Morgunblaðið - 14.09.1988, Page 29

Morgunblaðið - 14.09.1988, Page 29
a 8 29 MORGUNBLAÐÍÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988 Jón Torfi Jónasson. óðum verið að búa svo um hnútana að fólk geti stundað frekara nám án þess að hafa staðist þær form- legu kröfur sem þar eru gerðar. Framhaldsskólastigið er marg- skipt og það er svolítið erfítt að átta sig á því hvernig sú skipting þróast. Mér sýnist stefna í það, en mjög hægt og sígandi, að fyrstu tvö árin verði nokkuð stöðluð, þótt hægt verði að velja ýmsar brautir. Viðbótarmenntunin bætist svo ofan á það og nemendur ákveða hvort þeir ætla að stefna að stúdents- prófí eða velja einhveijar aðrar brautir. Starfsmenntun mun um langt skeið verða eitt af meginvið- fangsefnum framhaldsskólans. í háskóla hefur fólk svo valið sér tiltölulega afmörkuð viðfangsefni og undirbýr sig til starfa, hvort sem það eru störf fræðimannsins eða önnur störf.“ Spurning’ um stöðu stúdentsprófsins „Tengslin milli grunnskólans og framhaldsskólans verða smám sam- an nokkuð ljós og samkomulag um hvað gera skuli á hvoru skólastigi. En tengslin milli framhaldsskóla- stigsins og háskólastigsins verða sífellt erfíðari og flóknari. Það er til dæmis hugsanlegt að einblínt verði svo á stúdentsprófíð sem inn- tökuskilyrði í áframhaldandi nám að þar myndist flöskuháls. Einhvem veginn verður að losa þar um. Ann- að hvort verður að gera miklu fleiri brautir að stúdentsbrautum og gera þær aðgengilegri með einhvetju móti eða að komast fram hjá stúd- entsprófínu. Það fer því að verða stór spuming um stöðu þess. í framhaldi af aukinni fjölbreytni í námsvali á framhaldsskólastiginu a fólks í námi Ár ikist nokkuð stöðugt og segir Jón ;ssi aukning haldi áfram, þótt um Myndin sýnir hvernig skólasókn stu 20 ár. Morgunblaðið/K.G.A. verður ágreiningur um hver á að sjá um hvað þannig að tengslin milli framhaldsskólanna og skóla á háskólastigi verða að líkindum verulega flókin. Það er í sjálfu sér ósköp eðlilegt, enda þarf fjölbreytni í skólakerfínu að vera mikil. Og vonandi á þessi fjölbreytni eftir að draga úr tilhneigingu til lögvemd- unar starfsheita og einkaréttar fólks með einhverja tiltekna mennt- un til starfa." Nýtt skólastig Er hugsanlegt að taka upp ein- hvers konar inntökupróf á há- skólastigi þannig að fólk hefji síður nám, sem það uppgötvar svo að á ekki við það? „Nei. Ég held að það komi ekki til. Eðlilegra er að fara þá leið að fjölga þeim möguleikum, sem fólk á um að velja. Annað hvort í Há- skólanum eða annars staðar. Þess vegna hef ég verið fylgjandi stofnun Háskóla á Akureyri, svo framarlega sem fylgt er þeim hugmyndum sem settar eru fram í greinargerð með lagafrumvarpinu. Eg vil ýta undir þær breytingar sem eiga sér stað í Verslunarskólanum og ég vil efla mjög Tækniskólann. Allt þetta vegna þess að það er gat á skóla- kerfínu. Það vantar sárlega brautir sem væru á milli framhaldsskóla- stigs- og háskólastigs. Ef menn vilja endilega kalla allar þessar nýju brautir háskólabrautir þá verður bara að hafa það. Hluti þessarar uppbyggingar á einnig að vera í Háskóla íslands. Það þarf augljóslega að bijóta nám á haskólastigi miklu meira upp en nú er gert. Það verður að vera bæði nemendum og kennurum ljóst hvort verið er að gera stífar fræði- legar kröfur eða fyrst og fremst verið að búa fólk beint undir störf á tilteknum sviðum. Það er Háskól- anum og nemendum fyrir bestu að gengið sé í það að byggja upp fjöl- breyttari námsbrautir eftir fram- haldsskóla bæði innan Háskólans og utan. Ég geri sem sagt ráð fyrir nán- ast nýju skólastigi, sem verður líklega flokkað undir háskólastig. Það væri þá stig sem tæki við af framhaldsskólanum, eins til þriggja ára nám, ekki þó endilega eftir stúd- entspróf. Þó er líklegt að þrýstingur á fólk í átt til stúdentsprófs aukist, en ég tel nauðsynlegt að standa á móti því að kreija alla um stúdents- próf til að komast eitthvað áfram í námi. Hvað sem því líður, þá geri ég ráð fyrir gífurlegum vexti.“ Háskólinn fræðilegri Sérðu þá jafnframt fyrir þér áð í Háskóla íslands verði aukin áhersla lögð á fræðilegt nám? „Já. Að vísu eflast starfsmennta- brautir innan Háskólans, en meiri áhersla verður lögð á fræðilegt nám og starf, enda eykst mikilvægi þessa sífellt. Rannsóknir aukast og byggt verður upp framhaldsnám í fjölmörgum greinum. Háskólinn verður þannig óumdeilanlega mið- stöð rannsókna í landinu. En ég er ekki viss um að það sé farsælasta leiðin, að greina þetta tvennt, starfsnám og fræðilegt nám svo skýrt á milli skóla. Ég geri samt ráð fyrir að það verði sú leið sem farin verður, að minnsta kosti næsta áratug. Aðrir skólar verði byggðir upp miðaðir við gróft skil- greind starfssvið en meiri áhersla verði lögð á fræðilegt nám við Há- skóla íslands. Ég kalla þetta sér- skólaleiðina. Vel skipulagt starfsnám á vel við margt ungt fólk, sem sumt mun síðar hella sér út í fræðilegt nám.“ Endurmenntun fyrir alla Snúum okkur þá að endur- menntuninni. Er nám ekki orðið svo sérhæft og örar breytingar innan margra starfsgreina að það kallar á aukna endurmennt- un? „Jú, þar geri ég ráð fyrir gífur- legum vexti. Fólk fer á ýmiss konar námskeið og bætir við sig eða end- umýjar kunnáttu sína á þann hátt í starfi. í fleiri og fleiri starfsgrein- um, fyrr en varir flestum, verður það orðinn fastur liður í starfinu að sækja einhvers konar endur- menntun. Ég geri meira að segja ráð fyrir því að ákveðinn hluti vinnutímans, jafnvel 3-4%, fari í nokkuð formlega endurmenntun. Ég vænti þess að þessi þáttur menntastarfs tvíeflist á næstu 25 árurn." Þetta gæti þá orðið bundið í kjarasamninga? „Það þarf auðvitað að athuga hver á að borga fyrir allan vöxtinn. Það er held ég ljóst í sambandi við starfsmenntun að hún verði borguð af atvinnurekendum og það er ein- mitt í auknum mæli farið að taka þetta inn í kjarasamninga.“ Hvað um öldungadeildirnar? Sérðu fyrir þér ákveðna þróun þar? „Öldungadeildarfyrirkomulagið, það að fólk geti stundað námið með vinnu, mun sennilega dreifast miklu meira. Fólk mun fara i framhalds- skóla, tækniskóla, háskóla og fleira og stunda þar nám, eins og það hefur farið í öldungadeildir fram- haldsskólanna. Hluta þessa náms og eins endurmenntun getur fólk stundað í fjarkennslu þegar fram líða stundir. Þegar öldungadeildimar komu fyrst þá opnaðist ákveðin flóðgátt. Það var svo margt fólk sem vildi mennta sig meira, en hafði ekki haft aðstöðu til þess. Slík flóðgátt mun ekki opnast aftur vegna þess að menntakerfið er orðið svo miklu opnara en það var.“ Fleiri starfsmenn á hvern nemanda Þú spáir því að hlutfall nem- enda og starfsliðs haldi áfram að minnka. Árið 1960 var þetta hlutfall um 20:1, 1985 10:1 og þú spáir að það verði 6:1 árið 2010. Hvaða forsendur liggja þarna að baki? „Það eru mjög margir þættir, sem ráða því að hlutfallið breytist, en þó fyrst og fremst að kröfurnar til skólakerfísins aukast sífellt og það hefur síðan víðtæk áhrif. Skóla- starfíð sjálft verður miklu umfangs- meira. Skólamir verða einsetnir, skóladagurinn lengist og skólaárið sömuleiðis. Þeim verður sinnt meira sem sérstaklega þurfa á því að halda. Ég geri ráð fyrir því að upp- skipting skólakerfisins haldi áfram, til dæmis í fræðsluumdæmum eða landsfjórðungum. Þar má taka mið af væntanlegum breytingum í verkaskiptingu 'ríkis og sveitarfé- laga. Þetta kallar á fleira starfsfólk. Spá mín er þó í flestum tilvikum mjög gróf. Ég er ekki að velta fyr- ir mér hvort ákveðnar breytingar eigi sér stað 1992, 1997 eða á ein- hveijum öðram tíma. En þróunin er í þessa átt. Sérhæfðir starfskraftar eiga sennilega eftir að koma meira inn í skólastarfið, eins og starfs- og námsráðgjafar og sérhæfðir kenn- arar af ýmsu tagi. Tæknivæðingin mun hafa áhrif á þennan þátt. Hún mun krefjast fleiri en ekki færri starfsmanna. Ég geri einnig ráð fyrir að mikl- ar breytingar verði utan daglegs skólastarfs. Við munum til dæmis sjá miklu meiri vinnu við námsefnis- gerð. Þar verða gerðar miklu meiri kröfur um fleiri og betri bækur, myndefni, tölvuefni og þvíumlíkt. Þetta kallar á fleira starfsfólk. Og það má ekki gleyma því að við eram með allt skólastarfið undir í þessari umræðu. Ekki bara grannskólann og framhaldsskólann. Við eram að tala um háskólastigið og einnig endurmenntun. Það verða ekki síst efri hlutar skólakerfísins sem verða tiltölulega frekir á mannskap. Það er hluti ástæðunnar fyrir því að þetta hlutfall mun breytast.“ Margbreytilegri kennarmenntun Kemur kennaramenntun mikið til með að breytast í framtíðinni? „Ég held að hún hljóti að verða margbreytilegri. Menn fari að skipta náminu meira upp og átti sig á því hvað störf í skólakerfínu era margvísleg. Smám saman verði farið að hvika frá frekar einlitri menntun kennara bæði í Kennara- háskólanum og Háskóla íslands. Ég held að það sé mjög slæmt fyrir kerfí, sem þarf að vera jafn lifandi og sveigjanlegt og skólakerf- ið, að allir starfsmenn þess hafí í grófum dráttum sama bakgrunn- inn. Það má segja að nánast allir sem starfa við skólakerfið séu menntaðir til kennarastarfsins. Og við eram ekki með neitt styttra kennaranám fyrir þann aragrúa fólks sem mun standa fyrir nám- skeiðum í endurmenntuninni." Þörf á fastmótaðri menntastefnu við menntakerfi nágrannaþjóða okkar út fyrir íslenskt mennta- kerfi? „í þessari skýrslu gerði ég enga beina athugun á því. Almennt má segja að staða menntunar á íslandi sé góð. En við eram að mörgu leyti komin skemmra á veg en nágranna- þjóðimar, til dæmis varðandi ein- setna skóla. Og fé til námsefnis- gerðar hefur verið allt of lítið. Við eram samt á svipaðri leið og þær.“ Er menntastefna til á Islandi? „Hún er auðvitað til í þeirri merk- ingu að alls konar hlutir era gerðir hér og þar í menntakerfinu. Ég held að það væri samt eðlilegt að ganga miklu lengra en gert hefur verið í að móta nokkuð heilsteypta stefnu. Reyna að leggja niður fyrir sér allt menntakerfíð og átta sig á því hvemig hægt er að stilla saman strengi og hvert beri að stefna. Það verður þó að gera með þeim fyrir- vara að það sem virðist vera best og réttast í dag sýnist ekki endilega svo á morgun. Én þótt það verði að vera til einhveijar meginlínur og sjá þurfí hlutina í samhengi og í heild sinni, svo hægt sé að vita hvað eigi að gera næst, þá má stefn- an ekki vera svo njörvuð niður, að ekki sé hægt að víkja af leið komi í ljós augljósir agnúar á því sem gert hefur verið." Er gerð skýrslu eins og þessar- ar ekki einmitt hluti af einhveiju slíku starfi; að móta mennta- stefnu? „Jú, ég vona að með þessari skýrslu meðal annars verði gefinn gaumur að nokkram meginstefnu- málum. Þess vegna er hún hugsuð sem gróft yfírlit þar sem reynt er að draga inn sem flesta þætti skóla- starfs. Mörgum mun finnast að það vanti alls konar sjónarhom og sjón- armið. En ég kaus að draga fremur meginlínur, þannig að menn fengju heildarmynd bæði af stöðu mála í dag og mögulegri stefnu." Vantar stórhug Ertu ánægður með umræðu um skólamál hér á landi? „Það er þrennt sem ég sakna mest í almennri umræðu um skóla- mál. Fyrst og fremst vantar stórhug. Hann hefur vantað um árabil en nú örlar á honum aftur. Menntamál era eitt brýnasta verkefni hverrar þjóðar og þeir sem koma nálægt þeim verða að hafa mikinn metnað og gera miklar kröfur um að vel sé að verki staðið. í öðra lagi vantar mikið á að hugsað sé til allra nemenda hvers árgangs þegar fjallað er um fram- haldsskólastigið og það sem við af því tekur í almennri umræðu. Mörg- um nemendum lætur vel stíft bók- nám en öðram ekki. Þeir síðar- nefndu þurfa þó ekkert síður á uppbyggjandi námi að halda. I þriðja lagi vantar miklu meiri upplýsta gagniýna umræðu um skólastarf. Bæði frá þeim sem standa utan við kerfíð, en þó miklu frekar frá þeim sem þekkja það innan frá. Sumir kunna að halda að slík opinber gagnrýnin umræða kasti lýrð á skólastarf en ég er sannfærður um að þvert á móti væri hún fyrst og fremst til góðs.“ Trú á skólastarf Að lokum. Það er sama hvert litið er, þú spáir alls staðar út þenslu og aukningu. Hefurðu takmarkalausa trú á skóla- göngu? „Fyrst og fremst er ég að giska á hvað muni gerast, óháð minni trú og ég held að trú manna almennt á gildi náms speglist í þeirri aukn- ingu sem ég spái. En ég leyni því ekki að ég tel að góð skólaganga sé flestum ómetanleg. En ég set mína fyrirvara. Ég vil ráða fólk til starfa eftir mannkostum en ekki prófum þótt að öðra jöfnu skipti þau máli. Og því miður hef ég séð fólk fyllast kreddum og hroka við skólagöngu þannig að skugga ber á heilbrigða skynsemi þess og vott- ai^ varla fyrir eiginlegri menntun. Það era því fleiri en ein hlið á því máli eins og öðram.“ -styg Á fjárlögum fyrir árið 1988 er nálægt 10 milljörðum króna varið til menntakerfisins og er þeirri upphæð í grófum dráttum skipt eins og myndin sýnir. Þetta eru um 15% af heildarútgjöldum hins opin- bera og hefur það hlutfall lítið breyst síðastliðin 25 ár. Hvernig kemur samanburður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.