Morgunblaðið - 08.11.1988, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSfflPn/AIVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 1988
Er lottósparnað-
urinn það
sem koma skal?
I Danmörku hafa að undanförnu farið fram nokkrar umræður um
nýtt sparnaðarform, svokallaðan lottósparnað, en hann hefur gefist
ákaflega vel þar sem hann hefiir verið reyndur og stóraukið spariQ-
ármyndun í bönkum. Er hann í því fólginn, að þeir, sem leggja inn
ákveðna upphæð mánaðarlega á sérstaka reikninga, eru þar með
orðnir þátttakendur í lottói og geta ef heppnin er með hlotið allveru-
lega vinninga. Sumir stjórnmálamenn í Danmörku taka svo djúpt i
árinni að segja, að lítill einkasparnaður í landinu sé allt að því þjóð-
arógæfa og því ekki að undra, að þeir skuli sýna þessari nýjung
nokkurn áhuga. Eru þó ýmis ljón í veginum að þeirra mati.
I Svíþjóð er sá háttur hafður á,
að inn á lottóreikinginn má mest
leggja rúmar 5.000 kr. ísl. í mán-
uði hveijum og getur hæsti vinning-
urinn numið allt að sjö milljónum
ísl. kr. Síðan lottóspamaðurinn var
tekinn upp þar í landi árið 1985
hafa Svíar sparað með þessu móti
hvorki meira né minna en sem svar-
ar til 173 milljarða ísl. kr.
Norðmenn em nú að huga að því
að taka þetta fyrirkomulag upp og
Landssamband banka og sparisjóða
í Danmörku sendi nýlega spamað-
amefnd ríkisstjómarinnar erindi
um þetta mál.
„Lítil sparifjármyndun í Dan-
i mörku er svo stóralvarlegt mál,
nokkurs konar þjóðarógæfa, að við
hljótum að fagna hverri tillögu til
úrbóta," sagði Anders Fogh Ras-
mussen, skattamálaráðherrann
danski, þegar málið var borið undir
hann en benti jafnframt á, að í
Danmörku væri hætt við, að þetta
fyrirkomulag sætti nokkmm mót-
bámm. Fyrir það fyrsta yrði það í
beinni samkeþpni við aðra happ-
drættisstarfsemi, til dæmis knatt-
spymugetraunimar, og stangaðist
■, auk þess á við fyrirhugað ríkislottó,
Niels Helveg Petersen, efnahags-
málaráðherra dönsku stjómarinnar,
hefur einnig mikinn áhuga á lottó-
spamaðinum og talsmaður danska
íhaldsflokksins í skattamálum,
Christian 0. Aagaard, segist styðja
hugmyndina heilshugar.
„Að verðlauna spamaðinn með
þessum hætti er hið mesta þjóðráð
og vonandi verður það ekki til að
setja stein í götu ríkislottósins en
Fyrirtæki
HaJiiarbakki
hf. tekur
til starfa
ÞANN 8. september síðast-
liðinn var stofiiað hlutafélag-
ið Hafiiarbakki, sem er í
meirihlutaeigu Eimskipafé-
lags íslands hf. Tilgangur
fyrirtækisins er að veita
þjónustu tengda flutningum.
Fyrirtækið mun meðal ann-
ars yfírtaka ýmsa rekstrar-
þætti sem ekki eru hluti af
hinni eiginlegu flutninga-
þjónustu Eimskips.
Til dæmis mun fyrirtækið
annast innflutning og dreifíngu
á salti, sem Eimskip hefur
stundað undir nafninu Eimsalt.
Einnig mun fyrirtækið annast
rekstur frilagers fyrir farm-
flutningaskip, gáma- og tækja-
leigu auk alhliða þjónustu við
frystiskip. Stjórnarformaður
hins nýja fyrirtækis er Halldór
H. Jónsson, og framkvæmda-
stjóri Bragi Ragnarsson fyrrum
forstöðumaður skrifstofu Eim-
skips í Roterdam.
Fyrirtækið hefur aðstöðu við
Suðurhöfn Hafnarfjarðar, en
þar er nú í byggingu miðstöð
fyrir saltdreifingu, og fyrir-
huguð er bygging farmstöðvar
með kæli- og frystirými. Fyrst
um sinn verða skrifstofur Hafn-
arbakka hf. til húsa að Hvaleyr-
arbraut 23 í Hafnarfírði.
hagnaðurinn af því á að renna til
íþrótta og hjálparsamtaka," sagði
Aagaard.
A þessu máli er önnur hlið en
hún er sú, að í Svíþjóð eru vinning-
amir í lottóspamaðinum aðeins
skattlagðir um 15% en aðrir happ-
drættisvinningar bera 56% skatt.
Torben M. Andersen, prófessor við
Árósaháskóla, segir, að þessi
skattaívilnun hvetji að sjálfsögðu
fólk til aukins sparnaðar með þess-
um hætti en bendir einnig á, að hér
sé í raun um að ræða opinbera nið-
urgreiðslu, sem unnt væri að nota
til að auka annars konar sparnað.
Hann segist þó viðurkenna, að Dan-
ir séu mjög gefnir fyrir spil og happ-
drætti og því sé líklegt, að með
þessu móti sé unnt að auka spari-
fjármyndunina vemlega.
NEONUOS — Segja má með sanni að þessir herramenn setji svip á bæinn. Eigendur Neon-
þjónustunnar auk umsjónarmanns nýju vélarinnar, f.v. Jón Geir Þórisson umsjónarmaður vélarinnar, Karl
Jóhann Karlsson, Sýrus Magnússon og Guðmundur Ó. Baldursson.
Fyrirtæki
Neon-þjonustan hf. fær
tölvustýrða skurðarvél
NEON-ÞJONUSTAN hf. hefúr
tekið í notkun tölvustýrða skurð-
arvél, og segja forsvarsmenn
fyrirtækisins að hún hafi gjör-
breytt möguleikum þess til
skiltagerðar, og bjóði upp á afar
Qölbreytta skurðarkosti, bæði
hvað varðar form og efiii. Vélina
notar fyrirtækið til þess að skera
grunnplötur fyrir neonskilti, og
Verslun
Sjóðsvélafyrirkomulagið
ígagnið fyrir lok ársins
REGLUGERÐ um skyldu versl-
unarmanna til að hafa sjóðsvé-
laútskrift á söluskattsframtali
sínu tók gildi þann 1. október
síðastliðinn. Stór hluti verslana
höfðu þegar tekið upp þennan
hátt á söluskattsframtölum
sínum þegar reglugerðin tók
gildi, þar sem flestar gerðir af-
greiðslukassa hafa nú um nokk-
urra ára skeið haft upp á þenn-
an kost að bjóða.
Að sögn Lárusar Ögmundsson-
ar í fjármálaráðuneytinu er mark-
mið reglugerðarinnar það, að
koma smærri verslunum sem enn
hafa ekki tekið upp sjóðsvélakerfí
til að koma sér upp slíku kerfi,
þar sem það eykur á öryggi í fram-
tali söluskatts. Einnig gerði sjóðs-
vélakerfíð verslunareigendum
hægara um eftirlit með starfsfólki.
Að sögn Jóns Guðmundssonar
forstöðumanns gjaldadeildar
skattstjóraembættisins er reiknað
með að sjóðsvélakerfið verði komið
í fulla notkun fyrir lok ársins.
Hann sagði að greinilegt væri að
menn hefðu tekið vel við sér þegar
reglugerðin tók gildi, því fjöldi
fyrirspuma og upplýsinga um vél-
ar sem þegar eru í notkun hefðu
borist embættinu. Hann taldi að
þeir aðilar sem ekki hefðu brugð-
ist við og sent upplýsingar um sína
hagi í þessum efnum mættu eiga
Leiðrétting
í FRÉTT um sjávarútvegssýning-
una Fish-Expo í viðskiptablaði
Morgunblaðsins á fímmtudaginn
var, fórst fyrir að nefna nöfn
tveggja íslenskra fyrirtækja sem
sýndu á sýningunni. Þetta voru fyr-
irtækin J. Hinriksson og Style hf.,
og er beðist velvirðingar á þessum
mistökum.
von á fyrirspumum frá embættinu
í nóvember, og ef ekkert yrði að
gert yrði ekki löng bið eftir heim-
sókn frá því.
Hugbúnaður
Bæklingur um hugbún-
að fyrir iðnfyrirtæki
LANDSAMBAND iðnaðarmanna
hefúr gefíð út bæklinginn Stutt
og laggott um... hugbúnað fyrir
iðnfyrirtæki, en í honum er að
finna upplýsingar um þann hug-
búnað sem iðnfyrirtækjum
stendur til boða. Er þessi bækl-
ingur sá fjórði í röðinni sem
landssambandið gefúr út undir
samheitinu Stutt og laggott
um..., og eru bæklingarnir fáan-
legir á skrifstofú Landssam-
bands iðnaðarmanna.
í frétt frá landssambandinu seg-
ir, að markmið bæklingsins sé að
fjalla um og koma á framfæri upp-
lýsingum um notkun hugbúnaðar
af þessu tagi, möguleika hans, og
hvers hann krefst af notandanum.
í fréttinni segir, að í bæklingnum
sé fjallað um helstu hugbúnaðar-
kerfí sem eru fáanleg hérlendis og
eru ætluð fyrir iðnfyrirtæki, sérs-
taklega hugbúnað fyrir kostnaða-
reftirlit með sérsmíðaverkum, til-
boðsgerð, verðákvarðanir og fram-
legðareftirlit.
STOKKHOLMUR — Ólöf Baldursdóttir auglýsingateiknari
FÍT hefur opnað stofu í Upplands Vásby, útborg Stokkhólms. Heitir
stofan „99 Design & Reklam AB“ og er hún í óformlegu samstarfí
við markaðsráðgjafa, rekstrarráðgjafa og ráðningarþjónustu. Myndin
sýnir Ólöfu (t.v. ræða við sænsk-ameríska hönnuðinn Silvie Peters og
sænska teiknarann Anders Brinck. Ólöf starfaði um árabil hjá ÓSA,
Ólafi Stephensen Auglýsingar—Almannatengsl.
einnig til útskurðar á ýmsum
skiltum og merkjum af öðrum
gerðum. Vélin getur unnið með
margbreytileg efiii, s.s. tré,
messing, ál og plastfilmur.
Eigendur Neon-þjónustunnar hf.
eru Karl Jóhann Karlsson, Sýrus
Magnússon og Guðmundur Ó. Bald-
ursson. Fyrirtækið var sett á stofn
árið 1975, en þá hafði Karl Jóhann
starfað við neonljósagerð undir
nafninu Neon hf. frá árinu 1952.
Starfsmenn fyrirtækisins eru um
10 talsins, flestir rafvirkjar og mál-
miðnaðarmenn. Fyrirtækið er það
eina sinnar tegundar hérlendis, og
telja forsvarsmenn þess að fyrir-
tækið smíði um eða yfir 90% þeirra
neonskilta sem til eru á landinu.
Vélin, sem kostaði á sjöttu millj-
ón króna, virkar á þann hátt að þau
form sem skera á eru á disklingum,
og við lestur þeirra fær vélin upplýs-
ingar um eftir hvaða ferli hún skuli
skera efnið. Á disklingum eru svo
flestar leturgerðir, en forráðamenn
neonþjónustunnar hafa einnig tengt
einkatölvu með lespenna við vélina,
svo lesa megi hin ýmsu tákn og
merki inn á disklinga. Þannig getur
fyrirtækið geymt merki viðskipta-
vina sinna á disklingum, og útbúið
ný skilti á mun fljótvirkari hátt en
áður hefur verið hægt, t.d. ef það
gamla brotnar. Forráðamenn
Neon-þjónustunnar hf. segja, að
vélin geri þeim fært að bæta
glugga- og bílamerkingum við þjón-
ustu fyrirtækisins. Þeir segja þó,
að mest sé um vert að fyrirtækið
geti nú þjónað viðskipt'avinum
sínum afar fljótt á besta mögulega
máta.
Tölvur
Hugbúnaðar-
kerS fyrir bif-
reiðaverkstæði
KERFISÞRÓUN hf. hefúr sett á
markað Stólpa-hugbúnaðarkerfi
fyrir bifreiðaverkstæði, sem hef-
ur margvíslega tengimöguleika
við önnur kerfi í Stólpa. I frétt
frá Kerfisþróun segir, að þannig
geti kerfið þjónað sem heildar-
lausn fyrir smá og stór fyrirtæki.
Ennfremur segir að kerfin séu
þrjú, bifreiðaskrá, einingaverðskrá
og bókanir/verkbeiðnir/reiknings-
gerð, og kostar hvert þeirra kr.
22.500,-. Helstu kerfin sem tengj-
ast bifreiðakerfinu eru skuldu-
nautabókhald, fjárhagsbókhald,
birgða- og pantanakerfi, launa- eða
starfsmannakerfi og stýriupplýs-
ingar sem ávallt þurfa að fylgja
með. Kerfin ganga á allar IBM sam-
ræmdar einmenningstölvur og einn-
ig á allar helstu fjölnotendavélar.