Morgunblaðið - 14.09.1988, Page 27

Morgunblaðið - 14.09.1988, Page 27
27 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988 VILTU VERÐA KUNNÁ TTUMAÐUR í INNFLUTNINGI OG MARKAÐSSÓKN? Léttsteiktur lundi í karrýsósu kr. 695.- Að sjálfsögðu er einnig boðið uppá okkar rómaða „a la carte“. ARNARHDLL ____ opinn á kvöldin frá kl. 18:00, þriðjud. til laugard. pantanasími 18833 Gufusoðinn skötuselur með humarsósu kr. 810.- Grísarifjar barbeque með kryddgrjónum kr. 810.- Ef nahagsþróunin á Tævan: Varað við hættum af velgengni markaðarins SAMSKIPTI Kínveija í Kína og á eyjunni Tævan haf verið stirð í þau tæp fjörutíu ár sem liðin eru frá því að kínverskir þjóðem- issinnar hrökktust frá kínverska meginlandinu og komu á fót sjálfstæðu ríki undir verad Bandarikjamanna á eyjunni. Fréttir í síðustu viku gáfu þó til kynna, að kínverskir kommúnist- ar væru fúsari en áður til að ræða við stjómvöld á Tævan, sem hafa heitið kommúnistum 10 milljarða dala Iáni (460 milljörð- um isl. króna) með því skilyrði meðal annars að þeir hverfi frá kommúnískum stjórnarháttum. Á Tævan hefur efnahagsþróunin verið með allt öðrum hætti en á kínverska meginlandinu, en Tæ- vanir hafa búið við markaðshag- kerfi. Voru þeir stjórnarhættir meðal annars til umræðu á auka- fundi Mont Pélerin-samtakanna, sem haldinn var í Taipei, höfuð- borg Tævans fyrir skömmu. Shirley Kuo, ijármálaráðherra Tævans en hún er hagfræðingur og sérfræðingur á sviði peninga- mála, sagði á aukafundi Mont Pé- lerin-samtakanna í Taipei í byijun september, að frá lyktum síðari heimsstyijaldarinnar til ársins 1987 hefði þjóðarframleiðsla á mann á Tævan aukist úr 70 Bandaríkjadöl- um í 5.000 á ári. Verðlag hefði verið stöðugt, atvinnuleysi hverf- andi og tekjuskipting hefði ekki raskast. Sagði hún þetta stafa af því að markaðsöflin hefðu fengið að ráða en ekki miðstýring. Horfíð hefði verið frá haftastefnu í verð- lags- og peningamálum á árunum eftir 1950. Þá hefðu peningar hækkað í verði, spamaður aukist og aðgæsla f fjárfestingum vaxið. Stjómvöld hefðu lagt áherslu á að atvinnulífíð dafnaði af sjálfsdáðum Frá aukaþingi Mont Pélerin-samtakanna i Taipei, höfuðborg Tæ- vans, þar sem rætt var um efnahagslega velgengni i landinu og varað við því að mikill árangur kynni að leiða til of mikillar eyðslu, ef ekki yrði farið fram með fullri gát. Hannes Hólmsteinn Gissurar- on, lektor við Háskóla íslands, er í ræðustólnum. og það stæði nú á traustum stoðum. Þá hefði meðalaldur lengst og menntun þjóðarinnar tekið stórstíg- um framförum. Taldi ráðherrann að velgengni síðustu ára hefði getið af sér ýmis vandasöm og brýn úr- lausnarefni og freistingar. Samanburður við Suður-Ameríku Á aukaþingi Mont Pélerin-sam- takanna gerði Amold Harberger, prófessor í Chicago-háskóla, sam- anburð á hagþróun í löndum Suð- austur-Asíu — svo sem Tævan, Hong Kong, Suður-Kóreu og Sin- gapore — annars vegar og Mið- og Suður-Ameríku hins vegar. Fyrr- nefndu ríkin hefðu náð mun betri árangri en hin síðamefndu og þar skipti mestu stefnan sem valin hefði verið í stjórn efnahagsmála. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, lektor í stjómmálafræði við Háskóla ís- lands, velti fýrir sér spumingunni hvers vegna markaðsöflin væm virkjuð sums staðar en ekki annars staðar, þótt menn vissu vel hvað væri skynsamlegt í efnahagsmálum og hvað bæri að varast. Svarið fælist líklega í menningarlegum forsendum. Löndin í Suðaustur- Asíu sem skarað hefðu fram úr væm til dæmis öll tiltölulega lítil og samstæð, enda byggju þau öll við ógn að utan. Hins vegar benti hann á, að stundum líktust lönd eins og Tævan, Suður-Kórea og Singapore fremur vel reknum fyrir- tækjum en fijálsum þjóðfélögum. Hagvöxtur væri ekkert markmið í sjálfum sér eins og hann virtist þó oft vera í þessum löndum, heldur ætti hann aðeins að vera æskilegur ávöxtur skynsamlegrar hegðunar. Alberto Benegas Lynch, hagfræði- prófessor í háskólanum í Buenos Aires í Argentínu, rakti í fyrirlestri sínum hvemig lönd, sem náð hefðu tilteknu stigi þróunar, gætu hrapað aftur á lægra stig og nefndi dæmi frá Suður-Ameríku máli sínu til stuðnings. Hvatti hann Tævani til að gæta sín og varast að eyðslu- stefna, verðbólga og almennt ábyrgðarleysi næði yfírhöndinni. Því meiri sem árangurinn yrði þeim mun erfíðara væri að viðhalda þeim aga, sem væri skilyrði frekari ávinninga. Mont Pélerin-samtökin eru mjmduð af fræðimönnum í hag- fræði og stjómmálafræði meðal annnars til að ræða kosti markaðs- búskapar og fijálsra stjómkerfa. Á fundinum í Tævan vom fyrirlesarar auk þeirra sem að ofan er getið: Antonio Martino, hagfræðiprófess- or í Rómarháskóla, Pascal Salin, hagfræðiprófessor í Parísarháskóla, Henry G. Manne, lagaprófessor í George Mason-háskóla í Banda- ríkjunum, og Rhodes Boyson, þing- maður breska íhaldsflokksins. Þá hélt James M. Buchanan, fyrrver- andi forseti samtakanna og nóbels- verðlaunahafi í hagfræði árið 1986, opinberan fyrirlestur í Taipei. Aðal- fundur Mont Pélerin-samtakanna er haldinn í Tókýó nú í september. MARKAÐSÞEKKING INNFI.UTNINGSKUNNATTA SPECIAL6 Ódýrt en best Frönsk lauksúpa kr. 250.- Rjóma-humarsúpa kr. 395.- Grafið grísafillet með sætri rabbarbarasósu kr. 395,- Pasta með rækjum og reyktum lax í jógúrtsósu kr. 325.- Hámerissnitsel með sítrónusmjöri kr. 695,- Pasta og léttsteikur silungur í spínatsósu kr. 795.- Þér gefst færi á eins vetrar námi til að ná því marki, — án þess að það komi niður á vinnunni. STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS UTFLUTNINGS OG MARKAÐSSKÓLI ÍSLANDS THI IÓELANDIC INSTITUTt oi MARKÉTING AND EXPORT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.