Morgunblaðið - 14.09.1988, Blaðsíða 56
■Výtt
numer '
692500
SJÓVÁ
E3
Tork þurrkur.
Þegar hreinlæti er naudsyn.
dfe asiaco hf
* Vesturgötu 2 Pósthólf 826
121 Reykjavik Simi (91) 26733
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Fyrirframsölur á loðnuafurðum;
/ •
Búið að selja fyrir
1,7 milljarða króna
„BÚIÐ er að selja fyrirfram 40
til 45 þúsund tonn af loðnumjöli
fyrir um 1.200 milljónir króna
og 25 til 30 þúsund tonn af loðnu-
lýsi fyrir um 500 milljónir króna.
Til að geta framleitt þetta magn
þarf að veiða um 300 þúsund
tonn af loðnu en íslensk skip
hafa fengið leyfi til að veiða 398
þúsund tonn á vertíðinni," sagði
Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra fiskimjölsfram-
-^leiðenda, í samtali við Morgun-
'blaðið. „Menn eru bjartsýnir á
íslenzkur
drengur
fær „gulP‘
Seoul. Frá Steinþóri Guðbjartssyni,
blaðamanni Morgunbiaðsins.
í BLAÐINU Olympic Update
sem gefið er út í tengslum við
Óljunpíuleikana í Seoul var
greint frá því að átta ára
gamall íslenskur drengur,
Axel Araason, hafi ásamt Kim
Hyo-shik frá Kóreu unnið
fyrstu verðlaun í alþjóðlegri
myndlistarsamkeppni baraa,
sem haldin var í tilefni
Ólympíuleikanna. Önnur
verðlaun hlutu böra frá Indl-
andi, Kóreu, Tælandi, Arg-
entínu, Taipei og Grikklandi.
Axel Amason hlýtur fyrstu
verðlaunin fyrir mynd sína
Spjótkast, en Kim Hyo-shik,
sem er tólf ára fær verðlaunin
fyrir mynd sína Sund. Alls tóku
rúmlega 17 þúsund böm frá 73
löndum þátt í samkeppninni, og
em 300 bestu myndimar sýndar
á sýningu hér í Seoul.
Sjö manna dómnefnd valdi
verðlaunamyndimar, en verð-
laun fyrir þær verða afhent í
Bamamiðstöð Seoul þann 24.
september.
Á163 km
-í Ölfusi
LÖGREGLAN á Seifossi stöðvaði
í gærkvöldi 18 ára ökumann úr
Hveragerði á 163 kílómetra
hraða í náttmyrkri og á blautum
vegi við Sandhól í Ölfusi í gær.
Pilturinn, sem ók Mazda-bifreið,
var færður á lögreglustöð og svipt-
ur þar ökuleyfi til bráðabirgða. Á
mánudag var hann staðinn að því
að aka á 1,17 kflómetra hraða á
svipuðum slóðum og fyrr í sumar
*var hann sviptur ökuleyfí vegna
hraðaksturs. Hann hefur radarvara
í bfl sínum.
Selfosslögreglan hefur átt
annríkt við hraðamælingar undan-
fama daga. Á mánudagskvöld voru
10 ökumenn kærðir fyrir að aka
með allt að 129 kílómetra hraða.
Þrír þeirra höfðu radarvara í bflum
sínum.
að þeim takist að afhenda loðnu-
afurðirnar á réttum tíma, enda
þótt loðnuskipin liggi nú bundin
við bryggju. Loðnan er dreifð
og því trúlega i æti en við höfum
á tilfinningunni að þetta skáni
uppúr 20. september," sagði Pét-
ur Antonsson forstjóri Fiskimjöls
og lýsis hf. í Grindavík.
„Það sem selt hefur verið fyrir-
fram af loðnuafurðum á aðallega
að afhenda í október, nóvember og
desember næstkomandi en minna í
september. í sumum tilvikum er
einnig hægt að afhenda afurðimar
hvort heldur sem er í september eða
október," sagði Jón Reynir Magnús-
son framkvæmdastjóri Sfldarverk-
smiðja ríkisins.
„Ef 8 dagar líða framyfír um-
saminn afhendingartíma á loðnuaf-
urðunum getur kaupandinn rift
samningnum og keypt mjöl og lýsi
af öðrum," sagði Jón Ólafsson. „Ef
við afhendum kaupendunum ekki
vömna á réttum tíma og þeir þurfa
að kaupa hana fyrir hærra verð en
þeir hafa samið um að greiða okkur
geta þeir krafíð okkur um mismun-
inn. Eg veit hins vegar ekki til þess
að íslendingar hafi þurft að greiða
þennan mismun. Kaupendumir
hafa skilning á því að við getum
ekki staðið við okkar samninga
þegar ekkert veiðist.
I sumum samningum getur einn-
ig verið tekið fram að seljandinn
þurfí ekki að greiða skaðabætur ef
ekkert veiðist. Það hefur einnig
komið fyrir að kaupendur hafa ekki
getað tekið á móti afurðunum á
umsömdum tíma og við höfum tek-
ið tillit til þess.
Verð á loðnuafurðum hefur verið
lágt á undanfömum árum en nú
fæst mun hærra verð fyrir þær,
meðal annars vegna þurrkanna í
Bandaríkjunum í sumar og aukinn-
ar eftirspumar eftir fiskimjöli í
fískafóður í Austurlöndum fjær.
Meðalverð á loðnumjöli, sem selt
hefur verið fyrirfram í sumar, er
8,85 Bandaríkjadalir fyrir prótín-
eininguna en 385 dalir fyrir tonnið
af lýsi. Nú fást um 9,40 dalir fyrir
prótíneininguna af mjöli, eða
30.700 krónur fyrir tonnið, en 410
dalir fyrir tonnið af lýsi, eða 19.130
krónur.
Á síðustu vertíð veiddu íslensk
skip 912 þúsund tonn af loðnu og
þar af var 858 þúsund tonnum land-
að hérlendis. Úr þeim voru fram-
leidd tæp 150 þúsund tonn af mjöli
og rúmlega 85 þúsund tonn af
lýsi,“ sagði Jón Ólafsson.
Iceland Seafood Corporation:
^ Morgunblaðið/Rúnar Þór
IGrímsey
„Ég kláraði símtalið, tók sænguraar okkar og fór út,“ sagði
Hulda Einarsdóttir m.a., þegar Morgunblaðið ræddi við hana í
Grímsey í gær um stóra skjálftann á sunnudagskvöld. Þá var
Hulda á heimleið með soninn Stefán Þorgeir átta mánaða, sem
svaf áhyggjulaus í kerrunni. Sjá frásögn Grímseyinga á bls. 32.
Tapið á árinu nemur 230
til 325 milljónum króna
Höfum orðið að afskrifa birgðir fyrir milljónir segir forstjóri SÍS
sagði Guðjón í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Guðjón sagði að þessar uppsöfn-
uðu birgðir væru aðallega þorsk-
biokk auk grálúðu, hörpudisks og
Akureyri. Frá Jóhönnu Ingvarsdóttur blaðamanni Morgunblaðsins.
Tap á rekstri Iceland Seafood
Corporation í Bandaríkjunum,
dótturfyrirtækis Sambandsins,
er talið nema fimm til sjö milljón-
um dollara það sem af er árinu,
en það er jafnvirði 230-325 miiy-
óna króna. Guðjón B. Ólafsson
forstjóri Sambandsins sagði í
samtali við Morgunblaðið i gær
að erfitt væri að spá um hveraig
árið í heild sinni kæmi til með
að líta út fyrir fyrirtækið þar
sem enn væri ekki vitað hvað
markaðsverð færi neðarlega.
Hann sagðist tæplega eiga von á
þvi að tap myndi aukast verulega
úr þessu, en vissulega færi það
eftir þvi hvemig markaðurinn
hreyfðist á næstu vikum og mán-
uðum.
sjófrystra fiskflaka sem lækkað
hefðu í verði. Bæði er um að ræða
birgðir frá íslandi og birgðir keypt-
ar annars staðar frá svo sem þorsk-
blokk frá Danmörku og Kanada.
„Miklar birgðir söfnuðust saman
hjá Iceland Seafood Corporation í
lok síðasta árs og í byrjun þessa
árs í fallandi markaði og fyrirtækið
hefur orðið að afskrifa þessar birgð-
ir upp á milljónir króna. Ekki er
ennþá vitað hvað afskriftimar geta
orðið miklar þar sem markaðurinn
er ennþá á hreyfingu og ekki hefur
verið skráð markaðsverð á þorsk-
blokk í Bandarflgunum í einar sjö
vikur. Ljóst er þó að hér er um að
ræða allmargar milljónir dollara,"
Ef nahagsaðgerðir:
Alþýðuflokkur og
Framsókn nálgast
Ríkisstjóraarfundur hefur
verið boðaður í dag klukkan
10 þar sem ráðherrar Fram-
sóknarflokksins munu væntan-
lega leggja fram breytingartil-
lögur sinar við tillögur Þor-
steins Pálssonar, forsætisráð-
herra, um aðgerðir í efnahags-
málum. Á ríkisstjórnarfundi í
gær lögðu ráðherrar Alþýðu-
flokks fram sinar breytingartil-
lögur. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins munu Alþýðu-
flokkur og Framsóknarflokkur
hafa nálgast í sinum sjónarmið-
um um efnahagsaðgerðir.
Framsóknarmenn sögðust eftir
ríkisstjómarfundinn í gærmorgun
ekki hafa haft umboð frá þing-
flokknum til að leggja fram tillög-
ur sem ekki væru á grundvelli
niðurfærsluleiðarinnar. Því var
boðaður þingflokksfundur í gær-
kvöldi til að fá ráðherrum flokks-
ins umboð til að vinna á grund-
velli tillagna forsætisráðherra, en
þeim fundi var enn ekki lokið
þegar Morgunblaðið hafði síðast
spumir af. Þingflokkur Sjálfstæð-
isflokksins hélt einnig fund í gær-
kvöldi. Breytingartillögur Alþýðu-
fíokks eru birtar í Morgunblaðinu
í dag, en tillögur forsætisráðherra
fengust ekki til birtingar.
Sjá breytingartillögur al-
þýðuflokksmanna bls. 31.
Guðjón sagði að birgðir þessar
hefðu verið í mjög háu verði um
áramótin. Hinsvegar hefðu ýmsar
ákvarðanir verið teknar upp úr ára-
mótum sem væru að virka allt til
þessa tíma og rekja mætti til
birgðasöfnunar.
Guðjón sagði að menn vonuðu
svo sannarlega að markaðsverð
færi ekki neðar en orðið er. „Ég
held að of snemmt sé að segja til
um hvað muni gerast í náinni
framtíð þar sem verulegar þorsk-
blokkarbirgðir eru til í Bandaríkjun-
um og tel ég að þetta ráðist ekki
endanlega fyrr en í byijun næsta
árs.“ Guðjón sagði að þessa miklu
verðlækkun nú mætti rekja til mjög
snöggrar verðhækkunar, sem byij-
aði haustið 1986 og var fram á ár
1987. „Hún leiddi til þess að menn
skáru niður fisknotkun og breyttu
yfír í ódýrari tegundir. Markaðurinn
hefur ekki verið opinberlega skráð-
ur nú í sjö til átta undanfamar vik-
ur, en þá var verð á þorskblokk
skráð á 1,50 dollara. Menn tala
hinsvegar almennt um markaðinn
f dag á 1,25 til 1,35 dollara og við
vitum að sölur á þorskblokk hafa
átt sér stað á lægra verði en það.
Blokkarverðið var fyrir ári um og
yfír tveir dollarar á pundið og það
má segja að hafi verið lokin á góð-
ærinu."