Morgunblaðið - 14.09.1988, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988
Slær Kasparov stigamet
Fischers í Reykjavík?
Skák
Margeir Pétursson
EFTIR að þeir Kasparov og
Karpov urðu jafnir og efstir á
Skákþingi Sovétríkjanna í
Moskvu, hafa verið miklar bolla-
leggingar um það hvort og hve-
Kæliskápar fyrir minni
heimili frá
Blomberq
Meira en 20 gerðir
Verð við allra hæfi
_____________ggk_______
Einar Farestyeit&Co.hf.
Leið 4 stoppar við dymar
nær þeir muni tefla enn eitt ein-
vígi, nú um Sovétmeistaratitil-
inn. Þess eru dæmi í Sovétríkjun-
um að ekki hafi farið fram ein-
vígi, þótt tveir skákmenn hafi
orðið efstir á meistaramótinu,
en báðir verið taldir Sovétmeist-
arar. Kapparnir hafa báðir lýst
sig fúsa til að tefla einvígi, þótt
timi til sliks liggi ekki á lausu.
Þeir eru hins vegar ekki sam-
mála um hvemig reglurnar skuli
vera ef jafnt verður eftir sex
skákir. Kasparov vill þá tefla
áfram, alveg þar til úrslit fást,
en Karpov, líklega minnugur 48
skáka maraþoneinvigis þeirra
1984, vill þá að stig i aðalmótinu
ráði, sem myndi þýða að hann
sjálfur teldist sigurvegari.
Þrátt fyrir að Sovétmeistaramó-
tið hafi verið gríðarlega sterkt,
dugði árangur Kasparovs honum
rétt um það bil til að halda stigum
sínum. Samkvæmt nýjasta skák-
stigalista frá 1. júlí hefur hann
2.760 stig, en á heimsbikarmótinu
í Belfort hækkaði hann um ein 15
og er því aðeins tíu stigum frá
gömlu stigameti Bobby Fischers. Á
listanum 1. júlí 1972 mældist goðið
með 2.785 stig. Hann tapaði síðan
5 stigum á því að vinna Spassky
og verða heimsmeistari og síðustu
stig Fischers eru því 2.780. Miðað
við framgöngu Kasparovs í Belfort
ætti hann að eiga góða möguleika
á því. að slá met Fischers hér á
heimsbikarmótinu í Reykjavík í
næsta mánuði. Ef svo færi yrði það
merkileg tilviljun, því heimsmeistari
í skák hefur ekki teflt hér síðan
1972.
Þeir Kasparov og Karpov fóru
báðir fremur rólega af stað á Sovét-
meistaramótinu, það var ekki fyrr
en á endasprettinum að þeir stungu
aðra keppendur af og sýndu yfir-
burði sína. Báðir unnu þeir sex
skákir og gerðu ellefu jafntefli.
Lokastaðan á mótinu varð þessi:
1.-2. Anatoly Karpov og Gary Ka-
sparov IIV2 v. af 17 mögulegum.
3.-4. Valery Salov og Artur Jusupov
10 v.
5.-6. Vassily Ivanchuk og Vyech-
eslav Eingom 9V2 v.
7. Leonid Judasin 9 v.
8. Alexander Beljavsky 8V2 v.
9. -13. Rafael Vaganjan, Viktor
Gavrikov, Vassily Smyslov, Andrei
Sokolov og Jan Ehlvest 8 v.
14. Alexander Khalifman 7V2 v.
15. -16. Mikhail Gurevich og Ilya
Smirin 7 v.
17.-18. Vladimir Malanjuk og An-
drei Kharitonov 6 v.
Þeir einu sem tókst að halda í
við ofurstórmeistarana framan af
mótinu voru Beljavsky og Salov,
sem einmitt tefldu til úrslita um
Sovétmeistaratitilinn 1987. En í
lokin gekk allt á afturfótunum hjá
Beljavsky sem datt að lokum niður
í 50% vinninga. Salov var lengst
af plagaður af fjölda biðskáka og
það dró af honum um svipað leyti
og sigurvegaramir hófu endasprett-
inn. Honum tókst að halda þriðja
sætinu, en mótið virðist eitthvað
hafa setið í honum, því hann hefur
afboðað þátttöku á stórmótinu í
Tilburg, sem nú er að hefjast.
Artur Jusupov hefur ekki vegnað
vel síðan hann sigraði Ehlvest í
áskorendaeinvíginu í janúar. Hann
byijaði heldur ekki gæfulega á
meistaramótinu, en með sinni gam-
alkunnu seiglu náði hann að vinna
sig upp í þriðja sætið. Þungur stíll
Jusupovs þykir hentugri í einvígi
en mótum og er hann mjög sigur-
stranglegur í væntanlegu einvígi
við Kanadamanninn Spraggett, sér-
staklega eftir þennan ágæta árang-
ur.
Annar þeirra sem lentu í fimmta
sæti er hinn tvítugi Vassily Ivanc-
huk sem vakti mikla athygli í vor
þegar hann vann sér inn 20.000
dali (tæplega milljón ísl. krónur)
með sigri á New York Open í vor.
Það eru miklar blikur á lofti sem
benda til þess að hann og Salov séu
menn framtíðarinnar í sovézkri
skák. Ivanchuk varð þó fyrir því í
upphafi mótsins að lenda á „eldhús-
borðinu“ hjá Kasparov og falla nær
baráttulaust fyrir eitruðu heima-
bruggi heimsmeistarans.
Árangur stórmeistarans Eing-
om, sem er lítt þekktur utan Sov-
étríkjanna, er mjög góður þegar
tekið er með í reikninginn að hann
tók sæti Tals, eftir að mótið var
hafið og tefldi því alveg undirbún-
ingslaust. Alþjóðlegi meistarinn
Judasin kom einnig á óvart, með
því að skjóta mörgum frægum stór-
meisturum ref fyrir rass.
Þeir Beljavsky, Vaganjan, Sok-
olov og Ehlvest ullu allir vonbrigð-
um. Þeir em allir þátttakendur í
heimsbikarkeppninni én eru þó um
og undir 50% á meistaramóti lands
síns. Vassily Smyslov, fyrrum
heimsmeistari, má hins vegar vel
við una, eftir að hafa vermt neðsta
sætið framan af mótinu. Sama er
að segja um jafntefliskónginn Gav-
rikov. Tveir komungir skákmenn
um tvítugt, Khalifman og Smirin,
komust vel ffá þessu erfiða móti.
Mikhail Gurevich, sem sótti okkur
Islendinga heim í vetur, var Qórði
stigahæsti þátttakandinn og olli því
miklum vonbrigðum. Hann bætti
sig þó frá því í fyrra, þá varð hann
neðstur í mun slakara móti.
Við skulum líta á laglegt hand-
bragð Kasparovs og Karpovs í við-
ureignum við skákmenn sem lentu
f neðstu sætunum.
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Vladimir Malanjuk
Hollensk vörn
1. d4 - f5 2. g3 - Rf6 3. Bg2 -
g6 4. c4 — Bg7 5. Rf3 - d6 6.
0-0 - 0-0 7. Rc3 - De8
Malanjuk á mestan heiðurinn af
endurvakningu Leningrad-afbrigðis
hollensku vamarinnar. Hún byggist
fyrst og fremst á þessum leik. Fyrr
á mótinu komst Kasparov t.d. ekk-
ert áfram gegn afbrigðinu og lauk
skák þeirra Malanjuks snemma með
jafntefli.
8. b3 - Raf>
Hér hefur venjulega verið leikið
8. — e5, með næsta leik sínum
hindrar Karpov þann mótspils-
möguleika.
9. Ba3! - c6 10. Dd3 - Bd7 11.
Hfel - Hd8 12. Hadl - Kh8 13.
e4
Svartur hefur teflt byijunina of
hægt. Hvítur hefur fengið að und-
irbúa þennan leik ótruflaður og fær
þægiiega stöðu.
13. - fxe4 14. Rxe4 - Bf5 15.
Rxf6! - Bxf6 16. De3 - Df7 17.
h3 - Rc7 18. He2 - Bc8 19. Rg5
- Dg8 20. Dd2 - Re6
Svartur á vart önnur úrræði til
að létta á stöðunni. Hvítur hótaði
21. Hdel og síðan skiptamunarfóm
á e7.
21. Rxe6 - Bxe6 22. Hdel - Bd7
23. Hxe7!
Karpov fómar samt sem áður,
eftir að biskupinn á f6 er fallinn
er svartur vamarlaus á skálínunni
al-h8.
23. - Bxe7 24. Hxe7 - Hf6 25.
d5 - Df8 26. He3 - Kg8 27. Bb2
- Hf5 28. Dd4 - He5 29. Hxe5
- dxe5 30. Dxe5 - Kf7 31. d6 -
Bf5 32. c5 - h5 33. g4! - hxg4
34. hxg4 — Bd3
34. — Bd7 35. Be4! var álíka
vonlaust
35. Bd5+! og svartur gafst upp.
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Bya Smirin
Kóngsindversk vörn
1. Rf3 - Rf6 2. c4 — g6 3. Rc3
— Bg7 4. e4 — d6 5. d4 — 0-0
6. Be2 - e5 7. 0-0 - Rc6 8. d5
- Re7 9. Rd2 - a5 10. a3
Þetta er nákvæmara en 10. b3
sem Karpov lék gegn Kasparov í
17. einvígisskákinni í Sevilla í
haust.
10. - Rd7 11. Hbl - f5 12. b4 -
b6
Kasparov fékk þessa stöðu upp
sjálfur á Sovétmeistaramótinu með
svörtu gegn jafntefliskóngnum
Gavrikov. Hann lék 12. — Kh8 og
fékk viðunandi stöðu eftir 13. Dc2
— b6 14. Rb3 — axb4 15. axb4 —
fxe4 16. Rxe4 - Rf6 17. Bd3 -
Rxe4 18. Bxe4 — Rf5. Skákinni
lauk með jafntefli eftir 40 leiki.
13. f3 - f4 14. Ra4! - axb4 15.
axb4 - g5 16. c5 - Rf6 17. cxd6
- cxd6 18. b5 - Bd7 19. Rc4 -
Rc8 20. Ba3 - Re8?
Það á ekki við að leggjast í svo
óvirka vöm í stöðunni. Betra var
20. - Be8!, eftir 21. g4!? - fxg3
(framhjáhlaup) 22. hxg3 — g4
kemst biskupinn beint til g6 þar
sem hann pressar á hvíta miðborð-
ið. Eftir þessi mistök er svartur
ekki eins vel undirbúinn fyrir svipt-
ingar á kóngsvæng.
21. g4! — fxg3?! (Framhjáhlaup)
Smirin fellst á að opna taflið,
enda er það mjög sjaldgæft í þessu
afbrigði kóngsindversku vamarinn-
ar að hvítur geti skapað sér sóknar-
færi á kóngsvæng.
22. hxg3 — g4 23. Bcl — gxf3
24. Bxf3 - Rf6 25. Bg5 - Ha7
26. Hf2 - Hb7 27. Hb3 - Ha7
28. Hbl - Hb7 29. Hb3 - Ha7
30. Hb4 - Kh8 31. Dfl!
Kasparov skeytir því engu þótt
svartur geti nú unnið peð. Hann
hefur skynjað að svarti kóngsvæng-
urinn mætti ekki án hvítreitabisk-
ups vera. Smirin er ekki eins næm-
un
31. - Bxb5? 32. Hxb5 - Hxa4
33. Bg2 - h6 34. Bh4 - De8 35.
Bxf6! - Hxf6 36. Hxf6 - Dxb5
37. He6!
Lokaatlaga heimsmeistarans er
mjög falleg. Takið eftir því að létt-
ir menn svarts em gersamlega
óvirkir.
37. - Kg8 38. Bh3! - Hxc4 39.
Hxh6! - Bxh6 40. Be6+ - Kh8
41. Df6+ og svartur gafst upp.
Eftir 41. — Kh7 verður hann mát
í fimmta leik.
SÍMASÝNING í KRINGLUNNI 14.-17. SEPT.
Ovenjuleg og shemmtileg símasýning
i Kringlunni t4.-17.september
Þá verður Póstur og sími með símadaga
á torginu á 2. hœð í Kringlunni.
Þar fcerðu að kynnast því nýjasta í þjón-
ustu Pósts og síma fyrir símnotendur.
Við verðum með nýja og fullkomna síma
og símsvara til sýnis og sölu (þú mátt
þrófa þá) og þúfœrð að vita allt um nýja
Sérþjónustu í stafrœna símakerfinu og
Almenna gagnaflutningsnetið.
Komdu á símadaga í Kringlunni 14. — 17.
seþtemher. Þú hefur örugglega gaman af
því.
PÓSTUR OG SÍMI
KRINGLUNNI