Morgunblaðið - 14.09.1988, Qupperneq 1
64 SIÐUR B
209. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skíðaleiðangurinn yfir Grænlandsjökul:
N or ðmennirnir
komnir til Nuuk
Nuuk. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
NORÐMENNIRNIR fjórir, sem gengn á skiðiun yfir Grænlandsjökul
í slóð Friðþjófs Nansens, komu til Nuuk sl. sunnudag. Ferð þeirra
tók 25 daga, en Nansen var 40 daga á leiðinni fyrir nákvæmlega
einni öld.
Norðmennimir, sem Stein P.
Ásheim fór fyrir, notuðu í einu og
öllu sams konar útbúnað og Nansen
á sínum tíma. Þeir lögðu á jökulinn
við Umivik á Austur-Grænlandi 15.
Reagan
greiðir SÞ
skuldirnar
Washington. Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti skipaði í gær svo fyrir,
að greiddar skyldu 520 milljónir
dollara í vangoldin framlög til
Sameinuðu þjóðanna. Skýrði
talsmaður hans frá þessu í gær.
„Forsetinn hefur skipað utanrík-
isráðuneytinu að greiða þessa skuld
í áföngum og 180 milljónir dollara
að auki,“ sagði Marlin Fitzwater,
talsmaður Hvíta hússins, á frétta-
mannafundi í gær. Sagði hann, að
Bandaríkjastjóm hefði lengi talið
verulegra umbóta þörf innan Sam-
einuðu þjóðanna og þess vegna
haldið að sér höndum með greiðsl-
ur. Enn væri að vísu langt í land
með þær en árangur samtakanna
að undanfömu, fríðarviðræður ír-
ana og íraka og í sunnanverðri
Afríku, sýndi, að þau væm á réttri
leið.
Sameinuðu þjóðimar hafa átt við
verulegan íjárskort að stríða og
Perez de Cuellar, framkvæmda-
stjóri þeirra, taldi þær ekki geta
haldið uppi eðlilegu friðargæslu-
starfí af þeim sökum.
ágúst og komu niður af jöklinum
við Austmannadal fyrir austan
Nuuk sl. föstudag, 9. september.
Leiðangur Nansens hófst 15. ágúst
1888 og lauk 26. september.
Laugardaginn 10. september
komu Norðmennimir til þess staðar
við Ameralikfjörð, þar sem tjald-
búðir Nansens stóðu, og daginn
eftir gengu þeir til byggðarinnar
Kapisillit í botni Nuuk-fjarðar. Það-
an var siglt með þá til Nuuk.
Ekki var búist við fjórmenning-
unum fyrr en 23. september, svo
að lítið var við haft við móttöku
þeirra.
Norðmennimir urðu að skilja
mestallan útbúnað sinn eftir á jökl-
inum, þar sem ekki var unnt að
komast með hann yfír jökulsprung-
ur á síðasta áfanganum. Verður
hann sóttur í þyrlu.
Sovétríkin:
Reuter
Gorbatsjov á meðal verkafólks í borginni Krasnojarsk. Sovéskur almenningur er farinn að gerast lang-
eygur eftir ávöxtum umbótastefnunnar.
Vaxandí óánægja almenn-
ings með matvælaskortmn
Moskvu. Reuter.
MIKIL og vaxandi óánægja með
ónógt matvælaframboð og lítinn
árangur „perestrojkunnar"
braust upp á yfirborðið meðal
almennings í borginni Krasnoj-
arsk í Síberíu þegar Míkhail
Gorbatsjov Sovétleiðtogi var þar
á ferð í vikunni. „Líttu inn í búð-
Fárskapur fellibylsins
Reuter
Fellibylurinn Gilbert gekk í gær
yfír Cayman-eyjar á Karíbahafí
og mældist vindhraðinn þá 225
km á klukkustund. Rofnaði strax
allt samband við eyjamar en veð-
urfræðingar bjuggust við mikilli
eyðileggingu. A mánudag fór
hann yfír Jamaica og var því lfkast
sem loftárásir hefðu verið gerðar
á landið. Vitað er um sjö látna
og þúsundir manna hafa misst
heimili sín. Styrkur fellibylja er
mældur á kvarða, sem telur frá
einum og upp í fimm, og er Gil-
bert í fjórða styrkleikaflokknum.
Þessi gervihnattarmjmd af Gilbert
var tekin þegar auga hans var
nokkum veginn yfir Jamaica.
irnar hér, MfkhaO Sergejevítsj.
Þá muntu sjá, að þær eru galtóm-
ar,“ var meðal annars hrópað að
honum en Gorbatsjov svaraði
með næstum þvi trúarlegri
ákefð, að fólk yrði að treysta
þvi, að umbætumar bæru að lok-
um árangur. Var frá þessu sagt
og sýnt í sovéska sjónvarpinu í
fyrrakvöld.
Gorbatsjov lauk sumarleyfí sínu
með því að leggja upp í vikulanga
ferð um Síberíu og kom á mánudag
til iðnaðarborgarinnar Krasnojarsk.
Þar tók mikill mannfjöldi á móti
honum en þegar hann ætlaði að
tala til borgarbúa var margsinnis
kallað fram í fyrir honum. „Hér
skortir allt. Bamaheimili, húsnæði
og almennilega læknisþjónustu.
Verslanimar em tómar og almenn-
ingssamgöngur í kaldakoli," hróp-
aði fólk að leiðtoganum, sem end-
urtók hvað eftir annað, að umbóta-
stefnan stæði og félli með trúnni,
„ekki blindri guðstrú“, heldur trú
og skilningi á viðleitni forystunnar.
Þrátt fyrir þetta var Gorbatsjov
vel fagnað en að undanfömu hafa
margir bent á, að vöruskorturinn
hafí aukist um allan helming síðan
umbætumar hófust fyrir þremur
ámm. Hafi hann verið miklu minni
á dögum Leoníds Brezhnevs, sem
sakaður er um að hafa valdið aftur-
för á öllum sviðum. Ástandið er
verst á landsbyggðinni en best í
Moskvu enda hefur það lengi verið
stefna stjómvalda að sinna þörfum
höfuðborgarbúanna betur en ann-
arra. Afleiðingin er sú, að á hveijum
degi flykkjast þangað 2-3 milljónir
utan af landi til að versla.
Annað algengt umkvörtunarefni
sovésks almennings er mengunin
og' í Krasnojarsk fékk Gorbatsjov
að heyra, að ástandið væri óbæri-
legt og ekki mönnum bjóðandi.
Svaraði hann því til, að ástæðan
væri stórkostlegt ábyrgðarleysi í
meðferð opinbers §ár. Hefði 33
milljónum rúblna, rúmlega hálfum
þriðja milljarði ísl. kr., verið varið
til uppbyggingar í héraðinu sl. 12
ár en samt hefðu ráðamenn þar
látið félagslega þjónustu og meng-
unarvamir alveg lönd og leið.
Kosningabaráttan í Bandaríkjunum:
Afsagnir og
aukin harka
Waahington, Chicago.
ÁTTA aðstoðarmenn George Bush, forsetaframbjóðanda Repúblik-
anaflokksins í Bandaríkjunum, hafa sagt af sér síðustu daga vegna
ásakana um gyðingahatur. Talsmaður Bush og Ronald Reagan for-
seti segja áburðinn tilhæfulausan en Bush svaraði fyrir sig með því
að ráðast á Michael Dukakis, frambjóðanda demókrata, sem hann
kallaði „boðbera bölsýninnar".
Afsagnimar koma á slæmum
tíma fyrir Bush, sem hefur að und-
anfömu verið að gera hosur sínar
grænar fyrir ýmsum einstökum
þjóðfélagshópum, ekki síst gyðing-
um, sem þykja fremur hallir undir
Dukakis. Sheila Tate, talsmaður
Bush, og Reagan forseti vísuðu því
á bug, að nokkra andúð á gyðingum
væri að fínna í kosningabaráttu
Bush en sögðu, að rétt hefði verið
af aðstoðarmönnum Bush að segja
af sér til að skaða hann ekki.
í ræðu, sem Bush flutti í gær í
Chicago, gerði hann efnahagsmálin
að umtalsefni en minntist ekki á
afsagnimar. Kallaði hann Dukakis,
mótframbjóðanda sinn, „boðbera
bölsýninnar", sem myndi gera hag-
vöxtinn að engu á skömmum tíma.
Dukakis var einnig í Chicago í gær
og fór þá háðulegum orðum um
Bush og meðframbjóðanda hans,
Dan Quayle, í ræðu um utanríkis-
mál. Sagði hann, að Bush hefði lát-
ið Khomeini kúska sig og Noriega,
einræðisherra í Panama, auðmýkja
sig og yrði því Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétleiðtoga auðveld bráð.
Síðustu skoðanakannanir sýna,
að þeir keppinautarnir hafa svipað
fylgi en Bush þó heldur vinninginn.