Morgunblaðið - 08.11.1988, Page 4

Morgunblaðið - 08.11.1988, Page 4
4 T& MORGUNBLAÐIÐ IÞRÓ l f 7I?'¥rI^ÍÍ)AGUR 8. NÓVEMBER 1988 Austurdeildarliðin kynnt: Detroit Pistons sigur- strang- legast Hér fylgjast hörkutólin Kevin Willis hjá Atlanta og Rick Mahom hjá Detro- it með knettinum. Bæði þessi lið hafa augastað á meistaratitlinum og beijast við Boston um sigur í Austurdeildinni. UM helgina hófst keppni í NBA-deildinni f Bandaríkjun- um, en þar leika bestu körfu- knattleiksmenn heims að flestra mati. Morgunblaðið mun fylgjast meö keppni lið- anna 25 í vetur, einkum þegar nær dregur úrslitakeppninni. NBA-deildinni er skipt í tvær deildir, Austurdeild með 12 lið og Vesturdeild með 13 lið, en í hvorri deiid eru tveir riðlar. Leiknir eru 82 í riðlakeppninni áður en úrslitakeppnin hefst í maí. í úrslitakeppninni komast síðan 16 lið, átta íhvorri deild sem bestan árangurinn hafa. Sigurvegara hvorrar deildar - um sig keppa síðan um meist- aratitilinn sjálfan í júní. í dag kynnum við liðin sem leika í Austurdeildinni, en á morgun verða liðin íVesturdeildinni kynnt. Ahugi á keppni í NBA-deildinni hefur aukist mikið hér síðustu ár og eiga sum liðin marga áhang- endur hér á landi. Þá hefur frammi- ____ staða Péturs okkar KARFA Guðmundssonar hjá San Antonio Spurs Gunnar vakið mikla athygH’ Valgeirsson en Þar erum vlð Is’ skrifar lendingar í hópi að- eins fárra þjóða sem eiga leikmann í þessari sterku deild. Ólíkt því sem gerist í keppni há- skólaliðanna í Bandaríkjunum eru ekki miklar sviptingar á styrkleika liða frá ári til árs. Það tekur nokk- um tíma að byggja upp sterkt lið og í vetur má fastlega búast við að sömu lið blandi sér í toppbárátt- una og í fyrra. NBA-deildin hefur sennilega aldrei áður staðið traustari fótum en í dag og tvö ný lið koma inn í deildina í vetur, Charlotte Homets og Miami Heat. Framkvæmdastjóri deildarinnar, David Stem, hefur unnið mjög gott starf síðan hann tók við framkvæmdastjóm fyrir fimm árum, en þá voru miklir erfið- leikar milli leikmanna og eigenda iiðanna. Stem hefur síðan staðið fyrir samkomulagi milli þessara aðila umn kjör og réttindi til næstu sex ára og liðin í deildinni standa betur fjárhagslega en nokkru sinni fyrr. Þá hafa leikmenn meira frelsi en áður að skipta um lið og hefur NBA verið í fararbroddi hvað þetta varðar í atvinnuíþróttum í Banda- ríkjunum. Keppnistímabilið í fyrra var af mörgum talið það besta í sögu deild- arinnar og nýtt met var sett í áhorf- endafjölda á leikjunum. Utslita- keppnin var mjög jöfn og spenn- andi, ný lið blönduðu sér í topp- baráttuna og Los Angeles Lakers tókst að vinna meistaratitilinn ann- að árið í röð, en það hafði engu liði tekist síðan 1968—69. í ár má telja fullvíst að Los angeles, Dallas og Utah verði sterkust í Vesturdeild, en Boston, Detroit og Atlanta í Austurdeildinni eins og í fyrra. Nokkur önnur lið eru á uppleið og má þar nefna Denver, Portland, New York, Cleveland og Chicago. Áður en við spáum í liðin er rétt að skýra það að lið geta ekki keypt sér nýja leikmenn í skjóli peninga- valds. Leikmenn eru venjulega ekki keyptir á milli liða fyrir peninga, heldur er skipt á leikmönnum eða þeir keyptir fyrir svokallaðan drag- rétt í vali á leikmönnum úr háksóla- liðunum. Þannig gæti Boston t.d. selt Danny Ainge til Nes Jersey gegn því að fá fyrsta dragrétt þess félags næsta ár og þar að auki ein- hveija leikmenn. Hér að neðan verður fjallað um liðin 12 í Austurdeildinni og spáð í frammistöðu þeirra fyrir veturinn. Austurdeild Riðlamir tveir í Austurdeildinni eru mjög ójafnir. í Atlantshafsriðl- inum er Boston með langsterkasta liðið, en Miðriðillinn er mjög jafn og örugglega sterkasti riðillinn í NBA-deildinni. Mjög líklegt er að Detroit og Atlanta beijist um sigur í þeim riðli. Atlantshafsriðill Boston mun vinna þennan riðil örugglega og eina spumingin er hvort annað lið fylgi þeim inn í úrslitakeppnina. Boston Celtics Celtics geta ekki lengur reitt sig á að verða með bestan árangurinn í Asturdeildinni. Tvennt kemur þar til: liðið er orðið gamalt og vara- menn ekki upp á það besta (ef ein- hver skyldi ekki vera orðinn þreytt- ur á að heyra þetta!). Auk þessa eru tvö önnur sterk lið hjá Atlanta og Detroit sem eru hungruð í að ginna „græningjana“. Boston á við sama vandamálið að glíma og und- anfarin ár, liðið nær ekki í góða leikmenn í háskólavalinu og getur heldur ekki keypt neinar stórstjöm- ur þar sem það hefur engum al- mennilegum leikmönnum til skip- tanna. Larry Bird mun örugglega eiga enn eitt frábært tímabil en lið- ið mun eiga í erfíðleikum ef nýji þjálfarinn, Jimmy Rodgers, fær ekki meira út úr varamönnunum en K.C.Jones gerði þegar hann var við stjómvölinn. Vegna þess hve liðin í Atlantashafsriðlinum em slök ætti Boston að eiga sigurinn vísan í riðlinum, en þegar í úrslitakeppn- ina kemur verður fróðlegt að sjá hvemig hinum nýja þjálfara hefur tekist til með mannskapinn. New York Knicks. New York olli stuðningsmönnum sínum ekki vonbrigðum í fyrra. Nýji þjálfarinn, Rick Pitino, gerði góða hluti með þetta unga lið. Besti nýliðinn í deildinni í fyrra, bakvörð- urinn Mark Jackson, breytti liðinu mikið. Með tilkomu Jacksons átti stjórstjaman Pat Ewing sitt besta keppnistímabil í deildinni til þessa og í sumar fékk liðið Charles Oa- kley frá Chicago, en hann tók flest frákost í deildinni í fyrra. Oakley er maðurinn sem vantaði í New York, en fráköst vom mikið vanda- mál hjá liðinu í fyrra. Ef hinir fram- verðir liðsins koma til em Knicks til alls líklegt í vetur. Knicks em mikið stemmingslið og fátt jafnast á við fjömgan leik á Manhattan í Madison Square Guarden. Philadelphla 76ers það á ekki af þessu liði að ganga. Framkvæmdastjórar og eigendur liðsins hafa eyðilagt annars gott lið á undanfömnum þremur ámm með vægast sagt einkennilegum ráðstöf- unum. Fyrst var Moses Malone seld- ur, þjálfarinn síðan rekinn, og í fyrra fékk liðið til liðs við sig fimm nýja leikmenn sem New York og New Jersey gátu ekki notað! Varla nema von að Charles Barkley (sem í raun er liðið) sé orðin leiður á vistinni hjá slíkum atvinnurrekend- um. Barklev skoraði flest stig, lék flesta leiki, hitti best og tók flest frákost hjá 76ers í fyrra. Það hefur þó komið í ljós, bæði hjá Fíladelfíu og Chicago, að fleira þarf að koma til en stórleikur eins leikmanns til að lið nái langt. Þó liðið sé e.t.v. ekki alveg á flæðiskeri statt með þá Barkley og Maurice Cheeks, er ljóst að vemlega þarf að styrkja liðið ef það á að komast í úrslita- keppnina og gera einhveijar rósir þar. Washlngton Bullets. Framkvæmdastjórar liðsins hafa byggt liðið upp á kaupum á eldri leikmönnum undanfarin ár. Þegar Moses Malone líkaði ekki sá samn- ingur sem honum var boðinn í sum- ar, pakkaði hann einfaldega í tösk- ur sínar og fór til Atlanta. Bullets standa nú uppi án öflugs miðvarðar og meðan flest lið leita dauðaleit að góðum miðvörðum lét Washing- ton hin geysisterka Malone fara án þess að reyna mikið til að halda honum. Ljóst er að þetta mun koma niður á liðinu í vetur og jafnvel enn lengur. Liðið rétt skreið inn í úrslita- keppnina í fyrra en ólíklegt er að það nái því í vetur. New Jersey Nets. Nets munu eiga í vandræðum eins og undanfarin ár. Liðið hefur átt í miklum erfiðleikum með þann mannskap sem hjá því hefur verið. Leikmennimir hafa lent í erfiðum meiðslum, aðrir hafa neitað nýjum samningum og enn aðrir hafa lent í vandræðum vegna eiturlyfja- neyslu. Langbesti leikmaður Nets er Buch Williams og í síðastu viku keypti liðið miðheijann Joe Barry Caroll frá Houstun í skiptum fyrir þijá minni spámenn. Eini ljósi puntkurinn á nýju keppnistímabili er að nýtt lið er komið í þennan riðil og Nets ættu því að losna við að lenda í neðsta sæti í riðlinum í vetur. Willis Reed á erfitt verkefni fyrir höndum sem þjálfari þessa liðs. Chariotte Homets. Það mun hjálpa til hjá þessu nýja liði í deildinni að það spilar a svæði þar sem hvað mestur áhugi er á körfuknattleik í Bandaríkjun- um. í Norður Karólínu eru mörg bestu háskólalið landsins og geysi- legur áhugi er á íþróttinni í þessu fylki. Stuðningsmenn Charlotte ættu þó ekki að búast við of miklu af liðinu í vetur og jafnvel ekki næstu 2-3 árin, því venjulega tekur nokkur ár að koma upp góðu liði í deildinni. Áhorfendur í nýju íþrótta- höllinni í Charlotte ættu að njóta þess að fá að sjá stórstjömur NBA koma í bæinn, en ekki búast við of mörgum sigrum hjá sínum mönn- um. Miðriðill Hér beijast aðalllega Detroit og Atlanta um sigurinn, en Cleveland og Chicago eru lið á uppleið. DetroH Pistons Á síðasta keppnistímabili veitti Pistons-liðið öðrum liðum innblást- ur. Þeir sýndu að hægt var að vinna. Boston í Áusturdeildinni og einung- is klaufaskapur síðustu 50 sekúnd- umar í sjötta leiknum gegn Los Angeles kom í veg fyrir að liðið ynni titilinn. Forráðamenn liðsins hafa byggt upp mjög sterkt lið sem blandað er ungum og reyndum leik- mönnum með mikið sjálfstraust. Spilinu stjómar hinn frábæri Isiah Thomas, Adrian Dantley skorar stigin undir körfunni, þeir Bill La- imbeer og Rick Mahom sjá um frá- köstin, og Dennis Rodman og John Salley sjá um að keyra upp kantana i hraðaupphlaupum. Detroit verður ekki árennilegur andstæðingur fyrir neitt lið í vetur og eftir að hafa fengið smjörþefinn af því hvemig er að leika í lokaúrslitum má ætla að leikmenn séu hugraðir í meira. Ekki kæmi það neinum á óvart að sjá liðið enn á fullu í úrslitakeppn- inni í júní. Atlanta Hawks Það sem sagt var um styrkleika Pistons-liðsins að framan á einnig við um Hawks. Á pappírnum virkar liðið geysisterkt, enda fékk Atlanta tvo frábæra leikmenn í sumar sem munu eflaust styrkja liðið mikið. Fyrst sömdu forráðamenn liðsins við Moses Malone, sem sex sinnum- hefur unnið frákastatitilinn í deild- inni, og síðan náðu þeir í Reggie Theus frá Sacramento í skiptum fyir Randy Wittman, en Theus hef- ur verið einn besti bakvörðurinn í deildinni undanfarin tíu ár. Þegar haft er í huga að fyrir eru ekki ómerkilegri leikmenn en Doug Ri- vers og Dominique Wilkins, er ljóst að hér er mikið stjömulið á ferðinni og enn sterkara lið en á síðasta keppnistímabili. Með þetta stjömu- lið í höndunum, verður mikil pressa á þjálfaranum, Mike Fratello, að ná enn lengra en í fyrra þegar liðið tapaði í jafnri keppni í átta liða úrslitunum gegn Boston. Chicago Bulls. Chicago hefur verið í stöðugri framför undanfarin þijú ár. 50 sigr- ar á síðasta keppnistímabili var besti árangur liðsins í mörg herrans ár. Liðið fékk í sumar miðvörðinn Bill Cartwright frá New York sem mun styrkja liðið verulega í þeirri stöðu, en Bulls uðru að láta Charles Oakley í staðinn og spruningin er hver mun fylla hans skarð í fráköst- um. Það verður spennandi að fylgj- ast með því hvort þessi leikmanna- skipti komi vel út fyrir Chicago. Það verður hins vegar ekkert í sjálfu sér spennandi að fylgjast með Michael Jordan. Það vita allir sem vilja að fyrir utan að vera besti körfuboltamaður í heimi, er hann óstöðvandi (eða því sem næst!). Bulls leika í takt við frammistöðu Jordan. í fyrra var hann stigahæsti leikmaður deildarinnar, stal boltan- um oftast, var kosinn varamaður ársins og leikmaður stjömuleiksins (þar sem hann var líka stigahæst- ur), setti nýtt met í skomn í fimm leikjum í úrslitakeppni, vann troðslukeppnina og var kosinn leik- maður ársins af leikmönnum og blaðamönnum. Að öðm leiti fór ekki mikið fyrir honum! Cleveland Cavs Liðin í Austurdeildinn ættu að passa sig á Cleveland í vetur. Liðið hefur staðið sig frábærlega fyrir keppnistímabilið og virðist vera til alls líklegt í vetur. Fyrir nokkmm ámm vom Cavs hörmung, en með góðu vali úr háskólunum og góðum kaupum á leikmönnum hefur fram- kvæmdastjóramm tekist að byggja upp ungt og skemmtileg lið. Það er engin sérstakur stjörnuleikamður í liðinu, en þar em heldur engin veikleikamerki lengur eftir tilkomu Larry Nance frá Phoenix. Fýlgist vel með þessu liði í vetur. Milwaukee Bucks Buck komust ekki í úrslitakeppn- ina í fyrra, en það hafði ekki gerst í tíu ár. Ólíkt hinum liðunum í riðlin- um em Bucks frekar á niðurleið ef eitthvað er. Don Nelson, fyrmm þjálfari, er farinn og Sidney Monc- rief hefur átt við mikil meiðsl að stríða undanfarin tvö ár. Þetta tvennt hefur fyrst og fremst komið í veg fyrir að liðinu gangi vel. Del Harris þjálfari hefur átt í erfiðleiku- um og staða Bucs svipar mjög til stöðu Boston, of gamlir leikmenn og fáir til að nota í leikmanna- skipti. Það munu fyrst og fremst Terry Cummings, Paul Pressey og Jack Sikma sem munum halda merki Milwaukee á lofti í vetur. Indlana Pacers Þetta lið kom mest á óvart í fyrra með slakri frammistöðu. Búist var við að liðið myndi bæta sig enn miðað við árið áður, en liðið tapaði þremur fleiri leikjum en þá. Liðið er með góða einstaklinga og má fastlega búast við að það reyni leik- mannaskipti áður en langt er liðið á keppnistímabilið. Hallast flestir að því a ð Wayman Tisdale verði notaður sem „beita“ í leikmanna- skiptum. Það verður sennilega mjótt á munum að liðið skríði inn í úrslitakeppnina nú.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.