Morgunblaðið - 12.11.1988, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1988
17
eftir Halldór Blöndal
Það er nú komið í ljós, að stuðn-
ingurinn á bak við ríkisstjóm
Steingríms Hermannssonar er ekki
heill. Fyrir því eru eðlilegar ástæð-
ur. Ríkisstjómin var ekki mynduð
/um sérstök markmið, heldur stofn-
að til hennar í flýti. Það stingur
einkum f augu, að forsætisráðherra
hefur lýst yfir, að aðgerðir hennar
í efnahagsmálum duga hvorki í bráð
né lengd. Hann tímasetur næstu
aðgerðir á vordögum. Ég er sann-
færður um, að gengið verði fellt
ekki síðar en í janúar.
Ég hef áður sagt, að hlutskipti
Halldórs Ásgrímssonar sé ekki öf-
undsvert. Hann bar ekki gæfu til
að taka höndum saman við sjálf-
stæðismenn í síðustu ríkisstjóm og
knýja fram nauðsynlegar leiðrétt-
ingar á rekstrargmndvelli sjávarút-
vegsins. Hann kaus með öðmm
orðum að fara í sporaslóð
Steingríms Hermannssonar. Það er
ekki gæfulegt hlutskipti.
Allir vita, að sjávarútvegurinn
er rekinn með halla. Auðvitað geng-
ur það ekki. Raddir um að halda
genginu óbreyttu eftir að það er
fallið sýna einungis að þeim fer
fjölgandi sem ekki em lengur og
hafa jafnvel aldrei verið í lifandi
snertingu við það atvinnulíf, sem
heldur þjóðinni uppi, — lífið til sjós
og í sjávarplássunum. Á meðan við
treystum okkur ekki til að gefa
gengið frjálst, sem mér fínnst heill-
andi tilhugsun, — tilhugsun, sem á
sér mikið fylgi úti á landsbyggðinni
og er í anda ftjálshyggjunnar, —
er óhjákvæmilegt að gengisskrán-
ingin sé við það miðuð, að vel rekið
fyrirtæki í sjávarútvegi sé rekið
HaUdór Blöndal
„Þessar aðgerðir munu
því þyngja vaxta- og
fj ármagusbyrði fyrir-
tækjanna gagnstætt því
sem látið er í veðri
vaka. Sannleikurinn er
auðvitað sá, að þau
vantar ekki meiri lán í
áframhaldandi halla-
rekstri. Þvert á móti
verður að gera ráðstaf-
anir til þess að stöðva
hallareksturinn og gera
fyrirtækjunum kleift
að bæta eiginfjárstöðu
sína.“
með hagnaði. Heilbrigð byggða-
stefna verður ekki rekin án þess
og heldur ekki heilbrigt atvinnulíf
í landinu yfír höfuð að tala.
Ég tók eftir því, að forsætisráð-
herra er undrandi á, að togarar
skuli fara frá Keflavík norður, af
því að útgerðin hefur ekki ráð á
að reka þá lengur. Ég held það sé
ástæðulaust fyrir ráðherrann að
hneykslast á því. Þetta er einungis
afleiðing af stjómarskiptunum og
því ábyrgðarleysi og lausung sem
einkenndi störf ráðherra Framsókn-
arflokks og Alþýðuflokks sl. sumar.
Hvorki Steingrímur Hermannsson
né Jón Baldvin Hannibalsson geta
skotið sér undan ábyrgðinni. Fyrstu
verk nýju stjómarinnar, málflutn-
ingur hennar og tillögur staðfesta,
að í henni er engihn skilningur á
þörfum útflutningsatvinnuveganna.
Atvinnutryggingasjóður á að
bjarga öllu, segir ríkisstjómin og
býður fram verðtryggð lán eða
gengistryggð auk skuldabréfa upp
á 5 milljarða sem fyrirtækin geta
ekki losnað við nema með meiri
afföllum en nú þekkjast á fjár-
magnsmarkaðnum. Þessar aðgerðir
munu því þyngja vaxta- og fyár-
magnsbyrði fyrirtækjanna gagn-
stætt því sem látið er í veðri vaka.
Sannleikurinn er auðvitað sá, að
þau vantar ekki meiri lán í áfram-
haldandi hallarekstri. Þvert á móti
verður að gera ráðstafanir til þess
að stöðva hallareksturinn og gera
fyrirtækjunum kleift að bæta eig-
infjárstöðu sína.
Höfundur er varaformaður þing-
Bokks SjálfstæðisBokksins.
Ríkisstjórnin hefur eng-
an skilning á þörfum út-
flutningsatvinnuveganna
Albert Guðmundsson sendiherra?
eftirJónA.
Gissurarson
Albert Guðmundsson íhugar nú
tilboð utanríkisráðherra að þiggja
sendiherrastöðu íslands í París. En
ber ekki brýna nauðsyn til að Al-
bert sé hér tiltækur sem aðalvitni
í Hafskipsmálinu sem innan tíðar
verður dómtekið?
Árið 1980 gerðist Albert formað-
ur bankaráðs Útvegsbanka íslands
en var þá þegar stjómarformaður
Hafskips hf. Samskipti þeirra leiddu
til gjaldþrots beggja. Albert kynni
og að þurfa að varpa skýrara ljósi
á einkaviðskipti sín við félag sitt,
Hafskip hf., en slík dul hvíldi yfir
þeim að sum vom færð á leynireikn-
ing.
Þá er það forseti Frakklands.
Væri honum ekki sýnd lítilsvirðing
að senda honum Albert Guðmunds-
son áður en Albert gæfist tóm til
að hreinsa mannorð sitt fyrir rétti?
Það er því í allra þágu, ekki síst
Alberts sjálfs, að hann hafni boði
utanríkisráðherra uns réttarhöldum
er lokið.
Þótt utanríkisráðherra kynni að
sjá sér leik á borði að styrkja veika
stöðu ríkisstjómar á Alþingi með
því að senda Albert Guðmundsson
til Parísar, þá er það í æpandi and-
stöðu við almenningsálit. Það vænt-
ir þess að sömu réttarreglur gildi,
hvort sem „litli maðurinn" á hlut
að máli eða stóri.
Höfundur erfyrrv. skólastjóri
Gagnfræðaskóla Austurbæjar.
Frá basar Þjónustuíbúða aldraðra á Dalbraut 27, sem haldinn var
í fyrra.
Basar aldraðra á Dalbraut
ÁRLEGUR basar Þjónustuíbúða góðra muna, m.a. ofnar mottur og
aldraðra á Dalbraut 27 í dúkar, silkislæður og silkikort,
Reylq'avík verður haldinn þar í peysur, skartgripir og munir úr
dag, laugardag, kl. 14.00. tré, allt á góðu verði.
Að vanda er úrval eigulegra og
Gerðuberg;
Tvö íslensk
verk frumflutt
TVÖ ÍSLENSK tónverk verða
frumflutt í menningarmiðstöðinni
Gerðubergi næstkomandi sumiu-
dagskvöld klukkan 20.30. Er það
átta manna hópur sem flytur verk-
in, sem eru eftir þá Atla Heimi
Sveinsson og Hjálmar H. Ragnars-
son. Auk þess verður Silunga-
kvintett Schuberts á eftiisskránni.
Verk Atla Heimis nefnist „Ljóm-
ur“ og er fyrir klarinettu og strengja-
kvartett og „Tengsl" er heitið á verki
Hjálmars, sem er fyrir alt-rödd og
strengjakvartett, við ljóð Stefáns
Harðar Grímssonar.
Flytjendur eru Gerður Gunnars-
dóttir, Sean Bradley, Helga Þórarins-
dóttir, Nora Komblueh, Jóhannes
Georgsson, Anna Guðný Guðmunds-
dóttir, Jóhanna Þórhallsdóttir og Sig-
urður I. Snorrason.
PHILCO
kæliskápar
EKKI
VERÐSIÖÐVUN
Afborgunar verð:
áður kr. 42.705.-
nú kr. 37.850.-
Stgr. kr.
35950
FR320
Kæli- og frystiskápur
330 lítra. 55 lítra 3ja stjömu frystir.
Frystigeta -24° C (3,5 kg. á 24 klst)
• Hitastigsstillir. • Sjálfvirk afþýöing. • Færan-
legur eggjabakki. • Tvær graenmetis- og
ávaxtaskúffur. • Hægt aö velja á milli vinstri
eða hægri handar opnunar á hurð. • Mál:
breidd x hæð x dýpt: 60 x 157 x61
Afborgunar verð:
áður kr. 30.550.-
nú kr. 27.300.-
Stgr. kr.
25940
FR 240:
240 litra kæliskápur
16 lítra einnar stjömu frystir.
Frystigeta —12° C.
• Hitastigsstillir. • Afþýðing með einum
hnappi. • Grænmetis- og ávaxtaskúffur.
• Hægt að velja um vinstri eða hægrihandar
opnun á hurð. • Mál: breidd x hæð x dýpt:
55x120x61
<a
Opið, laugardag:
Kringlan kl. 10-16
Sætún kl 10-13
Heimilistæki hf
3 • Kringlunni
SlMI. 6915 20
Ó SOMUttgUtK>
Sætúni8 • Hafnarstræti 3 • Kringlunni
SÍMi: 6915 15 SÍMI-.691S25 SlMI.691520