Morgunblaðið - 16.09.1988, Side 48
48
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1988
VETRAROLYMPIULEIKARNIR 1994
U
Fyrstu „gullverðlaun
Norðmanna í Seoul
Geysilegurfögnuður braust út í Lillehammer þegartilkynnt var að
bærinn hafði fengið vetrarólympíuleikanna 1994.
Spennandi atkvœðagreiðsla
í ALLAN gærdag ríkti þjóðhá-
tíðarstemmning í Lillehammer,
sem er 22.000 manna bær í
Guðbrandsdal í Noregi, eftir
að tiikynnt var að vetrar-
ólympíuleikarnir færu fram í
bænum 1994. Lúðrasveit spit-
aði á ráðhústorginu í bænum,
fólk dansaði, faðmaði hvert
annað, fánar voru dregnir að
húni og margir felldu tár.
Formaður norsku ólympíu-
nefndarinnar Jan Gudbrands-
en sagði eftir valið að hann þakk-
aði .fyrst og fremst framkomu
forsetisráðherra
Noregs, Gro Harl-
em Brudtland, að
draumur þessi
varð að veruleika.
Frá
Eriingi
Jóhannssyni
ÍNoregi
Hún dvaldi einungis einn sólar-
hring í Seoul, en að mati margra
var það nóg. Haft var í flimtingum
að stundvísi hennar við morgun-
verðarborðið á þriðjudagsmorgun
í Seoul, .með forseta alþjóða
ólympíunefndarinnar Juan An-
tonio Samaranch, hafi ráðið úrslit-
um, en þá kom sænski konungur-
inn tuttugu mínútum of seint.
„Stórkostlegt11
Lillehammer sótti líka um vetr-
arólympíuleikana 1992, en þá
hlaut franska borgin Albertville
hnossið. Gro Harlem Brundtland,
forsætisráðherra Noregs, sagði
eftir atkvæðagreiðsluna: „Þetta
er stórkostlegt! Ákvörðun
Ólympíunefndarinnar felur í sér
mikla áskorun og er stórt tæki-
færi fyrir Noreg til þess að afla
sér sess í heimi vetraríþrótta.
Lillehammer hefur nú tækifæri á
að verða miðstöð vetraríþrótta í
Skandinavíu."
Svfar vonsviknlr
Að sjálfsögðu voru vonbrigði
Svía mikil því að þeir höfðu næsta
víst „ákveðið" að Östersund fengi
leikana. Þeir hafa á engan hátt
tekið ósigrinum karlmannlega, en
þess í stað sakað Norðmenn um
að hafa haft brögð í tafli. Hefur
þetta óneitanlega skyggt á þjóð-
hátíðarstemmninguna sem rýkt
hefur í Lillehammer.
Þetta varður annað sinn sem
vetrarólympíuleikarnir fara fram
á Norðurlöndum. Áður fóru þeir
fram í Oslo í Noregi 1952. Næstu
vetrarleikar fara fram í Albert-
ville í Frakklandi 1992.
Fjórar borgir sóttu um að halda
vetrarólympíuleikana 1994, Sofia
í Búlgaríu, Anchorage í Álaska,
Östersund í Svíþjóð og Lilleham-
mer í Noregi.
Atkvæðagreiðslan var mjög
spennandi _og fóru fram þijár
umferðir. í fyrstu umferð datt
Sofia út, fékk aðeins 17 atkvæði.
Lillehammer fékk flest og Anc-
horage í öðru. í annari umferð
sigraði Östersund með 33 gegn
30 atkvæðum Lillehamer sem
varð í öðru sæti. Anchorage féll
út með aðeins 22 atkvæði. I þriðju
9g síðustu umferð var kosið milli
Östersund og Lillehammer og þar
hafði Lillehammer betur, 45 gegn
39.
ípfémR
FOLK
■ CARL Lewis sagði við kom-
una til Seoul í gær að Ben Jo-
hnson kæmi aldrei til með að sigra
hann í 100 m hlaupi. Lewis, sem
vann fem gullverðlaun á Ólympíu-
Ieikvanginum í Los Angeles, mun
reyna allt til að endurtaka leikinn
frá því í Los Angeles. Síðast þegar
Lewis og Johnson mættust í
Ziirich í Sviss í síðasta mánuði
sigraði Lewis. Þeir hafa 15 sinnum
háð keppni og hefur Lewis unnið
9 á móti 6. Johnson á þó heimsmet-
ið sem, er 9,83 sek og var sett á
heimsmeistaramótinu í Róm í fyrra.
■ SUÐUR-Kóreumena fá veg-
legan bónus ef þeim tekst að vinna
£ ólympíumeistaratitilinn í knatt-
spymu. Sigurinn mundi gefa þeim
14.000 dollara á mann og nýjan
sportbíl. Þeir hafa góðu liói á að
skipa og em 10 leikmenn þeirra sem
tóku þátt í úrslitum heimsmeistara-
keppninnar í Mexíkó 1986. Lið
Brasilíu og Sovétmanna em þó
talinn sigurstranglegust.
■ STEFAN Edberg er talinn
nokkuð ömggur um sigur í tennis-
keppninni á Ólympíuleikunum.
Mats Wilander og Boris Becker
hafa hætt við keppni og Edberg
verður því eina „stjarhan" sem
mætir til leiks í Seoul. Edberg sigr-
aði á Ólympíuleikunum í Los Ange-
les fyrir fjórum ámm, en þá var
tennis aðeins sýningargrein. Helsti
Reuter
Carl Lewls á æfingu í Seoul I gær.
Hann virðist kunna vel við sig á staðn-
um, og sagði við komuna þangað að
Ben Johnson kæmi aldrei til með að
sigra hann í 100 m hlaupi framar.
keppinautur Edberg verður líklega
Tékkinn Miloslav Mecir sem er í
10. sæti á heimslistanum.
■ SVO GÆTI farið að þremur
ísraelsmönnum yrði vikið úr
hnefaleikakeppni ÓL vegna ferðar
til Suður-Afríku. Alþjóðlega
hnefaleikasambandið hefur skrifað
ísralska hnefaleikasambandinu bréf
og spurt hvort sambandið hafi sent
lið til Suður-Afríku og þar með
brotið lög alþjóðasambandsins.
ísraelsmenn hafa átta daga til að
svara þessu bréfí og ef svarið er
jákvætt verður ísraelsmönnunum
vikið úr keppni. Reiknað er með
450 keppendum í hnefaleikum og
er það met.
GOLF / HM AHUGAMANNA
Islendingar í33.-34.
sæti eftir fyrsta dag
Íslenzka sveitin í golfi er í 33.-34. sæti eftir einn dag í heimsmeist-
arakeppni sveita áhugamanna í golfi, sem fer nú fram í Stokk-
hómi. íslenzka sveitin hefur leikið á 244 höggum. Fjórir eru í hverri
sveit og gildir árangur þeirra þriggja beztu á hveijum degi. Sveinn
Sigurbergsson lék bezt íslenzku kylfinganna í gær eða á 80 höggum.
Hilmar Björgvinsson lék á 81 höggi en Sigurður Sigurðsson á 83.
Bjöm Knútsson lék á 90 höggum og hans högg komu því ekki inn í
samtöluna hjá íslenzku sveitinni í gær.
Svíar stóðu sig vel á heimavelli í gær. Þeirra sveit lék á 214 högg-
um og virðist líkleg til að vinna Eisenhowerbikarinn, sem keppt er
um. Bandaríkjamenn, sem eru núverandi meistarar, eru í öðru sæti
með 219 högg en Englendingar koma á hæla þeirra með 220 högg.
HANDBOLTI / KVENNALANDSLIÐ
Aldrei
spuming
ÍSLENZKA kvennalandsliðið í
handknattleik sigraði spœnska
landsliðið örugglega í vináttu-
landsleik liðanna í Vestmanna-
eyjum í gærkvöldi. Leikurinn
var að vísu nokkuð sveiflu-
kenndur en þær spænsku voru
mun slakari aðilinn íleiknum.
Lítið var skorað úr langskotum
í leiknum og komu mörkin eink-
um úr homunum, af línu og úr
vítum. íslenzka vömin var fíma-
sterk lengst af en
gaf þó nokkuð eftir
á köflum í leiknum.
Spænska liðið var
oft mjög ráðleysis-
legt í sókninni og markvarzlan í
molum.
Kristín Pétursdóttir og Katrín
Frá Sigfúsi
Gunnari
Guömundssyni
í Eyjum
lslai\d - Spánn
19 : 13
íþróttahúsið í Vestmannaeyjum. Vin-
áttulandsleikur í handknattleik kvenna,
fímmtudaginn 15. september.
Gangur leíksins: 4:0, 4:2, 5:2, 5:3,
10:3,10:7,11:7,11:8,12:8,12:9,16:9,
16:10, 18:10, 18:13, 19:13.
Mðrk íslands: Guðríður Guðjónsdóttir
5/4, Katrín Friðriksen 4, Kristín Pét-
ursdóttir 3, Guðný Gunnsteinsdóttir 2,
Margrét Theodórsdóttir 2/1, Svava
Baldvinsdóttir 1, Erna Lúðviksdóttir
1, Andrea Atladóttir 1/1.
Varin skot: Kolbrún Jóhannsdóttir, 3
og Halla Geirsdóttir 7.
Mörk Spánar: Hemandez 4, Santa
María 3, Arquer 3/1, Cedres 1, Ugart-
emendia 1, Martin 1.
Dómarar: Hákon Siguijónsson og
Guðrjón L. Sigurðsson.
Friðriksen áttu góðan leik í homun-
um. Guðríður Guðjónsdóttir var
mjög ógnandi í leiknum. Guðný
Gunnsteinsdóttir byijaði vel en dal-
aði síðan. Halla Geirsdóttir varði
markið vel í seinni hálfleik.
OLYMPIULEIKAR / VEISLUHOLD
Glæsilegt boð 61-
ympíunefndar Seoul
„ÉG býð ykkur hjartanlega vel-
komna til Seoul. Það er mór
sönn ánægja að þið eruð
komnir hingað. Þið eruð tengi-
liður okkar til heimsins og án
ykkar væru Ólympíuleikarnir
fátækari," sagði Park She-Jik,
forseti undirbúningsnefndar
Ólympíuleikanna í Seoul, þegar
hann ávarpaði fréttamenn f
kvöldverðarboði í „Grand Cela-
don Ballroom" í Intercontinen-
tal hótelinu í miðborg Seoul f
gærkvöldi.
Þetta er hrein höll. Glæsilegur
staður og listilega byggður,"
sagði Gísli Halldórsson, arkitekt og
forseti ólympíunefndar íslands, sem
var í boðinu ásamt
Braga Kristjáns-
syni, ólympíunefnd-
armanni.
Boðið var upp á
glæsileg dansatriði í veislunni, sem
var kölluð „Korea-night" og þá fór
fram stórkostleg tískusýning, sem
60 stúlkur tóku þátt í. Við Morgun-
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifarfrá
Seoul
blaðsmenn, sem höfum fram til
þessa látið okkur vanta á tískusýn-
ingar, verðum jafnvel fastagestir á
tískusýningum í framtíðinni, ef þær
eru allar eins og boðið var uppá í
gærkvöldi. Það var ekki nóg að
fötin væru glæsileg, heldur var tján-
ing stúlknanna það listræn, að það
var eins og Bolshoj-balletflokkurinn
frá Moskvu væri farinn að sýna föt.
Sýningin vakti mikla hrifningu
rúmlega 1000 fréttamanna, sem
mættu á staðinn. Þegar sýningunni
lauk gengu allar stúlkumar fram á
sviðið og var þeim klappað lof í
lófa. Stúlkumar þökkuðu móttök-
umar og klöppuðu á móti.
Flestir blaðamennimir fóm til
veislunnar með langferðabifreiðum
frá blaðamannaþorpinu og f fylgd
lögreglumanna, sem óku á undan
rútunum á mótorhjólum með blikk-
andi Ijósum.
Þess má geta að boðið var upp
á hlaðborð í veislunni, sem hafði
að geyma mikið úrval af köldum
og heitum réttum, ásamt listilega
skreyttu konfekti.
■ HAUKUR Bragason, mark-
vörður 1. deildarliðs KA í knatt-
spymu, leikur ekki meira með liðinu
í sumar. Liðþófi rifnaði í hné hans
og hefur hann farið í skurðaðgerð
vegna þessa. Varamarkvörður liðs-
ins Jónas Guðjónsson er einnig
meiddur og þriðji markvörður KA-
manna, Torfi Halldórsson er illa
flarri góðu gamni, a.m.k. hvað
knattspymuna varðar, því hann er
á skólaferðalagi erlendis. í marki
KA í leiknum gegn ÍA á Akranesi
á laugardag stendur því væntanlega
Ægir Dagsson, 16 ára drengja-
landsliðsmaður, sem enn leikur í
3. flokki.
MLEE Chapman, sem seldur var
frá Sheffield Wednesday til
franska liðsins Niort í sumar, er
á leiðinni til Englands aftur. Hann
var seldur til Niort
FráBob á 300.000 pund en
Hennessy nú segist Niort ekki
i Englandi geta greitt alla þá
upphæð. Notting-
ham Forest og Derby hafa bæði
sýnt Chapman áhuga.
I EDDIE May, sem hætti ný-
lega þjálfun hjá 2. deildarliði KS,
hefur verið ráðinn aðstoðarfram-
kvæmdastjóri enska 4. deildarliðs-
ins Lincoln.
■ ALEX Ferguson, fram-
kvæmdastjóri hjá Manchester Un-
ited, horfði á landsleik Skota og
Norðmanna nýverið og fýlgdist
grannt með Norðmanninum Rune
Bratseth, sem leikur með Werder
Bremen. Ferguson vill óður og
uppvægur fá hann í vömina í stað
Paul McGraths, sem er farinn frá
United. Ferguson hefur líka ennþá
áhuga á Mal Donaghy, þrátt fyrir
að Luton hafí fyrir skömmu hafnað
350 þúsund punda tilboði í hann frá
United.
BADMINTON
íslendingar
dæma víða
Iblaðinu í gær var greint frá
því að Haraldur Komelíusson
væri nú að dæma í Evrópu-
keppni félagsliða í Moskvu. Því
má bæta við framundan em
einnig eftirfarandi mót þar sem
íslenskir badmintondómarar
munu dæma: Norðurlanda-
meistaramótið í Helsingfors
19.-20. nóvember 1988, Helvet-
ia Cup f Búdapest í Ungveijal-
andi 19.-22. janúar 1989, Evr-
ópukeppni unglinga í Manc-
hester á Englandi 26. mars til
2. apríl 1989. „Með þessu sésí
að íslenskir badmintondómarar
em orðnir gjaldgengir á stór-
mótum erlendis og er þetta mjög
ánægjuleg þróun,“ sagði Rafn
Viggósson, formaður dómara-
nefndar Badmintonsanmbands
íslands, í samtali við Morgun-
blaðið.