Morgunblaðið - 08.11.1988, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1988
Atvinnuástandið:
Sauðárkrókur:
Astandið jafhast
eftir sláturtíð
Sauðárkróki.
AÐ SÖGN Matthíasar Viktorssonar félagsmálastjóra hjá Sauðár-
krókskaupstað, er ástand atvinnumála í bænum síst verra en á sama
tíma á undanfömum áram. Að vísu væri alltaf á haustdögum nokk-
urt los á fólki í kringum sláturtíð, svo sem nú er, en flest af þvi
fólki sem lauk sláturhúsavinnu fyrir nokkru, er komið í önnur störf,
til dæmis hjá frystihúsinu.
Hjá forstöðumönnum Fiskiðjunn-
ar og Hraðfrystihússins Skjaldar
fengust þær upplýsingar að núna
væri næg vinna og yrði eitthvað
áfram, eftir heldur daufa haust-
mánuði. Hjá Steinullarverksmiðj-
unni er útlit fyrir aukningu fremur
en samdrátt, og stendur jafnvel til
að bæta við einni vakt enn, ef fram
heldur sem horfír, og mundu þá
bætast þar við um það bil 10 störf.
Stór verkefni eru í gangi hjá
trésmíðaverkstæðunum Borg og
Hlyn. Trésmiðjan Borg er með stórt
verk við heimavist Fjölbrautaskól-
ans og við Bændaskólann á Hólum.
Byggingarfélagið Hlynur vinnur nú
að byggingu flugstöðvarhúss á
Alexandersflugvelli, og innréttingar
í húsnæði Dvalarheimilis aldraðra.
í sútunarverksmiðju Loðskinns er
mikil og stöðug vinna, og með aðild
Sláturfélags Suðurlands að rekstri
fyrirtækisins er um mjög aukið hrá-
efnismagn að ræða, sem verksmiðj-
an hefur úr að vinna, þannig að
þar er og verður stöðug vinna fram-
undan. Hjá Kaupfélagi Skagfírð-
inga er ekki um neinar breytingar
að ræða og ekkert samdráttarhljóð
í mönnum.
- B.B.
0
INNLENT
Keflavík:
Um flörutíu
manns atvinnu-
lausir í október
ATVINNULEYSI í Keflavík var talsvert í október og voru að jafh-
aði um 40 manns á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Mest var þetta
fólk úr fiskvinnslunni og einnig var talsvert af fólki sem hafði verið
í sumarafleysingum en ekki fengið áframhaldandi vinnu. Þetta er
mun meiri fyöldi en á sama tíma og í fyrra, en þá voru 3 skráðir
atvinnulausir i lok mánaðarins.
Horfumar í atvinnumálum
Keflvíkinga er ekki góðar þessa
stundina. Nýlega var 90 til 100
manns sagt upp hjá Hraðfrystihúsi
Keflavíkur og síðan áttu um 30 sjó-
menn von á uppsagnarbréfum frá
sama fyrirtæki. Þá eru enn um 50
manns sem störfuðu í Ragnars-
bakaríi án vinnu og hafa eignir
bakarísins nú verið auglýstar til
sölu.
Málin rædd á höfhinni í Ólafsfirði.
Ólafefjörður:
Rúmlega 100 atvinnulausir
Ólafsfirði.
RÚMLEGA eitt hundrað manns er nú á atvinnuleysisskrá á
Ólafsfirði, að stærstum hluta konur. Báðum frystihúsunum, Hrað-
frystihúsi Magnúsar Gamalíelssonar hf. og Hraðfrystihúsi Ólafs-
fjarðar hf., hefur verið lokað vegna rekstrarerfíðleika.
Tveir frystitogarar og tveir bæjarsjóð Ölafsfjarðar eru orðin
ísfisktogarar eru gerðir út frá
Ólafsfírði. Hluti af afla ísfísktog-
aranna fer nú til saltfískvinnslu
en þeir hafa einnig siglt með af-
lann og landað í gáma til útflutn-
ings. Bátar hafa haft lítinn afla
að undanfömu og smærri vinnslu-
stöðvar sem vinna saltfisk búa við
vaxandi rekstrarerfíðleika. Van-
skil útgerðar og fískvinnslu við
mjög mikil.
Þeir sem vinna við þjónustu og
iðnað hafa á hinn bóginn haft næg
verkefni. Verið er að vinna að
endurbótum á höfninni og að
ýmsum öðmm verkefnum er unn-
ið á vegum bæjarins og er líklegt
að næg vinna vérði í þessum
greinum fram eftir vetri. Þá er
unnið af fullum krafti við jarð-
gangagerð í Ólafsfjarðarmúla en
þar er um að ræða aðkomumenn
í sérhæfðum störfum og fáir
heimamenn fá vinnu við það verk.
Bróðurpartur atvinnulífsins á
Ólafsfírði hvílir á sjósókn og físk-
vinnslu. Fyrirtæki í þeim greinum
hafa lengi verið rekin með tapi
og em nú komin í þrot. Lausnir
á vandanum virðast ekki vera í
sjónmáli og útlitið í atvinnumálum
Olafsfírðinga því heldur dökkt um
þessar mundir.
SB
Að sögn Kolbrúnar Jónsdóttur
fulltrúa hjá Keflavíkurbæ hefur
nokkuð borið á atvinnuleysi í kring-
um jólin á hveiju ári - og í fyrra
hefðu 54 verið á atvinnuleysisskrá
í desember. Hinsvegar hefði minna
borið á atvinnuleysi í mánuðunum
á undan og í lok september 1987
hefði enginn verið á skrá, 3 í októ-
ber og 6 í nóvember.
BB
Unglingavinna á Skagaströnd.
5daga megrun,sem
VIRKAR!
Skagaströnd:
Bjart yfír vegna
aukins rækjukvóta
Skagaströnd.
ATVINNUÁSTAND á Skaga-
strönd er gott um þessar mundir
og horfur fremur bjartar. Rekst-
ur útgerðarfélagsins Skag-
strendings hf. hefiir gengið vel
og höfðu báðir togarar félagsins
skilað mun meira aflaverðmæti
fyrstu átta mánuði ársins en á
sama tíma á siðasta ári. Þá hefur
rekstur rækjuskips félagsins
gengið þokkalega.
Hólanes hf., sem rekur hrað-
frystihús og saltfiskverkun, hefur
gengið þokkalega, þrátt fyrir erfið
skilyrði, og haldið uppi fullri vinnu
utan eins og hálfs mánaðar er hrá-
efni skorti.
Þá er bjartara framundan hjá
þeim sem stunda veiðar og vinnslu
á rækju því nú nýverið var veiði-
kvótinn í Húnaflóa ákveðinn 1.800
tonn en var 1.000 tonn á síðasta ári.
Næg verkefni hafa verið í bygg-
ingariðnaði og hefur heldur vantað
mannskap en hitt. Einnig má nefna
að nú í mánuðinum var vígt nýtt
dvalarheimili aldraðra og munu þar
skapast nokkur störf.
Eitt fyrirtæki á Skagaströnd á
þó við verulega rekstrarörðugleika
að stríða en það er skipasmíðastöð-
in Mánavör hf. Allt útlit er fyrir
að fyrirtækið þurfi að hætta starf-
semi en flestir starfsmenn þess eru
þó komnir í aðra vinnu þannig að
ekki verður um mikið atvinnuleysi
að ræða þótt Mánavör hætti. Alltaf
er slæmt þegar atvinnutækifærum
fækkar í litlum byggðarlögum þar
sem fjölbreytni í atvinnulífi er ekki
mikil.
Ó.B.
fffif
REFJARÍKA
OFAR EÐLILEGU
ÞYNGDARTAPI
EÐJANDI OG
BRAGÐGOTT
'Þtjpihdir
LLAR MATARAHYGGJUR
ÚRSÖGUNNI
Rmn Heildverslun
siiii sir™'
Vandaöurbæklingurmeö upp-
lýsingum og leiðbeiningum á
islensku fylgir.
FÆST í APÓTEKUM OG BETRI MÖRKUÐUM
! ITAEININGAR í
LÁGMARKI
NGAR AUKAVERK/
Njarðvík:
Tvö frystihús hafa
hætt starfeemi
Keflavík.
UM 20 manns voru skráðir at-
vinnulausir hjá Njarðvíkurbæ í
október ogþar afvoru 11 útlend-
ingar. Tvö frystihús hafa hætt
starfsemi í Njarðvík á síðasta
ári, Sjöstjarnan og R.A. Péturs-
son, en þau voru sem kunnugt
er seld á nauðungaruppboði.
Hjördís Ámadóttir félagsmála-
fulltrúi sagði að uggur væri í mönn-
um með ástandið sem væri ekki
gott. Flestir sem væm á skrá hefðu
starfað við fiskiðnað og hefðu misst
vinnuna í kjölfar þess að fyrirtækin
hættu vinnslu. Nú væm horfur á
að nokkur þessara fyrirtækja
myndu hefja vinnslu að nýju og því
væri útlit fyrir að hluti fólksins
fengi atvinnu aftur.
Hjördís sagði ennfremur að með-
al þeirra sem væm skráðir atvinnu-
lausir væm eldri konur sem ekki
virtust gjaldgengar á vinnumarkað-
inum og þær virtust eiga ákaflega
erfitt með að fá vinnu.
BB