Morgunblaðið - 14.09.1988, Síða 21

Morgunblaðið - 14.09.1988, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988 21 Morgunblaðið/Kristján Arngrímsson Arnþór Ragnarsson ákveðinn á svip: Mér tekst best upp þegar ég glimi við verkefni á eigin spýtur. Arnþór Ragnarsson: Reynir að þjálfa hugann Löngu áður en hann stingur sér hefur hann ákveðið hvernig hann ætlar að útfæra sundið. Þvi stend- ur Arnþór Ragnarsson hinn róleg- asti á pallinum og hugsar bara um nýja hjólið sitt, eða reynir að muna hvað það er sem hann ætlar að gera áður en hann fer heim. Amþór segir að það sé afar mikil- vægt að vera búinn að hugsa um allt varðandi sundið áður en mætt er til leiks, með öðrum orðum, vera búinn að „taka út þjáninguna". „Ég er að reyna að þjálfa hugann og þetta tókst ágætlega hjá mér á opna skoska meistaramótinu í fyrra. Þeg- ar kallað var upp á pallinn, þá var ég bara að hugsa um hjólið sem ég hafði verið að kaupa. Þetta er svona sálfræðiatriði; við reynum líka oft daginn fyrir keppni að upplifa og sjá fyrir okkur sund sem tókst vel, sjá alltaf jákvæðu hliðina og færa fortíðina fram f nútíðina. En þótt margt andlegt spili inn í, þá má ekki gleyma því, að það er númer eitt að vera í góðu líkamlegu formi." — Og við sem syndum nú reglu- lega 200 metrana, hvað gerum við til að ná upp í 300 metra? Sundmaðurinn brosir góðlátlega: „Það þarf að æfa þrek og kraft, en muna það að aukin þyngd er ekki til bóta. Við hlaupum líka og gerum teygjuæfingar. En annars get ég sagt þér, að þetta eru endalausar fómir og spuming um sjálfsaga. Við erum ofan í lauginni í allt að sex tíma á dag.“ — Fer þetta ekki illa með húðina? „Jú, að vísu, maður er stundum ansi þurr, en við reynum nú að bera krem á okkur. Yfirleitt er hitastig vatnsins of hátt héma á Reykjavík- ursvæðinu, það kostar meiri áreynslu að synda í því, svo maður tali ekki um sýkingarhættuna." Það var kannski ekki svo undar- legt þótt Amþór legði sundið fyrir sig, þvf honum hefur alltaf líkað vel við vatnið og ku hafa verið erfiðleik- um bundið fyrr á árum að fá hann upp úr baðkarinu. Hann byrjaði í klappliðinu hjá Sundfélagi Hafnarfjarðar en setti sitt fyrsta unglingamet fyrir átta árum, þá 14 ára gamall. — Þú hefur ekki viljað fara í fót- bolta eða handbolta? „Nei, ég var ekkert fyrir félags- íþróttir, var meira fyrir að vera einn þegar ég var yngri og var heilmikill grúskari, skrifaði heilu sögumar og setti saman módel. Mér tekst líka best upp þegar ég glími við verkefni á eigin spýtur. Annars var ég reynd- ar byijaður í siglingum, og það var heilmikil togstreita á sínum tíma hvort ég ætti að velja siglamar eða sundið." Það var fyrir þremur árum, eftir Evrópumót, sem Amþór gerði sér grein fyrir því að hann ætti mögu- leika á að komast á Ólympíuleika. „Ég átti þennan draum að komast á leikana og stefndi að því að ljúka námi fyrir jólin svo ég gæti einbeitt mér eingöngu að sundinu. En ég hef verið í spennu þetta ár, og ekki bætti úr að keppnistímabilið var slit- ið í sundur." Hann lauk stúdentsprófí á tilsett- um tíma, og segir mér að sundið hafi alls ekki komið niður á náminu nema síður sé. „Ég reyni bara að skipuleggja námið vel og svo tek ég oft vinnutamir." — Og hvað tekur svo við eftir Ólympíuleikana? „Ég er nú að hugsa um að fara út á íþróttabrautina, þótt ég hafi verið á viðskipta- og hagfræðibraut í skólanum. Mig langar erlendis til að læra, en ætli ég láti það ekki aðeins bíða, því Friðrik ólafsson mun þjálfa okkur næsta vetur og mig langar til að æfa undir hans stjóm. Svo vona ég bara að þetta gangi allt vel í Seoul, þótt menn ættu ekki að gera sér neinar gylli- vonir." KM Morgunblaðið/JGG Góð þátttaka var f Heimshlaupinu á Höfn i Hornafirði, en 150 til 200 hlauparar voru með. Flestir þátttakendanna voru börn en ein- staka eldri borgari skokkaði líka. Má þvi segja, að þátttakendur hafi verið á aldrinum 5 til 75 ára. LEITIN ENDAR HIÁ OKKUR! Úrval 1.flokks notaöra bíla i okkareigu.Allir skoöaöirog yfirfarnir. SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRA: MAZDA 323 1.3 Árgcrð '87. Rauður. Ekinn 21 þ/km. MAZDA 3231.5 Árgcrð'88. Brúnn. Ekinn 5 þ/km. MAZDA 626 2.0 Árgcró ’83. Grár. Ekinn 70þ/km. BMW520Í Sjálfskiptur. Árgcrð '84. Blágrár. Ekinn 70þ/km. SUBARUTURBO STATION Sjálfskiptur. Árgcrð '87. Bcigc. Ekinn 29 þ/km. HONDA PRELUDE Árgcrð’87. Sjálfskiptur. Grár. Ekinn 15 þ/km. MAZDA 3231.5 Árgerö’87. Hvítur. Ekinn 22 þ/km. MAZDA 323 1.5 Árgerð ’87. Grár. Ekinn 29 þ/km. MAZDA 626 2.0 Árgerö’87. Blár. MAZDA 626 2.0 Árgcrð’85. Grár. Ekinn 80þ/km. Ny hagstæó greióslukjör: Helmingur lánaður í 1 ár meö8% ársvöxtum - ÁN VERÐ- TRYGGINGAR!! MAZDA929 HT2.0 Árgcrð ’83. Sjálfskiptur. Grænn. Ekinn 90 þ/km. NISSAN SUNNY STATION Árgerö ’84. Rauður. Ekinn 70þ/km. DAIHATSU CHARADE Árgerð ’88. Blár. NÝR-ÓEKINN. MAZDA E2200 sendibíll Árgerð ’85. Bcige. Ekinn 85 þ/km. SUZUKISWIFT GTi Árgerð ’87. Svartur. Ekinn 8 þ/km. MAZDA626 Árgerð’87. Hvítur. NÝR ÓEKINN. SUBARU STATION Árgeró ’82. Hvítur. Ekinn 90 þ/km. LADA1200 Árgerö’85. Hvítur. Ekinn 42 þ/km. DAIHATSU BITABOX Árgeró ’84. Gulur. Ekinn 90þ/km. Fjöldi annarra bíla á staðnum. Opió laugardaga frá kl. 1-5 BÍLABORG H.F. FOSSHÁLS11. SlMI 68 12 99 Bronco - betur byggöur en gengur oggerist. Bíll sem hefur sýnt og sannad aö hann stenst öörum fremur íslenskar aðstæður.Jafntá Staðgreiðsluverð 1.348.000 kr. vegi sem í vegleysum geturðu gengið að gæðunum vísum. Ford Afborgunarverð 1.409.000 kr. Bronco, búnaður og þægindi af bestu gerð. Við lánum allt að 700 þús. til 12 mánaða. WwW /Q ARSVEXTIR EHGIH \fERÐTRYCCING L

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.