Morgunblaðið - 10.09.1988, Side 50

Morgunblaðið - 10.09.1988, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988 Minning: Daníela Jónsdóttir, Króktúni - Minning Daníela Jónsdóttir var fædd 2. september 1905 að Þinghóli í Hvol- hreppi, Rangárvallasýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Guðbjörg Guðnadóttir og Jón Jónsson. Dalla var ein af sex alsystkinum en íjög- ur þeirra dóu í bemsku._ Hún átti einnig tvö hálfsystkini. Á Þinghóli bjó hún skamman tíma. Þaðan flutti hún með foreldrum sínum að Mos- hvoli í sömu sveit. Halldór bróðir Döllu hóf búskap í Króktúni, Hvol- hreppi 1931 og fluttist hún þangað með honum. Eftir að Katrín, kona Halldórs, lést 1954 var Dalla í for- svari fyrir Króktúnsheimilið. Krók- tún var henni mjög kært og þaðan eiga margir góðar minningar. Einn þeirra er mágur minn Daníel Gunn- arsson. Hann ólst upp hjá Döllu og afa sínum fram að fermingu eða þar til Halldór lést 1966. Þá flutti Dalla ásamt Daníel til foreldra hans, Guðrúnar Halldórsdóttur og Gunnars Þorgilssonar að Ægissíðu í Djúpárhreppi. Dalla bjó síðan í nokkur ár í Bræðraborg hjá Jórunni Magnúsdóttur. Síðustu æviár sín dvaldi hún á dvalarheimilinu Lundi, Hellu. Dalla giftist ekki og eignað- ist ekki böm, en laðaði að sér unga sem aldna með hlýju viðmóti sínu. Kynni okkar hófust fyrir sextán árum og eru mér mjög minnisstæð- ir fyrstu dagamir. Því var þannig háttað að ungt fólk var að hefja búskap hér í Reykjavík, Kristrún systir mín og mágur minn Daníel Gunnarsson. Þau höfðu eignast sitt fyrsta bam. Þetta voru erfíð ár eins og hjá flestu ungu fólki því bæði þurfti að vinna fyrir sér og ljúka námi. Þá kom Dalla til hjálpar og gætti litlu vinkonu sinnar á meðan að mamma og pabbi voru að heim- an. Bömum Kristrúnar og Daníels var hún alla tíð sem besta amma og hygg ég að það eigi við um öll böm sem hún kynntist. Ekki gerði Dalla viðreist, en kom þó til Reykjavíkur einu sinni til tvisvar á ári og dvaldi þá í Stuðlaselinu hjá Daníel og fjölskyldu. Þá hittumst við alltaf þar og eins kom hún í heimsókn til mín. Það var alltaf til- hlökkun að fá þessa góðu gömlu konu í heimsókn. Hún var svo hæg, hlý og einlæg. í sumar veiktist hún og var flutt á Landakotsspítala þar sem hún lést 30. ágúst sfðastliðinn. t Eiginmaöur minn, SIGTRYGGUR RUNÓLFSSON, Helðargerði 11, Reykjavfk, lóst 7. september. Guðbjörg Sigurpálsdóttir. Móöir okkar, t ELLEN EINARSSON frð Krosshúsum, Grlndavfk, lést í Landakotsspítala 9. september. Edda Marfa Einarsdóttir, Asa Lóa Elnarsdóttlr, Emma Hanna Einarsdóttir. t Ástkær eiginmaöur minn, faöir og sonur, SVERRIR SVERRISSON rennlsmiður, Kóngsbakka 6, Reykjavfk, lést af slysförum 7. september sl. Fyrir hönd aðstandenda, Kristfn Ragnarsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóöir og amma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, andaöist 31. ágúst sl. iaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Fyrir hönd vandamanna, Axel Ketilsson, Jón Ketllsson, Ingvar Pálmason, Sofffa Pálmadóttir. t Útför eiginmanns míns, föður okkar og sonar, GUÐMUNDAR EINARSSONAR, Eyjaholti 13, Garðl, verður gerð frá Keflavikurkirkju í dag, iaugardaginn 10. september, kl. 14.00. Fanney Jóhannsdóttir, Guðmunda Ólöf Guðmundsdóttir, Pétur Rúnar Guðmundsson, Úlfar Guðmundsson, Slgrfður Benediktsdóttir, Einar Jóhannsson. Við flytjum Döllu bestu þakkir fyr- ir öll árin og vináttuna. Hrafnhildur Guðmundsdóttir og fjölskylda. í dag er til grafar borin elskuleg frænka okkar, Daníela Jónsdóttir, eða Dalla eins og hún var oftast kölluð. Þrátt fyrir að skyldleiki hennar og okkar systkinana hafí ekki verið mjög mikill urðu kynni okkar náin og litum við meira á hana sem ömmu en frænku. alltaf var hlýlega tekið á móti okkur þeg- ar við heimsóttum hana á dvalar- heimilið Lund, þar sem Dalla dvaldi síðust æviár sín og undantekningar- laust var dregin fram gömul kon- fektdós með ýmiss konar góðgæti. Annað sem við minnumst nú eru jólagjafír frá Döllu. Ár eftir ár komu mjúkir pakkar og altaf komu í ljós ullarsokkar og vettlingar þegar pakkamir voru opnaðir. Oft hafði hún laumað einhveiju með, t.d. konfekti eða leikfangi. Okkur þótti ekki síður skemmtilegt að opna gjafímar frá henni en aðrar gjafír enda vissum við að ekkert var betra en vera í ullarsokkunum og vettl- ingunum hennar Döllu þegar snjór- inn og kuldinn var mestur. Það em einmitt svona atvik sem við komum aldrei til með að gleyma. Um leið og við þökkum Döllu fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur viljum við biðja góðan Guð að vera með elsku Döllu okkar. Marta, Gummi og Dóra Alexanderína K. Bene- diktsdóttir Fædd 18. febrúar 1902 Dáin 1. september 1988 Alexanderina fæddist í Reykjar- fírði, Grunnavíkurhreppi. Foreldrar hennar vom Svanfríður Daníels- dóttir og Benedikt Hermannsson bóndi, Reykjarfírði. Hún ólst upp hjá föður sínum og konú hans, Ketilríði Jóhannesdóttur, eins og þeirra bam, en þau hjónin áttu fyr- ir eina dóttúr, móður mína. Alexanderina giftist Jónasi Guð- jónssyni frá Þaralátursfírði, og eignuðust þau flórar dætur, en þau slitu samvistum eftir fárra ára hjónaband. Dætumar em: Anna, fædd 18. júní 1927, Svanfríður Yigdís, fædd 29. nóvember 1928, Ólína Ketilríður, fædd 21. nóvember 1930, og Jensína Rósa, fædd 9. júní 1932. Ung ég lærði glóð að geyma: Það er eins með minninguna og glóðina, hún er falin og geymd, en stundum koma til atvik sem verða þess valdandi að gleymskan er tek- in ofan af, og það snarkar og brak- ar í minningunni, eins og þegar búið var að taka ofan af glóðinni og hún var glædd á ný við næfur eða sprek. Svo fór með mig og minningam- ar er ég frétti lát Alexanderinu móðursystur minnar. Hún fæddist svokallað framhjá- tökubam, en það sagði Ketilríður amma mér, að þegar maður hennar kom orðum að því við hana að hann ætti bam í vændum með annarri konu, hefði hún svarað: „Vitirðu þig eiga bamið, hafðu þá manndóm til að gangast við því.“ Og þann manndóm átti hann. Efalaust hefur Alexanderina eitt- hvað af þeim manndómi erft. Hún átti þrek og vilja til að sjá dætmm sínum fjórum farborða í uppvexti þeirra, eftir að þau hjónin skildu. Jónas hafði þá byggt þeim bæ á föðurarfleifð hennar í Reykjarfírði. Hún tók þangað til sín móður sína Svanfnði og mann hennar Þorberg Samúelsson, sem unnu búi hennar eftir mætti, og hlutu þar einnig aðhlynningu og umönnun til ævi- loka. — Minning Á öðm búi í Reykjarfirði bjó svo Matthildur Benediktsdóttir hálf- systir hennar með manni og böm- um. Hún lifír systur sína. Stutt var yfír bæjarhlaðið að Öllu-bæ, þar um lá leið mín flesta daga og mörgum stundum eyddi ég þar í leik og félagsskap dætra hennar. Þær em mér sem systur, og við minnumst þess hve gott var með ömmum okkar, aldrei urðum við varar við kala eða sundurlyndi þeirra á milli, bara einlæga vináttu, og Alla frænka var bam beggja, og sýndi þeim báðum kærleika. Ég minnist dugnaðar hennar og þrautseigju og oma mér við glóð bjartra minninga frá heimili hennar í Reylgarfirði. En hún átti einnig heimili á Höfðaströnd og síðari ár hjá Ólínu dóttur sinni og manni hennar á ísafirði. Blessuð sé minning hennar. Dætmm hennar og öðmm aðstand- endum sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Guðrún Jakobsdóttir Guðbjörg Péturs- dóttir Ólsen - Minning Fædd 30. ágúst 1899 Dáin 31. ágúst 1988 í gær, föstudag, var til moldar borin Guðbjörg Pétursdóttir ólsen. Hún fæddist í Þrengslabúð að Hellnum á Snæfellsnesi, dóttir hjón- anna Péturs Péturssonar bónda og sjómanns og Ingibjargar Vigfús- dóttur. Guðbjörg missti föður sinn þriggja ára, en þá leystist heimilið Kransar, krossar M) ogkistuskreytingar. W upp og fluttist hún til frænku sinnar í Borgarfírði. Ólst hún þar upp en fór þó snemma að sjá fyrir sér sjálf. Um 25 ára aldur fór hún til Siglufjarðar og kynntist þar eigin- manni sínum, Jakobi Valdimar Ól- sen. Þau fluttust til Akureyrar og stofnuðu þar heimili. Núlifandi böm þeirra em Bára og Bjöm en þau misstu eina dóttur nokkurra mán- aða er Ingibjörg hét. Guðbjörg missti eiginmann sinn árið 1978 en hún hefur búið á Elliheimilinu Hlíð síðustu árin og lést þar þann 31. ágúst síðastliðinn. Við þökkum elsku ömmu okkar fyrir allt sem hún var okkur. -Hjá henni áttum við ökkar annað heim- ili, enda komum við oft á Fjólugötu 7. Amma gat alltaf vitað hvemig okkur leið og ef illa lá á okkur mættum við skilningi og hjartahlýju sem gerði vandamál okkar að engu. Frá henni fóram við léttari í lund. Var það erfíð lífsbarátta sem gefið hafði henni slíkt innsæi eða var það hluti af hennar sterka persónuleika? Þegar við komum til ömmu var hún tilbúin að segja okkur sögur eða syngja vísur og þulur. Hún kenndi okkur ungum að spila á spil og var það hennar mesta skemmtun að fá kunningjana heim. Var þá oft spilað bridge fram á nótt við glens og gaman. Þegar eitthvað bjátar á í lífi okk- ar munum við minnast heilræða ömmu okkar, hversu sterk og rétt- sýn hún var og ávallt tilbúin að gerast málsvari þeirra sem minna máttu sín. Hún var ófeimin við að rísa úr sæti og segja nokkur vel valin orð. Engum datt í hug að andmæla enda var réttsýni óaðskilj- anlegur hluti af persónuleika henn- ar. Við fylgjum henni til grafar og kveðjum hennar jarðneska líkama. Við vitum að 89 ára gamall líkami er þreyttur og hvfldinni feginn, þess vegna kveðjum við hana með gleði í hjarta en minning hennar lifír innra með okkur. Enginn getur tek^ ið hana burtu. Hafí amma þökk fyrir allt. Barnabörn t»n i r»»rri innwiirnTnTiir i ..... "***

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.