Morgunblaðið - 12.11.1988, Page 48
48
MORGUNBLABIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1988
fclk f
fréttum
FRAMHALDSSKÓLAR
Stúlkurnar í Fjölbrautaskóla Breiðholts sigruðu í kvennaflokki eftir
harða keppni við Verkmenntaskólann á Akureyri.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
DANSLEIKIR FYRIR BÖRN Á BORGINNI
Undanfarna tvo sunnudaga hefur verið mikið um að vera á Hótel
Borg og verða haldnir þar dansleikir milli klukkan þijú og fimm
hvern sunnudag í vetur. Yngstu kynslóðinni er boðið til skemmtunar og
leikur hljómsveit Andra Bachmann fyrir dansi. Boðið er upp á ýmis
skemmtiatriði fyrir börnin, atriði frá hæfileikakeppni Hólabrekkuskóla og
söngur og grín. Trúðurinn Jógi mætir á svæðið, á hjólaskautum, sprellar
fyrir börnin og býður þeim upp í dans. Svo geta börnin fengið kökur og
kaffi ef þau verða svöng eftir að hafa stigið dansspor á gólfinu. Eins og
sjá má á myndinni er líf og fjör hjá börnunum á Borginni.
MS vann karlaflokk
og FB kvennaflokk
Urslitaleikirnir í framhalds-
skólamótinu í knattspyrnu
fóru fram í Keflavík helgina
28.-30. október. Úrslitin urðu þau
að Menntaskólinn við Sund sigr-
aði í karlaflokki og í kvenna-
flokki sigruðu stúlkurnar í Fjöl-
brautaskóla Breiðholts.
Upphaflega hófu 19 lið leikinn í
karlaflokki og komust 6 í úrslit, en
í kvennaflokki voru liðin 15 sem
hófu keppnina, en 4 komust alla
Ieið í úrslit. Leikið var á malarvellin-
um í Keflavík við flóðljós og var
veður tiltölulega gott miðað við
árstíma. Til úrslita í karlaflokki léku
Menntaskólinn við Sund gegn Fjöl-
brautaskóla Breiðholts sem hafði
sigrað í þessari keppni tvö ár í röð.
Strákamir í Breiðholti höfðu yfir í
hálfleik, 2:1, og skomðu þeir Matt-
hías Matthíasson og Ragnar Bald-
ursson mörk FB, en Bjöm Einars-
son skoraði eina mark MS. I síðari
hálfleik náði MS að skora þrívegis
án þess að FB tækist að svara fyr-
ir sig og tryggja sér þar með sigur
í mótinu. Mörk MS í síðari hálfleik
skoruðu þeir Björn Einarsson, Þórð-
ur Birgir Bogason og Steinar
Helgason.
Hörð keppni var milli Verk-
menntaskólans á Akureyri og Pjöl-
Fjölbrautaskóli Suðumesja sá um
framkvæmd mótsins og afhenti
Gunnar Jónsson formaður íþrótta-
ráðs sigurvegurunum verðlaunin.
Þeir nemendur sem vom lengst að
Morgunblaðið/Björn Blöndal
komnir, svo sem nemendur í Verk-
menntaskóla Akureyrar og Fjöl-
brautaskóla Vesturlands, gistu í
Fjölbrautaskóla Suðumesja móts-
dagana. gB
Sigurvegarar í
karlaflokki í
Framhalds-
skólamótinu í
knattspyrnu
1988, Mennta-
skólinn við
Sund sem sigr-
aði Fjölbrauta-
skóla Breið-
holts í úrslita-
leik.
brautaskóla Breiðholts í kvenna-
flokki og sigraði FB 2:1 í innbyrðis-
viðureign liðanna og tryggðu stúlk-
umar úr Breiðholtinu sér þar með
sigur í mótinu.
UNDRUN
Vissi fyrst við fæðinguna
að hún væri barnshafandi
Lengst til hægri á myndinni er Samantha, á áttunda mánuði
meðgöngunnar.
Kvöld nokkurt þegar Samantha
Bland lagðist til hvíldar fékk
hún uggvænlega „magaverki".
Henni bauð ekki í gmn hvað koma
skyldi. Stuttu eftir að móðir hennar
hafði kallað á lækni tiikynnti hann,
öllum til mikillar furðu, að á hverri
stundu væri von á bami í heiminn.
Hvorki Samantha né nokkur í fjöl-
skyldunni vissi að hún væri bams-
hafandi.
Samantha sem er aðeins átján
ára gömul segir sjálf að hún hafi
ekki haft minnstu hugmynd um að
hún gengi með bam. Hún hafði
haft á klæðum allan meðgöngutím-
ann, hún hafði gengið til læknis
vegna mígrenis og ýmsar blóðpmf-
ur verið teknar tii rannsóknar. Hún
fór í þungunarpróf, þá gengin
nokkra mánuði með bam sitt, en
það reyndist neikvætt! Læknir einn
taldi hana þjást af þunglyndi og
gaf henni róandi lyf. Hún hafði
verið vömð við að þyngjast vegna
lyfsins og kippti sér þess vegna
ekki upp við það, þar eð aukakíióin
komu ekki einungis á hana miðja.
Lyfið sem hún notaði gerði það að
verkum að hún fann ekki hreyfing-
ar fóstursins og vegna lyfsins varð
bamið mjög kyrrt í móðurkviði.
Annette, móðir Samönthu, segir
að sig hafí gmnað hvers kyns væri,
en hins vegar hafí hún tekið orð
dóttur sinnar góð og gild. Hún hafði
og trúað lækni þeim sem taldi þetta
fráleitan möguleika, þungunarpróf-
ið hefði verið neikvætt. Fyrr um
nóttina þegar Samantha ól bam
sitt hafði móðirin því talið þetta
vera nýmakast. „Ég sá þó fljótlega
hvers kyns var en þorði ekki að
segja Samönthu frá því, svo ég
beið eftir lækninum" segir Annette.
Faðir Samönthu bætir við: „Þetta
var mikið áfall, hún leit ekki út eins
og bamshafandi kona“.
Faðir bamsins trúði ekki sínum
eigin eyrum er fréttin barst honum.
Þau höfðu slitið sambandi um það
ieyti sem hún varð barnshafandi
en hafa tekið upp þráðinn að nýju.
Búa þau nú saman með Dean litla
sem er hraustur og heilbrigður
drengur. Hann slapp vel þrátt fyrir
að móðirin hefði verið á róandi lyij-
um og þar að auki unnið erfiðis-
vinnu á meðgöngutímanum.
Nú er hún eins og hver önnur
hamingjusöm móðir. Hún segir:
„Sumum vinkonum mfnum fínnst
ég hafa eyðilagt líf mitt, en ef þetta
hefði ekki hent mig, ætti ég ekki
yndislegasta son í heimi. Fyrir mér
er hann kraftaverk, dýrmætari en
allt annað".
Graham Barker ráðgefandi sér-
fræðingur fæðingarstofnana í Bret-
iandi segir slík tilvik vera algengari
en menn gruni. Það væri möguleiki
að konur hefðu á klæðum þótt þær
væru barnshafandi og það gæti villt
fyrir. í öðru lagi gætu þungunar-
próf verið neikvæð vegna breytinga
á HCG hormónum og eftir tuttug-
ustu viku verði að nota sónar til
þess að skoða legið sjálft til stað-
festingar á þungun. í þriðja lagi
þyngjast konur mismikið og sumar
bera ekki með sér lengd með-
göngunnar. Sjálfur segist hann
hafa séð konur sem eftir útliti að
dæma virtust gengnar fáa mánuði
með barn sitt en í Ijós hefði komið
að þær væru komnar alit að fæð-
ingu. Hann vissi til að mynda um
eina óvænta tvíburafæðingu!
Þær eru sem sagt fleiri en Sam-
antha Bland sem geta vaknað upp
við siíkan draum.
„ÞARFASTI ÞJÓNNINN“
E ru hundar
að verða „þar-
fasti þjónninn“
á heimilinu? Af
þessari mynd að
dæma kemur
hundurinn að
minnsta kosti í
gúðar þarfir
sem burðardýr
og barnfóstra
og virðist fara
vel um litla
manninn í pok-
anum þeim
arna.