Morgunblaðið - 13.11.1988, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.11.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ VEROLP/HLAÐVARPINN SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 23 II Núfæégað velja mína vöm sjálfur, en...“ í LOK SEINUSTU aldar voru stofnuð félög víðsvegar um allt land o g á þessari öld voru enn fleiri félög stofii- uð er höfðu það að markmiði að safiia saman kröftum fólksins í sveitum landsins. Félög þessi áttu að vinna að hag sinnar sveitar, taka við afurðum sveitafólksins og sjófangaranna ýmist gegn borgun eða gegn úttekt á vörum. Víðs vegar um landið reyndust þessi félög vera bjargvættur eða vítamínsprauta fyrir byggðalög er voru á undanhaldi. Þessi félög fengu fólkið til að trúa á framt- íðina og um leið fór það að trúa á félögin. Þau voru bjargvætturinn og því bar að styðja við þau með ráðum og dáð. Þetta voru kaupfélögin sem síðan hafa fengið samnefiiara er heitir Sambandið. Það er orðið stórfélag og stóri bróðir litlu félaganna út um allt land. Fró Baldri Rafni Sigurðssyni ó Þeir sem stjóma kaupfélögun- um, kaupfélagsstjóramir, ráða því víðast hvar nokkuð miklu eða allt eftir því hversu mikið félagið á af atvinnu- og verslunarfyrirtækj- um á staðnum og hversu dóttur- fyrirtækin eru mörg. Jú, því þeir þurfa vissulega að vera stjómar- formenn þeirra fyrirtækja, eða hvað? Á Hólmavík er því þannig varið að kaupfélagið er allt í öllu og kaupfélagsstjórinn ræður næstum því öllu sem hann vill ráða. Þar er ekki aðeins átt við fyrirtækin sem kaupfélagið á heldur og líka því sem fólk lætur ofan í sig og einnig fatatísku staðarins. Samt hefur orðið breyting á þessu á þessu ári. Þannig er málum háttað hér um slóðir að kaupfélagið er eini aðilinn sem stundar verslunarr- esktur á stóru svæði. Fólkið á þessu svæði getur sem sagt ekki valið um neitt annað en að versla í kaupfélaginu, þótt mörgum finn- ist verðið þar kannski nokkuð hátt. Það er erfítt að fara á annan stað og versla því rúmir 100 km eru í næstu verslun. En þetta ástand erum við hér um slóðir búin að sætta okkur við. í sumar er leið var opnað nýtt og glæsilegt verslunarhúsnæði hjá kaupfélaginu og var fólkið mjög ánægt. Nú var eða hlaut að vera mikið betra vömúrval. Nú gat fólk farið að ráða hvað það borð- aði, hvemig það klæddi sig og hvemig hreinlætisvörur það brúk- aði án þess að kaupfélagsstjórinn þyrfti að eiga frumkvæðið. í gamla verslunarhúsnæðinu var verslunin sjálf mjög lítil. Ef fleiri en 15 manneskjur vom að versla í einu þurfti lágmark einn að stjóma umferðinni um verslunina. Það var ömggt að enginn villtist. KPOPFÍrLfXS'S - STJÖRINN SBðei HÐ Eitt var ég mjög óhress með þegar ég byijaði að versla í gömlu versluninni en það var að ég og fy'ölskylda mín skyldum ekki sjálf fá að velja hvað við borðuðum. Við vomm vön að gera það þar sem við bjuggum áður. En smátt og smátt fór ég að sætta mig við orðinn hlut. Ég gekk hugsunar- laust inn í verslunina og setti ofan í körfu mína. Þegar búið var að versla kenndi ég engra þreytu- merkja af að hugsa, allt var ákveðið fyrir mig. Einnig höfðu engar deilur risið upp á heimili mínu hvað ætti að borða, allir vom ánægðir. I vor var sem fyrr segir opnað nýtt og glæsilegt verslunarhús- næði hjá kaupfélaginu. Allir biðu spenntir að sjá hvemig nýja versl- unin reyndist. Jú, það var allt annað að versla þarna og það sem meira var, nú gátu margir verslað í einu. Einnig var hægt að tala saman þannig að næsti maður er var að versla, heyrði ekki hvað verið var að ræða um. En núna hefur komið upp vandamál, alla- vegana á mínu heimili. Við vomm orðin svo vön því að allt væri ákveðið fyrir okkur og alveg búin að sætta okkur við þessa stað- reynd. Núna spytjum við okkur: „Hvað skal kaupa í matinn?“ Núna á fjölskylda mín og ná- grannar að velja sjálf svo ekki sé nú talað um þá ómældu orku er fer í að rölta um hina nýju verslun kaupfélagsins og að hugsa um hvað eigi nú að kaupa. Ég er núna kominn á þá skoðun að aldrei hefði átt að koma svona nýtt og glæsilegt verslunarhús- næði hér á staðnum, þótt í upp- hafi hafi ég fagnað því af mikilli áfergju ásamt fjölskyldu minni og nágrönnum, að ný og stór verslun leysti þá gömlu af hólmi. Ég held þrátt fyrir allt að betra sé að kaupfélagsstjórinn ráði hvað ég borði og hvaða tísku ég aðhyllist til þess eins að halda friðinn á heimili mínu. Það var svo gott að skjóta sér á bak við breitt bak kaupfélagsstjórans þegar bömin fóm að kvarta yfír matnum, því þá sagði ég aðeins: „Hann ákvað þetta.“ Að lokum langar mig að geta um eitt atvik er gerðist þegar ég og fjölskyldan fómm að versla í stórversluninni okkar. Það var • hræðilegt. Eitt af bömunum mínum týndist og það tók langan tíma að leita að því og ég tala nú ekki um orkuna er fór til spill- is við leit þessa. Við urðum að borða meira. Þetta hefði aldrei gerst í gömlu matvöruverslun kaupfélagsins. Ó, þar var svo gott að versla. Borgarnes. Horft úr „kínahverfinu" niður í Skallagrímsgarð og Kveldúlf- svöll. Næstu húsin heita'Dalur og Litli-Dalur, sem nú er búið að rífa. Fjær er _kirkjuholtið“ og lengst til hægri er gmnnskólinn. í lífi ogstarf i Enn um borgf irska lensku frá landnámi Fró Theodór Þórðarsyni í BORGARNESI Þá er komið að þeim sem greind- ir em frá nöfnum sínum með starfsheiti eða viðumefni tengd starfsgreininni. Skyr-Geir var mað- ur nefndur sem heitir Geir og vann í mörg ár í Mjólkursamlagi Borg- firðinga og lagaði skyrið. Annar Geir var nefndur Geiri á hótelinu á meðan hann var hótelstjóri og síðan í langan tíma þar á eftir. Þriðji Geirinn er nefndur Geiri bakari en hann á Geirabakarí í Borgamesi. Jón heitir maður sem vann í kjötbúð kaupfélagsins, hann var alltaf kall- aður Jón í kjötinu. Þá hefur Einar málari verið nefndur sem slíkur til aðgreiningar frá nöfnum sínum og eins er með Einar smið. Um Einar smið orti SVl M. Eiðsson eftirfar- andi vísu og flutti á árshátíð kaup- félagsins fyrir rúmum áratug: Einar smiður neglir niður nú af kappi. Hans eru verkin víða vönduð, sum eru strönduð, en önnur önduð. Undirritaður hefur verið nefndur Teddi lögga til aðgreiningar frá nafna sínum, Tedda rafvirkja, sem býr í sömu götu, en það hefur ekki nærri alltaf dugað. Vegna nálægðar okkar nafnanna hefur oft orðið mglingur á bréfum og öðmm út- burði á milli okkar. Mesta ruglið var þó þegar húsnæðismálastjóm- arlán Tedda rafvirkja var lagt inn á hlaupareikning Tedda löggu. Ég var síðan svo vitlaus að láta spari- sjóðinn vita af þessari misfærslu í stað þess að skella mér með fjöl- skylduna út til Spánar, en það er allt önnur saga. En meira um starfsheitin, við höfum Gunnar slát- urhússtjóra, Rúnar sýslumann, Friðjón sparisjóðsstjóra, Guðmund skólastjóra og Hauk rakara. Hauk- ur hefur einnig verið nefndur Rauk- ur hakari. Kom það til hér um árið þegar upp kom sú tíska að snúa útúr nöfnum og nafngiftum. Á þeim tíma heyrðust einnig „snúningarn- ir“ fræbúðingar á búfræðingar og Spari Bauks á Ari Hauks. Refsstaðir ekki alltaf Refsstaðir Þessi saga er frá því fyrir hita-' veituvæðinguna í Borgamesi. Mað- ur einn í Borgamesi þótti klókur i viðskiptum og var því nefndur Rebbi og hús hans í framhaldi af því nefnt Refsstaðir. Eitt sinn varð olíulaust hjá honum og hringdi hann þá á olíustöðina og bað afgreiðslu- manninn þar um að fá fyllt á tank- inn hjá sér. Afgreiðslumaðurinn kallaði þá til olíubílstjórans að það væri olíulaust á Refsstöðum. Olíubflstjórinn ók þá þegar sem leið lá upp að bænum Refsstöðum í Hálsasveit sem er um 50 km frá Borgamesi. Bóndinn þar kom auð- vitað af fjöllum varðandi olíuleysi á þeim bæ. Afgreiðslumaðurinn á- olíustöðinni hefur líklega fengið á baukinn þegar bílstjórinn kom til baka. Nú er tilvalið að flytja jólin til Mallorka. Jólastemningin er ekki síðri þar en heima. Vöruúrvalið er meira en þú átt að venjast, svo ekki sé minnst á lágt vöru- verð. Sláðu til og njóttujól- anna í góðu veðri og fallegu umhverfi. fs- lensk fararstjórn. ' Gististaðir: Royal Playa de Palma Royal Cristina Umboó a lsiand< lyrit OINERS CLUB INTERNATIONAL FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARUÚSINL HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.