og tengir Island og
Noreg í sameiginlegum minning-
um þjóðanna, því að það er fyrir
orð að við þekkjum sögu okkar.
Það er í sannleika fátækur mað-
ur, sem ekki getur sótt styrk í
minningar þjóðar sinnar. Þess
vegna gætum við orðsins og tung-
unnar. Ef við gleymum orðinu,
þá gleymum við einnig sjálfum
okkur. Oft voru það norskir kon-
ungar sem hvöttu og örvuðu
íslensk skáld og rithöfunda til að
yrkja og skrifa - eins og í hinni
stórmerkilegu frásögn af Sturlu,
Hákoni og Magnúsi - og það
kunnum við íslendingar að meta.
Yðar hátign. Nú, 725 árum
eftir að Sturla Þórðarson hélt til
Björgvinjar, eigum við enn rithöf-
.unda og sagnfraíðinga. Báðar
þjóðirnar eiga meistara orðsins
sem kunna að segja sögu og skrá
söguna. Verst er að fá ekki að
standa á hleri eftir tvö hundruð
ár og heyra hvað þeir hafa að
segja um okkur...
Innilega velkominn. Ég lyfti
glasi til heiðurs Noregskonungi
og fyrir einlægri og heilsteyptri
vináttu Norðmanna og íslendinga.
með blaðlaukssósu, lambahryggur
með lerkisveppasósu og loks kaffí
og smákökur. Ólafur konungur
ávarpaði veislugesti og að sögn
Öysteens Isaksons hjá norska
sendiráðinu fjallaði hann um
Snorra Sturluson og áhrif hans á
norska sögu. Hann hafði komið
til Noregs og séð hið norska þjóð-
félag með gests auga og skráð
sögu þess í Konungasögum. Af
því hafí Norðmenn lært mikið og
sótt styrk í sögur þær, sem Snorri
kom í letur, á erfíðum tímum,
m.a. á árum síðari heimsstyijald-
arinnar. Með þessari veislu lauk
dagskrá heimsóknarinnar í gær.
I dag mun konungur heim-
sækja skógræktarstöð ríkisins á
Mógilsá f Kollafírði og þaðan fer
hann til Þingvalla. í Almannagjá
munu Þorsteinn Pálsson forsætis-
ráðherra og kona hans, Ingibjörg
Rafnar, taka á móti konungi og
fylgdarliði hans. Séra Heimir
Steinsson sóknarprestur á Þing-
völlum og þjóðgarðsvörður mun
segja frá Þingvöllum og sögu
staðanns. Að því loknu varður
farið til Hótel Valhallar, þar sem
Morgunblaðið/Árai Sœberg
gestimir munu snæða hádegis-
verð í boði forsætisráðherrahjón-
anna.
Frá Þingvöllum fara gestimir
síðan með þyrlum Landhelgis-
gæslunnar að Reykholti í Borgar-
fírði, þar sem Birgir ísleifur Gunn-
arsson menntamálaráðherra tek-
ur á móti þeim. Þaðan verður
farið til Reykjavíkur á ný í þyrlum
og lýkur dagskránni þegar þang-
að er komið síðdegis. Forseti Is-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
verður í fylgd með ólafí konungi
í dag.
V-