Morgunblaðið - 13.11.1988, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.11.1988, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 Vantar... Galdrabrenna gjaldþrots Hafskips Hann heldur treglega áfram: „Flokkurinn lét ákaflega lit þegar þeir hættu Lúðvík og Magnús Kjart- ansson. Flokksgerðin breytist mjög mikið, en hafði lengi verið að þró- ast. Þama eru nú sjálfkjömir post- ular, sem elska verkalýðinn út yfír allt, að því tilskyldu að verkalýður- inn geri ekkert nema að þeirra fýrir- sögn. Þeir sem ekki fara að vilja þeirra em úthrópaðir sem svikarar og glæpamenn og setið um að reyna að rakka af þeim æruna og mann- orðið. Þetta er ógæfuþróun og ég held hún sé lengra komin en hjá krötunum eftir að þeir höfðu tapað Héðni. Þeir eru búnir að ná sér upp úr þessu núna.“ Hann segir að lengi hafí verið setið um sig. „Þjóðviljanum tókst að gera mig að aðalsöguhetju gjald- þrots Hafskips og reyndi að hengja það saman við afskipti mín af verkalýðsmálum. Það sem þeir ekki þorðu að setja í Þjóðviljann, skrif- uðu ritstjóramir sjálfir í Helgar- póstinn. Maður upplifir stundum ákafíega einkennilega hluti. Maður upplifir að menn sem maður hefur álitið vini sína og félaga eru komn- ir með hnífinn í bakið um leið og þeir halda að þeir geti drepið mann. Ég neita því ekki að í þessari galdrabrennu allri, gekk yfir mig að Þjóðviljinn einn blaða spurði aldrei um mína afstöðu heldur dæmdi út frá upplognum forsendum Helgarpóstsins og lagði sig fram um að ekkert kæmi fram um raun- verulegar staðreyndir málsins. Sögðu meðal annars að upplýsingar hefðu komið fram við yfirheyrslur, sem aldrei komu þar fram, eins og að forstjóri Hafskips hefði lýst því yfir að ég hefði verið góð fjárfest- ing. Þegar ríkissaksóknari hafði að undangenginni rannsókn lýst því yfir að allar þessar ásakanir væru tilhæfulausar og ég væri alveg sýkn af þeim ákærum sem á mig voru bomar, þá birti Þjóðviljinn ekki fréttina. Þetta er ákafiega djúpt sokkið og það getur verið ákaflega sárt að reyna „vini“ sína að því að leggja manni hnífi í bakið." Réttlátara þjóðfélag „Ég vildi ekki fara úr flokknum fyrr en eftir kosningar, þó ég yæri löngu búinn að ákveða að segja mig úr honum. Ég gaf ekki kost á mér til þingmennsku og hefði sjálf- sagt tapað prófkjöri þar, því fylgi mitt innan flokksins síðustu árin sem ég var í honum var ekki mik- ið. Ég vildi ekki valda flokknum tjóni og ég kaus hann, þrátt fyrir að það stríddi mjög gegn samvisku minni. Eftir að búið var að mynda sfðustu ríkisstjóm þá sagði ég mig barahægt og kurteislega úr flokkn- um. í Alþýðubandalaginu, og ég vil taka það skýrt fram, er mikið af góðu fólki og það er algjör misskiln- ingur að þar séu óþokkar upp til hópa. Og meðal kjósenda flokksins er mjög mikið af góðu fólki. Þar á ég marga vini og kunningja sem ég met mjög mikils. Ég hef ekki látið persónuhatur ná tökum á mér og hef nú látið þessa menn ótrúlega mikið í friði, þó ég gæti upplýst ýmislegt um þá ef ég kærði mig um. Ég tel mig ekki hafa fallið frá mínum skoðunum, sem eru ákaf- lega svipaðar og þær voru þegar ég gekk í flokkinn og í Dagsbrún 16 ára gamall. Um jafnrétti og bræðralag verkafólks og réttlátara þjóðfélag. Ég ætla ekki að styðjast við Alþýðubandalagið sem flokk í þeirri baráttu og ég ætla ekki að venda minni verkalýðshyggju eftir fyrirsögn Þjóðviljans." — Sérðu frekar samherja í Al- þýðuflokknum? „Ég hef lengi vonað að verka- lýðssinnað fólk í Alþýðubandalag- inu og Alþýðuflokknum næði hönd- um saman. Ef svo yrði kæmi einnig mikið af góðu og verkalýðssinnuðu fólki úr Sjálfstæðisflokknum. Þá væri aflið komið, en vonir verða ekki alltaf að veruleik." 44. flokksþing krata: 'ASKÝRING Umskipti í forystusveitinm eftir Agnesi Bragadóttur TALIÐ er næsta víst að Jó- hanna Sigurðardóttir, vara- formaður Alþýðuflokksins muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs á 44. flokksþing- inu sem hefst á Hótel íslandi næstkomandi föstudag og stendur fram á sunnudag. Jaínframt er öruggt að ritari flokksins, Ami Gunnarsson og gjaldkeri flokksins, Geir Gunnlaugsson gefa ekki kost á sér á nýjan leik. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður flokksins verður líklega einn eftir af gamla forystuliðinu. Allir munu sammála um að hann verði endurkjörinn sem formaður. Hann er áfram óumdeilanlega foringi flokks- ins, þrátt fyrir einhverjar gagnrýniraddir. Fátt bendir til þess að til átaka muni -korna á þessu flokks- þingi eða að til tíðinda dragi. Jón Baldvin mun ef að líkum lætur sæta einhverri gagnrýni, m.a. fyr- ir það að vera of einráður. Ákveðnir kratar telja að skýra megi ákvörðun Jóhönnu um að hætta varaformennskunni með því að hún sé ekki alls kostar ánægð með samstarfið við form- anninn og fóstbróður hans, Jón Sigurðsson. Aðrir segja að það þurfi engum að koma á óvart, þótt hún vilji minnka við sig trún- aðarstörf á vegum flokksins. Hún hafi verið á þingi í 10 ár og vara- formaður í 4 ár. Annir hennar sem ráðherra, þingmanns og móður séu hreint ótrúlegar. ,Það er út í hött að reyna að búa til einhvem ágreining úr því að ég íhugi þann möguleika, að Ekki hróflað við völdum Jóns Baldvins Næsta víst að Jóhanna hættir sem varaformaður Guðmundur Arni Stef- ánsson o g Rannveig Guð- mundsdóttir nefiid Rannveig fækka eitthvað við mig þeim mörgu trúnaðarstörfum sem ég gegni fýrir Alþýðuflokkinn," segir Jóhanna. Hún segir jafnframt: .Auðvitað geta verið skiptar skoð- anir innan Alþýðuflokksins um vinnubrögð, áherslur og forgang verkefna. Ef ég á eitthvað óupp- gert í þessum efnum við formann- inn eðá aðra innan flokksins þá verðurþað bara rætt innan flokks- ins.“ í pólitískri umræðu á komandi þingi verður líklega mesta hita- málið staða flokksins með tilliti til stjómarsamstarfsins í síðustu ríkisstjórn og svo aftur nú. Þar gæti hitnað talsvert í kolunum því ákveðnir kratar em ekki sáttir við samstarfsslitin við Sjálfstæðis- flokkinn og hvernig þau bar að. Þar em fremstir í flokki gömlu, rótgrónu kratarnir, sem hafa fremur lítið til hægri í stjómar- samstarfi, en vinstri. Þessari skilgreiningu hafna flestir kratar í dag og segja að vart sé lengur hægt að tala um ólíka arma Alþýðuflokksins. Jón Baldvin er sagður hafa sameinað flokkinn í eina heild, þó vissulega vilji sumir að hann hefði ekki jafn óbundnar hendur og hann hefur við stjórnun og ákvarðanatöku. Jóhönnu og Jóni Baldvin er vel til vina, þótt stundum hafi andað köldu á milli þeirra, en það mun hafa verið málefnalegur andkuldi, þar sem Jóhanna er afskaplega málafylgin og ákveðin þegar hún er að berjast fyrir ,sínum málurn" og hefur það komið fyrir að í hana hafi fokið, og það hressi- lega, þegar formaðurinn hefur ekki verið sama sinnis og hún um hveijar helstu áherslurnar skyldu vera, eða hver yrði forgangsröð íjárfrekra verkefna. Kratar vilja ekki staðfesta að Jóhanna ætli að hætta varafor- mennskunni, en telja það næsta ömggt. Jón Baldvin hefur reynt að fá hana ofan af þeim ásetn- ingi, svo og konur í Alþýðuflokkn- um. Óvíst er hverjir munu berjast um varaformennskuna, verði Jó- hönnu ekki hnikað, en helst hafa GuðmundurÁmi Stefánsson'bæj- arstjóri i Hafnarfirði og Rannveig Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður Jóhönnu (áður bæjarfulltrúi í Kópavogi) verið nefnd til sögunn- ar. Hvomgt mun gefa kost á sér, ef Jóhanna hættir við að hætta, og afstaða Rannveigar er talin ráðast af því með hvaða hætti Jóhanna mun skýra ákvörðun sína um að gefa ekki kost á sér. Er talið ólíklegt að Rannyeig, eða nokkur önnur kona innan flokks- ins gefi kost á sér í embættið, ef Jóhanna lætur í Ijós að ástæðum- ar fyrir ákvörðun hennar séu fyrst og fremst óánægja hennar með samstarfið við Jón Baldvin. Jón Sigurðsson er einnig sagður geta hugsað sér starfann, en hann er ekki talinn njóta stuðnings í varaformannsembættið. Finnst mörgum kratanum sem völd hans innan flokksins og í þjóðfélaginu séu þegar næg. Verði varaformannsskipti á þinginu með friðsamlegum hætti, er talið líklegt að reynt verði að fá konu í starf ritara einnig, þann- ig að ljóst sé að konur séu ekki að verða undir í valdabaráttunni innan flokksins, hvort sem það fær svo staðist eða ekki. XXZ7 Wicanders Kork-o-Plast Sœnsk gœðavara í 25 ár. Nú ER ÞAÐ 10 ARA ÁBYRGÐ Á SUTLAGI á hlnum margviður- kenndu KORK O PIAST gólfflfsum. ÞegarÞúkaup.rKORK O PLAST þá faerðu SUTÁBYRGÐAR- SKÍRTEINI. ABYRGÐIN GILDm YFIR 14 GERÐIR K O P. HRIIMGIÐ EFTIR FREKARI UPPLÝSINGUM. KORK O PLAST er meö slitsterka vinylhúö og notað á gólf sem mikið mæðir á, svo sem á flugstöðvum og á sjúkrahúsum. KORK O PLAST er auðvelt að þrífa og þægilegt er að ganga á því. Sérlega hentugt fyrir vinnustaði, banka og opinberar skrifstofur. KORK O PLAST byggir ekki upp spennu og er mikið notað í tölvuherbergjum. KORK O PLAST fæst í 13 mismunandi korkmynstrum. EF ÞÚ BÝRÐ ÚTI Á LAIMDI ÞÁ SENDUM VIÐ ÞÉR ÓKEYPIS SÝNISHORN OG BÆKLING. Einkaumboð á Islandi. Þ. ÞORGRÍMSSON &C0 Árrriúla 29 Reykjavík sími 38640

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.