Morgunblaðið - 16.09.1988, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1988
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Venus
í dag er röðin komin að um-
Qöllun um plánetuna Venus
og hlutverk hennar í stjömu-
kortinu.
Ásí og aölööun
Nafti Venusar segir töluvert
um hlutverk hans, enda er
Venus eins og alkunna er sjálf
ástargyðjan. f stjömukortinu
segir hann til um það hvemig
við elskum, er táknrænn fyrir
ástarþarfír okkar, það sem við
viljum fá frá öðrum og emm
sjálf reiðubúin að gefa. Venus
er táknrænn fyrir aðlöðunar-
hæfni okkar, segir frá því
hvemig við löðum annað fólk
að okkur og bendir einnig á
það hveiju við löðumst að í
fari annarra. Venus er tákn-
rænn fyrir það sem vekur með
okkur ást.
Gildismat ogjjármál
Að baki ástar liggur gildis-
mat, þ.e. hvað við metum í
fari annarra. Venus er því
táknrænn fyrir gildismat okk-
ar, bæði hið félagslega og
einnig gildis- og verðmæta-
mat í víðari skilningi, s.s. fyr-
ir viðhorf okkar til peninga
og það hvers konar hluti við
metum og viljum eiga. Venus
hefur því töluvert áhrif á eign-
ir og fjármál.
FegurÖ og listir
Venus er ekki einungis plán-
eta ástarinnar, heldur einnig
fegurðar og listar. Staða Ven-
usar í merki segir til um það
hvers konar fólk og hlutir
okkur þykja fallegir. Sterkum
Venusi, t.d. Rísandi eða á
Miðhimni, fylgja oft áberandi
listrænir hæfileikar, s.s. gott
auga fyrir litajafnvægi, hlut-
föllum, formi og eyra fyrir
tónlist. Listamaðurinn og list-
unnandinn eru þvi báðir næm-
ir á orku hans.
Friöur ogsamvinna
Venus stjómar Nautsmerkinu
og Vogarmerkinu. Þeir sem
eru fæddir f þessum merkjum
og hafa Sól eða margar plán-
etur í Nauti eða Vog leita
þess sem sameinar menn.
Þetta er upp til hópa friðsamt
og rólynt fólk sem vill frið og
samvinnu, en ekki deilur og
sundrungu. Venus er því
táknrænn fyrir frið og sam-
vinnu, það að leita sátta og
ftnna það sem sameinar
menn. Hann skapar þvf sér-
staka hæftleika til félagslegr-
ar samvinnu sem byggja á þvf
að sjá hið sameiginlega.
Mýkjandi áhrif
í afstöðum hefur Venus þau
áhrif á aðrar plánetur að
mýlga og fága. Venus í af-
stöðu við Sól gefur sjálfsfján-
ingunni mýkt og viðkomandi
einstaklingur verður kurteis
og hefur þörf fyrir að veita
gleði og þóknast öðrum. Fólk
sem er fætt undir áhrifum
Venusar er því yfirleitt aðlað-
andi.
Sókn iþcegindi
Ef orka Venusar er f ójafn-
vægi, er t.d of sterk, getur
hún íeitt til félagslegs óhófs,
eyðslusemi, leti, skemmtana-
sýki eða of eftirgefanlegs per-
sónuleika. Venus er táknrænn
fyrir mýkri og það sem við
getum kallað ffnni þætti til-
verunnar, en of sterkur Venus
getur skapað of mikið af þvf
góða, eins og t.d. óhóflega
sókn f þægindi.
Ójafnvagi
Ótengdum Venus getur aftur
á móti fylgt skortur á því
sviði sem Venus stendur fyrir.
Viðkomandi einstaklingur á
t.d. f félagslegum erfiðieikum
og tilfinningar hans í garð
annarra verða ójafnar og
óstöðugar.
GARPUR
E&EgEkXJ V/SS.,.HJ/IRTA
ETEENÍU HEFUH B/SeVTr,
6HFP/J
JH, SKO/ZOÍ'R ,/iOFF/£> ’A .'! ÉG EJZ
1 Pik VEpSTA MAETRÖÐ - • Kf&FTUP/NN
HOLD/KL/EDDUP..AL6JÖELE&A HÖMLULAUS.'!
GRETTIR
BRENDA STARR
IT5 HARPTOKNOU)
JUSTWHATTOPO... @
I WONPER IF IT'S A
MISTAKE TO 5PENP
YOUR WHOLE LIFE OUT
HERE ON THE PESERT..
SMÁFÓLK
0FC0UR5E, 'l í
Y0U RE PR0BABLY ! / 1 - íí
THE U)R0N6 ) ■'
OME T0 ASK.. :7
/ r\Mtr
Andvarp.
Það er erfitt að vita hvað
maður á að gera...
SKyldu það vera mistök
að eyða allr ævinni hérna
úti í eyðimörkinni?
Þú ert auðvitað ekki sá
rétti að spyija um þetta ...
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Ekkert par sleppur villulaust
í gegnum 64urra úrslitaleik.
Eftir slíkan leik eru næg tilefni
til að naga á sér handabökir upp
til agna. En í jöfnum leik, eins
og úrslitaleik Polaris og Braga
Haukssonar, verða mistökin
sífellt áhrifameiri þegar nær
dregur lokum. Fyrir síðustu 16
spila lotuna var sveit Braga 11
IMPum yfir. Spilin í lokahrin-
unni voru fremur bragðdauf,
mest bútar og sjálfsögð geim,
enda var skorin fremur lág,
32—10 Polaris í hag. í þessum
32ur stigum Polaris var ein
sveifla upp á 12 IMPa. Eftir á
að hyggja geta menn sagt að
þar hafi úrslitin ráðist:
Austur gefur, NS á hættu.
Norður
♦ Á93
VD10865
♦ K765
♦ G
Vestur
♦ D852
▼ 9732
♦ DG83
♦ 3
Austur
♦ KG76
▼ -
♦ 102
♦ Á1098654
Suður
♦ 104
▼ ÁKG4
♦ Á94
♦ KD72
Hinn eðlilegi samningur á
spilin er 4 hjörtu f NS og sú
varð niðurstaðan í opna salnum
— 620 til Polaris. í lokaða saln-
um lék Sævar Þorbjömsson ein-
leik á spil austurs og ýtti Ás-
geiri Ásbjömssyni og Hrólfi
Hjaltasyni sagnþrepinu hærra:
Vestur Norður Austur Suður
— — Paas 1 grand
Pass 2 tíglar 3 lauf 4 hjörtu
Pass Pass 4 spaðar Pass
Pass 5 hjörtu Pass Pass
Passd
Karl kom út með einspilið f
laufi, sem Sævar drap á ás og
spilaði aftur laufi. Ásgeir lét
réttilega Iftið lauf og trompaði
heima. Það lítur út fyrir að 11
slagir séu fyrir hendi með einni
spaðastungu f blindum. En svo
er ekki eftir þessa byijun. Þegar
vestur kemst inn á spaða spilar
hann laufi og eyðileggur þar
með 11. slag sagnhafa.
Þetta spil gaf Polars 12 IMPa
og þeir sem em glöggir f reikn-
ingi sjá að Bragi hefði unnið
með 1 IMPa ef spilið hefði fallið!
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á sovézka meistaramótinu í ár
kom þessi staða upp f skák al-
þjóðameistarans Leonid Judasin,
sem hafði hvftt og átti leik, og
stórmeistarans Valery Salov.
35. Hxf6I - Rd5 (Eftir 36. -
gxf6, 36. Bf4 er svartur óveijandi
mát T.d. 36. - Rf5 37. Hg8+ -
Ke7, 38. He8 mát) 36. Hf4I -
Rxc7, 37. Bg6+ - Ke7, 38. Hf7+
- Kd6, 39. Hd7+ - Kc6, 40.
Bxe4+ - Kb6, 41. e7 og svartur
gafst upp. Þetta tap reyndist af-
drifaríkt fyrir Salov sem hafði
fram að þvf haft f fullu tré við
þá Kasparov og Karpov. Annað
tap fyrir Kasparov leiddi sfðan til
þess að hann varð að deila þriðja
sætinu með Jusupov. Eftir úrslitin
á Sovétmeistaramótinu er ljóst að
sovézka ólympfuliðið verður skip-
að þeim Kasparov, Karpov, Jusu-
pov og Salov. í varamannasætin
koma Beljavsky, Vaganjan, Sok-
olov og Ehlvest til greina.