Morgunblaðið - 08.11.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1988
21
70% þingmanna kölluðu inn varamenn:
105 þingmenn 1987-1988
Fjórðungur þingheims varamenn þegar þeir voru flestir
Guðrún Helgadóttir, forseti
Sameinaðs þings, hefur unnið
samantekt um Qarvistir þing-
manna og innköllun varaþing-
manna á síðasta þingi. Þar segir
srmrsm-'-
y
I y...
„Blómgun“ eftir Siguijón Ólafs-
son
„Blómgnn“ við
Menntaskól-
ann við Sund
Listaverkið „Blómgun“ eftir
Sigurjón Ólafsson var afhjúpað á
lóð Menntaskólans við Sund föstu-
daginn 4. nóvember. Verkinu var
valinn staður framan við aðalinn-
gang skólans gegnt gatnamótum
Gnoðarvogs og Skeiðarvogs.
Frummynd „Blómgunar" var unn-
in í tré, og lauk listamaðurinn við
hana árið 1978.
Menntaskólinn við Sund sótti vorið
1987 um framlag til þessa verkefnis
til Listskreytingasjóðs ríkisins og
hlaut umsóknin jákvæðar undirtekt-
ir. Að loknum samningum við Birg-
ittu Spur, ekkju Siguijóns Ólafsson-
ar, um réttinn til að stækka og en.dur-
gera verkið, var leitað til Erlings
Jónssonar, myndhöggvara, um að
gera gifsafsteypu af verkinu í tvö-
faldri stærð. Fyrirtækið Kristiania
Kunst- og Metalstöberi a/s í Osló sá
síðan um að steypa verkið í brons.
í frétt frá Menntaskólanum við
Sund segir að fljótlega eftir að um-
ræða hafí hafist innan skólans um
að fegra umhverfi skólahússins með
því að setja þar upp listaverk, hafi
hún hneigst í_þá átt að velja verk
eftir Siguijón Ólafsson. Þar hafi fyrst
og fremst komið til vissan um að
Siguijón sé einn alfremsti listamaður
sem þjóðin hafi átt, en einnig að
með því að velja verk eftir hann
væri lagður fram dálítill skerfur til
þess að Listasafn Siguijóns Ólafs-
sonar gæti orðið að veruleika. Einnig
hafi verið höfð í huga sú staðreynd
að starfsvettvangur beggja aðila,
listamannsins og skólans hafi verið
og sé „með Sundum".
Morgunblaðið biðst afsökunar á
mistökum (frétt á bls. 2 í sunnudags-
blaðinu, sem mynd af þessu lista-
verki birtist með.
TOPP
LYKLASETT
m.a. að 44 þingmenn, eða 70%
þingmanna, hafi kallað inn vara-
menn, tímabundið, vegna ýmiss
konar fjarvista.
Auk 63 aðalmanna sátu 42 vara-
menn á síðasta þingi. Samtals sátu
því 105 þingmenn á 110. löggjafar-
þingi Islendinga. Flestir urðu
varaþingmenn 16 talsins, sem var
Qórðungur þingheims.
Þetta er mun hærra hlutfall
varamanna en gengur og gerist á
þingum Norðurlanda.
Framangreindar tölur um fjölda
varaþingmanna á síðasta þingi
standa til þess að 5,6 varaþingmenn
hafi að meðaltali setið á Alþingi
hvem starfsdag þess.
Forföll þingmanna voru einkum
af þrennum toga: 60% vegna opin-
berra erinda erlendis, 30% vegna
veikinda, 10% af öðrum ástæðum.
Flestir urðu varamenn um miðjan
marzmánuð sl., 16 talsins, eða fjórð-
ungur þingheims. Seta varaþing-
manna dreifðist eðlilega milli þing-
flokka, miðað við stærð þeirra.
Þingmenn þéttbýlis tóku sér ívið
oftar varamenn en stijálbýlisþing-
menn, en þeir em 46% þingheims
en með 52% af innkölluðum vara-
mönnum. Ráðherrar kölluðu oftar til
varaþingmenn en aðrir. Þeir voru
17% þingmanna en 29% varamanna
komu inn fyrir þá. Steingrímur Her-
mannsson, sem lengst gekk í þessu
efni, kallaði fjórum sinnum inn vara-
mann. Raunar kölluðu allir ráðherr-
amir inn varamenn nema Jóhanna
Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra.
Á kjörtímabilinu 1983-87 vóru
aðeins fjórir þingmenn, sem aldrei
tóku inn varamenn: Egill Jónsson,
Jóhanna Sigurðardóttir, Stefán Guð-
mundsson og Þorvaldur Garðar
Kristjánsson.
Á síðasta þingi 1987-88 sátu að-
eins 19 þingmenn allt þingið: Tveir
þingmenn Alþýðuflokks, fjórir þing-
menn Framsóknarflokks, sex þing-
menn Sjálfstæðisflokks, tveir þing-
menn Álþýðubandalags, þrír þing-
menn Borgaraflokks og tveir þing-
menn Samtaka um kvennalista.
í flestum tilfellum tók fyrsti vara-
maður sæti aðalmanns. í einu tilfelli
annar varamaður. í tveimur þriðji
varamaður. Ef síðari varamaður
kemur til þings þarf fyrri varamaður
að hafa lögleg forföll.
I samantekt þingforseta kemur
fram að þigmenn á öðrum Norður-
landaþingum hafa mun færri fjar-
vistir en hér tíðkast. Þannig mættu
15 varamenn í danska þinginu, sem
er fjölmennara en það íslenzka, á
sama tíma og 42 mættu til leiks á
Alþingi.
I samantekt þingforseta segir og
að gróf (og umdeilanleg) talning sýni
að erfitt sé að flokka allt að helming
fjarvista sem „nauðsynlegar“.
Keflavík:
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Milljónaljón varð er eldur kom upp á matvörulager í einni af
verslunum Kaupfélags Kefiavíkur á sunnudag.
Milljónaljón í eldsvoða
Keflavík.
MILLJÓNATJÓN varð í eldsvoða
í einni af verslunum Kaupfélags
Treglá
loðnunni
LOÐNUVEIÐI er treg um
þessar mundir. Lítið finnst
af loðnunni og það litla sem
finnst er dreift og illveiðan-
legt. Alls hafa 75.500 tonn
veiðzt á vertíðinni.
Á laugardag fór Kap II VE
með 350 tonn til Bolungarvík-
ur, Bergur VE 510 til
Reykjavíkur og Skarðsvík SH
550 til Sigluijarðar.
Á sunnudag fór Háberg GK
með 600 til Grindavíkur,
Víkurberg GK 500 til Bolung-
arvíkur, Hilmir II SU 150 til
Reykjavíkur og Harpa RE 560
suður, löndunarstaður var óá-
kveðinn.
Síðdegis í gær höfðu fjögur
skip tilkynnt um afla: Om KE
fór með 400 til Krossaness,
Gullberg VE 350, Albert GK
650 og Höfmngur AK 750 og
var löndunarstaður þeirra
allra óákveðinn.
Suðurnesja að morgni sunnu-
dags. Slökkvliðið fékk tilkynn-
ingu um eldinn rétt fyrir kl. 6
og þegar að var komið var tals-
vert mikill eldur bakatil og húsið
fiillt af reyk. Greiðlega gekk að
slökkva megineldinn en húsið,
sem var byggt um 1940, var ein-
angrað með torfi og urðu
slökkviliðsmenn að rjúfa þekjuna
á mörgum stöðum til að slökkva
í glóð sem komst í einangrunina.
Brunavakt var höfð við húsið
fram eftir degi á sunnudaginn.
Verslunin var við Hafnargötu 30
og var þar matvöm- og fataversl-
un. Eldurinn er talinn hafa komið
upp í lager matvömverslunarinnar
og þar urðu miklar skemmdir. Guð-
jón Stefánsson kaupfélagsstjóri
sagðist ekki geta gert sér grein
fyrir hversu mikið tjónið væri en
það væri samt upp á margar millj-
ónir. Allar matvömr væm ónýtar
en sér sýndist tjónið í fataverslun-
inni ekki eins mikið. Starfsmenn
vom sjö og munu þeir fyrst um sinn
starfa í öðmm verslunum kaup-
félagsins í Keflavík.
Kaupfélagið hefur rekið verslun
í húsinu frá því það var byggt, fyrst
KRON og síðan Kaupfélag Suður-
nesja frá stofnun þess 1945. Húsið
er því nokkuð komið til ára sinna
og hafa verið gerðar á því ýmsar
lagfæringar í gegnum árin.
Skemmdimar urðu aðallega af völd-
um vatns og reyks og nú vinnur
rannsóknarlögreglan í Keflavík að
rannsókn á eldsupptökum. - B.B.
Kardináli
í heimsókn
KARDINÁLI Angólu, Alexandre
do Nascimento, kom i stutta heim-
sókn til íslands á föstudag.
Kardinálinn átti fund með biskupi
íslands, herra Pétri Sigurgeirssyni,
pg einnig ræddi hann við nokkra
íslendinga um hugsanlega stofnun
. íslenskrar deildar í hjálparstofnun
kaþólsku kirkjunnar Caritas.
Tvær bækur
frá Reykholti
Bókaútgáfan Reykholt gefur út
í þessum mánuði tvær bækur.
„Horft um öxl af Hálogalands-
hæð“, æviminningar séra Áre-
liusar Níelssonar og „Skuggann"
skáldsögu eftir Þröst J. Karlsson.
í „Horft um öxl af Hálogalands-
hæð“ lýsir séra Árelíus uppvexti
sínum, námsámm, kennslu og prest-
skap.
AniviúL.A'i'i
NY ÞRÆÐING
Instant Start
mSS^SLoading SyslemSSSSSSl
ÞAÐ NÝJASTA FRÁ SA\YO ER VHR 4100, SEM ER ALGJÖR NÝUNG í VHS MYNDBÖNDUM
Nýja þræðingin frá SANYO gerir það að verkum að tækið vinnur mun hraðar en önnur tæki. T.d. tekur aðeins 1 sek-
úndu að fá myndina á skjáinn, eftir að ýtt hefur verið á “spiiun", sem áður tók 6 sekúndur. Og tækið þitt slitnar minna
við notkun, athugaðu það.
Tækið býður einnig upp á:
* Fullkomna fjarstýringu
* Stafrænan teljara sem telur klst./mfn./sek.
* Skyndiupptöku (QSR), óháða upptökuminni.
* Nákvæma skoðun atriða með skrefspólun.
* 39 rásir.
* Sjálfvirkan stöðvaleitara.
* Eins árs upptökuminni með átta skráningum.
* Hraðspólun í báðar áttir, með mynd.
* Endurtekningu á sama hlutinn (repeat), allt að fimm sinnum.
* Sjáifvirka bakspólun.
* Sjálfvirka gangsetningu við innsetningu spólu.
* Hágæða mynd (High Quality).
* Stafrænt stjórnborð lýsir öllum aðgerðum tækisins.
* Scarttengi.
FÁGAÐ ÚTLIT
Stílhreinna og fyrirferðarminna tæki finnur þú varla. Tækið er 42 cm á breidd (passar í flesta hljómtækja-
skápa), 7,9 cm á hæð og 31,7 cm á dýpt.
SA0YO
SKREFI FRAMAR
<2\
Gunnar Asgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16
108 Reykjavík. Simi 680780.