Morgunblaðið - 14.09.1988, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988
Breytingartillögnr Alþýðuflokksins
Ráðherrar Alþýðuflokksins
lögðu fram á ríkisstjórnarfundi
í gærmorgfun „Tillögur ráðherra
AJþýðuflokksins um breytingar á
drögum forsætisráðherra að
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
um aðgerðir í efnahagsmálum,
dags. 12. september 1988. Helstu
breytingar eru auðkenndar með
undirstrikun," segir í inngangin-
um og hér á eftir eru þau atriði
feitletruð.
Ríkisstjómin hefur í framhaldi
af frestun á hækkun launa og bú-
vöruverðs ákveðið aðgerðir í efna-
hagsmálum sem hafa að markmiði
að færa niður verðbólgu og
vexti, bæta afkomu útflutnings-
greina, einkum frystiiðnaðarins,
og treysta atvinnuöryggi í
landinu. Jafnframt stuðla þær
að lækkun fjármagnskostnaðar
heimilanna og treysta fjárhags-
grundvöll þeirra. Gefin hafa verið
út bráðabirgðalög um efnhagsað-
gerðir sem taka þegar gildi. Að-
gerðimar em þessar.
Verðstöðvun
Rikisstjórnin hefur ákveðið
með heimild i 7. gr. laga nr.
56/1978 um verðlag, samkeppn-
ishömlur og óréttmæta viðskipta-
hætti og að fengnu áliti Verð-
lagsráðs að framlengja verð-
stöðvun sem í gildi er frá 27.
ágúst 1988 til 29. febrúar 1989
með þeirri breytingu að heimilt
verður að hækka verð vöru og
þjonustu sem nemur hækkun á
erlendu innkaupsverði eða
hækkun á verði á innlendum
grænmetis- og fiskmörkuðum.
Jafnframt er því lýst yfir að
ríkisstjórnin mun flytja frum-
varp til laga á Alþingi til þess
að framlengja verðstöðvun þessa
til 10. april 1989.
Gjaldskrár fyrirtækja á vegum
ríkis eða sveitarfélaga verða
óbreyttar til 10. apríl 1989 að
öðru leyti en því að heimilt verð-
ur að taka tillit til hækkana á
erlendu innkaupsverði aðfanga.
Fjárhæðir launaliða í gjaldskrám
sjálfstætt starfandi sérfræðinga em
frystar til 10. apríl 1989. Sama
gildir um hvers kyns útselda vinnu
og þjónustu.
Oheimilt er að hækka húsa-
leigu á tímabilinu 1. september
1988 til 10. apríl 1989.
FiskverA á uppboðsmörkuðum 13. september.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnaríirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 41,00 39,00 39,90 25,610 1.021.768
Undirmál 20,00 20,00 20,00 0,447 8.946
Ýsa 59,00 42,00 44,04 7,351 323.744
Ufsi 22,00 19,00 20,72 27,318 566.069
Karfi 35,0Ó 32,00 33,54 29,433 ■ 987.273
Steinbítur 25,00 25,00 25,00 1,468 36.694
Langa 31,00 31,00 31,00 2,149 66.616
Lúða 190,00 70,00 122,55 0,616 75.497
Skötuselur 120,00 120,00 120,00 0,058 6.990
Samtals 32,75 94,451 3.093.597
Selt var aðallega úr Otri HF. I dag verða m.a. seld 15 tonn af
þorski úr Júlíusi Geirmundssyni (S, 7 tonn af þorski, 1,5 tonn
af ýsu og fleira úr Stakkavík ÁR og 5 tonn af karfa úr ýmsum
skipum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 43,00 39,00 42,41 14,245 604.159
Ýsa 74,00 21,00 64,02 14,023 897.807
Ufsi 20,50 20,00 20,31 11,408 231.741
Steinbítur 19,00 19,00 19,00 0,025 475
Hlýri 22,00 19,00 21,86 3,316 72.492
Langa 27,00 26,00 26,35 0,719 18.949
Lúða 155,00 105,00 128,98 0,666 85.900
Skarkoli 48,00 48,00 48,00 0,500 24.000
Skötuselur 130,00 130,00 130,00 0,367 47.710
Samtals 43,81 45,268 1.983.234
Selt var úr Gandí VE, Ásbirni RE og Jóni Vidalín ÁR. I dag verða
m.a. seld 70 tonn af þorski, karfa og ýsu úr Jóni Baldvinssyni RE.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 39,50 39,50 39,50 2,224 87.872
Ýsa 43,00 43,00 43,00 1,080 46.440
Ufsi 21,00 19,50 20,32 27.852 565.941
Karfi 15,00 15,00 15,00 0,200 3.000
Steinbítur 12,00 12,00 12,00 0,049 588
Hlýri+steinb. 20,00 20,00 20,00 0,450 9.000
Langa 27,00 27,00 27,00 1,530 41.310
Blálanga 24,50 24,50 24,50 0,100 2.450
Skarkoli 49,00 49,00 49,00 0,770 37.730
Lúða 65,00 65,00 65,00 0,031 2.015
Samtals 23,23 34,287 796.364
Selt var aðallega úr Ólafi Jónssyni.GK og Aðalvík KE. ( dag
verða m.a. seld 5 tonn af karfa og 8 tonn af ufsa úr Fönix KE
og 15 tonn af þorski, 2 tonn af ýsu og fleiri tegundir úr Höfrungi
II GK.
Grœnmetlsverð á uppboðsmörkuðum 13. september.
SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA
Gúrkur 124,35 5,500 683.920
Smágúrkur 129,82 0,085 11.035
Sveppir 450,00 0,192 86.400
Sveppir(2.fl.) 220,00 0,044 9.680
Tómatar 136,96 5,028 688.644
Bufftómatar 136,54 0,078 10.650
Sérrítómatar 302,78 0,009 2.725
Paprika(graen) 254,68 1,640 417.670
Paprika(rauð) 333,82 1,140 380.560
Paprika(blá) 221,00 0,005 1.105
Gulrætur(pk.) 112,95 2,000 225.900
Gulrætur(ópk.) 107,14 1,980 212.130
Gulr. m/káli 113,00 0,010 1.130
Steinselja 37,47 340 búnt 12.740
Spergilkál 145,63 0,355 51.700
Kínakál 82,25 4,740 389.880
Rauðkál 86,00 0,020 1.720
Toppkál 59,00 0,025 1.475
Hvítkál 59,00 4,040 238.360
Skrautkál 41,00 125 búnt 5.125
Grænkál 38,00 120 búnt 4.560
Blómkál 86,93 2,709 235.494
Blómkál(2.fl.) 53,11 0,133 7.063
Rófur 66,00 2,100 138.600
Jöklasalat 154,00 0,445 64.080
Blaðlaukur 157,74 0,190 29.970
Eggaldin 151,00 0,020 3.020
Chilipipar 403,00 0,006 2.418
Selleri 155,84 0,255 39.740
Dill 43,00 240 búnt 10.320
Salat 62,86 1.050stk 66.000
Samtals 4.033.814
Næsta uppboö hefst klukkan 16.30 næstkomandi þriðjudag.
Frysting launa
og búvöruverðs
Samningsbundnar og Jögbundnar
launahækkanir em frystar til 10.
apríl 1980. Sama gildir um bú-
vöruverð. Jafnframt er fellt úr gildi
ákvæði um ársíjórðungslegar
hækkanir til bænda í tengslum við
breytingu á verðlagsgmndvelli bú-
vöm.
Frysting f iskverðs
Almennt fiskverð sem ákveðið
var í júníbyriun framlengist óbreytt
til 10. apríl 1989.
Verðjöfnun til
fiskiðnaðarins
Stjórn frystideildar Verðjöfn-
unarsjóðs fiskiðnaðarins er
heimilt að taka innlent eða erlent
lán með ríkisábyrgð að fjárhæð
600 milljónir króna. Andvirði
lánsins skal nota til greiðslu
verðbóta vegna framleiðslu á
freðfiski og hörpudiski á tímabil-
inu 1. júní 1988 til 10. apríl 1989.
Sjóðsstjórnin ákveður nánar
hvernig að greiðslu verðbótanna
verður staðið en skal taka sér-
stakt tillit til afkomu frystiiðnað-
arins.
Stjórn Verðjöfnunarsjóðs fisk-
iðnaðarins er heimilt að taka
sérstakt tillit til afkomu rækju-
vinnslu á þann hátt að viðmiðun-
arverð við greiðslu verðbóta
verði meðalmarkaðsverð undan-
genginna tveggja ára og að verð-
bætur svari að fullu til fráviks
markaðsverðs frá viðmiðunar-
verði.
Skuldaskilasjóður
útflutningsatvinnuvega
Með samstarfi lánastofnana
útflutningsatvinnuvega verði
settur á stofn sérstakur skulda-
skilasjóður sem hafi það verkefni
að leysa fjárhagsleg vandamál
útflutningsfyrirtækja þannig að
þeim verði kleift að starfa á hin-
um nýja rekstrargrundvelli.
Þessi sjóður mun fá 1.000 millj-
ónir króna til ráðstöfunar á
næstu tveimur árum. Framlag
ríkissjóðs til Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs renni til skuldaskila-
sjóðins næstu tvö ár, auk þess
fái hann lánsfé með Verðjöfnun-
arsjóð fiskiðnaðarins að bak-
hjarli.
Lækkun vaxta og
fjármagnskostnaðar
Akvörðun ríkisstjórnarinnar
um verðstöðvun hefur þegar haft
það í för með sér að mjög hefur
dregið úr verðbólgu. Þessi mikla
lækkun verðbólgu skapaði skil-
yrði fyrir 10-12% lækkun nafn-
vaxta í byijun þessa mánaðar og
ætti að gefa færi á öðrum álíka
stórum áfanga til lækkunar
vaxta í þessum eða næsta mánuði
og á frekari lækkun síðar.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
fjármálaráðherra beiti sér fyrir
lækkun vaxta á spariskírteinum
ríkissjóðs um 3% í samningum
við lánastofnanir og lífeyrissjóði
og hefur falið Seðlabankanum
að fylgja þeirri breytingu eftir á
öðrum sviðum lánamarkaðarins
og vinna að almennri lækkun
raunvaxta.
Ríkisstjórnin hefur falið Seðla-
bankanum í samráði við viðskipta-
ráðuneytið að halda áfram viðræð-
um við lánastofnanir um lækkun
vaxta. Leiði þessar viðræður hins
vegar ekki til samkomulags um
vaxtaþróun samþykkir ríkisstjómin
beina íhlutun Seðlabankans um
vaxtaákvarðanir innlánsstofnana
skv. 9. gr. Seðlabankalaga nr.
36/1986 til þess að viðunandi niður-
staða náist.
Breyttur útreikningur
dráttarvaxta
Dráttarvextir skulu framvegis
reiknast sem dagvextir en hingað
til hefur verið heimilt að reikna
fulla mánaðarvexti fyrir brot úr
mánuði. Jafnframt skal Seðlabank-
inn reikna dráttarvexti eigi sjaldnar
en mánaðarlega.
Vaxtamunur afurðalána
Stjórn Seðlabankans er heimilt
að ákveða sérstaklega vaxtamun
innlánsstofnana við ákvörðun
vaxta á afurðalánum til útflutn-
ingsatvinnuvega.
Fjármagnsmarkaður
Sett verði lög um starfsemi á
fjármagnsmarkaði utan banka-
kerfis á grundvelli frumvarpa
viðskiptaráðherra. Skylt verði að
skrá skuldabréf og eigendaskipti
á þeim á nafn. Bankar og önnur
fjármálafyrirtæki. verði upplýs-
ingaskyld gagnvart skattyfir-
völdum.
Eiginfjárstaða fyrirtækja
Ríkisstjómin mun undirbúa að-
gerðir til að treysta eiginfjárstöðu
atvinnufyrirtækja. Með þessum að-
gerðum verður dregið úr lántöku- *
þörf atvinnurekstrarins og undir
hann skotið styrkari stoðum.
Aðhald í ríkisfjármálum
og lánsfjármálum
í ljósi þeirrar þenslu sem enn
ríkir í efnahagsmálum og þar
sem horfur eru á því að þjóðar-
tekjur verði í besta falli svipaðar
á næsta ári og í ár er nauðsyn-
legt að halda aftur af þjóðarút-
gjöldum á næstu misserum. Mik-
ilvægast í því skyni er að fjárlög
fyrir árið 1989 verði afgreidd
með tekjuafgangi. Til að sú nið-
urstaða náist er nauðsynlegt að
lækka útgjöld einstakra ráðu-
neyta að raungildi og ríkissjóðs
í heild, meðal annars með því að
fresta framkvæmd nýrra laga,
með skipulagsbreytingum og
hagræðingu í rekstri og með sölu
ríkisfyrirtækja. Það sem þá vant-
ar upp á til að tekjuafgangur
náist verður að jafna með auk-
inni tekjuöflun fyrir ríkissjóð og
má í því sambandi nefna skatt-
lagningu fjármagnstekna. Auk
þess sem brýnt er að fjárlög verði
samþykkt með tekjuafgangi er f
nauðsynlegt að lánsfjárlög fyrir
næsta ár byggist á ströngu að-
haldi að erlendum lántökum:
Skattur á erlendar lántökur
verði framlengdur. Lög og regl-
ur um erlendar lántökur verði
endurskoðuð. Ríkissjóður hætti
að bera ábyrgð á lántökum banka
og fjárfestingarlánasjóða er-
lendis.
Flugleiðum boðnar F-50
vélar í innanlandsf lugið
HOLLENSKU flugvélaverk-
smiðjurnar Fokker hafa boðið
Flugleiðum að kaupa vélar af
gerðinni Fokker 50 í stað hinna
fimm Fokker F27 Friendship,
sem félagið notar nú í innan-
landsflugi. Fokker 50 er að
mörgu leyti svipuð Fokker F27,
en tækjabúnaður vélarinnar er
fullkomnari og farþegasæti
fleiri.
Flugvélar af gerðinni Fokker F27
Friendship hafa verið notaðar í inn-
anlandsflugi hér á landi frá 1965
og eiga Flugleiðir nú fimm slíkar
vélar. Forráðamenn félagsins kanna
nú möguleika á endumýjun innan-
landsflugflotans og koma Fokker
50 vélamar til greina í þvi sam-
bandi, ásamt hinum fransk-ítölsku
ATR 42 vélum og DASH-vélunum
kanadísku.
Morgunblaðið/PPJ
Fokkerverksmiðjurnar og Flugleiðir kynntu Fokker 50 í gær með
flugferð til Akureyrar.
Margt er svipað með hinum nýju
Fokker 50 vélum og F27 Friends-
hip. Mesta breytingin er fólgin í
fullkomnari siglingatækjum og nýj-
um hreyflum. Nýju vélarnar eru
hraðskreiðari en um leið spameytn-
ari. Hámarkshraði Fokker 50 er 280
hnútar og hámarksflughæð 25 þús-
und fet.
Fokker 50 getur tekið 54 farþega
í sæti, en þær Friendship-vélar sem
Flugleiðir eiga, taka einungis 44.
Gluggar eru helmingi fleiri á nýju
vélunum, 21 á hvorri hlið. Farang-
ursrými hefur verið aukið og
geymslur fyrir handfarangur
stækkaðar. Að auki er hægt að
taka burt nokkrar sætaraðir og
auka þannig rými til vöruflutninga.
Fokker 50 er einnig hljóðlátari en
eldri vélamar.
Fokker 50 kom á markaðinn í
ágúst 1987. 27 vélar hafa þegar
verið afhentar en 86 pantanir hafa
borist verksmiðjunum. Verð vélar
af þessari tegund er um það bil
11.000.000 bandaríkjadala, eða
rúmur hálfur milljarður íslenskra
' króna.
Ur stjórnklefa F-50.