Morgunblaðið - 12.11.1988, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1988
5ð-
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Ætti að svipta handbolta-
félögin öllum styrkjum
Karl Þórðarson, Hátúni 10,
Reykjavík, hringdi:
„Ég er ægilega skúffaður yfir að
Stöð tvö hefur fengið einkarétt á
handboltanum í vetur. Ég er ör-
yrki og hef ekki efni á að kaupa
afruglara fyrir 14-15 þúsund
krónur og borga afnotagjald þar
að auki. Mér finnst það vera al-
gjör viðbjóður af forráðamönnum
handboltans að taka allan hand-
bolta og setja á Stöð tvö. Það
ætti að svipta handboltafélögin
öllum styrkjum sem þau fá frá
ríkinu úr því að þau svikja okkur
svona. Ég hef ákaflega gaman
af handbolta og vil fá að sjá leik-
ina í sjónvarpinu mínu, þess vegna
er ég ægilega svekktur yfir þessu.
Það var ekki rétt að gera þetta."
Góð grein
Steinun Ólafsdóttir hringdi:
„Ég er mjög sammála Sigurði
Þorbjarnarsyni sem skrifaði
greinina Um óskáld og óljóð er
birtist í Morgunblaðinu 8. þ.m.
Við lestur greinarinnar datt mér
í hug vísa eftir K.N. úr kvæða-
safni hans Kviðlingar og kvæði,
er út kom 1945. Vísan er þannig:
Vor yngri kynslóð yrkir nú í prósa,
eins og skáldin fyrr, á dögum
Mósa
rímlaust bull í ræðuformi þylur
í rósamáli, sem að enginn-skilur.
Góður sjónvarpsþáttur
G.G. hringdi:
„Ég vil þakka Ríkissjónvarpinu
fyrir frábæran þátt, Á því herrans
ári 1968 í umsjón Eddu Andrés-
dóttur og Árna Gunnarssonar.
Þetta var mjög skemmtilegur og
líflegur þáttur. Ég vil mótmæla
því harðlega sem Geir H. Haarde
segir um skattamálin því ég tel
að þeir sem hafa hærri tekjur en
150 þúsnd krónur á mánuði eigi
að greiða hærra hlutfall af þeim
til samneyslunar en lágtekju-
menn.“
Bókasafh Kópavogs -
góð þjónusta
Anna hringdi:
„Ég vil þakka fyrir mjög góða
þjónustu hjá Bókasafni Kópavogs
og ekki síst á lesstofu safnsins.“
Hundaklippur
Gullfiskabúðin í Fischersundi
lánaði í byijun nóvembermánaðar
hundaklippur en láðist að taka
niður símanúmer. Er viðkomandi
beðinn að skila þeim í búðina.
Tvö reiðhjól
Rautt og hvítt telpuhjól fannst
í Vesturbæ fyrir nokkru og blátt
drengjahjól á Seltjamamesi. Upp-
lýsingar í síma 24977 eftir kl. 18.
Silfurhringur
Silfurhringur með stómm
hvítum steini tapaðist í febrúar
eða mars. Finnandi eru vinnsam-
legast beðinn að hringja í Anne í
síma 91-23799.
Hrokafull ummæli
Hörður hringdi:
„Ummæli Sigurðar Tómasson-
ar, sem er í forsvari fyrir fyrstu-
deildarliðin í handbolta, í dægur-
málaútvarpinu fyrir sÆömmu
komu mér mjög á óvart. Verið
var að spyija Sigurð um nýgerða
samninga við Stöð 2 og sagði
hann þá eitthvað á þá leið að
íþróttahreyfíngin skuldaði al-
menningi ekkert, það væri al-
menningur sem skuldaði íþrótta-
hreyfingunni. Ég veit ekki betur
en að ríki og bæjarfélög styðji
íþróttahreyfinguna og svo styður
almenningur hana með því að
kaupa happadrættismiða, fjarka
o. fl. Þessi ummæli Sigurðar eru
hrokafull og ekki til þess fallin
að hvetja fólk til frekari stuðn-
ings.“
Steingrímur, stjórnaðu nú
Suðurnesjamaður hringdi:
„Steingrímur Hermannsson og
Framsóknarflokkurinn voru með
háværa gagnrýni á síðustu ríkis-
stjóm og þá sérstaklega Þorstein
Pálsson varðandi stjómleysi.
Steingrímur talar íjálglega um að
ríkisstjómir séu til að stjóma og
hótar að eyðileggja allan grund-
völl sparifjármyndunar í landinu
með handstýringu á vöxtum og
fölsun á lánskjaravísitölu, þvert
ofan í aðvaranir færustu manna.
Eftir að heyra og sjá valdsmann-
inn Steingrím Hermannsson í
sjónvarpi þegar þessi mál em til
umræðu eigum við Suðumesja-
menn að trúa því að hann geti
ekki stjómað tveimur þingmönn-
um framsóknarflokksins í
Byggðastofnun ásamt Samvinnu-
hreyfínguni varðandi sölu á tveim-
ur togurum Hraðfrystihúss
Keflavíkur ásamt kvóta. Er ekki
hér á ferðinni dæmigerður
tvískinnungur Framsóknarmanna
sem ætíð em opnir í báða enda?“
Hvalveiðimálið:
Yfirgengileg þrjóska
Til Velvakanda.
Dæmalaust getur þijóska hval-
veiðisinna verið yfirgengileg. Þama
hamast þeir við að veija rangan
málstað, og að því er virðist í þeim
tilgangi einum, að áfram verði hald-
ið í friði að murka lífið úr stór-
hvelum þeim, sem koma upp að
landi okkar sem gestir á vissum
tímum árs. Og veiðar þessar em
þjóð okkar til alls einskis gagns,
því hvalkjötsijöll hrúgast upp, og
halda áfram að vera óseld og óétin
og verða loks urðuð í fyllingu
tímans.
Og hver er tilgangurinn með
þessu offorsi? Hann virðist helst
vera sá, að halda uppi reisn þjóðar-
innar, að sögn landsfeðranna, þótt
enginn heilvita maður geti skilið
þau rök. Heiður þjóðarinnar út á
við skal byggjast á hvalveiðum,
hvað sem hver segir. Er heil brú í
þessum málflutningi?
Einn sem ekki skilur.
Ykkur öllum, börnum mínum, frœndum, vin-
um, sveitungum, sóknarnefnd aÖ ógleymdum
blessuÖum karlakórnum Stefni, þakka ég af
alhug fyrir gjafir, skeyti, söng og alla gleÖina
og ylinn sem þiÖ veittuÖ mér á nírœÖisaf-
mcelinu mínu 2. nóvember sl.
GuÖ blessi ykkur öll.
Halldóra Jóhannesdóttir
frá Mosfelli.
ERT ÞU I VANDA
VEGNA VÍMU ANNARRA?
•v/
Afleiðingarnar geta komið fram með ýmsum hætti í
líðan þinni:
• Erfitt að tjá tilfinningar
• Erfitt að taka sjálfstæðar ákvarðanir
• Skortur á sjálfstrausti
• Skömmustutilfinning og sektarkennd
• Kvíði og ótti
Nánari upplýsingar í fjölskyldudeild Krýsuvíkursam-
takanna, Þverholti 20, sími 623550.
Námskeið í gangi. Viðtalstímar á fimmtudögum.
JÉLkrýsuvíi
KURSAMTOKIN
/ONl
Sundlaugavegi 34
Símar 687464 og
681616
DANSKENNSIA
Gömlu dansarnir á mánudögum kl. 21-23.
Verð kr. 400 hvert kvöld.
14. nóv. Rælar, polki og stjörnupolki.
21. nóv. Skottís, Óli skans og Kátir dagar.
28. nóv. Vínarkruss, skoski dansinn og
Tennessee-polki.
5. des. Mars, vals og marzurka.
12. des. Tyrolavals og hopsa, Svensk
maskerade, Hambo.
Þjóðdansar á fimmtudagskvöldum kl.21.
17. nóv. Dansarfrá Balkanlöndum.
24. nóv. Dansarfrá Skotlandi.
1. des. Dansarfrá ísrael.
8. des. Dansar frá Ítalíu.
Munið kynningarkvöldið
(gömlu dansarnir) 2. des. kl. 21 -01
Allir velkomnir
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
r
Gott „Rabb“
Kæri Velvakandi.
Þessar línur hripa ég fyrst og
fremst til að þakka Magnúsi Þórðar-
syni fyrir hans prýðilega „rabb“ í
Lesbókinni 22. september. Ég er á
þeim aldri er fæstir áttu kost á
menntun, umfram bamaskóla, en
kennarar þeirra tíma lögðu rækt við
málkennd bama, sem búa að slíku
ævilangt. Er ég hugsa til baka finnst
mér hinn lítt menntaði almenningur
hafi bæði talað betra og réttara mál
en margir menntaðir fjölmiðlamenn
nútímans.
Það er hörmulegt að hlusta á orð-
færi margra þeirra er fram koma í
fjölmiðlum, bæði orðfæð, endurtekn-
ingar og latmæli.
„Rabb“ Magnúsar er með því allra
besta af þeirri tegund. Þá er „rabb“
Gísla Sigurðssonar oft þörf ádrepa.
Freyja
jjVÍLD ARST ÓLAR
VEGGEININGAR
hornsóear eetir
MÁLI
— vönduð vinna.
Falleg húsgogn
ki. 10-17
opið laugardag k • .
og sunnudag kl. 1
Lítið inn og Skoðið úrvalið.
húsgögn