Morgunblaðið - 12.11.1988, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1988
41
búa í Brekku, Þykkvabæ og Pjóla
sem er gift Kristni Guðnasyni og
búa í Skarði, Landmannahreppi.
Húsmóðir og móðir var hún sannar-
lega, þar naut hún sín, hún var
mikil starfsmanneskja og hann-
yrðakona. Nú að leiðarlokum veit
ég að líf og störf Borghildar í
Brekku verða fjölskyldu hennar að
leiðarljósi, þannig geyma þau minn-
ingu hennar.
Fjölskyldan í Skarði eignaðist
sanna vinkonu, sem aldrei brást,
þannig kom hún inn í líf okkar
traust og hlý. Við þökkum sam-
fylgdina, sendum innilegar samúð-
arkveðjur til eiginmanns, barna og
fjölskyldna þeirra með ljóðlínum
Einars Benediktssonar.
Af eilífðar ljósi bjarma ber,
sem brautina þunp greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri, en augað sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
Sigríður Th. Sæmundsdóttir
Hún amma í Brekku er dáin.
Skrýtið verður að koma í heim-
Nú opnar fangið fóstran góða
og faðmar þreytta bamið sitt.
Hún býr þar hiýtt um btjóstið móða
og blessar lokað augað þitt.
(Þ.E.)
Runólfi og öllum ættingjum sendi
ég mína dýpstu samúð.
Kristín
Minning:
Borghildur Tómasdótt-
irBrekku — Minning
og munu margir minnast þess. Hún
átti 4- börn og þau eru, Guðmund-
ur, sem dó í frumbernsku, Sverrir
sem er giftur Björgu Sveinsdóttur
og búa í Reykjavík, Þóra Kristín
sem er gift Agústi G. Helgasyni og
sókn til afa í Brekku þegar amma
er ekki lengur þar. Alltaf var jafn
gott að koma til ömmu og við hlökk-
uðum til að fá hana í heimsókn til
okkar.
Allt sem amma gerði var jafn
fallegt og gott, kleinumar góðu og
kökurnar, fallegu hlýju vettlingam-
ir' og sokkarnir sem hún pijónaði
handa okkur og dúkarnir sem hún
heklaði sem em svo fallegir.
Hún fylgdist alltaf með hvemig
okkur gengi í öllu sem einu og eft-
ir hestamót og þegar við fengum
skólaeinkunnir var hún^alltaf jafn
ánægð. Við vissum að amma hafði
beðið fyrir okkur og þó svo að hún
sé ekki meðal okkar lengur vitum
við að hún fylgist með okkur og
verndar okkur.
Ef eitthvað bjátaði á trúði hún
því að allt mundi lagast og fara á
sem bestan veg, því hún sá alltaf
eitthvað gott í öllum og t öllu.
Nú nálgast jólin og án ömmu
verður margt öðruvísi. En við trúum
að hún fylgist með okkur og gleym-
um ekki því sem hún var okkur,
hún sá alltaf það góða og bað okk-
ur um að varðveita það.
Systkinin í Skarði
Hún andaðist á Sjúkrahúsi Suð-
urlands 2. nóvember og verður út-
för hennar gerð í dag, laugardaginn
12. nóvember, frá Hábæjarkirkju í
Þykkvabæ.
Borghildur var fædd 17. nóvem-
ber 1907 á Stóra Hofi á Rangárvöll-
um dóttir hjónanna Tómasar Þórð-
arsonar og konu hans Guðríðar
Ingimundardóttur, sem síðar
bjuggu á Hamrahól í Ásahreppi.
Fýrstu æskuárin átti hún heima í
Hamrahól í faðmi kærra foreldra
og systkina, hún var elst og hin eru
Ragnheiður, Guðný Rósa, Guðrún,
Sigríður, Þórður og Sigurður og lifa
þau systur sína.
Þegar Borghildur er 8 ára gömul
missir hún móður sína, dreifast þá
systkinin og fer þá hún í fóstur til
föðurbróður síns Brynjólfs og konu
hans Sigríðar, sem bjuggu á Gelti,
Grímsnesi. Þar var hún ein af böm-
um þeirra hjóna eins og þessi litla
vísa segir, sem Símon Dalaskáld
orti þegar hann var gestur á Gelti.
Borghildur er brosandi,
blómum lík í haga.
Er á Gelti í Grímsnesi,
góða hefur daga.
Þar naut hún þeirra almennu
fræðslu, sem þá var og lærði þar
til allra almennra verka og var það
góður skóli, því heimilið á Gelti var
menningar og myndar heimili. Fóst-
urforeldra og fóstursystkina minnt-
ist Borghildur alltaf með þakklátum
huga.
Um tvítugt flytur Borghildur
heim að Hamrahól til föður síns og
stjúpu Jórunnar Ólafsdóttur og
hálfsystkinanna Guðjóns og Guð-
rúnar, voru þá sum af systkinum
komið heim aftur, þar sameinuðust
systkinin aftur hjá föður og stjúpu,
sem öll voru Borghildi kær.
Hún á heima í Hamrahól um
tíma, en sækir vinnu annað. Vann
hún við heimilisstörf. Hún var góð-
ur starfskraftur og naut sín við
Fædd 17. nóvember 1907
Dáin 2. nóvember 1988
Aðfaranótt miðvikudags 2. októ-
ber lést í sjúkrahúsi Suðurlands á
Selfossi Borghildur Tómasdóttir,
Brekku, Þykkvabæ. Hún fæddist
17. nóvember 1907 gift Runólfi
Þorsteinssyni á Brekku. Bjuggu þau
þar alla tíð. Mig langar að minnast
hennar með fáum orðum.
Æskuheimili mitt er við hliðina
á Boggu heimili og man ég ekki
öðruvísi eftir mér en með hana mér
við hlið. Því eins og við sögðum svo
oft var ég nánast „heimagangur"
þar sem barn og í gegnum tíðina.
Ávallt var hún með útbreiddan
faðminn tilbúin að hugga og hug-
hreysta ef eitthvað bjátaði á hjá
okkur krökkunum í kringum hana.
Hún var raunar allt í senn, mamma,
amma og umfram allt góður vinur
og félagi. Þótt árin væru kannski
mörg á milli okkar, var hún yndis-
leg kona, alltaf svo ung og skildi
okkur svo vel.
Bogga bjó alla tíð við góða heilsu
og sjaldnast féll henni verk úr
hendi, og orðið þreyta hefur varla
verið til í hennar orðaforða. Það
var ekki fýrr en nú á síðustu mánuð-
um að heilsu hennar fór að hraka.
Þrátt fyrir það var hún alltaf jafn
dugleg. Vissulega geymi ég margar
dýrmætar minningar frá okkar
löngu kynnum en þær eru mín einka
eign. Það væri ekki eftir hennar
forskrift að tíunda þær hér.
Elsku Boggu þakka ég allt og
allt.
heimilisstörfín, átti fagrar minning-
ar og góða vini frá þeim fjölskyldum
sem hún vann hjá. Þannig var Borg-
hildur, velgefin og velvinnandi og
sá alltaf það góða í fari hvers og
eins.
Árið 1935 flyst Borghildur að
Brekku í Þykkvabæ, þar sem Run-
ólfur Þorsteinsson bjó með móður
minni Katrínu, ári síðar gifta þau
sig og hefja búskap á Brekku. Var
Katrín hjá þeim í hárri elli til ævi-
loka og var rúmföst síðustu árin,
var alveg sérstakt hvemig Borg-
hildur annaðist hana.
Borghildur var mikil húsmóðir
og var búskapur Runólfs og Borg-
hildar til fyrirmyndar, þau hjón
voru samhent um margt sérstak-
lega voru þau miklir dýravinir og
vildu láta dýrunum líða vel. Gestris-
in og skemmtileg heim að sækja
LEYFUM SPARJFÉNU AD VAXA!
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavík, Sími 68 15 30
Jre‘
ber!
EÐ HVERNIG
SPARIFÉ VEX
Lesum um það
VIB gefur ut fréttablað í
hverjum mánuði undir
ritstjórn dr. Sigurðar B.
Stefánssonar. Mánaðar-
fréttirnar eru 8 síðna blað
með upplýsingum frá fyrstu
hendi á skýru og greinar-
góðu máli. I mánaðarfrétt-
unum erfjallað um peninga-
mál og efnahagsmál, vexti
og verðbólgu, skattamál og
annað sem sparifjáreigend-
ur þurfa að láta sig varða.
Glögg reikningsyfirlit
Allir sem stofna „Verð-
bréfareikning” hjá VIB fá
einnig sendyfirlit reglulega.
I þeim kemur fram kaup-
dagur verðbréfa, tegund
skuldabréfa eða hlutabréfa,
næsti gjalddagi, nafnverð,
gengi og uppreiknuð heild-
areign ásamt heilræðum frá
ráðgjafa VIB.
Helstu VIB
nóveml
Frettir
Þjónusta sparifjárcig-
enda er dýrmæt þjóðar-
búinu bls. 1
Ætla stjórnvöld ckki aö
skattleggja lekjur af' er-
lendú sparifé á Islandi? bls. 1
Helstu verðbréf hjá VIB bls. 2
Yfirlit um innlend liluta-
og skuldabrcf bls. 3
Hlúa þarf vcl að hags-
nutnum sparifjáreig-
enda bls. 4
Lækkun vaxta af spari-
skírtcinum og banka-
brcfum bls. 6
Vcrðbólgan árið 1989 bls. 7
Gcngi krónunnar og
dollarans bls. 7
V'elgengni Hlutabrcfa-
sjóðsins, dæmi um góða
ávöxtun bls. 8
Útskýringar á tölum?
Verið velkomin í VIB.
Hringiðí681530eðakomið
við. Það getur komið þægi-
lega á óvart. ■