Morgunblaðið - 24.09.1988, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1988
3
Þorsteinn Pálsson um virðisaukaskatt:
Viljum lægra skatt-
þrep á matvæli
ÞORSTEINN Pálsson forsætís-
ráðherra lýstí því yfir á um 100
manna fundi í Selfossbíói í fyrra-
kvöld að tillaga Sjálfstæðisflokks-
ins um lækkun söluskatts á mat-
væli væri stefiiumarkandi og þvi
ljóst að stefiia Sjálfstæðisflokks-
ins í ákvörðun um virðisaukaskatt
byggðist á þvi að skattþrepin yrðu
tvö og það lægra á matvæli.
Líflegar umræður urðu á hinum
fiölsótta fundi Kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins á Suðurlandi um
stjómarslitin og stjómmálaviðhorfið,
en aðspurður um tillögu sjálfstæðis-
manna um afnám matarskattsins
svokallaða sagði Þorsteinn Pálsson:
„Þessi tillaga um að lækka sölu-
skatt á matvæli um 10%, markar
þá stefnu að það verði tvö skattþrep
í virðisaukaskatti þegar hann tekur
gildi og að lægra skattþrepið verði
á matvæli."
Skarphéðinn
Asgeirsson í
Amai'o látinn
SKARPHÉÐINN Ásgeirsson eig-
andi Amaro, á Akureyri lést í
íyrradag, 22. september. Hann
iætur eftir sig eiginkonu og þijá
uppkomna syni. Skarphéðinn
fæddist 3. mars 1907 að Gautstöð-
um á Svalbarðsströnd f Suður-
Þingeyjarsýslu, sonur þjónanna
Asgeirs Stefánsson, og Sigrúnar
Jóhannsdóttur.
Skarphéðinn var sjálfmenntaður
smiður og múrari. Hann flutti til
Akureyrar um 1930 og giftist þar
eiginkonu sinni Laufeyju Tryggva-
dóttur. Hann vann m.a. við byggingu
skrifstofuhúss KEA um þetta leyti.
Árið 1932 fór Skarphéðinn að
smiða leikföng úr tré og varð það
upphafið að fyrirtækjarekstri hans.
Amaro stofnaði hann svo 1940. Árið
1947 kaupir hann Ryels-verslun á
Skarphéðinn Ásgeirsson.
Akureyri en árið 1959 hefst hann
handa við að byggja Amaro-húsið í
bænum. Þar var svo fyrst verslað
árið 1963. Frá því ári hefur rekstur
Amaros aukist jafn og þétt og naut
Skarphéðinn stuðnings sona sinna
þriggja við uppbyggingu þess, þeirra
Brynjars, Birkis og Kristjáns.
Samtök auglýsenda:
Samþykkja auk-
ið upplagseftirlit
TILLAGA stjórnar Samtaka auglýsenda um aukið upplagseftirlit með
tímaritum og dagblöðum, auk samsvarandi upplýsinga fyrir jjósvaka-
fjölmiðla, var einróma samþykkt á almennum félagsfundi síðastliðinn
fimmtudag. Tæplega þrjátíu fulltrúar þeirra fyrirtækja, sem aðild eiga
að samtökunum og mest auglýsa sátu fundinn.
Að sögn Sigurðar B. Sigurðssonar
formanns félagsins, var stjóminni
falið að kynna félagsmönnum enn
frekar hvað í tillögunni felst. „Með
þessari samþykkt hefur stór hópur
auglýsenda samþykkt að stjóm fé-
lagsins stuðli að virku upplagseftir-
liti,“ sagði Sigurður. „Það má segja
að þetta sé í fyrsta sinn sem hópur
auglýsenda tekur beina afstöðu með
upplagseftirliti en markmið fundar-
ins var einmitt að vekja áhuga fé-
lagsmann á tillögunni og gera mönn-
um grein fyrir að nú er tími fyrir
auglýsendur að gera upp við sig
hvort þeir álíti upplagseftirlit nauð-
synlegt þegar til þess kemur að
ákveða þarf hvar á að auglýsa. “
Maður dæmdur í fimm mánaða fangelsi:
Ók viljandi á
mann á reiðhjóli
MAÐUR á fertugsaldri var í gær dæmdur í Sakadómi Reykjavíkur
tíl fimm mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar, og til að sæta
12 mánaða ökuleyfissviptingu, fyrir að aka, af ásettu ráði, á mann
á reiðhjóli. Maðurinn ók siðan á þjólreiðamanninn, sem kastast
hafði af hjólinu. Við það kastaðist hann upp á vélarlok og í framr-
úðu bílsins og þannig ók maðurinn bflnum nokkurn spöl. Síðan snar-
hemlaði hann þannig að hjólreiðamaðurinn kastaðist fram af bílnum
og í götuna.
Eftir þetta ók maðurinn hratt
og óvarlega upp á gangstétt hægra
megin fram úr bifreiðum á Lauga-
vegi og stofnaði þannig, að áliti
dómsins, á ófyrirleitinn hátt lífi og
heilsu annarra vegfarenda f aug-
ljósan háska.
Atburðurinn átti sér stað í mars-
mánuði. Maðurinn hefur frá upp-
hafi málsmeðferðar neitað sök en
6 vitni sem yfirheyrð voru báru á
sama veg og kærandinn um máls-
atvik og er sakfellingin grundvölluð
á framburði þeirra.
Rúmu ári fyrir þennan atburð
hafði ökumaðurinn hlotið þriggja
mánaða skilorðsbundinn dóm sem
var tekinn upp í þessu máli. Maður-
inn taldist hafa rofíð skilorð dóms-
ins og á því fimm mánaða fangels-
unin við um bæði málin.
Hinn dæmtíi tók sér fjórtán daga
frest til að ákveða hvort hann unir
dóminum, sem Helgi I. Jónsson
kvað upp, eða áfrýjar.
Morgunblaðið/Bjarni
Grandi frystir nú fiskinn bæði á sjó og landi og því var ekki úr vegi að verkakonurnar úr landi brygðu sér
í heimsókn í „nýja frystihúsið“ og skoðuðu aðstæður hjá keppinautnum.
Frystitogarinii Snorri Sturluson kominn heim:
Breytingar kostuðu um
140 milljónir króna
FRYSTITOGARI bættist í fiskiskipaflota Reykvíkinga í gær þegar
Snorri Sturluson RE 219 kom til landsins eftir gagngerar breyting-
ar í PóIIandi, sem tekið hafa þijá mánuði. Kostnaður við breyting-
arnar á skipinu, sem smíðað var á Spáni 1973, nema milli 135 og
140 miiyónum króna. Tilgangur breytinganna er tvíþættur; í fyrsta
lagi var kominn tími tíl endurnýjunar á Snorra vegna aldurs og í
öðru lagi var raunhæft að útbúa skipið til sjófrystingar, sem ætluð
er hagkvæm rekstrarleið fyrir togara af þessari stærð. Þar við
bætíst að þessi nýja framleiðsla styrkir heildarframleiðslugnum
Granda hf. á sjávarafurðum, að sögn stjórnenda fyrirtækisins.
Umfangsmiklar breytingar voru
gerðar á togaranum og má þar
nefna að lestin var endumýjuð og
breytt í frystilest, sem er um 600
rúmmetrar að stærð og tekur
u.þ.b. 400 tonn af fiystum físki. Á
millidekki vom endumýjaðar allar
sjó-, vatns- og raflagnir og var
fískmóttakan klædd ryðfríu stáli.
í Snorra vom sett fjögur frysti-
tæki, þar af eitt lóðrétt, sem frysta
48 lestir á sólarhring. Komið var
fyrir nýju aðgerðarkerfi, með
blóðgunarkömm, færiböndum og
fískvinnslulínu, sem hægt er að
vinna í bolfísk, grálúðu og karfa.
í togaranum em einnig físk-
vinnsluvélar frá Baader af nýjustu
gerð, eins og t.d. slægingarvél,
flökunarvél og roðfléttivél. Snorri
Sturluson er fyrsti íslenski frysti-
togarinn sem hefur Baader 184-
flökunarvél um borð, en hún er
sérstaklega gerð til að skera beina-
garð og þunnildi frá flökunum, sem
auðveldar mjög framleiðslu á dýr-
ari pakkningum.
í Snorra er fullkomið vogakerfi
fyrir pökkun og flokkun frá Póls-
tækni hf., á ísafirði. Sett var ný
ljósavél og rafall til að mæta auk-
inni orkuþörf vegna vinnslu og
frystingar. Voldugur skrúfuhring-
Fréttastofa útvarps:
Arnar Páll og
Halldór ráðnir
HALLDÓR Halldórsson og Am-
ar Páll Hauksson hafa verið
ráðnir tíl fréttastofu Rikisút-
varpsins. Alls sóttu 37 um þær
tvær stöður er lausar voru. Á
fundi útvarpsráðs í gær hlaut
Halldór flest atkvæði eða 6.
Bima Þórðardóttir hlaut 4 at-
kvæði. Guðrún S. Eyjólfsdóttír
hlaut 2 atkvæði en eitt atkvæði
hlutu Amar Páll Hauksson og Ólöf
Rún Skúladóttír.
©
ur frá Stálsmiðjunni hf. er á skip-
inu, sem eykur togkraft skipsins
um 20%.
Á aðaiþilfari var síðum lokað
og settar göngubrýr og öll vinnu-
aðstaða á dekki bætt og endumýj-
uð. Sjálft þilfarið hefur verið nán-
ast tvöfaldað og sjálfvirkur tog-
búnaður settur á aðalspil frá Raf-
boða hf. Miklar endurbætur vom
gerðar á stjómbúnaði skipsins og
nýr radar, höfuðlínu og dýptar-
mælir sett í brúna. Fjöldi annarra
breytinga og endurbætur vom
gerðar á togaranum í Gryfía-skip-
asmiðastöðinni í Póllandi.
Stórþjóftiaður upp-
lýstur á Suðumesjum
Stálu humri fyrir eina og hálfa milljón króna
LÖGREGLAN í Keflavík hefur upplýst stórfelldan þjófinað á humrí
frá þremur fyrírtækjum á Suðurnesjum. Fjórir menn á aldrinum
20—30 ára úr Keflavík og Njarðvík hafa viðurkennt stuldinn. Þrír
mannanna hafa náðst og liggur játning þeirra fyrir. Fjórði maður-
inn var handtekinn i Sviþjóð á fimmtudaginn, og kom hann í lög-
reglufylgd tíl landsins i gær. Hann var þegar i stað úrskurðaður i
15 daga gæsluvarðhald. Við yfirheyrslur viðurkenndu mennimir að
hafa fieiri innbrot á samviskunni og að hafa stolið 280 flöskum af
áfengi úr skemmu varnarliðsins á Keflavikurflugvelli.
INNLENT
John Hill, lögreglufulltrúi Rann-
sóknarlögreglunnar í Keflavík,
sagði að mennimir hefðu viður-
kennt að hafa brotist fímm sinnum
inn í frystigeymslur og stolið þaðan
humri sem þeir sfðan seldu til veit-
ingahúsa í Reykjavík. Ekki væri
vitað með vissu um hversu mikið
magn væri að ræða því nákvæmar
tölur um hversu mikið af humri
væri í frystigeymslunum lægju ekki
fyrir en talið væri að verðmæti
humarsins væri um ein og hálf
milljón króna.
Mennimir brutust tvívegis inn
hjá tveim fyrirtækjum í Sandgerði,
Rafni og Miðnesi hf., og einu sinni
hjá Keflavík hf. þar sem þeir stálu
humrinum. Innbrotin voru framin
að nóttu til og morguninn eftir
héldu þeir til Reykjavíkur, þar sem
humarinn var boðinn til sölu hjá
veitingahúsum víðs vegar um bæ-
inn. Humarinn var seldur á hálf-
virði eða 800 kr. kg og er vitað um
14 til 15 veitingahús sem áttu við-
skipti við mennina.
Lögreglan hafði mennina gran-
aða um að hafa fleira á samvisk-
unni, og við yfirheyrslur viður-
kenndu þeir að hafa brotist inn sex
sinnum í víngeymslur varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli á undanföm-
um tveimur áram, þar sem þeir
stálu 280 eins lítra flöskum af
áfengi. Við þau innbrot nutu þeir
aðstoðar tveggja annarra manna
sem hafa viðurkennt aðild sína.
Enginn mannanna starfaði á
Keflavíkurflugvelli, og fóru þeir
yfir vamargirðinguna í leiðöngram
sínum í víngeymsluna. Vínið var
ekki selt heldur notað til eigin þarfa
eða gefíð kunningjum. Þá viður-
kenndu Qórmenningamir að hafa
stolið hljómflutningstækjum úr
nokkrum bifreiðum á Suðumesjum,
og einn mannanna hefur játað inn-
brot í raftækjaverslun í Keflavík
þar sem hann stal myndbandstæki
og fleiri rafmagnsvöram.
BB
Jóhann vann
van der Wiel
JÓHANN Hjartarson vann Hol-
lendinginn van der Wiel í 12.
umferð Interpolisskákmótsins í
Tilburg í Hollandi. Jóhann er þá
kominn i 5. sætíð með 5'/2 vinn-
ing. Anatolíj Karpov er efstur á
mótinu með 9 vinninga, vinningi
ofan við Nigel Short.
Ekkert jafntefli var samið í 12.
umferð skákmótsins sem er heldur
óvenjulegt. Karpov vann Lajos
Portisch, Short vann Robert Húbner
og Jan Timman vann Predrag Nic-
olic. Jóhann vann van der Wiel með
hvítu í 49 leikjum.
Karpov er efstur með 9 vinninga
og Short er með 8 vinninga. Nic-
olic og Timman era í 3.-4. sæti með
6 vinninga. Jóhann er í 5. sæti með
5 V2 vinning, Hubner og Portisch
hafa 5 vinninga og vair der Wiel
rekur lestina með 3V2 vinning.
Tvær umferðir eru eftir á skákmót-
inu og teflir Jóhann við Húbner og
Short. Honum nægir einn vinningur
til að halda skákstigum sínum.