Morgunblaðið - 14.09.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.09.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988 Landssamband sláturleyfishafa: Ekkí verður gripið til beinna ráðstafana Morgunblaðið/Þorkell Hugi Halldórsson gekk & fund forseta íslands, Vigdisar Finnbogadóttur, í gær og afhenti henni blóm og bréf, sem sagði: „Kæra Vigdís. Ég þakka þér fyrir daginn. Hugi.“ Takk fyrir daginn MEÐAL þátttakenda í heims- hlaupinu i Reykjavík á sunnu- dagiim var sjö ára drengur, Hugi Halldórsson. I hlaupinu varð hann viðskila við móður sina, en þá kom annar þátttak- andi til sögunnar, forseti ís- lands, frú Vigdís Finnbogadótt- ir. Hún dró sig út úr hlaupinu, gekk til Huga og spurði hvað amaði að. „Eg er búinn að týna mömmu minni." „Þekkirðu mig?“ spurði forsetinn. Því jánkaði Hugi. Forsetinn fór með drenginn að næsta lögreglumanni og eftir ráð- færingar varð það úr að forsetinn og Hugi héldu áfram för og gengu sem leið lá í Alþingishúsið og síðan í Stjómarráðið. Meðan móð- ir Huga leitaði hans og var á leið til lögreglunnar, bauð forsetinn Huga heim, þar sem hann dvaldi þar til fundum hans og móður hans bar aftur saman. Aðspurður hvað hefði verið minnisstæðast frá þessum degi, sagði Hugi: „Bara allt.“ En bætti svo við: „Ja, þegar ég sá skrif- borðið hjá Vigdísi, hugsaði ég: „Hmmm, þetta er sko fallegt." Og fundarborðið í Stjómarráðinu er mjög flnt. Þar sitja menn allan daginn og búa til umferðarreglur og svoleiðis." Verslanir virða verðstöðv- un nær undantekningalaust Á fundi stjómar Landssambands sláturleyfishafa í gær var fjallað um stöðu sláturleyfishafa, og varð niðurstaða fundarins sú að ekki skyldi gripið til neinna beinna ráðstafana. Þess í stað verði haldið áfram að Ieita leiða ísfilm hf. hyggst sjónvarpa STJÓRN ísfilm hf. hefur ákveðið að sækja um leyfi til sjónvarps- reksturs. Krislján Jóhannsson stjómarmaður í fyrirtækinu staðfesti þetta í samtali við Morg- unblaðið. Kristjári sagði að ekkert hefði verið ákveðið um hvemig að rekstr- inum yrði staðið en umsókn um, leyfí yrði send útvarpsréttamefnd á næstunni. Fríkirkjan: Fundurán niðurstöðu FUNDI safnaðarstjórnar Fríkirkjunnar, sem haldinn var { gærkvöldi, lauk án þess að tekin væri nokkur afstaða til niðurstöðu fjölmenns safnaðar- fundar á mánudag þar sem sam- þykkt var að ógilda uppsögn séra Gunnars Björnssonar úr starfi sóknarprests og jafn- framt lýst vantrausti á starf- andi aafnaðarstjóm og skorað á hana að segja af sér. Guðmundur Hjaltason sóknar- nefndarmaður sagði: „Málin voru rædd ítarlega en jafnframt ákveð- ið að skoða þau betur í þessari viku og boða annan fund að því loknu," sagði Guðmundur Hjalta- son sóknamefndarmaður. Að öðm leyti vildi hann ekki skýra frá því sem fram fór á fundinum. Jón Ögmundur Þormóðsson, fulltrúi stuðningsmanna séra Gunnars, hafði samband við blaðið og vildi að fram kæmi að missagt væri i frétt í gær að menn úr hópi stuðningsmanna Gunnars hefðu skorað á hann að beita sér fyrir því að vantrauststillagan yrði dregin til baka. tíl lausnar í samráði við stjóra- völd. Nokkrir sláturleyfíshafar vilja þó ganga svo langt að slátra ekki í haust nema rekstur sláturhúsanna verði fyrst tryggður. Stjóm Lands- sambands sláturleyfíshafa ákvað þó ekki neinar sérstakar aðgerðir á fundi sínum, en vill áfram leita leiða til að fínna rekstrargrundvöll fyrir afurðastöðvar í samvinnu við stjóm- völd. Hreiðar Karlsson, formaður stjómar Landssambands sláturleyf- ishafa, sagði í samtali við Morgun- blaðið að miðað við núverandi að- stæður teldi hann að ekki væri fært að selja kjöt af nýslátmðu á meðan ríkjandi væri óvissa um verð- lagningu og aðra réttarstöðu slátur- leyfíshafa. „Við munum á næstunni leita eftir nánari svörum varðandi þessi mál. Þá eigum við einnig óuppgerðar útflutningsbætur af hálfíi ríkisvaidsins, og það er eitt af því-sem okkur er brýnt að fá gengið frá hið fyrsta til að geta staðið við skuldbindingar okkar," sagði Hreiðar. Rekstrartap sláturleyfíshafa á framleiðsluárinu 1986 var um 70 milljónir króna, og á því fram- leiðsluári sem lauk um síðustu mán- aðarmót var tapið um 170 milljón- ir.Áætlað tap sláturleyfíshafa á því framleiðsluárí sem nú er að hefjast er um 270 milljónir króna. Er þá miðað við að verðlagning sem gerð yrði í haust byggðist á einföldum framreikningi, en tæki ekki til greina aðrar leiðréttingar. Verðlagsstofnun: NÝGERÐ könnun Verðlags- stofnunar sýnir að verslanir hafa virt verðstöðvunina með fáum undantekningum, að sögn Georgs Ólafssonar, verðlags- stjóra. Þá bendir hækkun fram- færsluvísitölu um 0,7% milli ágúst og september til þess að verðstöðvunin hafi dregið úr verðhækkunum, sagði Guð- mundur Sigurðsson hjá Verð- lagsstofnun, en búist hefði verið við 1-1,5% hækkun. Þessi hækk- un samsvarar tæplega 9% verð- bólgu á ári. í verðkönnuninni, sem náði til 19 matvöruverslana á höfuðborgarsvæðinu, kemur í ijós að verð er lægst i stór- mörkuðum i Hafnarfirði og Garðabæ. „Kaupmenn og fyrirtæki hafa verið mjög jákvæð gagnvart verð- stöðvuninni og eftirliti Verðlags- stofnunar," sagði Georg Ólafsson. Hann sagði að yfírleitt hefðu menn lækkað verð ef Verðlagsstofnun hefði farið fram á það. Ef tilmæli Verðlagsstofnunar væru ekki virt yrðu nöfn viðkomandi fyrirtækja birt opinberlega og hugsanlegt væri að fara með mál fyrir dóm- stóla. Slíkt hefði þó enn ekki kom- ið til tals. Guðmundur Sigurðsson sagði að Verðlagsstofnun væri nú að athuga þau tilfelli þar sem verð hefði hækkað, en í sumum tilvik- um væri þar um eðlilegar skýring- ar að ræða. Til dæmis hefði sykur hækkað víða frá miðjum ágúst, en hann hefði hækkað á heims- markaði áður en verðstöðvunin tók gildi o g hærra verð á nýjum birgð- um var því hugsanlega þegar ákveðið er verð var kannað um miðjan ágúst. Sjá bls. 37: Lægsta verðið i stórmörkuðum í Hafnarfirði og Garðabæ. Tónleika- ferð Syk- urmolanna Frumvörp til laga um verðbréfasjóði og eignarleigu: Hægt að skylda verðbréfa- fyrirtæki til fjárbindingar JÓN Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, lagði fram á ríkisstjórn- arfundi í gærmorgun tvö frum- vörp til laga um fjármálastarf- semi utan bankakerfisins. Ann- ars vegar er um að ræða frum- varp um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði og hins vegar frumvarp til laga um eignar- leigustarfsemi eða fjármögn- unarleigu. 1 frumvarpinu er heimild tíl þess að láta sömu reglur gilda um bindiskyldu verðbréfasjóða og verðbréfa- fyrirtækja og gilda um bindi- skyldu innlánsstofnana. í fréttatilkynningu frá við- skiptaráðuneytinu segir að verð- bréfafrumvarpið sé viðamikið. Með þvf sé settur rammi um starf- semi verðbréfamiðlara, verðbréfa- fyrirtækja og verðbréfasjóða og leysi það af hólmi eldri lög nr. 27/1986, sem séu um margtófull- komin. Meðal helstu nýmæla í frum- varpinu er að settar eru ítarlegar reglur um skilyrði sem verðbréfa- miðlarar verða að uppfylla og um starfsskyldur þeirra gagnvart við- skiptavinum og eftirlitsaðilum. Ný ákvæði eru um verðbréfafyrir- tæki og starfsemi þeirra en engin slík ákvæði eru í gildandi lögum og ítarleg ákvæði um rekstur verðbréfasjóða. Ströng ákvæði eru um tilsjón bankaeftirlits Seðlabankans og settar reglur um lágmarkshlutafé verðbréfafyrir- tækis og um lágmark eigin fjár þess og ákvæði um viðskipti verð- bréfafyrirtækja og verðbréfasjóða með verðbréf. Þá eru ákvæði um rekstrarform, dreifíngu fjárfest- inga og lausafjárstöðu verðbréfa- sjóða. Skýr ákvæði eru um heim- ild stjómvalda til að hlutast til um rekstur verðbréfafyrirtækis bijóti það gegn ákvæðum laganna og ákvæði um hörð viðurlög. í eignarleigufrumvarpinu eru sett lágmarksskilyrði fyrir rekstri slíks fyrirtækis. Eigið fé má ekki nema lægri upphæð en 8% af heildarskuldbindingum þess á hveijum tíma. Þá eru lágmarksá- kvæði um eftii eignarleigusamn- inga og um upplýsingaskyldu gagnvart viðskiptavinum. Frumvörpin eru samin af nefnd sem viðskiptaráðherra skipaði í febrúar í vetur til þess að und- irbúa fyllri lagasetningu um starf- semi á fjármagnsmarkaði. aðljúka New York. Frá Árna Matthlassyni, blaða- manni Morgunblaðsins. SYKURMOLARNIR héldu i nótt síðustu tónleika sina í tónleika- ferð um Bandarikin, þar sem hljómsveitin hefur leikið á um 30 tónleikum. Tónleikarnir voru i Boston, en á sunnudagskvöldið lék hijómsveitin i New York fyrir troðfullu húsi áheyrenda. Á meðal áheyrenda á tónleikun- um í New York, sem haldnir voru á tónleikastaðnum Ritz þar sem rúmast á milli 1500 og 2000 manns, voru meðal annarra for- eldrar sumra hljómsveitarmeðli- manna, en þeir komu gagngert frá íslandi til þess að sjá hljómsveitina spila. Einnig voru David Bowie, Iggy Pop og meðlimir hljómsveit- arinnar Talking Heads á meðal áheyrenda, auk meðlima í ýmsum þekktum hljómsveitum. Sykurmol- amir koma heim til íslands næst- komandi sunnudag, en þá taka þeir sér stutt frí áður en þeir hefj- ast handa við að hljóðrita efni á nýja LP plötu og undirbúa væntan- lega tónleikaferð um Evrópu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.