Morgunblaðið - 14.09.1988, Page 52
^ 52
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988
KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMÓT 3. FLOKKS
Fögnuður
Blika
mikill
og lang-
. þráður
, - þegar þeir
unnu Fram í
síðari úrslitaleik
félaganna á ís-
landsmótinu
BREIÐABLIK tryggði sér ís-
landsmeistaratitilinn í 3. flokki
karla nú fyrir stuttu þegar þeir
sigruðu Fram í úrslitaleik með
einu marki gegn einu. Tvo úr-
slitaleiki þurfti til að fá fram
úrslit þvífyrri leik liðanna lauk
með jafntefli einu marki gegn
einu eftir framlengdan leik.
Eins og sést af þessu eru liðin
mjög jöfn og leika einnig
áþekka knattspyrnu.
Iupphafi úrslitaleiksins voru
Frammarar öllu beittari en bæði
liðin áttu ágætar sóknir þar sem
boltinn var látin ganga upp kantana
og hann síðan sendur fyrir markið.
Um miðbik fyrri hálfleiks leystist
• leikurinn upp í dálítið miðjuþóf og
mikið var um óþarfa kýlingar. Þeg-
ar liðin hinsvegar tóku boltann nið-
J ur og spiluðu honum sást góð knatt-
spyma því leikmenn liðanna ráða
yfir góðri knatttækni. Ekkert mark
var skorað í fyrri hálfleik enda
sýndu markverðir beggja liðanna
þeir Björgvin Björgvinnson UBK
og Vilberg Sverrisson Fram góða
takta.
Mörkin
Fljótlega í fyrri háifleik náðu
Blikamir forystunni þegar Guð-
mundur Þórðarson skoraði ágætt
mark. Boltinn var sendur á Guð-
mund inní teig þar sem hann fékk
góðan tíma til að athafna sig og
renna knettinum af öryggi í hom
Frammarksins. Eftir markið sóttu
'v1 Frammarar í sig verðið og gerðu
harða hríð að marki Blikanna án
þess þó að ná_ að splundra Kópa-
vogsvöminni. í þessari pressu átti
Pétur Marteinsson hörkuskot af 30
metra færi sem sleikti þverslá
Breiðabliksliðsins ofanverða.
Hættulegast færi Fram kom
skömmu seinna þegar Björgvin
markvörður Breiðabliks féll og
missti frá sér knöttinn sem Framm-
arar þrumuðu að markinu en Ás-
Hákon Sverrisson:
Góður andi
í hópnum
BLIKINN Hákon Sverrisson
hafði œrna ástœðu til að
kætast sunnudaginn sem
Breiðablik vann Islands-
meistaratitilinn því auk þess
að vera einn besti ieikmaður
Blikanna í leiknum átti hann
afmæli sama dag. „Þetta var
orðin langþráður íslands-
meistaratitill því við töpuðum
á vítaspyrnukeppni fyrir
tveimur árum. Þetta er fyrsti
íslandsmeistaratitilinn minn
en við unnum bikarkeppnina
fyrir stuttu,“ sagði Hákon í
sigurvímunni íleikslok.
Við hittumst í morgunmat
heima hjá mér í morgun og Hákon Sverrlsson.
náðum upp stemmingu fyrir leik-
inn. Andinn í hópnum er mjög rétt að byija því um kvöldið bauð
góður og æfíngasóknin frábær. Bæjarstjóm Kópavogs íslands-
Það ásamt góðum þjálfara em meisturunum nýkrýndu í mat og
lykillinn að árangrinum í sumar,“ væntanlega hefur þar verið kátt
bætti Hákon við. En gleðin var á hjalla.
íslandsmelstarar Brelðabllks f 3. flokkl. Efri röð frá vinstri: Þórður Guðmundsson umsjónarmaður, Grétar Kristjánsson umsjónarmaður, Hákon Sverris-
son, Þorvaldur Víðisson, Daði Vilhjálmsson, Amar Grétarsson, Þorsteinn Sveinsson, Ásgeir Halldórsson, Sverrir Hákonarson, Guðmundur Helgason þjálfari,
Sigurvin Einarsson formaður knattspymudeildar Breiðabliks. Fremri röð frá vinstri: Teitur Jonasson, Sigurbjöm Bemharðsson, Hafsteinn Hafsteinsson, Halldór
Kjartansson, Björgvin Björgvinsson, Ásgeir Baldurs, Guðmundur Þórðarson, Vilhjálmur Haraldsson, Viðar Guðmundsson. Fjarveijandi vom Kristófer Sigurgeirs-
son, Jóhann Kristinsson, Agnar Heiðarsson og Heimir Kristjánsson.
geir Baldursson fyrirliði Breiðabliks
náði að veija á línu.
Fögnuöur
Undir lok leiksins dró af Fram-
strákunum og Breiðablik átti
nokkrar hættulegar sóknir og voru
nálægt því að bæta við einu til
tveimur mörkum. Fleiri mörk vom
þó ekki skoruð í leiknum og því
vom það Blikar sem fögnuðu í leiks-
lok. Fögnuður þeirra var mikill og
langþráður því þessir sömu strákar
töpuðu úrslitaleik í 4. flokki fyrir
tveimur ámm eftir fræga víta-
spymukeppni.
Jafnt
Leikurinn var jafn og spennandi
og hefði sigurinn getað lent hvom
megin sem var. Bæði liðin hafa þó
sýnt mun betri leiki og setti mikil-
vægi leiksins greinilega mark sitt
á hann. Vamir beggja liða ásamt
markvörðum vom traustar og lítið
var um opin marktækifæri.
MorgunblaðiöA/ilmar Pétursson
Undir lok úrslitaleiksins sóttu Blikamir hart að marki Fram og mátti minnstu
muna að þeir ykju forskot sitt. Markvörður Fram Vilberg Sverrisson mátti þá
oft taka á honum stóra sínum eins og sést á þessari mynd.
mmmmmmm
SIMASYNING I KRINGLUNNI 14.-17.SEPT.
Hélstu að þetta vœri bara hsgt í bíómyndum ?
ingu á milli síma, látið vekja þig og
svona mcetti lengi halda áfram.
Almenna gagnaflutningsnetið gerir þér
kleift að sækja uþþlýsingar úr gagna-
bönkum víða um heim — með tölvunni
þinni — senda telex, þanta þjónustu
o.fl.
Komdu á símadaga í Kringlunni 14. —
17. seþtember. Þú hefur örugglega gam-
an af því.
POSTUR OG SÍMI
KRINGLUNNI
Þú færð að vita allt um nýja og bráð-
skemmtilega þjónustu Pósts og síma á
símadögum íKringlunni 14. — 17. seþt-
ember.
Sérþjónustan í stafræna símakerfinu
býður upp á ýmsa forvitnilega mögu-
leika (vœgast sagt). Þú getur haldið
þriggja manna símafundi, flutt hring-