Morgunblaðið - 13.11.1988, Síða 22

Morgunblaðið - 13.11.1988, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ VEROLD/HLAÐVARPINN SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER Ármúia 29 sími 38640 Þ. ÞORGRIMSSON & CO Armstrong LOFTAPLÖTUR Kork*o*Plast gólfflísar ABHAPLAST EINANGRUN FESTINGARJARN FYRIR BURÐARVIRKI —nur—r PAG sólbekkir sturtuklefi með rennihurðum Hentar vel ef þú vilt gjörnýta plássið í bað- herberginu. Daufgrænt gler i álrömmum; hvítur botn. Traustur og þéttur klefi sem auðvelt er að setja upp. Tvær stærðir: 80x80 eða 70x90 sm. Hæð 2 m. Komdu við hjá okkur ef þú ætlar að breyta baðherberginu. \J VATNSVIRKINN HF. ~ ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966 LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 - 673416 Túristi íParis- um stund „Viva la rentrée.“ Slík eru einkunnarorð haustsins í París sem og víða annars staðar og er orðinu núna skeytt framan við flest í mæltu og rituðu máli. La rentrée des classes, — la rentrée des parlementair- es ... Fólkið er komið á staðinn aftur og hringrásin fer á stað, skólarnir þingið, menningarlífið, tískusýning- arnar o.s.firv. Meira að segja Christine Ockrent fréttaþul- ur og fjölmiðladrottning er mætt aftur á skermi An- tenne 2-stöðvarinnar eftir dálanga flarveru sumum til mæðu og öðrum til gleði. Borgin verður í grámósku sinni gestrisin örskamma stund og það er gott að geta verið túristi hér í nokkra daga áður en hún klófest- ir á ný og sogar mann með sér nið- ur í stresshringiðju hvunndagsins. Fýlusvipur póst- og bankastarfs- manna er horfinn og þeir gleyma um stund að kvarta og hvæsa á viðskiptavinina, en brosa þess í stað ljósleitu sumarfrísku brúnkubrosi og spyija auðmjúklega: Hvað get ég gert fýrir yður? Umferðaröng- þveitið er ekkert öngþveiti lengur og neðanjarðarlestin sem átti ekki að taka framar verður nú exótísk og þægileg, „besta leið til að kom- ast á milli staða.“ Eitthvað annað en strætó í Reykjavík! Það er gott að vera kominn aft- ur. .. Bölvuð mengunin sem búið var að blóta í sand og ösku og verður mjúk vinaleg móðumolla í haust- hlýjunni. Það er gott að vera túr- isti um stund og hlusta á og sjá aðra túrista reka upp fagnaðaróp í fljótabátnum þegar þeir sigla niður Signu framhjá Frúarkirkjunni. What a beautiful building! Lifa í París. Vera í París. Upplifa París. Ljósmynd/Henri Cartier-Bresson Haldið heim úr sendiferð á rue Moffetard. Hlusta á Dutronc syngja „II est cinq heures, Paris s’éveille" eða Greco syngja „Les feuilles mortes". Minnisbók er fyllt út með stefnu- mótum alveg fram í janúar. Pýr- amidi Peis við Louvre-safnið, „les années ’50“ og Gerouste í Pompidou senter. Allar nýju kvikmyndirnar, „les Modemes“, „le Complot“ og companí, Hausthátíðin, le festival d’automne, leikstykkin, systurnar þijár í uppsetningu Peter Stein, Tadeusz Kantor, Sami Frey, — vá allir tónleikamir og allar bækurnar og allt hitt sem ekki er nefnt vegna þess að minna fer fyrir því á síðum stórblaðanna en er engu að síður merkilegt, sjálfsagt merkilegra. Nei, er þetta þá ekki orðið sama stressið, sama rútínan, sömu hlut- imir? Hefur þá ekkert gerst? Það stendur jú í blöðunum að allir fóm burt og allir em að koma aftur. Áður en mánuðurinn er liðinn verð- ur maður sjálfsagt fallinn í gildmna og farinn að bíða eftir næsta sumri og ekkert hefur breyst. Það er gott að vera túristi í París. Umdeildur menningarviti Þegar stóreignamaðurinn Peter Palumbo var ráðinn stjórn- andi Arts Council, ráðsins sem útdeilir fiárveitingum til menn- ingar og lista í Bretlandi, tók hann fram í fréttaþætti í BBC að hann væri ekki „kjölturakki Thatchers". Palumbo gerði sér skýra grein fyrir þeirri andstöðu sem ráðning hans vakti í listaheiminum, enda hefur sljórn Thatchers verið fræg fyrir margt annað en að auka fiárstuðning til lista, heldur þvert á móti beitt sér fyrir því að þau verkefiii skyldu fá mestan styrk frá ríkinu sem einstaklingar væru fiisastir til að Qármagna. Hér var auðvitað maðk- ur í mysunni, því ef Qármálaspekúlantar töldu eitthvert leikrit of framúrstefiiulegt eða tónlist hreinlega leiðinlega þá kom peningur úr hvorugri áttinni. Þrjóskur drau- móramaður. Fró Guðrúnu Nordol í LOHDflH W' r Palumbo er fulltrúi einkageir- ans. Hann hefur látið þau orð falla að framlög frá einkaaðilum verði að styrlqa menningarlíf í landinu og að Arts Council eigi ein- ungis að vera aðili sem örvi einkaíj- árstuðninginn. Svo að þegar hann var skipaður í forystu þess risu hárin á mörgum. Palumbo erfði stórfyrirtæki föður síns, sem fluzt hafði sárfátækur frá Italíu, stækkaði það og endurskipu- lagði, svo að í stað flókins bókhalds og mannahalds áður fyrrum fær hann nú flóra feita tékka á ári. Enda segist hann stefna að einfald- leika í öllum þáttum tilverunnar, hvort sem það er í viðskiptum eða í listum. Hann hefur sýnt sérstakan áhuga á nútímalistum, og safnai listaverkum og húsum eftir braut- ryðjendur úr hópi arkitekta víða um heim. Það var einmitt áhugi hans á arkitektúr sem beindi sviðsljósinu að þessum hljóðláta manni. Hann hefur í þijátíu ár barist fyrir því að reist yrði bygging eftir Mies van der Rohe við hliðina á St. Pauls-kirkj- unni í miðborg Lundúna. Þegar Karl Bretaprins lýsti henni í ræðu sem forljótum glerhlunki var öllum vonum Palumbos hnekkt og al- menningsálitið snerist mjög gegn honum. Til- lögunni var vísað frá. Palumbo gafst ekki upp og lagði fram nýja teikningu eftir einn frægasta arki- tekt Breta, James Stirling. En henni var einnig vísað frá. Og blaðamaður einn komst svo að orði að Palumbo hefði valið sér það hlutskipti að reisa ekki byggingu. Þessi saga af þijósku Palumbos gæti samt lýst manni sem helgaði sig allan þeim draumi sem hann ætti sér og væri tilbúinn að fóma miklu svo hann rættist. Ef sá draumur yrði gróska í listalífi á Bretlandi þyrfti fjársvelt nýlistin ekki að örvænta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.