Morgunblaðið - 16.09.1988, Page 1

Morgunblaðið - 16.09.1988, Page 1
80 SIÐUR B/C 11 isnröimMaijiili STOFNAÐ 1913 211. tbl. 76. árg. FOSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Yasser Arafat: Reiðubúinn að funda á Islandi Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni fréttaritara Morgunblaðsins. YASSER Arafat, leiðtogi PLO, frelsissamtaka Palestínumanna, lýsti þvf yfir á blaðamannafundi í Strassborg á miðvikudag, að það yrði sér mikið ánægjuefni að sækja alþjóðlega ráðstefnu um frið fyrir botni Miðjarðarhafs á tslandi, ef til hennar yrði boðað þar. Á liðnu vori urðu deOur um það í ríkisstjóm íslands, hvernig staðið skyldi að samskiptum við PLO. Leiðtogi PLO hefur í þessari viku verið í Strassborg og heimsótt þing Walesa ánægður Varsjá. Reuter. LECH Walesa, leiðtogi Sam- stöðu, óháðu verkalýðsfélag- anna í Póllandi, sagði að skref hefðu verið stigin fram á við á fjögurra stunda sátta- fundi þeirra Czeslaws Kiszc- zaks, innanrUdsráðherra, i gær. Eftir fundinn ítrekaði Walesa kröfuna um að starf- semi Samstöðu yrði Ieyfð. Walesa og Kiszczak ákváðu að hittast aftur í dag til þess að reyna að koma saman dag- skrá samningaviðræðna full- trúa ríkisstjómarinnar, Sam- stöðu, pólsku kirkjunnar og annarra þjóðfélagshópa. Walesa var afslappaður og öruggur með sig eftir fundinn og tók glaðúr við blómvöndum frá þremur konum. Auk hans taka fjórir forsprakkar verk- fallanna í síðasta mánuði þáít í fundinum með Kiszczak í dag, Jacek Merkel ffá Gdansk, Ed- ward Radziewicz frá Stéttin, Alojzy Pietrzyk frá Jastrzebie og Wladyslawa Liwak frá Stalowa Wola. Áhrif þeirra inn- an Samstöðu hafa stóraukizt á árinu á kostnað manna, sem stóðu að stofnun samtakanna 1980. Evrópubandalagsins í boði þing- flokka sósíalista þar. Á blaðamanna- fundinum lýsti Arafat sig reiðubúinn til að hitta fulltrúa Ísraelsríkis hvar sem væri á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Arafat sagði að eftir ákvörðun Husseins Jórdanfukonungs um að hætta afskiptum af málefnum Palestínumanna á Vesturbakkanum stæði palestínska þjóðarráðið frammi fyrir tveimur kostum á þingi þess í Álsír í október. Annars vegar að fara fram á yfirlýsingu frá Sameinuðu þjóðunum um stöðu herteknu svæð- anna og hins vegar að lýsa yfir stofn- un ríkis Palestínumanna og koma á fót bráðabirgðastjóm. Afstaða EB gæti ráðið úrslitum í því efni. í endurriti af blaðamannafundin- um kemur fram, að þar hafi verið íslendingur og spurt Arafat að því, hvort hann vildi fara til íslands ef alþjóðleg friðarráðstefna um Mið- Austurlönd yrði haldin þar. Sagðist Arafat vera tilbúinn til þess. Eftir- grennslan hjá EB leiddi í ljós, að Jóhanna Leópoldsdóttir var skráð sem þátttakandi í fundinum. Flaggað afgleði Óaló. Frá Helge Ssrensen, fréttaritara Morgunblaósins i Noregi. Gífurleg fagnaðarlæti brutust út í Lillehammer snemma í gærmorgun þegar þær fregnir bárust frá Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, að Alþjóðaólympíunefndin hefði ákveðið að vetrarólympíuleik- arnir færu fram i norska smábænum árið 1994. Stemmningin í LiUehammer í gær minnti einna helzt á þjóðhátíð og var norski fáninn dreginn hvarvetna að húni. Sjá fréttir af kjörinu á bls. 48 og öðrum viðburðum í Seoul á bls. 50-51. Ný skoðanakönnun birt í Svíþjóð í dag: Græningjar geta komist í oddaaðstöðu á þingi Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins i Svíþjóð. GRÆNINGJAR, flokkur um- hverfisverndarmanna, virðist ætla að komast í oddaaðstöðu á sænska þinginu eftir kosningarn- ar á sunnudag, samkvæmt skoð- anakönnun, sem SIFO-stofnunin gerði fyrir Svenska Dagbladet og birtist í blaðinu í dag. Ingvar Carlsson, forsætisráðherra, vill að Jafnaðarmannaflokkurinn stjórni landinu áfram þó svo Vongóðir George Vassiliou (t.h.) og Rauf Denktash (t.v.), leiðtogar þjóðarbrot- anna á Kýpur, áttu i gær fyrsta fund sinn um hugsanlega samein- ingu eyjarskeggja. Viðræðurnar fara fram fyrir milligöngu Samein- uðu þjóðanna. hann geti ekki myndað meiri- hluta með Kommúnistaflokkn- um, VPK. Samkvæmt könnuninni fær flokkur Græningja 7,1% atkvæða og um 30 þingmenn. í kosningunum 1985 fékk flokkurinn aðeins 1,5% atkvæða og stefnir því í 5,6 pró- sentustiga fylgisaukningu. Hefur flokkurinn ekki fengið menn kjöma áður. VPK fær 4,2% atkvæða, sam- kvæmt könnuninni, eða 1,2 pró- sentustigum minna fylgi en 1985 og sleppur naumlega við að detta út af þingi. Ætti flokkurinn að fá um 17 þingsæti. Jafnaðarmannaflokkurinn tapar 2,7 prósentustigum miðað við síðustu kosningar og fær 42,0% samkvæmt könnuninni. Hægri- flokkurinn tapar sömuleiðis 3,1 pró- sentustigi og fær 18,2% atkvæða. Einnig tapar Miðflokkurinn og fær samkvæmt könnuninni 11,6% at- kvæða miðað við 10,8%. Flokkur kristilegra demókrata, KDS, sem efndi til kosningabandalags með Miðflokknum 1985 fær ekki nema 2,0% og dettur út af þingi. Þjóðarflokkurinn bætir hins veg- ar lítillega við sig og fær 14,8% miðað við 14,2% árið 1985. Skoðanakönnun SIFO var gerð 12.-15. september og spurðir voru 1.094 kjósendur. Aðeins 4,1% þeirra vora óákveðnir. Ingvar Carlsson, forsætisráð- herra, var spurður hvemig hann myndi bregðast við ef kosningamar færa á þann veg sem könnunin gefur til kynna. Hann sagðist kjósa að Jafnaðarmannaflokkurinn sæti áfram við stjómvölinn og að flokk- urinn yrði að treysta á að ná málum fram með stuðningi úr ýmsum átt- um. Þess vegna gæti svo farið að stærri mál stæðu og féllu með af- stöðu Græningja, þ.e. hvort þeir styddu vinstri flokkana eða þá borg- aralegu. Sjá „Erfitt að átta sig á þvi hver ágreiningsefni flokkanna eru“ á bls. 22. Bandaríkin: Mýs með „mennsku“ blóð- og ónæmiskerfi Palo Alto. Reuter. Vfsindamenn við Stanford- háskóla i Bandaríkjunum skýrðu frá því á miðvikudag, að þeim hefði tekist að rækta mýs með „mennsku" blóð- og ónæmiskerfi. Talið er, að þessi árangur geti jafnvel skipt sköp- um í baráttunni við ýmsa sjúk- dóma. Vísindamennimir, sem hafa komið sér upp 200 músum með mennskum blóðeinkennum, segja, að þær verði til að auðvelda rann- sóknir á alnæmi, hvítblæði, lifrar- bólgu og öðram mannameinum. Lífefnafræðingurinn og nóbels- verðlaunahafinn Paul Berg segir í tilkynningu frá Stanford-háskóla, að þessi uppgötvun sé ákaflega mikilvæg. „Ef unnt er að rækta dýr með mennskum líffæram í til- raunaskyni mun það hafa gífur- lega þýðingu fyrir rannsóknir og skilning manna á mörgum sjúk- dómum,“ segir hann en frá þessum nýju músum verður sagt í tímarit- inu Science, sem kemur út 23. þ.m. Dr. Irving Weissman, einn vísindamannanna, segir, að fyrir fimm árum hafi þeir fundið erfða- fræðilega gallaðar mýs og hafi þá verið komið fyrir í þeim „fræjum“ mennsks ónæmiskerfis. Voru til þess notaðir litlir vefjarbútar úr lifur, hóstarkirtli og eitlum og fengnir úr mannsfóstri. Áður höfðu mýsnar aðeins lifað í þijá eða fjóra mánuði vegna þess, að ónæmi- skerfíð var gallað, en nýju mýsnar með mennska ónæmiskerfið lifa í allt að 15 mánuði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.