Morgunblaðið - 14.09.1988, Side 7

Morgunblaðið - 14.09.1988, Side 7
Húsavík MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988 7 Fjörutíu þúsund fjár slátrað Húsavfk. Sauðfjárslátrun hjá Kaupfé- lagi Þingeyinga á Húsavík er hafin og á henni að ljúka 7. októ- ber. Áætlað er að slátra tæplega 41.000 fjár sem er svipað og á sl. ári en þá var slátrað nokkru af riðufé sem ekki er á áætlun að þurfi að gera núna. Útlit er fyrir að dilkar reynist svipaðir að þyngd og þeir voru í fyrra. - Fréttaritari Kosninga- skýrslur 1874-1987 Hagstofan hefur nú gefið út í einu lagi allar skýrslur sem gerð- ar hafa verið um kosningar til alþingis, sveitarstjórna og emb- ættis forseta, svo og um þjóðarat- kvæðagreiðslur, tímabilið 1874—1987. Kosningaskýrslurn- ar eru 43 að tölu og alls 1.160 blaðsíður. Skýrslurnar eru ljós- prentaðar og gefnar út í tveimur bindum í venjulegu bókbandi. í fréttatilkynningu frá Hagstofu íslands segir: „Almennar alþingiskosningar hafa verið haldnar 35 sinnum frá því Alþingi fékk löggjafarvald 1874. Á þeim hartnær 43 árum, sem liðu frá stofnun lýðveldisins til síðustu alþingiskosninga, hefur ver- ið kosið 14 sinnum til Alþingis. Fyrstu alþingiskosningarnar eftir stofnun lýðveldisins fóru fram á árinu 1946 og frá því hafa að með- altali liðið 3 ár og U/2 mánuður milli alþingiskosninga. Þijár skýrslur hafa komið út um forsetakosningar og tvær um þjóð- aratkvæðagreiðslur. Skýrslur um þijár aðrar þjóðaratkvæðagreiðslur fylgdu skýrslum um alþingiskosn- ingar sem fóru fram á sama tíma, en gerð var grein fyrir kosningu landskjörinna þingmanna 1916— 1930 og aukakosningum í skýrslu um næstu almennar alþingiskosn- ingar. Upplýsingar um þessar kosn- ingar eru með sama hætti og í al- þingiskosningaskýrslum, eftir því sem við á. Fyrstu skýrslur, sem Hagstofan birti um sveitarstjómarkosningar, voru um bæjarstjómarkosningamar 1930 og 1934, en síðan hefur hún tekið saman skýrslur um hveijar kosningar, en þær hafa verið reglu- lega á fjögurra ára fresti. Ná skýrsl- ur um sveitarstjómarkosningar því til 15 kosninga, en ekki til landsins alls í nokkur skipti. Fyrsta skýrslan nær aðeins til kaupstaðanna, en skýrslur um sveitarstjómarkosn- ingar 1942 og 1946 ná til kaup- staða og kauptúnahreppa.“ Fjölbýlis HÚS- FRIÐUR Lausn fyrir húsfélög Það getur verið óþægilegt og erilsamt að rukka - sérstaklega nágranna sína. Nú býðst gjaldkerum húsfélaga, að leggja annasama og oft erfiða innheimtu á herðar Verzlunarbankans. Bankinn sér einnig um greiðslu reikninga og bókhald. Þetta er tölvuþjónusta, sem auðveldar rekstur og tryggir öruggari fjárreiður húsfélaga. Verzlunarbankinn getur þannig stuðlað að góðu andrúmslofti og húsfriði í fjölbýli. HELSTU ÞJÓNUSTUÞÆTTIR ERU ÞESSIR: 1. 2. 3. Bankinn annast mánaðarlega tölvuútskrift gíróseðils á hvem greiðanda húsgjalds. Á gíróseðlinum em þau gjöld sundurliðuð sem greiða þarf til húsfélagsins. Þau gjöld sem húsfélagið þarf að greiða, færir bankinn af viðskipta- reikningi og sendir til viðkomandi á umsömdum tíma. Bankinn útvegar yfirlit sem sýnir stöðu hvers húsráðanda gagnvart húsfélaginu, hvenær sem þess er óskað. Auk þess liggur fyrir í lok hvers mánaðar yfirlit sem sýnir sundurliðaðar hreyfmgar, er mynda grunn rekstrarbókhalds og í árslok heildarhreyfmgar ársins. Ekið á mann á mótorhjóli UNGUR maður slasaðist nokkuð þegar mótorhjól hans skall á bif- reið á Suðurgötu í Hafnarfirði í gærmorgun. Slysið varð á mótum Suðurgötu og Selvogsgötu. Maðurinn ók hjóli sínu norður Suðurgötu. Fólksbifreið var ekið í gagnstæða átt, sveigt til vinstri inn á Selvogsgötu og þar með í veg fyrir mótorhjólið, sem skall á bifreiðinni. Maðurinn kast- aðist af hjólinu og slasaðist nokk- uð, hlaut meðal annars beinbrot. Bifreiðin og hjólið eru mikið skemmd. 4 5. Tölvan gemr breytt upphæð húsgjalda í samræmi við vísitölu og reiknað dráttarvexti, sé þess óskað. Gíróseðlana má greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. VERZLUNARBANKINN -(MAiHWl rtteðfa&l! wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm HÚSI VliRSUINARlNNAR KRINCil.UNNI 7 ÞVERHOL'l'I 6, MOSFELLSBÆ VATNSNESVEGl 14, KEFLAVÍK l’ARAHAKKA 3 BANKASTRÆTl S l ] M FE RÐARMIDSIOÐ1N NI LAUC'.AVEGl 172 VATNSMÝRARVEGI 10 GRENSÁSVEGI 13

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.