Morgunblaðið - 14.09.1988, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988
Sambandið:
Fiskframleiðendur
vilja niðurfærslu
Akureyri. Frá Jóhönnu Ingvarsdóttur blaðamanni Morgunblaðains.
FUNDUR Félags Sambandsfisk-
framleiðenda, sem haldinn var á
Akureyri 12. og 13. september
1988, átelur þann seinagang sem
orðið hefur á aðgerðum til að
rétta hag fiskvinnslunnar, en nú
eru liðnir að minnsta kosti tveir
mánuðir siðan öllum var orðið
ljóst að róttækar ráðstafanir
væru óhjákvæmilegar ef komast
ætti hjá almennri stöðvun at-
vinnulífsins.
í ályktun SAFF segir ennfrem-
ur:„Fundurinn leggur eindregið til
að farin verði sú leið, sem lögð var
fram af nefnd þeirri, sem forsætis-
ráðherra skipaði til að gera tillögur
um lausn vandans. Þessi leið er
langlíklegust til þess að skila varan-
legum efnahagsbata, hjöðnun verð-
bólgu og lækkun vaxta. Jafnframt
því að hún kemur fyrirtækjum best
er hún einnig hagstæðust fyrir þá
einstaklinga, sem fjárhagslega eru
verst settir. Þá leggur fundurinn
til að strax komi til framkvæmda
sú gengisbreyting, sem ríkisstjómin
lagði til við Seðlabankann fyrir
þremur mánuðum.
Fundurinn hafnar öllum hug-
myndum um að vandanum verði
frestað og áframhaldandi taprekst-
ur verði fjármagnaður með lántök-
um. Það sem fyrirtækin þurfa er
að gjöld lækki og að tekjur hækki
að því marki að hægt sé að greiða
skuldir niður. Fundurinn bendir sér-
staklega á að vegna slæms ástands
fiskistofnanna megi búast við sam-
drætti í sjávarútveginum. Við það
versna skilyrði til þess að standa
undir þyngri lánsbyrði.
Fundurinn mótmælir öllum hug-
myndum um tilfærslu tekna á milli
einstakra greina sjávarútvegsins."
Borgarráð:
Skylt að styrkja dag-
heimili í einkarekstri
í GREINARGERÐ Hjörleifs B.
Kvaran framkvæmdastjóra lög-
fræði- og sljórnsýsludeildar
Reykjavíkurborgar, sem lögð var
fram á fundi borgarráðs í gær,
kemur fram að sveitarfélögum sé
skylt að styrkja að einhveiju leyti
þau dagvistarheimili á vegum ann-
arra en borgarinnar, sem hafa
rekstrarleyfi frá menntamála-
ráðuneytinu. Þá geri lög og reglu-
gerð ekki ráð fyrir að heimilt sé
að miða rekstarstyrk til dag-
heimila við börn frá 2ja til 6 ára
í stað 3ja mánaða til 6 ára eins
og samþykkt Stjómar Dagvistar
baraa frá þvf í júní gerir ráð fyrir.
Mosfellsbær:
Skemmd-
arverkið
upplýst
LÖGREGLAN í Mosfellsbæ og
rannsóknarlögreglan í Reykjavik
hafa upplýst hveijir unnu
skemmdarverk i Varmárskóla í
Mosfellsbæ um síðustu helgi.
Þrír piltar úr Mosfellsbæ, 15 og
16 ára, voru handteknir á þriðju-
dag og hafa þeir játað á sig verk-
ið.
Að sögn Friðriks Gunnarssonar
aðstoðaryfírlögregluþjóns gáfu pilt-
amir þá skýringu á verkinu að þeir
hefðu verið ölvaðir. Tjónið sem þeir
ollu er metið á 5-600 þúsund krón-
ur.
Leitað var umsagnar Hjörleifs, við
bókun Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur, Bjama P. Magnússonar, Sig-
uijóns Péturssonar og Alfreðs Þor-
steinssonar í borgarráði vegna sam-
þykktar í Sljóm Dagvistar um að
takmarka rekstrarstyrk til heimil-
anna í einkarekstri. Kemst Hjörleifur
að þeirri niðurstöðu að í lögum og
reglugerð sé tiltekið ákveðið hámark
á rekstrarstyrkjum til dagvistar-
heimilanna en hvergi sé minnst á
ákveðið lágmark og sé það því á
valdi sveitarfélaganna að ákveða
það.
Þá segir enn fremur að: „Af sam-
þykkt stjómar Dagvistar bama verð-
ur ráðið að samþykkt hafi verið að
styrkja dagvistarheimili, dagheimili
og leikskóla, með ákveðnum hætti
en skóladagheimili ekki. Leikskólam-
ir fá skv. samþykktinni styrk allt
starfstímabilið, þ.e. frá 2ja til 6 ára
aldurs og þarf því ekki að fjalla um
þá. Hins vegar gera lögin ráð fyrir
að dagheimili geti tekið við bömum
frá 3ja mánaða aldri til skólaskyldu-
aldurs en skv. samþykktinni er þetta
rekstrarform styrkt frá 2ja ára aldri.
Af lögunum og reglugerðinni verður
ekki ráðið að heimilt sé að greiða
styrki vegna tiltekinna aldurshópa
innan ákveðins rekstrarforms. Þegar
dagheimili hefur hlotið leyfí til
rekstrar skal það fá þann rekstrar-
styrk, sem ákveðinn verður.
Hvað skóladagheimili varðar gerir
samþykkt stjómar Dagvistar bama
ráð fyrir að þetta rekstrarform hljóti
ekki rekstrarstyrk. Með hliðsjón af
því sem að framan greinir er það
álit undirritaðs, að sveitarfélögum
sé skylt að styrkja að einhveiju leyti
þau dagvistarheimili, sem hljóta
rekstrarleyfi ráðuneytisins, þ.m.t.
skóladagheimili."
6. umferð Interpolis-skákmótsins:
Jóhanni spáð ósiari
Frá Marjreiri Péturssym Í Tilburg. JL
Frá Marg’eiri Péturssyni í Tilburg.
JÓHANN Hjartarson náði að
lagfæra mjög erfiða stöðu gegn
Nigel Short rétt áður en skák
þeirra í sjöttu umferð Interpolis-
mótsins fór f bið f gærkvöldi.
Eftir mistök f miðtafli lenti hann
f nyög þröngri aðstöðu og var
spáð ósigri af langflestum sér-
færðingunum hér f Tilburg.
Þessi skák skipti miklu máli f
baráttunni um efsta sætið, þvf
fyrir umferðina voru þeir
Karpov og Short jafnir og efst-
ir. Með sigri yfir Jóhanni kemst
Short f efsta sætið.
Rober Hubner hristi heldur betur
af sér slenið eftir neyðarlega upp-
gjöf sína gegn Short deginum áð-
ur. Hann tefldi listavel gegn Sikil-
eyjarvöm Jans Timmans rétt eins
og í síðustu skák þeirra í Belfort
þegar hann malaði Hollendinginn.
Timman reyndi nú peðsfóm, en
fékk aldrei nægileg gagnfæri og
varð að gefast upp eftir aðeins 28
leiki.
Skák þeirra Predrags Nikolic og
Anatólíj Karpovs var athyglisverð.
Júgóslavinn fékk sóknarfæri í byij-
uninni, en nýtti þau ekki sem
skyldi og lenti enn einu sinni í erf-
iðri stöðu. Sem fyrr beit hann í
skjaldarrendur og tókst að hanga
á jafntefli. Júgóslavinn hefur gert
allar skákir sínar á mótinu jafn-
tefli og má mjög vel við þau úrslit
una eftir gangi skákanna.
Lajos Portisch og John Van der
Wiel tefldu mjög einkennilega skák
þar sem Ungveijinn fómaði skipta-
mun f byijuninni. Hann fékk ekki
nægar bætur, en Hollendingurinn
tefldi framhaldið einstaklega illa,
lék hveijum afleiknum á fætur
öðmm og tapaði.
Hvitt: Nigel Short.
Svart: Jóhann Hjartarson.
Spánski leikurinn
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5
- a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 -
Be7, 6. Hel - b5, 7. Bb3 - d6,
8. c3 - 0-0, 9. h3 - Bb7, 10. d4
- He8, 11. Rbd2 - Bf8, 12. a3 -
h6
í Belfort lék Short 12. - g6 og
fékk þá viðunandi stöðu eftir 13.
Ba2 - Bg7, 14. b4 - h6, 15. Bb2
- Rh5, 16. d5 - Re7, 17. Rb3 -
Hf8, 18. c4 - bxc4, 19. Ra5 -
Bc8, 20. Hcl, en varð þá of bráður
á sén 20. - f5? 21. exf5 - Rf4,
22. Hxc4 - Bxf5? 23. Rxe5! með
unninni stöðu á hvítt.
13. Bc2 - Rb8,14. b4 - Rbd7
Á IBM-skákmótinu í Reykjavík
í fyrra tefldi Short rólegar og lék
14. b3 - Rbd7, 15. Bb2 - g6, 16.
a4 - c6, 17. Dbl - Bg7, 18. axb5
- cxb5?! 19. d5 og fékk góða stöðu.
I tímahrakinu tefldi Short mjög illa
og tapaði skákinni.
15. Bb2 - g6, 16. Dbl - Bg7,
17. Rb3 - Hc8, 18. Ra5 - Ba8,
19. d5 - Rb6, 20. a4 - Dd7, 21.
axb5 - axb5, 22. Bcl - Rh5
Jóhann leggur nú í sóknarað-
gerðir á kóngsvæng sem misheppn-
ast, þannig að hvítur nær að koma
öflugum riddara á f5 og hefur eft-
ir það sterka stöðu báðum megin
á borðinu.
23. Be3 - Rf l, 24. Ha3 - Kh8,
25. Ddl - g5, 26. Bxf4 - gxf4,
27. Rh4 - Hg8, 28. Rf5 - Bf8,
29. Bb3 - Dd8, 30. Df3
Short teflir nú mjög hægfara
fram að tímamörkum og Jóhanni
tekst að ná örlitlu mótspiii.
30. - Dg5, 31. Hdl - Hd8, 32.
Ha2 - Dg6, 33. Had2 - Rd7, 34.
Bc2 - Rf6, 35. Khl - Rh7, 36.
h4 - Rf6, 37. g3 - h5, 38. Hgl
- Dg4,39. Kg2! - Hb8,40. Hddl
- Hb6, 41. Dxg4 - hxg4, 42.
Hgei - f3+, 43. Kfl
Það var samdóma álit okkar
stórmeistaranna hér í blaðamanna-
herberginu að Jóhann hefði eitt-
hvað rétt úr kútnum, en staða hans
væri samt slæm. Þeir Hubner, Tim-
man, Hort og Andersson höfðu litla
trú á því að svartur gæti haldið
stöðunni til lengdar.
43. - Kh7, 44. Hal - Bh6, 45.
Ha3 - Ha6, 46. Heal - Bd2, 47.
Bd3 - Hb8, 48. Hdl - Bh6, 49.
Kel - Bf8, 50. Hdal - c5, 51.
dxc6 - Bxc6, 52. Rxc6 - Hxc6
53. Ha8 - Hbc8, 54. Hxc8 -
Hxc8, 55. Kd2 - d5!
Eftir erfíða vöm sér Jóhann sér
leik á borði. Short verður nú að
tefla af mikilli nákvæmni.
56. exd5 - e4, 57. Ha6!
Mun lakara var 57. Bxb5? -
Rxd5 og svartur teflir til vinnings.
57. - Rxd5, 58. Bxe4 - Rxc3,
59. Bd3 - Kg8
Ekki gekk að leika 59. - Bxb4,
60. Rd6+ - Re4++, 61. Ke3 og
svartur tapar manni.
60. Rd6?
Það er ekki annað að sjá en
hvítur hefði haft mikla vinnings-
möguleika eftir 60. Rh6! - Bxh6,
61. Hxh6 - Rd5, 62. Hh5! Reyn-
andi er hins vegar 60. - Kg7!? Nú
á svartur einnig góða jafnteflis-
möguleika með 60. - Hd8, en hann
lék:
60. - Bh6+
og í þessari athyglisverðu stöðu fór
skákin í bið.
znm.
*
Frá fundi Sambandsfrystihúsamanna á Akureyri í gær.
Sjávarafurðadeild SÍS:
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Tíu gæðaeftirlits-
mönnum sagt upp
Frystihúsin beri sjálf ábyrgð á eigin framleiðslu
Akureyri. Frá Jóhönnu Ingvarsdóttur blaðamanni MorgunblaðBÍns.
Sjávarafurðadeild Sambands-
ins hefur sagt upp öllum fiskeft-
irlitsmönnum sínum sem eru nú
tíu talsins. í stað þeirra er gert
ráð fyrir breyttu gæðaeftirliti á
vegum Sambandsfrystihúsanna
og verður gæðaeftirlit nú á
ábyrgð húsanna sjálfra. Gert er
ráð fyrir að stöður þeirra tíu
eftirlitsmanna sem um ræðir
verði af lagðar eftir sex mánaða
tímabil og mun þá nýtt og breytt
kerfi taka gildi þann 1. mars nk.
Að sögn Sigurðar Markússonar
framkvæmdastjóra sjávarafurða-
deildar Sambandsins hefur þessi
breytta skipan það í för með sér
að fiystihúsin bera með þessu
ábyrgð á eigin framleiðslu auk þess
sem mikill kostnaður samfara því
gæðaeftirliti, sem nú ríkir, sparast
við þessa breyttu tilhögun. Eftirlit-
inu hefur hingað til verið stjómað
frá Reykjavík og hafa allir eftirlits-
menn verið búsettir þar og ferðast
þaðan á milli frystihúsa út um allt
land. Sjávarafurðadeildin hyggst þó
ráða til sín eftirlitsmenn fyrir hvem
landsfjórðung sem yfirfara störf
gæðaeftirlits á vegum frystihús-
anna. Ætlunin er að þeir menn sem
ráðnir verða á vegum sjávarafurða-
deildarinnar verði búsettir í hveijum
landsflórðungi og þarf þá ekki að
borga ferðakostnað til og frá
Reykjavík.
Undirbúningur þessa breytta
gæðaeftirlits hófst hjá frystihúsi
KEA á Dalvík fyrír allnokkrum
árum. Byijað var á að þróa nýtt
gæðastýringakerfí í samvinnu við
Háskóla íslands og það nýja kerfí
var síðan prófað á Dalvík. Kerfið
hefur síðan þá náð góðri fótfestu
og hefur því verið komið upp víða
í frystihúsum Sambandsins. Sigurð-
ur sagði að almenn ánægja ríkti
hjá framleiðendum með þetta nýja
kerfí. „Það hefur lengi legið fyrir
að við myndum fækka okkar starfs-
mönnum og hluti starfs okkar færi
inn til framleiðenda sjálfra svo að
þetta þarf ekki að koma neinum á
óvart nú. Við munum því ekki veita
svona vikulegt eftirlit eins og verið
hefur," sagði Sigurður. Hann sagði
að ekki væri nokkur leið að gera
sér grein fyrir hversu mikið fjár-
magn sparaðist með þessu breytta
fyrirkomulagi, en ljóst væri að það
yrði töluvert.