Morgunblaðið - 14.09.1988, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 14.09.1988, Qupperneq 38
.38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988 1 ENN UM LOKUN DEILDAR11Á KLEPPI eftirAndreu Þórðar- dóttur og Jóhönnu Þráinsdóttur Okkur brá óneitanlega illilega í brún þegar við fréttum að endur- hæfingardeild Kleppsspítala, deild 11, hefði verið lokað. Og sár vonbrigði voru það að kynnast viðhorfum yfírlæknisins, Tómasar Helgasonar, til lokunar deildarinnar, eins og þau birtast sjó.ium okkar í viðtali við hann í Alþýðublaðinu 23. ágúst sl., en þar er á yfirlækninum að skilja að við niðurskurð sé deild 11 sú deild á Kleppi sem helst mætti missa sig. Við teljum okkur þekkja mjög vel til starfsemi deildarinnar bæði vegna starfs okkar í Geðhjálp og eigin reynslu vegna vandamanns sem notið hefur góðs af henni. Finnst okkur að í viðtalinu komi fram slíkt vanmat, skilningsleysi og jafnvel vanþekking á gildi deild- ar þessarar að við getum ekki orða bundist. 1. Yfirlæknirinn bendir á að innan geðdeildar Landspítalans séu a.m.k. fimm aðrar deildir tilbún- ar til að taka við hlutverki deild- ar 11. Við viljum leyfa okkur að mótmæla því. Deild 11 var eina deildin sem ekki sinnti bráðaþjónustu jafnframt endur- hæfingu. Það liggur í augum uppi að unnt er að vinna mark- vissara að endurhæfingu ef sjúklingar eru allir nokkuð á batavegi og starfsfólk þarf ekki jafnframt að sinna bráðveiku fólki. A deild 11 var því í boði öflugra endurhæfingarprógram en aðrar deildir geta boðið upp á. Deild 11 var brautryðjandi í því að hanna meðferðarprógram sem fyrst og fremst miðaði að því að þjálfa unga geðsjúklinga til sjálfsbjargar og virkrar þátt- töku í lífinu (atferlismeðferð). Slík meðferð gerir miklar kröfur til starfsfólks enda hafði með árunum myndast einstaklega samhentur kjami starfsfólks á deild 11 sem vann að þessu af brennandi áhuga og lagði á sig ýmsa aukavinnu-sem aldrei var mæld í peningum. Nú hefur þessum hópi verið tvístrað og vitaskuld mjög vafasamt hvort unnt verði að kalla hann saman á ný til starfa ef yfirvöldum skyldi einhvem tíma þóknast að opna deildina. 2. Yfirlæknirinn talar um að út- vega þeim sjúklingum sem ann- ars hefðu verið á deild 11 þjálfun við hæfi, t.d. á vemduðum vinnustöðum. Það kemur okkur afar spánskt fyrir sjónir þar sem hlutverk deildar 11 var einmitt að þjálfa sjúklinga til að geta yfirleitt unnið á vemduðum vinnustað. 3. Ein röksemdin sem yfirlæknir- inn færir fyrir því „að skásta lausnin" hafi verið að loka deild 11 er sú að deildin hafi hvort eð er verið lokuð vegna sumar- lejrfa. Telur hann slíkt afleitt þar sem það þýði að fólk megi ekki veikjast nema á ákveðnum tímum. Þetta lýsir gmndvallar- misskilningi á starfsemi deildar 11. Eins og áður er sagt hefur deild 11 aldrei séð um móttöku bráðasjúklinga. Deild 1-1 var þess vegna eina deildin sem gat lokað vegna leyfa. Til þess ráðs var gripið af þremur orsökum: a) Til að spara ríkinu peninga. b) Sem liður í því að venja sjúkl- inga við að búa utan deildarinn- ar. c) Meðferðarprógram sem þetta þýðir ekki að reka með afleys- ingafólki. Bresk hljómsveit í Lækjartungli HLJÓMSVEITIN London Rhyme Syndicate L.R.S., sem skipuð er þremur hljómlistarmönnum frá London, kemur til landsins 15. september. Hljómsveitin spilar „Hard Core Hip Hop“-tónlist og leikur í Lækjar- tungli tíu kvöld og mun staðurinn þá hafa opið öll kvöld vikunnar. (Fréttatílkynning) MYNDATOKUR MEÐ MYNDBANDI • GRUNNNÁMSKEIÐ - 15., 17., 18. sept. - 10 st. Myndbandatökur með myndbandi FRAMHALDSNÁMSKEIÐ - 1 .-26. okt. - 30 st. Frá handriti til fullgerörar myndar, vinna með U-matic fyrir sjónvarp. Takmarkaður fjöldi. Skráning og upplýsingar alla daga og á kvöldin í síma 91-40056. ! <g> myndmíöiun HÁÞRÝSTI-VÖKVAKERFI Vökvamótorar = HEÐINN = VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 ö SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER ° Andrea Þórðardóttir „En við viljum leyfa okkur að halda því fram að hér hafi ekki verið sparað á réttum stað, þar sem deild 11 var með meðferð sem engin önnur deild getur boðið upp á og ekki hlaupið að þvi að taka þráðinn upp að nýju ef deildin verður lengi lokuð.“ Hér sýnir sig því sem oftar að það er hættulegt fyrir fólk að taka það upp hjá sjálfii sér að spara ríkinu peninga. Auðvitað erum við, sem „hagsýn- ar húsmæður", skattborgarar og jafnvel menn sammála því að stjóm- endur sjúkrahúsa eigi ekki að fara fram úr gerðri fjárhagsáætlun. En við viljum leyfa okkur að halda því fram að hér hafi ekki verið sparað Jóhanna Þráinsdóttir á réttum stað, þar sem deild 11 var með meðferð sem engin önnur deild getur boðið upp á og ekki hlaupið að því að taka þráðinn upp að nýju ef deildin verður lengi lokuð. Okkur hefði t.d. þótt eðlilegra ef niðurskurður var nauðsynlegur að loka annarri af tveimur deildum innan geðdeildar Landspftalans ætl- aðri áfengissjúklingum, ekki af því að við viljum rýra hlut þeirra, held- ur af þeirri einföldu ástæðu að með tilkomu SÁÁ og víðtækri starfsemi þeirra samtaka hlýtur fremur að hafa dregið úr þörf fyrir rekstri slíkra deilda innan geðdeildar Landspítalans en deildar 11. Það unga fólk sem komst til döngunar vegna starfsemi hennar á að okkar mati ekki í önnur hús að vemda. Þvf miður er því fólki lítt tamt að beijast fyrir sínu á opinberum vett- vangi og þess vegna er líka auðveld- ara fyrir ráðamenn að jarða starf- semi sem skiptir þá sköpum þegj- andi og hljóðalaust en annarra sjúklinga. Við vonum þó einlæglega að svo verði ekki í þessu tilfelli og deild 11 verði opnuð sem fyrst aftur. F.h. stjómar Geðhjálpar. Höfundar eru istjórn Geðlyilpar. H SRRSN SPRStN i’iyfinjfi ^/ig/ ^kjifar/og már^/a /ó^/a kosUi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.